Morgunblaðið - 02.05.2004, Side 30
LISTIR
30 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
…með allt á einum stað
EITT af elstu og virtustu leikhús-
um Moskvuborgar, Akademíuleik-
húsið, frumsýndi sl. laugardag leik-
ritið Að eilífu eftir Árna Ibsen.
Leikstjóri er hinn eistneski Raivo
Trass. Þýðinguna geri Yuri Rhesit-
ov, fyrrverandi sendiherra á Ís-
landi, en hann lést í vetur er hann
hafði rétt nýlokið við þýðinguna.
Árni Ibsen var viðstaddur frum-
sýninguna og segir hana hafa verið
mikla upplifun. „Þetta er stórt og
virðulegt leikhús við leikhústorgið í
Moskvu við hlið Bolshoj leikhúss-
ins. Mér var tjáð að sýningin á Að
eilífu markaði nokkur tímamót fyr-
ir leikhúsið þar sem það væri
þekktast fyrir viðamiklar uppsetn-
ingar á klassískum verkum,“ segir
Árni. „Við leikhúsið eru um 80
samningsbundnir leikarar og frum-
sýningar voru í rauninni tvær, á
laugardag og síðan kvöldið eftir,
þar sem tvísett er í flest hlut-
verkin. Hlutverk eru 18 í sýning-
unni en alls fara nær 30 leikarar
með hlutverk vegna tvísetningar-
innar.“
Leikhússtjóri Akademíuleikhúss-
ins er Alexei Borodin, en hann setti
upp tvær sýningar í Borgarleikhús-
inu í Reykjavík fyrir nokkrum ár-
um, Djöflana eftir Dostojevskí og
Feður og syni eftir Turgenjev.
„Hann hafði áhuga á að fá eist-
neska leikstjórann Raivo Trass til
samstarfs en hann er leikhússtjóri
borgarleikhússins í Pärnu í Eist-
landi. Þar hafa bæði Himnaríki og
Að eilífu verið leikin við miklar vin-
sældir. Þegar Borodin spurði Trass
hvaða verk hann vildi setja upp þá
stakk hann upp á Að eilífu og Bor-
odin sló til,“ segir Árni.
Það er sannarlega ekki á hverj-
um degi sem íslenskt leikrit er
frumsýnt í Moskvu. Aðeins einu
sinni áður hefur það gerst, þegar
Malyleikhúsið sýndi Silfurtungl
Halldórs Laxness á sjötta áratug
síðustu aldar. „Þetta er auðvitað
mjög skemmtilegt og mest þótti
mér til um viðbrögð áhorfenda. Það
var hrópað og klappað og leikendur
voru kaffærðir í blómum í sýning-
arlok. Ég hugsa að efni verksins
geti höfðað til rússneskra áhorf-
enda í dag, þar sem þetta er satíra
á eftirsókn okkar eftir glysveröld-
inni í Hollywood. Þarna segir frá
undirbúningi tveggja íslenskra fjöl-
skyldna við brúðkaup sem á að fara
fram í anda hinnar amerísku Holly-
woodkvikmyndar. Rússar hafa ver-
ið fljótir að tileinka sér vestræna
siði – og ósiði – og áhorfendur virt-
ust vel með á nótunum,“ segir
Árni.
Að eilífu var frumsýnt í Hafn-
arfjarðarleikhúsinu vorið 1997 og
var samstarfsverkefni leikhússins
við Nemendaleikhús Leiklistar-
skóla Íslands og var samið sér-
staklega að beiðni þess. „Eftir að
hafa séð þetta núna langar mig
mest til að vinna áfram með leik-
ritið,“ segir Árni og bætir því við
að hvarflað hefði að sér að þetta
væri kannski efni í söngleik. „Þetta
var svo kraftmikil sýning að maður
færðist allur í aukana,“ segir hann
að lokum.
Ljósmynd/ITAR-TASS
Árni Ibsen í sýningarlok ásamt leikurunum Raimula Iskander og
Denis Balandin í hlutverkum brúðhjónanna Guðrúnar og Jóns.
Að eilífu frumsýnt í Moskvu
KAMMERSVEIT Hafnarfjarðar
bregður upp mynd af W.A. Mozart á
tónleikum í Hásölum kl. 20 í kvöld,
sunnudagskvöld. Sveitin leikur þrjú
verk frá þremur æviskeiðum í lífi
W.A. Mozart. Divertimento fyrir
strengi K 136 sem Mozart samdi
þegar hann var 16 ára eftir vel
heppnað ferðalag til Ítalíu. Seren-
aða í Es-dúr K 375 fyrir blásara,
sem Mozart samdi árið 1781 þegar
hann vann að óperunni Brottnámið
úr kvennabúrinu og Sinfóníu nr. 40
í g-moll sem Mozart samdi 1788 og
er sennilega þekktust og dáðust af
öllum sinfóníum hans. Hún er önn-
ur af moll sinfóníum Mozarts. Vorið
1791 á dánarári Mozarts bætti hann
klarinettum við blásarahópinn í sin-
fóníunni og þannig heyrist hún á
þessum tónleikum.
Kammersveit Hafnarfjarðar er
skipuð bæði núverandi og fyrrver-
andi kennurum við Tónlistarskóla
Hafnarfjarðar sem sumir eru hljóð-
færaleikarar við Sinfóníuhljómsveit
Íslands og aðrir koma annars stað-
ar frá.
Kammersveit Hafnarfjarðar.
Mynd af Mozart
brugðið upp í Hásölum
KÓPAVOGSDAGAR verða settir í
dag og standa til 11. maí. Dagskráin
er eftirfarandi:
Kl. 13 Listasafn Kópavogs –
Gerðarsafn Setningarhátíð: Skóla-
hljómsveit Kópavogs leikur undir
stjórn Össurar Geirssonar. Knapar
úr hestamannafélaginu Gusti standa
heiðursvörð. Skólakór Kársness
syngur.
Kl. 13.30 Listatún við Listasafnið,
Salinn og Safnahúsið. Fjölskylduhá-
tíð: Stelpurnar í Nylon taka lagið.
Ratleikur undir stjórn Sollu stirðu
og Höllu hrekkjusvíns úr Latabæ.
Nemendur úr Jazzballettskóla Báru
í Kópavogi sýna dans eftir Irmu
Gunnarsdóttur. Lokaatriði þema-
tónleika Smáraskóla. Guðrún Gunn-
arsdóttir og Stefán Hilmarsson
syngja við undirleik Agnars Más
Magnússonar. Unglingakór Digra-
neskirkju syngur undir stjórn Heið-
rúnar Hákonardóttur. Búdrýgindi
spila á útitónleikum. Kvennakórinn
Vox Feminae syngur í Salnum kl.
17.
Kl. 11–14 Lindasafn Bókamessu-
kaffi. Ókeypis skírteini, tölvuleikir
til útláns, myndbönd og fleira. Guðs-
þjónusta kl. 11.
Kl. 14 Náttúrufræðistofa Kópa-
vogs Sýning Árna B. Stefánssonar
um Þríhnúkagíg og möguleika
hellisins sem ferðamannastaðar
verður opnuð. Margrét Björnsdótt-
ir, formaður Umhverfisráðs Kópa-
vogs, flytur ávarp.
Kl. 14 Sundlaug Kópavogs Helgi-
stund við laugina, séra Ægir Fr.
Sigurgeirsson. Skólakór Kársness
syngur undir stjórn Þórunnar
Björnsdóttur við undirleik strengja-
sveitar.
Kl. 14–18 Myndlistarskóli Kópa-
vogs, Fannborg 6 Opið hús. Nem-
endur úr fullorðinsdeildum skólans
vinna undir leiðsögn kennara.
Vatnslitir, olíumálun, teiknun og
leirmótun. Börn og unglingar fá
tækifæri til að teikna og mála með
aðstoð kennara.
Kl. 15 Salurinn Kvennakórinn
Vox Feminae syngur undir stjórn
Margrétar Pálmadóttur. Inga Back-
man, sópransöngkona, syngur ein-
söng. Undirleikari á píanó er Arn-
hildur Valgarðsdóttir.
Kl. 11–17 Listasafn Kópavogs –
Gerðarsafn Viðburðir í tengslum við
sýningu Rögnu Fróðadóttur,
Rebekku Ránar Samper og Bjarna
Sigurbjörnssonar. Hannes Lárusson
flytur gjörning. Aðgangur í safnið er
ókeypis.
Kl. 17 Digraneskirkja Vortón-
leikar Söngvina, kórs eldri borgara í
Kópavogi. Stjórnandi er Kjartan
Sigurjónsson. Flutt verður blönduð
efnisskrá íslenskra og erlendra laga.
Kl. 20 Salurinn Caterina Demetz,
15 ára ítölsk stúlka, leikur á fiðlu og
píanó og Nína Margrét Grímsdóttir
leikur á píanó.
Kópavogsdagar
Dóttir beinagræð-
arans eftir Amy
Tan er komin út í
kilju. Þýðandi er
Anna María Hilm-
arsdóttir.
Amy Tan vakti
heimsathygli með
fyrstu skáldsögu
sinni Leik hlæj-
andi láns. Dóttir beinagræðarans er
fjórða bók hennar sem kemur út á ís-
lensku og enn sem fyrr sækir höfund-
urinn efnivið sinn til Kína.
Útgefandi er Vaka Helgafell.
Bókin er 405 bls., prentuð í Dan-
mörku. Kápu hannaði Loftur O. Leifs-
son. Verð: 1.599 kr.
Kilja
Moggabúðin
Stuttermabolir, aðeins 1.000 kr.