Morgunblaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 53
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 53
DAGBÓK
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
NAUT
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert stórhuga og býrð
yfir fyrirhyggju og útsjón-
arsemi. Þú lendir oft í leið-
togahlutverki. Það verður
mikið að gerast í félagslífinu
hjá þér á þessu ári.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Gættu þess að vera ekki of
einstrengingsleg/ur í sam-
ræðum þínum við aðra í dag.
Það er hætt við að þú gangir
of langt í tilraunum þínum til
að telja aðra á þitt band.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Farðu varlega í innkaupum í
dag. Það er hætt við að þú
kaupir eintóma vitleysu.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þörf þín fyrir að telja aðra á
þitt band mun hugsanlega
leiða þig út í ógöngur í dag.
Það er hætt við að tilfinning-
arnar þínar verði skynsem-
inni yfirsterkari.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú hefur þörf fyrir að gera
eitthvað til að bæta heilsu
þína í dag. Drífðu endilega í
því en reyndu þó að varast all-
ar öfgar.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Farðu varlega í að stofna til
nýs ástarsambands í dag. það
er hætt við að hrifning þín
komi í veg fyrir að þú sjáir
viðkomandi í réttu ljósi.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Þú munt líklega þurfa að gera
upp á milli vinnunnar og
heimilisins í dag. Reyndu að
sýna fjölskyldunni þolinmæði
á sama tíma og þú gerir þitt
besta í vinnunni. Þetta er mik-
ilvægt tímabil fyrir þig í
vinnunni.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Reyndu að forðast deilur um
heimspeki og trúmál í dag.
Það er eins og þú hafir ákveð-
ið sjónarmið á heilanum og
sjáir ekki út fyrir það.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þetta er ekki hentugur dagur
til að ganga frá skiptingu
eigna eða ábyrgðar. Fólk
stendur fast á sínu og er ekki
tilbúið til að gefa neitt eftir.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Venus er beint á móti Plútó
og því er einhver spenna í öll-
um samböndum í dag.
Reyndu að taka hlutunum
með ró og forðast yfirgang.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú gætir fengið góðar hug-
myndir að breytingum í
vinnunni. En jafnvel þótt hug-
myndirnar séu góðar máttu
ekki þröngva þeim upp á aðra.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Margir vatnsberar verða ást-
fangnir í dag. Það er eins og
þeir verði hreinlega dáleiddir.
Reyndu að ganga hægt um
gleðinnar dyr.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú gætir lent í erfiðum deilum
við einhvern í fjölskyldunni í
dag. Reyndu að forðast það
jafnvel þótt það kosti það að
þú verðir að fresta mik-
ilvægum umræðum.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
VORVÍSUR
Vorið góða, grænt og hlýtt,
græðir fjör um dalinn.
Allt er nú sem orðið nýtt,
ærnar, kýr og smalinn.
Kveður í runni, kvakar í mó
kvikur þrastasöngur.
Eins mig fýsir alltaf þó
aftur að fara í göngur.
Jónas Hallgrímsson
LJÓÐABROT
LÁTUM sagnir liggja á
milli hluta, en niðurstaðan
þarf engum að koma á óvart
– þrjú grönd í suður:
Norður
♠ÁD76
♥D10862
♦ÁD94
♣–
Vestur Austur
♠K983 ♠G104
♥K954 ♥G7
♦K7 ♦G1062
♣963 ♣K842
Suður
♠52
♥Á3
♦853
♣ÁDG1075
Útspil: spaðaþristur.
Þetta er virkilega neyðar-
legt, lífliturinn vængstífður
vegna innkomuleysis og til-
tölulega lítið að hafa í hinum
litunum. En það gerast oft
skrítnir hlutir í þremur
gröndum.
Sjáum til. Sagnhafi svínar
spaðadrottningu, spilar svo
hjartaás að hjarta að blind-
um. Vestur dúkkar, en sagn-
hafi finnur fyrir fálmi og
stingur upp drottningu.
Gosinn fellur snöggt úr
austrinu og virðist því heið-
arlegt spil, svo sagnhafi
ákveður að bíða með hjartað
og spilar spaðaás og spaða.
Vestur tekur tvo slagi á
litinn og finnur svo ekki
betra úrræði en að spila
hjartakóng og meira hjarta.
Þá er staðan þessi:
Norður
♠–
♥8
♦ÁD94
♣–
Vestur Austur
♠– ♠–
♥– ♥–
♦K7 ♦G1062
♣963 ♣K
Suður
♠–
♥–
♦853
♣ÁD
Vörnin hefur fengið þrjá
slagi. Sagnhafi spilar nú tíg-
ulás og vestur staldrar við.
Hann sér hvað liggur í loft-
inu og ákveður að lokum að
henda kóngnum undir. Og
þar með er tígulátta suðurs
orðin að stórveldi. Sagnhafi
hendir laufdrottningu í síð-
asta hjartað og spilar loks
litlum tígli að áttunni. Vest-
ur drepur og þarf að gefa
blindum tvo síðustu slagina.
Vissulega gat vörnin gert
betur, en hitt er athyglis-
vert að sagnhafi fékk engan
slag á „líflitinn“ – ÁDG10xx
í laufi!
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be2
e6 7. Be3 Be7 8. Dd2 O-O 9.
O-O-O Rc6 10. f4
Dc7 11. g4 Rxd4 12.
Dxd4 b5 13. g5 Rd7
14. f5 He8 15. fxe6
fxe6
Staðan kom upp í
rússnesku deilda-
keppninni sem lauk
fyrir skömmu. Alex-
ander Galkin (2602)
hafði hvítt gegn
Vladimir Belov
(2543). 16. Rd5! exd5
svarta staðan hefði
einnig verið töpuð
eftir 16...Dd8 17.
Rxe7 Dxe7 18. Dxd6.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Hvítur á leik.
17. Dxd5+ Kh8 18. Dxa8
Bxg5 19. Bxg5 Rb6 20.
Bxb5! Rxa8 21. Bxe8 Da5
22. Be7! De5 23. Bxd6 Dxe4
ekki hefði 23... Dxe8 gengið
upp fyrir svartan vegna 24.
Hhf1. 24. Hhe1 Dc4 25. b3
og svartur gafst upp.
ÁRATUGUR er liðinn og
rúmlega það, síðan ofan-
greint no. var til umræðu í
þessum pistli. Enda þótt
orðinu væru þá gerð að ég
ætla sæmileg skil og bent
á, að það væri í flestum til-
vikum þarflaust í tali
manna, virðist sem svo, að
því hafi fremur aukizt ás-
megin en hitt. Á það var
bent, að no. magn væri
vissulega gamalt í máli
okkar, en þá í öðru sam-
bandi en menn nota það nú
á dögum. Jafnframt var
bent á það, að fremur and-
kannalegt væri að heyra
menn tala um bygginga-
magn á einhverju svæði,
þar sem tala mætti um
byggingafjölda á svæðinu.
Þetta orð hafði þá á stund-
um hljómað í eyrum hlust-
enda í útvarpi og eins sézt
á prenti. Jafnvel kennarar
höfðu brugðið fyrir sig no.
kennslumagn (og gera
jafnvel enn), þar sem að
mínum dómi fer miklu bet-
ur að tala um fjölda
kennslugreina. Eins tók ég
þá fram í fyrri pistli, að ég
hefði heyrt í veðurfregnum
talað um úrkomumagn í
stað þess að tala um mikla
úrkomu. Nú vil ég hins
vegar taka fram, að úr-
komumagn virðist ekki
hafa komið fyrir á þeim bæ
lengi. Og það er vel. En til-
efni þessa pistils um magn-
ið eru ummæli, sem ég
rakst á ekki alls fyrir
löngu. Þau eru í tímariti,
sem ég sá af tilviljun. Þar
stóð þessi setning, sem ég
hlaut að stanza við. Verið
var að segja frá því, hversu
hollt það væri börnum að
alast upp með húsdýrum.
Og orðrétt var það rök-
stutt með þessum orðum:
„og ekki sízt þar sem börn-
in geta leikið lausum hala
innan um ótakmarkað
magn af dýrum“. Já, ótak-
markað magn af dýrum
stóð þar. Hér hefði vita-
skuld farið betur að tala
um að leika sér innan um
fjölda dýra. Ég held les-
endur hljóti að finna nokk-
urn mun á þessu orðalagi.
En svo langt hefur no.
magn smeygt sér inn í mál
okkar, að ég hefði ekki trú-
að því nema af því, að ég sá
það þarna svart á hvítu,
eins og stundum er sagt. –
Sími 557 4977 og tölvufang
jaj@simnet.is – J.A.J.
ORÐABÓKIN
Magn
Sportfatnaðurinn frá Trofe kominn
Pantanir óskast sóttar
Austurveri, Háaleitisbraut 68,
sími 553 3305.
LOKSINS LOKSINS
Meyjarnar
Soffía Marín Magnúsdóttir
Við bjóðum þig velkomna til starfa.
Gamlir og nýir viðskiptavinir velkomnir.
Hárgreiðslustofan Mín,
Skipholti 70, sími 581 2581
MEÐ MORGUNKAFFINU
Amma, amma, taktu út úr þér fölsku tennurnar, þú ert far-
in að skera hrúta!
Fáðu fréttirnar
sendar í símann þinn