Morgunblaðið - 02.05.2004, Qupperneq 34

Morgunblaðið - 02.05.2004, Qupperneq 34
SKOÐUN 34 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ EKKI fer hjá því á langri ævi að einhvers konar kaflaskil séu tengd lífsgöngu okkar, sem geta verið misvitur og haft ólíkar, margflóknar afleiðingar í för með sér hvort heldur þær eru jálægar eða neilægar. Ég held að það sé nokkuð ljóst að ef okkur um tíma hefur skrikað fótur og við höfum af ýmsum ástæðum vikið af þröng- um vegi dyggðarinnar inná breiðan veg hvers kyns bölvunar og vesens, þá er það örugglega ekki lyfti- stöng sem við kjósum að flagga né sýna öðr- um seinna meir þegar okkur tekst að komast aftur á beinu braut- ina. Við nefnilega kær- um okkur ekki um að undirstrika hvert við annað eða hina, að við kunnum að hafa villst af leið um tíma. Séð frá mér, er ekkert sérstaklega annarlegt við það þó að við þurfum, til að öðlast persónulegan andlegan þroska, að taka af og til einhvers konar drullupolladýfur á vegi vandræða ekkert síður heldur en að fljóta fallega með straumnum á björtum vegi dyggðarinnar. Það er algjör grundvallar- misskilningur að gera lítið úr þeirri reynslu sem virðist veikja möguleika okkar til vegs og virð- ingar í samfélagi manna, sér í lagi ef reynslan er lituð einhvers konar myrkri að mati sérfróðra. Ástæð- an er sú, að slík reynsla getur í raun verið mjög heppilegt viðmið þakklætis og löngunar í geislum velgengni, sem áminning um það að það skiptir máli að við náum að fóta okkur inní birtunni. En það vill oft gleymast þegar við erum komin þangað að kannski eigum við betra með að halda okkur á þeim stígum einmitt af því að við þekkjum hvað það er mikil þraut og pína, ekki bara fyrir okkur sjálf heldur alla sem elska okkur, að vera á þeim vegi sem leiðir mögulega til hvers kyns glötunar. Það sama á við afvegaleiðingu myrkurs og þegar við náum okkur upp úr hvers kyns veikindum eða slysum, að þegar okkur farnast vel og allt virðist okkur í haginn, þá kærum við okkur ekkert sér- staklega um að við séum minnt á það að við fengum 0,7 á síðasta prófi eða gátum ekki gengið vegna opins fótasárs. Það er nefnilega sammerkt með okkur öllum að þegar að vel gengur og allt opnast okkur varðandi já- kæra framvindu og gleði, þá óskum við ekki eftir að muna að einu sinni var önnur tíð og miklu verri. Mér hefur þótt af- ar sárt að fylgjast með því á stundum hvernig fólki sem hefur sigrað veikleika sína og persónuleg vandræði, hefur nán- ast verið gert ókleift af sam- ferðamönnum sínum að fá notið sín, miðað við innri gerð reynslu- þekkingar og getu vegna þess að viðkomandi á fortíð sem að til- teknum aðilum nútíðar þykir þess eðlis að hún blindar þá á sjón sem er dýrmæt og mikils virði og ligg- ur í því að það er mjög sérstakt að sigra sjálfan sig. Það er alrangt að hanga í fortíðarsýn skakkafalla og misbresta varðandi viðreista, ef þeim auðnast að halda sig á beinu brautinni og gerast sigurvegarar yfir sjálfs sín veikleikum. Ef við skoðum það hvað það er að vera sigurvegari þá getur eng- inn orðið slíkur nema sá einn sem nennir að leggja á sig ómælt erfiði og vinnu og hefur eitthvað í innri gerð sinni sem er sérlega eft- irtektarvert og liggur frekar í kostum heldur en göllum. Þetta gleymist stundum. Við nefnilega náum ekki tökum á lífi okkar nema að hafa eitthvað til að bera sem manneskjur. Það þýðir ekki að hafa einungis kosti heldur líka galla vegna þess að það er lítið varið í, ef við berum okkur saman við náttúruna, að upplifa frá vöggu til grafar, tengsl við nátt- úru sem er ein samfella rósa. Við viljum sjá í árstíðum og veðurfari, hvers kyns tilbreytingu sem gleð- ur okkur, hryggir, örvar okkur og dregur úr okkur. Einmitt slíkar viðlíka umpólanir og sviptivindar hið innra gera okkur margflókin og fjölbreytt sem í raun þýðir að við eigum auðveldara með að skilja hvert annað, takast á við at- vik og aðstæður, skapa og gefa, þiggja og njóta, auk alls annars sem gerist í innra lífi okkar ef við miðum við að það stjórnist af til- breytingarríku hreyfiafli eins og allt annað í heiminum og okkur þykir sjálfsagt þótt við gleðjumst stundum og hryggjumst líka og allt þar á milli. Ef við íhugum þann viðreista sem hefur náð að yfirstíga veik- leika sína, þá eigum við ekki að gera þá kröfur til viðkomandi með endalausum áminningum um það sem áður var, að sá hinn sami sé eins og eitt allsherjarsólskin stöð- ugt. Ef að það dregur fyrir sólu, þá er ekki gott að viðkomandi sé stöðugt minntur á það að það hafi ekki verið nein gæfa því samfara að vera í skugganum. Þetta getur gerst á sama tíma og við sem ekki höfum afvegaleiðst erum að hlaupa upp og niður, út og suður, í alls kyns hreyfihvörfum sviptinga hið innra, sem kalla auðvitað á ýmiss konar hvörf skemmtilegra og miður skemmtilegra þátta sem auðvitað búa inn í okkur öllum. En í okkar huga þá á hinn við- reisti að vera stöðugt eins og geislandi sól og ef dregur fyrir hana innra með viðkomandi þá er- um við fljót að lýsa frati á þá per- sónu. Höldum vörð um viðreista Eftir Jónu Rúnu Kvaran ’Gerum ekki viðreistaað flóttamönnum sem velja að fela sig fyrir umheiminum …‘ Jóna Rúna Kvaran Fáðu fréttirnar sendar í símann þinn …með allt fyrir tískuna OPIÐ HÚS Í GRAFARVOGI Hlaðhamrar 12 - raðhús Mjög fallegt 135,5 fm raðhús m/risi ásamt 25,9 fm bílskúr á mjög skemmtilegum stað í Grafarvogi. Á aðalhæð eru 2 stór svefnherbergi, baðherbergi m/sturtu og kari, þvottahús, eldhús m/borðkrók, stór stofa og sólstofa. Í risi er sjónvarpsstofa, svefn-/vinnuherbergi og lítið salerni. Lítill suðurgarður og aðkoma að húsi er til fyr- irmyndar. Einar Páll, lögg. fs., sýnir íbúðina í dag á milli kl. 13.00-14.00. Upplýsingar í síma 899 5159. Verð kr. 23,9 millj. Frostafold 67 - 3ja herb. Rúmgóð 96 fm 3ja herbergja íbúð á efstu hæð í 3ja hæða fjölbýlishúsi. Sérinngang- ur er af opnum svalagangi. Íbúðin skiptist í hol, stóra stofu, setustofu, eldhús með borðkrók, baðherbergi m/kari, gott hjóna- herbergi og barnaherbergi. Eikarparket á stofu, flísar á setustofu en linoleumdúkur öðrum gólfum. Þetta er falleg og björt íbúð á góðum stað í Grafarvogi. Eiríkur og Vildís taka á móti gestum í dag á milli kl. 14.00-15.00. Upplýsingar í síma 586 1523 eða hjá Einari Páli, lögg. fasteignasali, í síma 899 5159. Verð kr. 12,9 millj. WWW.EIGNAVAL.ISSigurður Óskarsson, lögg. fastsali SUÐURLANDSBRAUT 16 • 108 REYKJAVÍK SÍMI 585 9999 • FAX 585 9998 FÉLAG FASTEIGNASALA Sumarhús í Skorradal Vorum að fá í sölu virkilega vand- að 70 fm sumarhús sem er tilbúið að utan en einangrað og plast- klætt að innan, án milliveggja. Grindin í húsinu er 200 mm þykk úr kjörvið, samtals 300 mm vegg- þykkt. Allt gler er þrefalt k-gler. Steyptur sökkull undir húsi. Vatn er tengt og rotþró frágengin, raf- magn komið á húsvegg. Húsið er staðsett í landi Dagverðarness, lóðnr. 72c, Skorradal, sem er 1 klst. akstur frá Reykjavík. Lóðin er ca 4966 fm, leigulóð til 25 ára. Áhv. 5,0 m. Verð 10,5 m. Nánari uppl. gefur Jón í síma 892-0999 og 566-8862 einnig á skrifstofu Eignavals. OPIÐ HÚS Í DAG KL. 13.00-16.00 SJÁVARGRUND 9B - GARÐABÆ Aðalheiður og Einar sýna mjög góða samtals 191,4 fm íbúð í þessu frábæra húsi. Fjögur svefnherb. Góð bílageymsla. Frábærlega hannað hús. Framtíðarstaðsetning, en mikil uppbygging á sér stað í nágreninu, svo sem nýr skóli og fleira. Suðurlandsbraut 4a • 108 Rvk. • Fax 533 4811 • midborg@midborg.is 533 4800 Borgartún - Tækifæri Björn Þorri hdl. lögg. fastsali, Karl Georg hrl. lögg. fastsali. 5.210,9 fm heil húseign í eigu Fasteigna ríkissjóðs. Eignin er vel staðsett miðsvæðis í Reykjavík. Húsið skiptist í kjallara, þrjár góðar hæðir og ris. Húsnæðið er í dag sérinnréttað fyrir lyfjaframleiðslu, í kjallara og á 1. og 2. hæð. Á 3. hæð og í risi eru veislu- og samkomusalir. Eignin getur hentað til margskonar framtíðarnota. 3. hæð og ris er til afhendingar nú þegar en kjallari 1. og 2. hæð um n.k. áramót. V. 340 millj. 4761
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.