Morgunblaðið - 02.05.2004, Qupperneq 18
18 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Það hræðast allir hann Harry og töframátt hans.
O
furmenni,
ofurhetjur,
skrímsli,
skrímsla-
bani, katta-
kona, katt-
arskömm,
ævintýra-
strákar og ævintýrastelpur. Það
verða fastir liðir eins og venjulega
þegar kemur að hvíta tjaldinu í
sumar. En það verður líka boðið
upp á ýmislegt sem ekki teljast eins
fastir liðir. Framhaldsmyndir eru
t.d. ekki eins áberandi margar og
undanfarin ár – þótt vissulega séu
þær margar. Og áhætturnar virðast
fleiri og stærri. Sem er alltaf hið
besta mál því miklum áhættum
fylgir líka hið óvænta og ófyrirsjá-
anlega. Meira að segja svæsnustu
fjárhættuspilarar veigra sér við að
leggja of mikið undir spádóma um
gengi stórmynda á borð við Van
Helsing, Troy, Day After Tomorr-
ow, King Arthur, Catwoman,
Around The World in 80 Days,
Terminal, I, Robot og Thunderbird.
Sama hversu spennandi þær
hljóma allar saman með tölu. En
tókuð þið eftir einu. Engin þessara
mynda er framhaldsmynd í eigin-
legri merkingu. Frábært. Eitthvað
nýtt. Eitthvað ferskt. Eitthvað ann-
að. Eitthvað óútreiknanlegra. Eitt-
hvað sem örugglega á síðar meir
eftir að geta af sér hið óumflýjan-
lega – framhaldsmyndir.
MAÍ: Skálmöld og skrímsli
Ef við gefum okkur
að þeir félagar
Tarantino og Billi
hafi átt síðustu
stórmynd vetrarins þá er
skrímslauppgjörið Van
Helsing vafalaust
fyrsta stórmynd
sumarsins en
hún verður frum-
sýnd um heim allan
um næstu helgi.
Hér er á ferð
nýjasta mynd
Stephens Somm-
ers sem sló óvænt í
gegn með Múmíu-mynd-
um sínum tveimur (leikstýrði
ekki þriðju myndinni með
The Rock). Og það hefur
hingað til gefið góða raun
fyrir hinn 42 ára gamla
Sommers sem leggur býsna
mikið undir með Van
Helsing, mynd sem hann
skrifaði sjálfur og leikur
sér með þá kræsilegu hug-
mynd að láta frægasta blóð-
sugubana skáldsagnaheims-
ins, Van Helsing, mæta ekki
bara Drakúla, heldur líka
Frankenstein og Varúlfinum.
Hugh Jackson er hetjan,
leikur Van Helsing, og herma
fyrstu fregnir að þar sýni
hann endanlega og sanni
hver sé næsta stórstjarna
hasarkvikmyndanna, og
leggi ríkulega inn á Bond-
reikninginn sinn nýopnaða.
Myndin er risavaxin í snið-
um og gæti hæglega orðið
ein sú stærsta í sumar.
Tvær aðrar álíka stórar í
sniðum berast seinna í mán-
uðinum maí.
Trója (Troy) er söguleg ævin-
týramynd gerð af Þjóðverjanum
Wolfgang Petersen. Sagan kem-
ur úr Illíonskviðu Hómers og
Pott(er)þétt bíósumar
Harry Potter snýr aftur,
Spiderman og Shrek líka.
Þeir þrír ólíku kumpánar
einir sér ættu að gera gott
bíósumar. En það verður
meira til að þessu sinni,
miklu meira, eins og
Skarphéðinn Guðmundsson
komst að er hann kortlagði
nýhafið bíósumarið.
Annálar Riddicks: Vin Diesel á harðhausatrúnó með Alexu Davalos.
Allt á floti alls staðar: Jake Gyllenhaal veður í Ekki á morgun heldur hinn.
Fastur í fríhöfn: Tom Hanks í einskis manns landi í Flugstöð Spielbergs.
Van Helsing: Vopnaður skrímslabani í
vígahug.
…með allt á einum stað
Akkiles í her-
klæðum: Brad
Pitt tekur epíkina
á hælinn í Tróju.