Morgunblaðið - 02.05.2004, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 23
þeirra opinberu aðila sem stjórni og
hafi eftirlit með lyfjamálum, með það
fyrir augum að færa verkefni á færri
hendur.“
Ríkisendurskoðun segir að kanna
þurfi í samvinnu við rekstraraðila
hvort fækka megi apótekum, eða
gera rekstur þeirra hagkvæmari með
því að draga úr kostnaði. Jón segir að
síðast þegar lyfjalögum var breytt
hafi verið gerð krafa um tvo lyfja-
fræðinga á vakt í apótekum. Þetta
hafi verið talið öryggismál, en nú hafi
apótekin gert athugasemdir við þetta
fyrirkomulag. Þetta atriði þurfi að
skoða. Í skýrslu Ríkisendurskoðunar
er bent á að tvær keðjur apóteka séu
með 80–85% af smásölumarkaði lyfja
hér á landi. Ári 1996 hafi apótek verið
44 talsins en fjölgaði í 61 eftir að lyf-
sala var gefin frjáls. Fjöldi íbúa að
baki hverju apóteki er nú um 4.750,
sem er minna en annars staðar á
Norðurlöndunum. Telur heilbrigðis-
ráðherra að apótekum hafi fjölgað
um of?
„Apótekin eru orðin ansi mörg.
Auðvitað er ekki hægt að miðstýra
fjölda þeirra úr mínum stóli, en út-
sölustöðum hefur fjölgað þrátt fyrir
kröfur um tvo lyfjafræðinga á vakt.“
Ríkisendurskoðun bendir á þá
sparnaðarleið að leita undanþágu um
að fylgiseðli á íslensku sé pakkað með
öllum lyfjum. Jón segir að það sé ef til
vill óþarft að setja íslenskar leiðbein-
ingar með lyfjum sem læknar og
hjúkrunarfræðingar gefa sjúklingum
á sjúkrahúsum. Hins vegar telur Jón
nauðsynlegt að leiðbeiningar á ís-
lensku fylgi lyfjum utan sjúkrahúsa.
Jón segir að þegar hafi verið brugðist
við þeirri ábendingu Ríkisendurskoð-
unar að endurskoða heimilaða álagn-
ingu á lyf, bæði í heildsölu og smá-
sölu, þannig að hún hvetji til sölu á
ódýrari lyfjum.
Útboð í lyfjainnkaupum
– Þeir sem flytja inn og selja lyf
hafa bent á að í stað opinbers verð-
myndunarkerfis mætti ná lækkun á
lyfjaverði með reglulegum útboðum
og lækkun eftirlitskostnaðar hins op-
inbera. Meðal annars hefur verið
bent á að á sama tíma og krafist var
lækkunar á lyfjaverði hækkaði gjald-
skrá Lyfjastofnunar um 10–13%. Er
einhver mótsögn í orðum og gjörðum
ríkisvaldsins?
„Við erum tilbúnir að skoða kostn-
aðarþættina, en Lyfjastofnun gegnir
mjög veigamiklu hlutverki tækni-
lega. Við þurfum að hafa hana öfluga.
Hún hefur verið fjármögnuð með eft-
irlitsgjöldum. Um það má alltaf deila,
en þessi pólitíska ákvörðun hefur
verið tekin,“ segir Jón. Aðspurður
segist hann ekki sjá fyrir sér breyt-
ingu á tekjuöflun Lyfjastofnunar,
sem byggist á eftirlitsgjöldum af
lyfjaiðnaðinum. „Við munum fara yfir
þann þátt með öðrum í þeirri endur-
skoðun sem nú fer fram. En ég sé ég
ekki fyrir mér á þessu stigi að það
verði breytingar á því. Við yrðum þá
að taka þann kostnað út af fjárlögum
og það yrði frekar þungur róður, en
þetta verðum við að skoða.“
Jón segist vera eindreginn fylgis-
maður útboða í lyfjainnkaupum.
„Landspítalinn hefur til dæmis farið í
vaxandi mæli inn á þá braut. Ég tel
nauðsynlegt fyrir heilbrigðisstofnan-
ir að vinna meira saman að innkaup-
um og ná sem bestum kjörum með
því að bjóða út. Ég tel að það sé leið
sem menn eigi að fara í auknum
mæli.“
– En finnst heilbrigðisráðherra
koma til greina að íslenska ríkið leiti
tilboða í lyf fyrir sínar stofnanir er-
lendis eða flytji inn lyf þaðan sem
verð er lægra en hér?
„Ég vil reyna til þrautar hvort ekki
er hægt að ná betri kjörum í sam-
vinnu við þá aðila sem hafa þekkingu
og afl til þess að gera þetta hér á
landi. Ég vil láta reyna á það áður en
farið er í ríkisvæðingu þessara hluta.
Ég trúi ekki öðru en að einkageirinn
hafi afl til að gera þetta.“ Er hin leiðin
möguleg þrautalending?
„Ég vona að til þeirrar lendingar
þurfi ekki að koma,“ segir Jón og
hlær að tilhugsuninni. „Það er eflaust
hægt, en ég hef engin slík áform uppi.
Ég er nýbúinn að bindast fastmælum
um að kanna rækilega hvort við get-
um ekki nálgast lyfjaverð í nágranna-
löndunum sem mest eftir þeim leið-
um sem nú eru fyrir hendi. Ég tel það
ekki í samræmi við þróunina á al-
mennum markaði að fara að ríkis-
væða lyfjasöluna og innflutninginn.“
– Hefur sú samþjöppun sem orðið
hefur í lyfsölu og framleiðslu lyfja hér
á landi leitt til verðhækkana á lyfj-
um?
„Það er ljóst að sú samkeppni sem
ríkir hér á markaði skilar ekki sam-
bærilegu verði hér og er í nágranna-
löndunum. Það hefur orðið mikill
samruni í lyfjasmásölunni. Tvær
keðjur eru með meirihluta af mark-
aðnum. Markaðurinn er að vísu ekki
stór, en veltir þó miklum peningum
miðað við aðrar vörur. Ég held að
samkeppnin hafi ekki skilað nægu
ennþá.“
– Það hefur komið í ljós að lyfsölu-
keðjur fá afslætti frá helsta framleið-
anda samheitalyfja hér á landi og
skila honum til sjúklinga, en ekki til
stærsta viðskiptavinarins sem er ís-
lenska ríkið. Eruð þið nógu snjallir í
viðskiptum?
„Sennilega erum við það ekki,“
segir Jón. „Það er því miður þannig
að sá sem borgar 60% af pakkanum
fær engan afslátt, en þeir sem borga
40% fá allan afsláttinn! Það er auðvit-
að gott fyrir sjúklingana og neytend-
ur, en manni finnst það eðlileg regla í
viðskiptum að sá sem greiðir meira
fái afslátt. Í þessu tilfelli ættu menn
að skipta honum á milli sín. Það
myndi auka svigrúm Trygginga-
stofnunar til greiðsluþátttöku ef hún
fengi hluta af þessum afslætti.“
– Hafið þið leitað beinlínis eftir því
að fá þennan afslátt af lyfjaverði?
„Þetta er eitt af þeim atriðum sem
við munum ræða, en það liggja engar
ákvarðanir fyrir um það núna.“
Boðuð hefur verið mikil endur-
skoðun lyfjamála. Jón segir að lyfja-
frumvarpið, sem nú liggur fyrir al-
þingi, hafi í raun verið fyrsta skrefið í
þeirri vinnu. „Í því eru atriði sem
okkur þótti nauðsynlegt að taka á
strax. Nefndirnar eru sameinaðar
með það fyrir augum að samnýta
krafta þeirra og gera þær að öflugri
stofnun en nú er. Það var ekki eftir
neinu að bíða með það. Ég vona að við
getum lagt fram endurskoðaða lyfja-
löggjöf áður en langt um líður.“
Jón segist ekki þora að spá um það
enn hvort það náist fyrir haustþing,
en telur það æskilegt. „Ég vil vinda
bráðan bug að þessu. Mér finnst að í
þessum geira sé eftir miklu að slægj-
ast. Við erum alstaðar með mikla
fjárþörf í heilbrigðisþjónustunni. Allt
sem sparast í þessu gæti komið til
góða annars staðar. Hjálpað okkur að
mæta þeirri fjárþörf sem er alstaðar í
kerfinu. Mér finnst þetta mjög að-
kallandi og mikið forgangsmál.“
Reynt til þrautar
Auk endurskoðunar lyfjalaga segir
Jón að innan heilbrigðisstofnana sé
unnið að ýmsum aðgerðum í sparnað-
arátt. Til dæmis gerð lyfjalista. Eins
og komið hefur fram hefur verið unn-
ið að því að breyta greiðsluþátttöku
Tryggingastofnunar þannig að hún
miðaðist almennt við lægsta lyfja-
verð. Jón segir að nú verði reynt til
þrautar hvort hægt sé að ná niður
lyfjaverðinu. Hafa einhver tímamörk
verið sett í þessar áætlanir?
„Varðandi smásöluna og innlendu
lyfjaframleiðendurna taka lækkanir
þeirra gildi 1. maí. Varðandi heild-
sölustigið eiga lækkanir að vera farn-
ar að virka að fullu 1. júlí. Í lok júlí-
mánaðar eigum við að geta tekið
stöðuna á málinu.“
Jón segir að til að ná markmiði
fjárlaga um 450 milljóna króna
sparnað í lyfjakostnaði TR verði lögð
áhersla á að ná fram meiri lækkunum
en þegar hefur verið samið um. „Ef í
ljós kemur að við náum því ekki verð-
um við að stinga reglugerðinni aftur í
samband seinnihluta ársins. Þess
vegna tók ég hana ekki úr gildi, held-
ur frestaði henni.“
– Nægir það til að ná settu marki?
„Ég vona það, ef við náum því ekki
á annan hátt. Sú krafa er gerð til okk-
ar að lækka lyfjakostnað TR. Það
sem snýr að heilbrigðisstofnunum er
að hjálpa þeim að vera innan ramma
fjárlaga, Landspítalinn hefur alltaf
farið framúr á lyfjareikningnum, en
ég veit að þeir eru nú að ná árangri
með útboðum. Þeir eru líka að vinna í
sínum lyfjalistum og innra skipulagi
varðandi þessi mál.“
gudni@mbl.is
Nemendaþjónustan sf. Álfabakka 12, Mjódd
Innritun í síma 557 9233 frá kl. 17-19 virka daga
NÁMSAÐSTOÐ
á lokasprettinum fyrir vorprófin
- SPENNANDI VALKOSTUR
Stangarhyl 3, 110 Reykjavík, sími 591 9000
www.terranova.is
Akureyri, sími 461 1099
Súpersól til
Portúgal
26. maí
frá 29.995.-
Tryggðu þér síðustu sætin í sólina til Portúgal í maí á hreint ótrúlegum kjörum
í beinu flugi Terra Nova til Portúgal. Þú getur valið um viku eða tveggja vikna
ferð og dvalið við frábærar aðstæður, enda er sumarið komið í Portúgal og
auðvelt að njóta alls sem staðurinn hefur að bjóða. Og auðvitað nýtur þú
þjónustu fararstjóra Terra Nova allan tímann. Þú bókar ferðina og 3 dögum
fyrir brottför færðu að vita hvar þú gistir í fríinu þínu í Portúgal.
Kr. 29.995
M.v. hjón með 2 börn, 2–11 ára, í viku 26.
maí. Innifalið flug, gisting og skattar.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800 á mann.
Kr. 39.990
M.v. 2 saman í gistingu í viku 26. maí.
Innifalið flug, gisting og skattar.
Ferðir til og frá flugvelli kr. 1.800.