Morgunblaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 11

Morgunblaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 11
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 11 útvarpinu og það var óneitanlega orðið ansi erfitt að finna útgefanda og mér leið nánast eins og ég hefði ekkert að segja sem menn vildu heyra.“ Æ pólitískari Eitt af því sem skildi útlagana frá hefð- bundnum sveitasöngvurum var að þeir beindu sjónum útávið í textum sínum; í stað þess að syngja um ást og brostnar vonir sungu þeir um þjáningu og böl, glímuna við efann, fólk sem orðið hafði útundan í lífinu og beindu sjónum sínum gjarnan að því sem þeim þótti fara miður í þjóðfélaginu. Í gömlum textum Kristoffersons má einmitt oft greina sjón- armið sem kölluð voru vinstrimennska vest- anhafs og það ágerðist á níunda áratugum. Á plötunni Repossessed, sem kom út 1986 og var fyrsta sólóskífa hans í sex ár, söng hann þannig um íhlutun bandarískra stjórnvalda í mál í Suður- og Mið-Ameríku og um Gandhi, Krist og Martin Luther King. Næsta plata á eftir, Third World Warrior, var enn pólitískari, en á henni syngur hann um Nelson Mandela og baráttu vinstri manna í Mið-Ameríku, lýsir meðal annars yfir stuðn- ingi við Sandinista í Nicaragua. Það hafði sitt að segja með það að stöðugt erfiðara var fyrir Kristofferson að komast að í útvarpi og þá um leið erfiðara fyrir hann að kynna plötur sínar. Það hallaði líka stöðugt undan fæti í plötusöl- unni hjá honum á tíunda áratugnum, en þar skipti eflaust líka máli að hann var mjög upp- tekinn við kvikmyndaleik, sérstaklega eftir að hann lék í Lone Star, en frammistaða hans þar varð til þess að tilboðum rigndi yfir hann. Ameríska martröðin Á síðasta ári kom út platan Broken Free- dom Song sem er með hans bestu verkum, mjög pólitísk og skemmtileg. Gott dæmi um textana á plötunni er lagið The Circle sem segir frá því er Bandaríkjamenn skutu eld- flaugum á Bagdad til að hefna fyrir meint banatilræði við George Bush, fyrrverandi for- seta Bandaríkjanna, og ein flauganna lenti á húsi íraskrar listakonu, Layla al-Attar, eins helsta listamanns þjóðarinnar, drap hana og eiginmann hennar og særði börn þeirra. Sam- an við þá frásögn fléttar hann svo svipmynd- um af fólki í Argentínu sem er að leita ætt- ingja sinna sem herforingjastjórnin, sem naut velvildar stjórnvalda í Bandaríkjunum, hafði rænt og myrt. „Öll þekkjum við ameríska drauminn, en fæstir átta sig á að hann er að nokkru leyti martröð þar sem peningar skipta meira máli en mannslíf,“ segir Kristofferson og er nú þyngra í honum. „Mér rennur blóðið til skyldunnar að tala um það sem stjórnvöld okkar eru að aðhafast og syngja um það þó það hafi kannski ekki gert ferlinum gott, sumar útvarpstöðvar neita nú að spila lögin mín og það gerist iðulega að fólk mótmælir fyrir utan tónleikastaði.“ Kristofferson segist ætla að spila ný lög á tónleikunum í Höllinni í bland við perlur frá ferlinum en einnig eldri lög sem menn þekkja kannski ekki svo vel. Hann á góðar minningar frá því er hann lék á Hótel Íslandi fyrir ára- tug og segist hlakka mikið til að koma hingað aftur. Börnin það eina sem einhvers er virði Í á annan áratug hefur Kristofferson búið í smábæ á Hawaii, segist hafa flutt þangað til að leyfa börnum sínum að alast upp í nátt- úrulegu umhverfi en ekki í geggjun stórborg- arinnar. „Þegar þau voru yngri fóru þau ber- fætt í skólann og hér er skammt í náttúruna, skóg og strönd,“ segir hann og bætir við að hugsanlega hefði hann kunnað því illa að búa í svo rólegu umhverfi er hann var yngri, þá vildi hann hafa fjörið sem mest. „Það er ekki svo margt sem maður saknar í dag, ég kann því mjög vel að stíga út úr argaþrasinu og halda heim og eyða tíma með börnum mínum og barnabörnum.“ Þó Kristofferson hafi gengið býsna vel sem tónlistarmaður þá hefur honum gengið enn betur sem lagasmiður því varla verður tölu komið á þá listamenn sem sungið hafa lög eft- ir hann inn á vinsældalista. Sem dæmi má nefna John Denver, Bob Dylan, Everly Brothers, Bryan Ferry, The Grateful Dead, Al Green, Isaac Hayes, Janis Joplin, Jerry Lee Lewis, Roger McGuinn, Roy Orbison, Elvis Presley, Carly Simon, Tina Turner, Dean Martin, Frank Sinatra, Arthur Lyman, Ronnie Hawkins, Irma Thomas, Merle Hagg- ard, Acker Bilk, Brenda Lee, Sammy Davis Jr., Glen Campbell, Johnny Cash, Waylon Jennings, Chris Hillman, Loretta Lynn, Rog- er Miller, Willie Nelson, Ray Price, Kenny Rogers, Ray Stevens, Jerry Jeff Walker, Hank Williams Jr., Joan Baez, Leo Kottke, Chet Atkins, John Holt, Shawn Mullins, Al Green, Tom Jones og svo má lengi telja enda skipta upptökur af lögum hans hundruðum. Hvað lögin sjálf varðar má nefna helst Me and Bobby McGee, sem fjölmargir hafa komið inn á ólíka vinsældalista, Sunday Mornin’ Comin’ Down, Help Me Make It Through the Night, Loving Her Was Easier (Than Any- thing I’ll Ever Do Again), Josie og Why Me. Ekki vill Kristofferson þó gera of mikið úr velgengni og vinsældum. „Ég er kannski þekktur sem söngvari og jafnvel enn þekktari sem leikari en það eina sem eftir mig liggur og einhvers er virði er börnin mín.“ mu röddina arnim@mbl.is ’Það er ekkert sem þarf að komamönnum á óvart; stjórnvöld í landinu töldu að samþjöppun á fjölmiðlamarkaði væri ekki æskileg.‘Davíð Oddsson forsætisráðherra um frumvarp rík- isstjórnarinnar um eignarhald á fjölmiðlum. ’Það er verið að tala um frjálsa fjöl-miðlun og ef þetta gengur út á það þá er eins og menn séu í einhverju búri og skynji ekki umhverfi sitt.‘Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri Baugs, stærsta einstaka hluthafans í Norðurljósum, um fjölmiðla- frumvarpið. ’Ég er ánægður með að hafa gertþetta. Ég er ánægður með að hafa varið tíma til þess … ég hafði gaman af því.‘George W. Bush Bandaríkjaforseti á f immtudag, eftir að hann og varaforsetinn Dick Cheney komu fyrir nefnd á vegum Bandaríkjaþings sem rann- sakar t i ldrög og viðbrögð við hryðjuverkaárásunum 11. september 2001. Bush hafði lengi þráast við að koma fyrir nefndina og vitnisburður þeirra Cheneys verður ekki gerður opinber, ól íkt öðrum vitnum. ’Landlæg og útbreidd fátækt af-skræmir enn ásjónu lands vors. Við get- um ekki kvaðst hafa endurheimt reisn þjóðarinnar á meðan þetta ástand var- ir.‘Thabo Mbeki , forseti Suður-Afríku, í ávarpi er hann sór embættiseið fyrir annað kjörtímabil s itt á þriðjudag, en þá voru t íu ár l iðin frá því að lýðræði allra kynþátta komst á í landinu. ’Ég vil lýsa því yfir að Líbýa er ákveð-in í því og skuldbundin til að leika lyk- ilhlutverk í því að koma á friði í heim- inum.‘Muammar Gaddafí Líbýuleiðtogi , eft ir fund með forystumönnum Evrópusambandsins í Brussel á þriðjudag. Sagði hann að land sitt hefði haft meiri ávinning af því að fordæma gereyðingarvopn en það gæti haft af því að komast yfir þau. ’Einkunnir eru mælikvarði á greind íkvenleikaorðræðunni, en mælikvarðinn í karlmennskuorðræðunni er mikil al- menn þekking, virkni í að koma henni á framfæri og góður árangur með lítilli samviskusemi.‘Berglind Rós Magnúsdóttir rannsakaði leiðtoga- hæfni meðal unglinga í bekkjardeild í grunnskóla og komst að því að hugmyndir um sterka stöðu stúlkna væru ef t i l vi l l ekki á rökum reistar. ’Við undirrituð ... sem sum höfumlanga reynslu af málefnum Mið- Austurlanda ... höfum vaxandi áhyggjur af þeirri stefnu sem þú hefur fylgt varð- andi Írak og gagnvart deilum Ísraela og Araba, í nánu samstarfi við Bandarík- in.‘Úr bréfi 52 fyrrverandi sendiherra og sendimanna Breta á erlendri grundu, þar á meðal í Tel Aviv og Bagdad, t i l Tony Blairs, forsætisráðherra Bret- lands, sem birt var á mánudag. ’Einstakt og sögulegt tækifæri til aðleysa Kýpur-deiluna hefur farið for- görðum.‘Kofi Annan , framkvæmdastjóri Sameinuðu þjóð- anna, eft ir að Kýpur-Grikkir höfnuðu sameiningu eyjarhlutanna tveggja í þjóðaratkvæðagreiðslu um síðustu helgi . Kýpur-Tyrkir samþykktu hins vegar ti l lögu SÞ þar að lútandi. ’Hún er ekki gerð fyrir gagnrýnendurheldur er aðalmálið að fólk komi og sjái hana. En góð gagnrýni mýkir allavega fallið ef hitt bregst.‘Börkur Gunnarsson í t i lefni af lofsamlegum um- mælum gagnrýnenda um mynd hans, Sterkt kaff i , sem frumsýnd var í Tékklandi á f immtudag. Ummæli vikunnar AP Inngöngu fagnað Ungir Tékkar veifa fánum Evrópusambands- ins og Tékklands á tónleikum í tilefni af inn- göngu landsins í ESB seint á föstudagskvöld.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.