Morgunblaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 32
32 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ 3. maí 1994: „Hvergi í heim- inum hefur verið meiri efna- hagsuppsveifla en í Suð- austur-Asíu. Japanska efnahags-, viðskipta- og tækniundrið er Vesturlanda- þjóðum gamalkunnugt. Hitt hefur komið meira á óvart að hagvöxtur hefur um tveggja ára skeið mælst um 13% á mesta uppgangssvæði Kína, sem er umtalsvert meira en annars staðar í veröldinni. Ástæðan er tvíþætt. Í fyrsta lagi breytt stefna kínverskra stjórnvalda, „opnun Kína“, sem kennd er við Deng Xiao Ping. Í annan stað ut- anaðkomandi fjármagn, tækni- og viðskiptaþekking, einkum frá Taiwan, Hong Kong, Singapore, Japan, Suð- ur-Kóreu og Bandaríkjunum. „Opnun Kína“ hefur „leyst úr læðingi þvílíka krafta að það er nánast einsdæmi,“ segir Jón Baldvin Hannibalsson ut- anríkisráðherra í viðtali við Morgunblaðið síðastliðinn sunnudag. . . . . . . . . . . 3. maí 1984: „Að kvöldi 1. maí sl. fór fram umræða í sjón- varpi um lífskjör á Íslandi, m.a. í samanburði við ríkustu þjóðir heims. Leitast var við að svara þeirri spurningu, hversvegna lífskjör hér á landi væru lakari en þar sem auðlegð er mest í heiminum. Meginskýringar vóru þrjár taldar:  Þjóðartekjur Íslendinga eru verulega lægri en ná- grannaþjóða. Hafa auk þess lækkað um 12% á þremur ár- um.  Íslendingar eru mun leng- ur að vinna fyrir þjóð- artekjum sínum en sam- anburðarþjóðir, sem gerir þennan mun enn skarpari, lífskjaralega.  Greiðslubyrði erlendra skulda, sem hafa hlaðizt upp á fáum árum, tekur til sín ná- lægt fjórðung útflutnings- tekna þjóðarinnar, og rýrir þjóðartekjur og lífskjör að sama skapi. Hverjar eru orsakir þess að þjóðartekjur, sem til skipta koma í þjóðarbúskapnum, eru svo lágar sem raun ber vitni – og hafa lækkað en ekki vaxið í höndum okkar næst- liðin ár? Nauðsynlegt er að gera sér glögga grein fyrir þessu.  Fyrst verður fyrir sam- dráttur í sjávarafla, samhliða lækkandi söluverði sumra sjávarafurða, sem eiga í harðnandi sölusamkeppni á erlendum markaði. Verðmæti útfluttra þorskafurða verða vart helmingur þess 1984 sem þau vóru 1981.  Röng fjárfesting veldur því að kostnaður, sem kemur til frádráttar frá skiptatekjum þjóðarinnar, er mun meiri en verða þyrfti. Röng fjárfest- ing, sem ekki styðst við arð- semissjónarmið, rýrir lífs- kjör, bæði í bráð og lengd. Vanhugsuð afskipti rík- isvaldsins eru máske veiga- mesta orsök rangþróunar á þessu sviði.  Stjórnvöld liðinna ára hafa svikizt um það mikilvæga kjaraatriði, að setja nýjar stoðir undir atvinnuöryggi og afkomu þjóðarinnar, t.d. á því sviði að breyta orku fallvatna í störf og útflutnings- verðmæti. Gullin tækifæri á sviði lífefnaiðnaðar hafa held- ur ekki verið rækt sem skyldi. Þrátt fyrir það að löngu var sýnt, hvert horfði um veiðimörk fiskistofna og sölumörk búvöru, var þess í engu gætt, að þjóðin næði viðbótarvopnum í lífsbaráttu sinni. Þess í stað var eyðsla hennar, umfram tekjur, sett á „krítarkort“ viðskiptahalla og erlendra skulda.“ Fory s tugre inar Morgunb laðs ins Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. U mræðurnar um skýrslu nefndar menntamálaráð- herra um eignarhald á fjöl- miðlum og fjölmiðlafrum- varp forsætisráðherra, sem fram hafa farið í vik- unni, hafa því miður snúizt alltof mikið um einstak- linga og einstök fyrirtæki, en síður um aðalatriði málsins, grundvallarrökin fyrir því að setja lög um eignarhald á fjölmiðlum. Sömuleiðis hefur í þess- um umræðum oftlega verið gefið í skyn að mála- tilbúnaðurinn sé með einhverjum hætti sérstakur og einstakur og að baki honum liggi annarleg sjón- armið. Annað virðist þó liggja í augum uppi þegar litið er til löggjafar um eignarhald á fjölmiðlum í nágrannalöndunum, sem Íslendingar bera sig jafnan saman við, og umræður um samþjöppun eignarhalds á fjölmiðlamarkaðnum í þessum lönd- um. Tilmæli Evr- ópuráðsins Nefnd menntamála- ráðherra færði rök fyr- ir því í skýrslu sinni, sem varð opinber um síðustu helgi, að það væri í raun þjóðréttarleg skylda Íslands að leita leiða til að tryggja fjöl- breytni í fjölmiðlun. Nefndin vísar til tilmæla Evr- ópuráðsins frá 1999, þar sem meðal annars er fjallað um reglur um eignarhald á fjölmiðlum. Í skýrslu nefndarinnar er þeim hluta tilmælanna lýst þannig: „Lagt er fyrir aðildarríkin að huga að því að setja í lög reglur til að hamla gegn sam- þjöppun sem gæti stefnt markmiðinu um fjöl- breytni í fjölmiðlun í hættu, hvort heldur á lands- vísu eða svæðisbundið. Mælt er með því að ríki skoði möguleika á því að afmarkaðir verði í lögum, við úthlutun leyfa eða aðra lagaframkvæmd, þröskuldar til að takmarka áhrif sem eitt fyrirtæki eða fyrirtækjasamsteypa getur haft í einni eða fleiri greinum fjölmiðlunar. Í dæmaskyni er nefnd hámarks leyfileg markaðshlutdeild, þar sem mæli- kvarði á markaðshlutdeild er annaðhvort fjár- hagsleg velta eða útbreiðsla (lestur/áhorf/ hlustun). Einnig megi huga að því að setja tak- mörk á hlutafjáreign einstakra aðila í fjölmiðlafyrirtækjum á frjálsum markaði. Séu slíkar takmarkanir settar skuli hafa í huga stærð fjölmiðlamarkaðarins í viðkomandi landi og fjár- hagslegt bolmagn hans. Fyrirtækjum sem náð hafa leyfilegri hámarksstærð á tilteknum markaði verði ekki úthlutað frekari leyfum til að senda út á þeim markaði. Bent er á að auki, að við leyfisveitingar til einka- aðila geti yfirvöld haft sérstaklega í huga að auka fjölbreytni í fjölmiðlun.“ Af umfjöllun í skýrslunni og öðrum upplýsing- um, sem fram hafa komið, t.d. grein Páls Þórhalls- sonar, lögfræðings hjá Evrópuráðinu, hér í blaðinu 1. febrúar síðastliðinn, er alveg ljóst að í langflestum löndum Vestur-Evrópu, svo og í Bandaríkjunum, eru lög eða reglur af einhverjum toga um eignarhald á fjölmiðlum, til þess fallnar að tryggja fjölbreytileika á fjölmiðlamarkaðnum. Skýrsla Evrópu- þingsins Í Morgunblaðinu sl. miðvikudag var sagt frá skýrslu, sem Evr- ópuþingið í Brussel samþykkti í síðustu viku og fjallar um þá hættu sem tjáningarfrelsi og rétti almennings til upplýs- inga stafar af þróuninni á fjölmiðlamarkaði í Evr- ópu, ekki sízt af samþjöppun eignarhalds. Við lest- ur þeirrar skýrslu verður nokkuð augljóst að hún er ekki samin í neinu tómarúmi, heldur er þar vís- að til fjölda annarra skýrslna, úttekta og sam- þykkta um sama efni. Þar á meðal eru áðurgreind tilmæli Evrópuráðsins, fyrri ályktanir Evrópu- þingsins um samþjöppun í fjölmiðlum, skýrslur Evrópusamtaka blaðamanna um eignarhald á fjöl- miðlum í Evrópu og um hagsmunaárekstra vegna eignarhalds á fjölmiðlum á Ítalíu, ársskýrsla sam- takanna Blaðamenn án landamæra og þannig mætti áfram telja. Skýrslan fjallar að verulegum hluta um ástandið á Ítalíu, þar sem Mediaset-sam- steypa Silvios Berlusconi forsætisráðherra hefur yfirburðastöðu, sem hefur verið mikið gagnrýnd. Berlusconi hefur ekki losað sig út úr fyrirtækjum sínum, heldur á hann áfram mikilla viðskiptahags- muna að gæta, auk þess að stýra stærsta fjölmiðla- veldi landsins. Mediaset á þannig hefðbundnar sjónvarpsstöðvar, kapalsjónvarpsstöð, gervi- hnattasjónvarp, auglýsingafyrirtæki, fyrirtæki sem framleiða kvikmyndir og sjónvarpsefni, síma- fyrirtæki, netþjónustufyrirtæki, fjárfestinga- og fjármálafyrirtæki, tryggingafyrirtæki, bygginga- fyrirtæki, fótboltalið, dagblöð og stærstu bókaút- gáfu á Ítalíu. Evrópuþingið byggir skýrslu sína að hluta á áfangaskýrslu Fjölmiðlastofnunar Evrópu, en stofnunin vinnur nú að úttekt á umhverfi fjölmiðla í öllum ESB-ríkjunum 25. Í áfangaskýrslunni er fjallað um fjölmiðlaumhverfið í átta þeirra og kemst þingið að þeirri niðurstöðu að alls staðar sé pottur brotinn í einhverjum efnum, einkum varð- andi fjölbreytni í fjölmiðlum annars vegar og tök stjórnmálamanna á ríkisfjölmiðlum hins vegar. M.a. gagnrýnir Evrópuþingið samþjöppun á sjón- varpsmarkaði á Ítalíu, að í pólskum lögum séu engin ákvæði sem hamli gegn samþjöppun á fjöl- miðlamarkaði og engin áform um slíka lagasetn- ingu, að í Svíþjóð sé eignarhald samofið og ljós- vaka- og prentmiðlum stjórnað af sama hópi og að í Hollandi séu þrjú fyrirtæki með 85% markaðs- hlutdeild bæði í sjónvarpi og prentmiðlum. Evrópuþingið telur ástæðu til að aðildarríki Evrópusambandsins herði á löggjöf til að varð- veita fjölbreytni í fjölmiðlum, en þar sem það bregðist vegna getu- eða viljaleysis aðildarríkj- anna, beri ESB pólitísk, siðferðileg og lagaleg skylda til að tryggja rétt ESB-borgara til frjálsra og fjölbreyttra fjölmiðla. Þingið telur nauðsynlegt að fylgjast með áhrifum samruna fjölmiðlafyrir- tækja á fjölbreytni í fjölmiðlum. Það hvetur enn- fremur til þess að framkvæmdastjórn ESB leggi fram tillögu að tilskipun til að tryggja fjölbreytni í fjölmiðlum í Evrópu og vísar þar til fyrri ályktunar þingsins frá 20. nóvember 2002. Þingið „telur að varðveizla fjölbreytni í fjölmiðlum ætti að fá for- gang í samkeppnislöggjöf Evrópu, og að litið verði á ráðandi stöðu fjölmiðlafyrirtækis á markaði í að- ildarríki sem hindrun í vegi fjölbreytni fjölmiðla í Evrópusambandinu“. Nú er allsendis óvíst að þessi ályktun Evrópu- þingsins leiði til slíkra breytinga á löggjöf ESB. Fari svo, getur það hins vegar leitt til þess að Ís- lendingum verði ekki stætt á öðru en að hafa lög- gjöf sem tryggi sömu markmið, enda gildir sam- keppnislöggjöf ESB að stærstum hluta hér á landi eins og sést t.d. af því að nýlegur úrskurður fram- kvæmdastjórnar ESB í máli Microsoft gildir á öllu Evrópska efnahagssvæðinu. Fyrst og fremst sýnir þessi skýrsla Evrópu- þingsins að jafnvel í ríkjum, þar sem þegar eru fyrir hendi lög og reglur um eignarhald á fjöl- miðlum, hafa menn áhyggjur af áframhaldandi samþjöppun eignarhalds og telja ástæðu til að bregðast við. Umræður í Bandaríkjunum Miklar umræður hafa jafnframt farið fram í Bandaríkjunum um þarlenda löggjöf um sama efni. Í byrjun júní í fyrra samþykkti banda- ríska útvarpsréttarnefndin, FCC, með atkvæðum meirihluta repúblikana að aflétta banni við því að fjölmiðlasamsteypur eigi dagblað og sjónvarps- stöð á sama markaðssvæði. Einnig var þakið, sem var á hámarkshlutdeild sjónvarpsstöðvar af mark- aðnum í Bandaríkjunum öllum, hækkað úr 35% í 45%. Um þetta sagði í frétt Morgunblaðsins 3. júní í fyrra: „Fylgjendur breytinganna segja að gömlu reglurnar hafi verið orðnar úreltar og ekki hafi verið hægt að framfylgja þeim við núverandi að- stæður á fjölmiðlamarkaði, þar sem miklar tækni- framfarir hafa orðið, m.a. með tilkomu Netsins og gervihnattaútsendinga. Andstæðingar breyting- anna telja hins vegar að þær stuðli að enn frekari hringamyndun, styrki í sessi nokkrar risavaxnar fjölmiðlasamsteypur á kostnað óháðra og minni aðila. Þær verði því til þess að færri raddir komist að í þjóðmálaumræðunni, sem aftur þýði að draga muni úr fjölbreytileika og samkeppni á fjölmiðla- markaði.“ FCC bárust bréf og undirskriftalistar frá um tveimur milljónum Bandaríkjamanna þar sem þessum breytingum var andmælt. Bæði öldunga- og fulltrúadeild Bandaríkjaþings lögðust gegn breytingunni en vegna hótana Bush forseta um að beita neitunarvaldi hefur ákvörðuninni ekki verið snúið við nema að litlu leyti. Trent Lott, öldungadeildarþingmaður repúblik- ana frá Mississippi, sem hafði upphaflega stutt skipan Michaels Powell (sonar Colins Powell utan- ríkisráðherra) í embætti formanns FCC, lýsti því yfir að ákvörðunin væri mistök. „Ef samþjöppunin verður of mikil þurfa fyrirtækin ekki lengur að vera samkeppnisfær í verði eða gæðum. Það verð- ur minni hvati til að búa til ferskt efni, öðruvísi efni, eitthvað sem er á sanngjörnu verði eða sem tekur upp öðruvísi sjónarmið. Nú þegar eiga aug- lýsendur og viðskiptavinir á sumum svæðum eng- an kost nema eitt fjölmiðlafyrirtæki [...] Valið er nú þegar takmarkað eða ekkert og nýjar reglur FCC gera illt verra.“ Takmörkun valds Þessi dæmi af þróun mála bæði austan og vestan hafs sýna að þar fara fram miklar umræður um þá hættu, sem stafar af samþjöppun eignarhalds í fjölmiðlum. Stundum snúast þessar ÓSK SAMFYLKINGAR Framkvæmdastjórn Samfylking-arinnar hefur samþykkt að óskaeftir viðræðum við stjórnir þeirra stjórnmálaflokka, sem eiga full- trúa á Alþingi, um tillögur, sem leggja mætti til grundvallar við setningu laga um fjárreiður stjórnmálaflokka. Mark- miðið sé að tryggja gagnsæi í fjáröflun flokkanna. Vonandi verður af þessum viðræðum. Það er tímabært. Allt þjóðfélagsumhverfi hér er gjör- breytt. Stjórnmálaflokkarnir hafa látið frá sér mikið af þeim völdum, sem þeir áður höfðu. Jafnframt hafa áhrif við- skiptalífsins aukizt og nú um skeið hafa staðið yfir miklar umræður um stöðu nokkurra stórra viðskiptasamsteypa, sem hafa orðið til á undanförnum árum. Þær hafa margvíslegra hagsmuna að gæta, m.a. í samskiptum við stjórnvöld og stjórnmálamenn. Þessar aðstæður eru orðnar áþekkar því, sem þekkist í öðrum löndum. Þar hafa verið settar ákveðnar reglur um fjáröflun bæði flokka og einstakra frambjóðenda. Þetta á ekki sízt við um Bandaríkin. Að vísu hafa frambjóðend- ur og fyrirtæki reynt að fara í kringum þessar reglur eins og dæmin sanna en þá er hart tekið á því ef upp kemst. Í Bandaríkjunum hafa verið þróaðar fjáröflunaraðferðir, sem stundaðar eru fyrir opnum tjöldum. Í forkosningum demókrata nú fyrir nokkrum mánuðum vakti það sérstaka athygli hvað einn frambjóðendanna, Howard Dean, hafði náð miklum árangri í að safna miklum fjárhæðum með litlum framlögum frá einstaklingum, hverjum og einum, með milligöngu Netsins. Í Bandaríkjunum tíðkast það líka, að frambjóðendur fá í einhverjum tilvikum framlag úr opin- berum sjóðum á móti þeim fjármunum, sem þeir safna meðal einstaklinga og fyrirtækja. Það er tímabært að taka þessi mál- efni til umræðu hér. Safna saman upp- lýsingum um hvernig fjáröflun flokka á Norðurlöndum, í Evrópu og í Banda- ríkjunum er háttað og kanna hvað hentar okkar aðstæðum. Hagsmunagæzlan í okkar samfélagi hefur tekið nýja stefnu. Nú ráða fyr- irtæki til sín sérfræðinga á sviði al- mannatengsla til þess að leggja á ráðin um, hvernig þau geti bezt náð þeim markmiðum, sem þau stefna að, ekki bara í beinum viðskiptum heldur til þess að tryggja margvíslega viðskipta- hagsmuni. Nú beita fyrirtæki og fé- lagasamtök mætti auglýsinga til að ná slíkum markmiðum. Það er stutt í að fyrirtæki og samsteypur komi sér upp sérstökum starfsmönnum, sem hafa það meginverkefni að vinna að hags- munagæzlu fyrir þeirra hönd gagnvart Alþingi, sveitarstjórnum og stjórn- völdum almennt. Það er mikilvægt að fram komi að fjárframlög til stjórn- málaflokka eða einstakra frambjóð- enda í prófkjörum séu ekki hluti af þessari hagsmunagæzlu. Í þessu sambandi er líka umhugsun- arefni, hvað kostnaður frambjóðenda í prófkjöri er orðinn mikill. Það skiptir máli fyrir lýðræðið í landinu, að þeir sem hafa áhuga á að gefa kost á sér til starfa á opinberum vettvangi, hvort sem er til sveitarstjórna eða Alþingis, hafi jafna aðstöðu til þess og að það sé ekki einungis á færi þeirra sem efna- meiri eru, sem því miður er raunin í Bandaríkjunum. Það er ástæða til að íhuga og taka til umræðu, hvort auka eigi framlög úr opinberum sjóðum til stjórnmálastarf- semi í landinu, sem er veigamikill þátt- ur í lýðræðislegu þjóðfélagi eins og okkar. Vígstaða stjórnmálaflokka og fram- bjóðenda í kosningum á ekki að byggj- ast á fjármunum. Samkeppni þeirra í milli á að byggjast á hugmyndum og málefnum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.