Morgunblaðið - 02.05.2004, Qupperneq 8
FRÉTTIR
8 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Halda fast í bandið – og fylgja foringjanum.
Ný námsbraut Ferðamálaskólans
Lært að starfa
í háloftunum
Ferðamálaskólinn íKópavogi er aðhleypa af stokkun-
um nýrri námsbraut frá
og með næsta hausti. Um
er að ræða nám fyrir
flugfreyjur og flugþjóna.
Morgunblaðið ræddi við
Sigríði Þrúði Stefánsdótt-
ur, stjórnanda skólans.
Segðu okkur fyrst frá
skólanum …
„Ferðamálaskólinn í
Kópavogi hefur verið
starfræktur í 15 ár. Frá
1997 hefur markvisst ver-
ið boðið upp á starfstengt
nám þar sem hluti náms
nemenda fer fram úti á
vinnustöðum. Markmið
alls náms sem hér er boð-
ið upp á er að það sé hag-
nýtt, taki mið af starf-
semi fyrirtækja í ferðaþjónustu
og nýtist nemendum undir
margvísleg störf í ferðaþjónustu.
Boðið er upp á 3 námslínur:
Starfstengt ferðafræðinám, Al-
þjóðlegt Iata-Uftaa nám og nú
er að hefjast nám fyrir flugfreyj-
ur og flugþjóna. Allar námslínur
í Ferðamálaskólanum eru ætl-
aðar einstaklingum sem eru tví-
tugir eða eldri. Í tengslum við
námið fer fram starfsnám á
vinnustað og margir nemendur
fara beint í vinnu að námi loknu.
Ferðamálaskólinn er starfrækt-
ur í tengslum við Menntaskól-
ann í Kópavogi og þar er svo
einnig hægt að stunda ferða-
málanám til stúdentsprófs.“
Segðu okkur frá þessu nýja
námi …
„Þetta er nám fyrir þá sem
vilja starfa sem flugfreyjur og
flugþjónar. Það hefur verið lang-
ur undirbúningur að því að
kennsla hefjist á þessari nýju
braut en nú mun kennslan hefj-
ast næsta haust. Námið er hugs-
að fyrir fólk sem ætlar að sækja
um starf sem flugfreyjur og
flugþjónar og er skipulagt í sam-
starfi við flugfélög á Íslandi. Ár-
ið 2000–2001 starfaði undirbún-
ingsnefnd á vegum skólans sem í
sátu, ásamt fulltrúum skólans,
fulltrúi frá Icelandair og Flug-
félaginu Atlanta. Vegna atvinnu-
ástands hjá flugfélögunum var
ákveðið að fresta því að námið
hæfist haustið 2001 og allt það
skólaár. Núna höfum við tekið
þráðinn upp að nýju og skráning
í námið næsta haust er hafin.“
Hvar hefur fólk í þessari
starfsstétt menntað sig til
þessa?
„Flugfélögin hafa sjálf séð um
þjálfun sín starfsfólks. Sú þjálf-
un mun halda áfram því námið í
Ferðamálaskólanum miðast
fyrst og fremst að því að bjóða
upp á grunnþjálfun flugfreyja og
flugþjóna. Flugfélögin munu
alltaf þurfa að sjá um sérhæfða
þjálfun tengda flugvélagerðum,
stefnu og sérhæfðum markmið-
um hvers fyrirtækis. Hins vegar
munum við starfa í samráði við
flugfélög á Íslandi. Í tengslum
við námsbrautina mun
starfa ráðgjafanefnd
sem í sitja fulltrúar
flugfélaganna og sú
nefnd sér m.a. um að
velja umsækjendur og
endurskoða reglulega námsefnið
sem er kennt. Í nefndina hafa nú
þegar verið settir fulltrúar frá
Icelandair, flugfélaginu Atlanta,
Íslandsflugi og Iceland Express.
Kennt er samkvæmt alþjóða-
reglum JAR sem flugfélög
starfa eftir og hefur Flugmála-
stjórn samþykkt þá áfanga sem
tilheyra alþjóðareglugerðum.“
Í hverju er þetta nám fólgið?
„Markmið námsins er að auka
hæfni einstaklinga til að starfa
sem flugfreyjur og flugþjónar.
Námið ein kennsluönn eða 14
vikur og að því loknu eiga nem-
endur að hafa nokkuð viðamikla
þekkingu á flugöryggismálum,
ferðaþjónustu í heild sinni og
starfsemi flugfélaga. Námið er
nokkuð lengra heldur en nám-
skeið flugfélaganna sem nú eru
starfrækt enda var það rætt í
undirbúningsnefndinni að námið
gæti einnig nýst sem undirbún-
ingur fyrir önnur störf hjá flug-
félögum.“
Hvaða grunn þurfa umsækj-
endur að hafa til brunns að
bera?
„Inntökuskilyrði er stúdents-
próf eða að minnsta kosti
tveggja ára nám á málabraut
framhaldsskóla, sveinspróf í
framreiðslu eða annað sambæri-
legt nám. Það er 21 árs aldurs-
takmark. Í öllum tilfellum þarf
umsækjandi að hafa gott vald á
íslensku, ensku og einu öðru
tungumáli.“
Hvað verða margir teknir inn
á hverri önn?
„Það er miðað við að taka há-
mark 30 nemendur inn á hverri
önn.“
Er þetta mikið nám og
strangt?
„Nám eins og þetta krefst að
sjálfsögðu mikillar vinnu. Þetta
eru 400 kennslustundir sem eru
kenndar á 14 vikum og það eru
kenndar 6 kennslustundir á dag.
Kennslan fer fram
seinnipart dags svo
það er möguleiki að
vinna allt að 50% starf
með náminu. Hins
vegar, má ekki van-
meta það að þegar fólk fer í
nám, þarf einnig að læra heima,
svo mikil vinna með námi er ekki
það sem við mælum með.“
Er mikil eftirspurn eftir námi
af þessu tagi?
„Skráning er nú þegar hafin
og það er heilmikið um fyrir-
spurnir. Það má fá umsókn-
areyðublöð á heimasíðu skólans,
www.mk.is/ferdamalaskolinn.“
Sigríður Þrúður Stefánsdóttir
Sigríður Þrúður Stefánsdóttir
er fagstjóri Ferðamálaskólans.
Hún er fædd 3.12. 1967. Lauk
BA-prófi í ferðamálafræði og
stjórnun frá University of
Strathclyde í Skotlandi. Er að
ljúka meistaraprófsritgerð í MS-
námi í stjórnun og stefnumótun
við viðskipta- hagfræðideild HÍ.
Stjórnandi Ferðamálaskólans frá
1997. Maki Sigríðar er Benjamín
Gíslason, sérfræðingur hjá
Tölvumiðstöð sparisjóðanna.
Börn: Hertha Kristín (3), Gísli
Jón (rúml. 1), Bergljót (10),
fósturdóttir.
… er að auka
hæfni ein-
staklinga …
Súrefnishjúpurinn
sem verndar húðina
20% kynningarafslátturkynning
Þriðjudaginn 4. maí, Lyfja Lágmúla
Fimmtudaginn 6. maí, Lyfja Smáralind
Mánudaginn 3. maí, Lyf og heilsa Melhaga
TVEIR ungir karlmenn eltu þann
þriðja úr miðbæ Reykjavíkur upp á
Hverfisgötu í fyrrinótt þar sem þeir
náðu honum og börðu illa.
Hlaut fórnarlamb árásarinnar það
mikla áverka að kalla þurfti á sjúkra-
bíl til að flytja hann á slysadeild.
Þetta var rétt eftir klukkan fimm um
nóttina.
Að sögn lögreglunnar í Reykjavík
er vitað hverjir árásarmennirnir eru
og telst málið upplýst að því leyti.
Eltu og börðu
mann á
Hverfisgötu
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111