Morgunblaðið - 02.05.2004, Blaðsíða 2
FRÉTTIR
2 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
SEMUR VERK FYRIR ÍD
Erna Ómarsdóttir dansari mun
semja dansverk fyrir Íslenska dans-
flokkinn sem frumsýnt verður á
næsta starfsári hans. Erna er ein
skærasta stjarna Evrópu í nútíma-
dansi og hefur í tvígang verið valin
besti evrópski nútímadansarinn af
útbreiddasta danstímariti Evrópu,
Ballet International.
Pólitískt baráttutæki
Hugmyndin að framboði Ólafs
Ragnars Grímssonar til embættis
forseta Íslands virðist hafa verið
pólitísk tilraun sem leiddi til ann-
arrar niðurstöðu en til var stofnað. Í
umfjöllun í Tímariti Morgunblaðsins
í dag um aðdraganda forseta-
framboðsins kemur fram að fram-
boðið hafi verið hugsað sem pólitískt
baráttutæki fyrir hans hönd, sam-
einingarmálstaðar vinstrimanna og
áframhaldandi þátttöku hans í
landsmálapólitík.
Spurn eftir sumarhúsalandi
Stöðug spurn er eftir landi undir
sumarhús í uppsveitum Árnessýslu
og hafa breytingar á skipulagi víða
verið auglýstar þar sem fyrirhugað
er að breyta landbúnaðarsvæðum í
frístundabyggð. Á síðasta ári var
sótt um 196 lóðir undir sumarhús
borið saman við 120–130 lóðir að
meðaltali árin á undan.
Rannsókn á pyntingum
Breska dagblaðið Daily Mirror
birti í gær myndir þar sem breskir
hermenn sáust berja fanga í Írak til
óbóta og niðurlægja hann. Bresk
stjórnvöld fordæmdu meðferðina á
fanganum og hófu rannsókn á mál-
inu. Áður höfðu myndir af íröskum
föngum, sem bandarískir fangaverð-
ir pyntuðu og auðmýktu, vakið hörð
viðbrögð víða um heim. Bandaríska
leyniþjónustan var í gær sökuð um
að hafa fyrirskipað pyntingarnar til
að neyða fangana til að veita upplýs-
ingar.
Árás á Vesturlandabúa
Að minnsta kosti sex Vest-
urlandabúar og þrír árásarmenn
biðu bana í árás í bænum Yanbu í
Sádi-Arabíu í gær. Hermt var að
mennirnir hefðu ráðist inn á skrif-
stofu þar sem Vesturlandabúar
starfa og hafið skothríð. Þeir hefðu
síðan skotið á vestrænar verslanir
og veitingahús.
Y f i r l i t
Í dag
Skissa 6 Bréf 50
Sigmund 8 Dagbók 52/53
Listir 29/31 Auðlesið efni 54
Forystugrein 32 Þjónusta 55
Reykjavíkurbréf 32 Kirkjustarf 42
Skoðun 34/37 Leikhús 56
Umræðan 38/42 Fólk 56/61
Minningar 43/47 Bíó 58/61
Hugvekja 42 Sjónvarp 62/63
Myndasögur 50 Veður 63
* * *
Morgunblaðið Kringlunni 1, 103 Reykjavík. Sími 5691100 Innlendar fréttir frett@mbl.is Ágúst Ingi Jónsson, aðstoðarfréttaritstjóri, aij@mbl.is Sigtryggur Sigtryggsson, aðstoðarfréttaritstjóri, sisi@mbl.is Erlendar fréttir Ásgeir Sverrisson, fréttastjóri,
asv@mbl.is Viðskipti vidsk@mbl.is Ólafur Stephensen, aðstoðarritstjóri, olafur@mbl.is Úr verinu Hjörtur Gíslason, fréttastjóri, hjgi@mbl.is Daglegt líf Guðbjörg Guðmundsdóttir, gudbjorg@mbl.is Listir menning@mbl.is Orri Páll Ormarsson, ritstjórnarfulltrúi,
orri@mbl.is Umræðan|Bréf til blaðsins Magnús Finnsson, fulltrúi ritstjóra, magnus@mbl.is Hallur Þorsteinsson, hallur@mbl.is Minningar minning@mbl.is Hilmar P. Þormóðsson, Stefán Ólafsson Dagbók|Kirkjustarf Ellý H. Gunnarsdóttir, elly@mbl.is Íþróttir
sport@mbl.is Sigmundur Ó. Steinarsson, fréttastjóri, sos@mbl.is Fólk í fréttum Skarphéðinn Guðmundsson, skarpi@mbl.is Útvarp|Sjónvarp Andrea Guðmundsdóttir, andrea@mbl.is mbl.is netfrett@mbl.is Guðmundur Sv. Hermannsson fréttastjóri gummi@mbl.is
Alltaf ód‡rast á netinuÍSLE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
I
C
E
22
35
0
1
0/
20
03
Glasgow 14.490 kr.
London 16.900 kr.
Kaupmhöfn 16.900 kr.
Hamborg 16.900 kr.
Berlín 16.900 kr.
Nýr netsmellur
ATVINNA fyrir alla vísar til þeirrrar skoðunar
okkar að það beri að flétta saman áherslur í
efnahagsmálum, atvinnumálum og félagsmál-
um. Það vísar til þess, að nú þegar við sjáum
fram á að ástand í atvinnumálum verði vænt-
anlega betra næstu árin, að minnsta kosti þar
til þeim stórframkvæmdum sem nú eru í gangi
lýkur, þá er rétti tíminn til að undirbúa árin
sem á eftir koma, sagði Grétar Þorsteinsson,
forseti Alþýðusambands Íslands, um yfirskrift
dagsins í ávarpi á baráttudegi verkalýðsins á
Ísafirði.
Grétar sagði að ástandið í þjóðfélaginu og
efnahagslífinu hefði lengi markast af óttanum
við verðbólgu en þær áhyggjur hefðu nú færst
yfir á atvinnuleysið.
„Undanfarin misseri höfum við kynnst vá-
gesti sem hefur verið næstum óþekktur um all-
langt skeið – það er langtímaatvinnuleysi. Það
er nokkuð sem við getum ekki sætt okkur við,“
sagði hann. Þá vísaði yfirskrift dagsins til
þeirrar þróunar sem átt hefði sé stað á und-
anförnum árum með breyttu eignarhaldi í at-
vinnulífinu og hlutabréfavæðingu fyrirtækja
sem hefði leitt til þess að stjórnendur hefðu
fjarlægst fyrirtækin og gerðu þá einu kröfu að
þau skiluðu arði. „Við höfum
allt of mörg dæmi um að
menn hafi lokað fyrirtækjum
sem skapa grundvöllinn að
atvinnulífi í heilu byggðarlög-
unum af því að kvótinn skilar
meiri arði annars staðar.“
Niðurskurður þrátt
fyrir fögur fyrirheit
Grétar sagði um nýgerða
kjarasamninga stærstu sam-
bandanna á almennum vinnumarkaði að ljóst
væri að þeir ógnuðu á engan hátt stöðugleik-
anum í þjóðfélaginu. Sérstök ástæða væri hins
vegar til að nefna að framlög í lífeyrissjóði
myndu aukast á samningstímanum og með því
væru mikilvæg réttindi tryggð. Þá hefði náðst
samkomulag um að jafna réttindi og kjör fólks í
stéttarfélögum opinberra starfsmanna og fé-
lögum á almennum vinnumarkaði sem hefði
verið krafa verkalýðshreyfingarinnar um ára-
bil.
„Ég hlýt þó að lýsa nokkum vonbrigðum yfir
aðkomu ríkisstjórnarinnar. Fyrir alþingiskosn-
ingar var mikill og góður samhljómur milli
stjórnmálaflokkanna um velferðarmál. Þessi at-
riði hafa ekki gengið eftir. […] Í sáttmála rík-
isstjórnarinnar er að finna ýmis fögur fyrirheit
um jafnan aðgang að heilbrigðisþjónustu, efl-
ingu heilsugæslu, hækkun barnabóta og stuðn-
ing við fjölskyldur langveikra barna, svo fátt
eitt sé nefnt. Í fjárlögum gat aftur á móti að
líta niðurskurð á mörgum sviðum og við höfum
séð merki þar um, til dæmis í heilbrigðiskerf-
inu,“ sagði Grétar.
Þá vék hann að stækkun Evrópusambands-
ins. Ríkisstjórnin hefði, m.a. að ráði ASÍ,
ákveðið að fresta gildistöku ákvæða um frjálsa
för fólks frá nýjum aðildarríkjum sambandsins
en það bæri síður en svo að túlka þannig að
ASÍ væri á móti útlendingum. Sagði Grétar að
búa þyrfti erlendu fólki betri skilyrði til at-
vinnuþátttöku hér á landi, einkum í ljósi reynsl-
unnar af framkvæmdum við Kárahnjúka.
„Reynslan af framkvæmdunum við Kára-
hnjúka hefur sýnt okkur að íslenskt samfélag
var ekki tilbúið að takast á við þær aðstæður
sem sköpuðust þar og svo virðist sem viðfangs-
efnin þar hafi komið opinberum eftirlitsstofn-
unum í opna skjöldu – svo ótrúlegt sem það nú
er,“ sagði Grétar Þorsteinsson.
Grétar Þorsteinsson í ávarpi á baráttudegi verkalýðsins 1. maí á Ísafirði
„Rétti tíminn til að undir-
búa árin sem á eftir koma“
Grétar
Þorsteinsson
ÍSLENSKA ólympíunefndin mun fá
gistingu um borð í skemmti-
ferðaskipi meðan á dvöl hennar í
Aþenu stendur vegna ólympíu-
leikanna í sumar. Skortur er á gisti-
rými í borginni fyrir allan þann
fjölda sem sækir leikana og því
hafa skipuleggjendur brugðið á það
ráð að leigja átta skemmtiferðaskip
til að gegna hlutverki hótela.
Fréttastofan AP greinir frá því
að íslenska ólympíunefndin sé með-
al þeirra nefnda sem munu gista í
einu af „fljótandi“ hótelunum. Hin-
ar nefndirnar eru frá Rússlandi,
Suður-Afríku, Indónesíu og Taívan.
Gert er ráð fyrir því að 13 þúsund
gestir ólympíuleikanna fái gistingu
í skipunum, en meðal þeirra er
Queen Mary 2, stærsta skemmti-
ferðaskip í heimi.
Íslenska ólympíu-
nefndin gistir í skipi
Reuters
ÞAU tæknilegu mistök urðu í
Tímariti Morgunblaðsins í dag
við vinnslu fyrri hluta greinar
um forsetaferil Ólafs Ragnars
Grímssonar að á tveimur stöð-
um féllu út setningar og setn-
ingarhlutar. Á milli blaðsíðna
15 og 16 vantar eina línu. Rétt
er setningin svona: Þegar
menn eru núna að tala um að
þetta sé svo lítið og ómerki-
legt embætti að forseti þings-
ins geti hæglega sinnt því
byggist það á misskilningi;
forsetaembættið er fullt starf
og eigi aðrir að sinna því verð-
ur það einfaldlega skorið nið-
ur.
Á milli blaðsíðna 22 og 24
vantar línur. Réttar eru setn-
ingarnar svona: „Sveinn
Björnsson fór aðeins einu
sinni í opinbera heimsókn til
útlanda,“ segir Gylfi Gröndal.
„Það var til Bandaríkjanna í
ágúst 1944 þar sem hann þáði
heimboð Roosevelts for-
seta …“
Morgunblaðið biðst velvirð-
ingar á þessum mistökum.
Leiðrétting
VERKALÝÐSDAGURINN var
haldinn hátíðlegur um land allt í
gær en í yfir 80 ár hefur íslenskt
launafólk komið saman og farið í
kröfugöngur 1. maí til að berjast
fyrir betri kjörum
Í Mývatnssveit sem annars stað-
ar gengur lífið sinn vanagang á
hefðbundnum vinnudegi og þar
var að mörgu að hyggja daginn
fyrir verkalýðsdaginn áður en dæl-
ing á kísilgúr gæti hafist úr Mý-
vatni. Þeir Grétar Ásgeirsson og
Magnús Ómar Stefánsson, starfs-
menn Kísiliðjunnar, voru að und-
irbúa dælulögn og draga hana út á
vatnið. Dælingu á kísilgúr úr Mý-
vatni verður hætt síðsumars og
verður starfsemi Kísiliðjunnar lögð
niður í síðasta lagi um næstu ára-
mót.
Morgunblaðið/Birkir Fanndal
Í dagsins önn við Mývatn