Morgunblaðið - 02.05.2004, Side 60

Morgunblaðið - 02.05.2004, Side 60
60 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Kl. 4. Með ísl tali KEFLAVÍK Kl. 2 og 4. Með ísl tali KRINGLAN kl. 12, 2, 4 og 6. Með ísl tali F r u m s ý n d e f t i r 5 d a g a Fyrsta stórmynd sumarssins ÁLFABAKKI Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.10. B.i.16 ára ÁLFABAKKI Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.10. Mögnuð mynd byggð á sönnum arburðum. Með Orlando Bloom (Lord of the Rings, Pirates of the Caribbean), Heath Ledger (A Knight’s Tale), Naomi Watts (The Ring), og Óskarsverðlaunahafinn Geoffrey Rush (Shine). Með L i ndsay Lohan úr Freaky Friday Frábær gamanmynd um Dramadrottninguna Lolu sem er tilbúin að gera ALLT til að hitta „idolið“ sitt! FRUMSÝNING FRUMSÝNING EINNIG SÝND Í LÚXUS VIP Í ÁLFABAKKA KL. 5.50, 8 OG 10.10. B.I. 16 ÁRA. FRUMSÝNING HÁDE GISBÍ Ó KL. 12 Í SAMB ÍÓUNU M KRING LUNN I 400 K R. FYRIR ALLA! ÁLFABAKKI Sýnd kl. 4 og 6. Með ensku tali / kl. 2 og 4. Með ísl tali Með íslensku og ensku tali Sýnd kl. 8 og 10.05. B.i. 16. Sýnd kl. 2.45 og 8. „Stórkostlegt kvikmyndaverk“ HL. MBL  SV. MBL Sýnd kl. 3 og 6. F r u m s ý n d e f t i r 5 d a g a Fyrsta stórmynd sumarssins VG. DV ÓHT Rás 2 Sýnd kl. 10.20. Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15Sýnd kl. 5.45, 8 og 10.15. B.i. 16. Í SNERTINGU VIÐ TÓMIÐ Sýnd kl. 3, 5.30, 8 og 10.30. B.i. 12 ára.Sýnd kl. 3 og 5. Með ísl tali Það er óralangt síðan ég sá jafn skelfilega grípandi mynd. Án efa ein besta myndin í bíó í dag. KD, Fréttablaðið SKONROKK HJ MBL J.H.H Kvikmyndir.com Valin besta breska myndin á BAFTA verÐlaunahátíÐinni „Þetta er stórkostlegt meistaraverk“ ÓÖH, DV Sýnd kl. 3. Með ísl tali Mögnuð mynd byggð á sönnum arburðum. Með Orlando Bloom (Lord of the Rings, Pirates of the Caribbean), Heath Ledger (A Knight’s Tale), Naomi Watts (The Ring), og Óskarsverðlaunahafinn Geoffrey Rush (Shine). FRUMSÝNING FRUMSÝNING Whale Rider Það eru 4 leiðir inn í Drekafjöll, en það er ekki allt sem sýnist! Frábær fjölskyldu og ævintýramynd Með íslen sku tali …með 105 verslanir, veitingastaði og kaffihús David Bowie Það er óþarfi að orðlengja neitt um þennan meistara. Hann er í miklu stuði um þessar mundir og síð- ustu tvær plötur, Heathen og Real- ity, eru feikisterkar. Pixies Verðandi Íslandsvinir og ein dáð- asta nýbylgjusveit allra tíma. End- urkoman er víst að ganga upp (hjúkk!) og því öllum óhætt að setja sig í tilhlökkunarstellingar. AÐ vanda er ógrynni af tónlistar- mönnum á Hróarskeldu og eins og alltaf er breiddin gríðarleg. Rétt fyr- ir þessa helgi bætist verulega í hóp- inn og því tímabært að gera grein fyrir því helsta þar sem búið er að bóka um 150 atriði. Enn er þó eftir að bæta við nöfnum en aðstandendur hafa það fyrir sið að birta bókuð nöfn smátt og smátt. Um tveimur vikum fyrir hátíð hrúgast restin svo inn og þá vanalega glás af „stórum“ nöfn- um. Og eins og sést í fyrirsögninni eru risarnir þegar orðnir nokkrir. En kíkjum á nokkra listamenn sem sannarlega er þess virði að leggja sig eftir í ár. Íslenskir listamenn Tveir Íslendingar hafa verið bók- aðir. Gísli „norski“ er á góðri siglingu um þessar mundir en á næstu vikum kemur fyrsta breiðskífa hans út á vegum E.M.I. Þá mun Ozy spila, raf- tónlistarmaður sem á ættir að rekja til Thule-gengisins en gerir nú út frá Kaupmannahöfn. Þá má geta þess að náfrændi okkar frá Færeyjum, Teit- ur, mun spila. Hann er eins og Gísli á mála hjá stóru fyrirtæki (Universal) og leikur söngvaskáldatónlist að hætti Damien Rice, Ed Harcourt og slíkra. Morrissey ... snýr aftur! Nú eru liðin sjö ár frá síðustu breiðskífu hans (Malad- justed) en eins og allir vita leiddi hann hina gullvægu Smiths á níunda áratugnum. Og glæný plata frá hon- um væntanleg í maí. Spennandi mál. Korn Aðrir verðandi Íslandsvinir sem verða á fleygiferð út þetta árið að kynna spánnýja plötu, Take A Look in the Mirror. Franz Ferdinand Skemmtilegt og list- rænt!? Þessi frábæra ný- bylgjusveit frá Glasgow á hiklaust eina af betri plöt- um þessa árs. N*E*R*D Pharrell Willams og Chad Hugo (Neptunes) leiða þetta band. Einstak- ur rokk/rapp/fönkgraut- ur. Ný plata, Fly or Die er nýkomin út. Wu-Tang Clan Vogatangaklíkan hefur verið í hléi undanfarið en ætlar eitthvað að verða á ferðinni í sumar. Áhrifa- mesta rappsveit síðustu tíu ára þar sem snillingar eins og RZA, GZA, Method Man, Raekwon og Ghostface Killa fara mikinn. Og auðvitað Old Dirty Bastard, ekki má gleyma hon- um! The Shins Ein af umtöluðustu nýbylgjusveit- um samtímans. Á að baki tvær meistaralegar plötur, Oh, Inverted World (’01) og Chutes Too Narrow (’03). Broken Social Scene Það vantar ekki framboðið á litlum en mjög svo umtöluðum og lofuðum nýbylgjuböndum. Plata Broken Social Scene, You Forgot It In People, var eitt það allra besta sem út kom árið 2002. Hatebreed Harðhausarnir geta m.a. leitað til Meshugga og Morbid Angel í ár en einnig á náðir þessa pottþétta „met- al-core“ bands. Það gerist ekki mikið öflugra. Joss Stone Sautján ára söngkonuundur frá Bretlandi sem getur sprengt gler og brætt hjörtu með ótrúlegri sálar- rödd sinni. Wire Áhrifamesta (besta?) síðpönk- sveitin sneri aftur með glæsibrag ár- ið 2000 og sendi frá sér hina mjög svo góðu Send í fyrra. Dizzee Rascal Efnilegasti rappari Breta í dag og núverandi handhafi Mercury-verð- launanna. Von Bondies Líklega frægust fyrir það að söngvarinn var laminn af Jack White úr White Stripes. Kannski voru bar- smíðarnar vegna þess að Von Bond- ies hafa verið að gera sig líkleg til að stela drullurokkskrúnunni af White- systkinunum. Og einnig … Aðrar athyglisverðar sveitir/lista- menn eru t.d. Fatboy Slim, Lali Puna, Kings of Leon, !!!, Jamie Lid- ell, Wire, Cheik Lo, Zero 7, Luke Vibert, TV on the Radio, Swan Lee, Under Byen, Scissor Sisters, Sant- ana, Muse, Michael Franti & Spear- head, The Matthew Herbert Big Band, DJ Krush, I Am Kloot, The Hives , Thomas Dybdahl , Dropkick Murphys, Graham Coxon, Karl Bart- os, Basement Jaxx og Audio Bullys. Hróarskelduhátíðin – 1. til 4. júlí Bowie, Korn, Morrissey, Pixies … N*E*R*D. Pharrell Williams (lengst til hægri) er framsæknasti upptökustjóri heims í dag. Gísli. Það er allt að gerast hjá honum um þessar mundir. Franz Ferdinand. Skotarnir kunna þetta! Bowie. Eilíft kamelljón sem virðist ekki geta elst. Miða er hægt að nálgast í gegn- um eftirfarandi vefsíður. www.roskilde-festival.is www.roskilde-festival.dk arnart@mbl.is Frægasta tónlistar- hátíð heims, Hróars- kelda, brestur á eftir ca. tvo mánuði. Arnar Eggert Thoroddsen spáir í það sem í boði er þetta árið.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.