Morgunblaðið - 02.05.2004, Side 35
Það segir sig sjálft að svona af-
staða okkar til hvert annars og
sér í lagi til þeirra viðreistu, er
algjörlega langt frá því að vera
náttúruleg, því að þegar allt kem-
ur til alls þá er uppbygging okkar
og eðli afar skylt öllu því sem fer
fram í náttúrunni sjálfri, sem
þýðir að við hljótum að fara frá
því hæsta til þess lægsta, frá
svartasta myrkri til mestu birtu,
og allt hlýtur að gerast innra með
okkur sem má finna í hreyfihvörf-
um náttúrunnar, hvort sem það
heitir fegurð eða ljótleiki, styrkur
eða veikleiki eða annað.
Höldum því vörð um þá við-
reistu og virðum þá sem hetjur
sem sigrast hafa á veikleikum
sjálfs sín og þannig orðið sig-
urvegarar vegna eigin kosta þó
svo að einhver okkar hinna hafi
verið svo heppin að fá tækifæri til
að ýta undir að slíkt yrði mögu-
legt. Meðferð okkar á hetjum á að
vera jákvæð, uppörvandi og hvetj-
andi en ekki lamandi, niðurrífandi
og vanvirðandi eða lituð af ein-
hvers konar afskræmdri afstöðu
til þeirra sem hafa sýnt vilja og
dug til að drífa sig inn á veg
tækifæra, dugnaðar og löngunar
til að láta gott af sér leiða. Mér
hefur þótt sem við sem ekki höf-
um verið villuráfandi um tíma svo
eftir sé tekið, hafa haft tilhneig-
ingu til að þvælast fyrir þeim við-
reistu með alls konar fordómum
og leiðindum og frekar draga úr
þeim kraft og getu heldur en að
hoppa hæð okkar yfir framgangi
og sigurvilja þeirra sem hlýtur að
verða aðdáunarverður.
Það sem er kannski enn þá
sorglegra er að við höfum til-
hneigingu til að mismuna við-
reistum á þann hátt að það virðist
vera algjör grundvallarmunur á
því að vera viðreistur karlmaður í
íslensku samfélagi heldur en við-
reist kona. Af einhverjum ann-
arlegum ástæðum virðumst við
sameinast ranglátlega um það að
vera umburðarlyndari gagnvart
karlmönnum sem taka á veik-
leikum sínum heldur en konum
sem gera hið sama. Sökum þessa
hefur framgangur viðreistra karla
verið miklu meira áberandi í sam-
félaginu og þeir notið mun meiri
velgengni heldur en konurnar
sem mun frekar eru stimplaðar
ævilangt vegna fortíðar sinnar.
Þetta þýðir að framtakssamar og
viðreistar konur sem hafa eitt-
hvað til að bera sem við hin get-
um grætt á, halda sig til hlés,
annars vegar af ótta við vandlæt-
ingu annarra og hins vegar vegna
þreytu og vonbrigða vegna enda-
lausra áminninga um að kvenmað-
ur sem kemur úr brostinni fortíð
geti haft lítið fram að færa og sé
einskis virði. En karlmanni með
sama bakgrunn er mun betur tek-
ið heldur en konunni sem á ná-
kvæmlega sömu reynsluþætti úr
sinni fortíð og karlmaðurinn.
Ég vil því skora á okkur hin
sem ekki höfum afvegaleiðst að
sýna þeim viðreistu ekki bara
virðingu heldur líka hollustu,
minnug þess að það er enginn
meðal Jón eða Gunna sem drífur
sig upp úr drullunni og verður
með dýrmæta reynsluþekkingu í
farteskinu sem afleiðing, heldur
fólk sem sannar svo um munar
með því að sigra sjálft sig, að það
er hetjur og manna líklegast til
að verða ekki bara sjálfum sér
heldur líka þeim sem mæta þeim,
til gleði og hvatningar af alls
kyns toga, ekkert síður en að
geta pirrað og valdið leiðindum.
Þá minni ég á að nákvæmlega það
sama bjóðum við hin upp á, af því
að þegar allt kemur til alls, þá er-
um við öll hluti þess sem lifir,
sem þýðir að í hverju einu okkar
býr eitthvert afbrigði náttúrunnar
og sem slík hljótum við alltaf að
vera á alls kyns innri hreyfingu
sem ýmist gleður eða hryggir.
Húrra fyrir ykkur sem hafið
náð tökum á lífi ykkar þannig að
eftir er tekið og megi hetjulund
ykkar verða okkur hinum, ekki
bara góð og holl fyrirmynd heldur
líka til þess að gleðja okkur og
hvetja og auka skilning okkar á
því að öll reynsla, hvernig sem
hún er tilkomin, eykur ríkidæmi
okkar. Þetta þýðir aukið frelsi og
möguleika sem geta orðið bless-
unarríkir ef við viljum það sjálf
og okkur er ekki gert ókleift að
rísa upp til velgengni og aukins
frama, af misvitru fólki sem sér
ekki tilgang og dýrmæti það sem
í því liggur að hafa ekki farið
sléttan veg og beinan til að finna
sig og kosti sína. Hunsum því
ekki góðar afleiðingar hvers kyns
myrkurs ef að það eykur í núinu
birtu og yl. Við eigum engu af
mannanna börnum að mismuna
og því eiga viðreistar konur sama
rétt og karlar til að fá að njóta
sín án þess að verða fyrir for-
dómum og fyrirstöðum í þeim
okkar sem ekki hafa þurft að fara
sömu leið í átt til persónulegs
þroska.
Munum að það er Guði þókn-
anlegt að gleðjast yfir því ef
týndur sauður ratar inn í réttir
ávinnings og árangurs, í burt frá
myrkri og hvers kyns volæði.
Gerum ekki viðreista að flótta-
mönnum sem velja að fela sig fyr-
ir umheiminum í stað þess að
ganga um mitt á meðal okkar og
leyfa okkur hinum að skína undir
reynslusól þeirra sem einhvern
tíma hafa villst af leið og í milli-
tíðinni nælt sér í aukna sól-
argeisla sem getur yljað okkur
hinum og lýst upp líf okkar.
Höfnum ekki hetjum fyrir misvit-
urt hugvit.
Höfundur er dulmiðill og rithöfundur.
SKOÐUN
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 35
SUÐURLANDSBRAUT 16 • 108 REYKJAVÍK
SÍMI 585 9999 • FAX 585 9998
GSM 846 7400
FÉLAG FASTEIGNASALA
WWW.EIGNAVAL.ISSigurður Óskarsson, lögg. fastsali
ÆGISÍÐA
Falleg fjögurra herbergja íbúð á
besta stað á Ægisíðunni til sölu.
Íbúin er á efstu hæð í mjög fal-
legu fjórbýlishúsi með þremur
svefnherbergjum, mjög stórri
stofu og stóru eldhúsi. Hátt til
lofts og stórir gluggar með frá-
bæru útsýni yfir sjóinn, Bessa-
staði og Suðurnesin. Svona
eignir koma sjaldan í sölu og því er um að gera að hafa hraðar
hendur. V. 22,9 m.
ÖLDUGATA
Stórskemmtileg og falleg 80 fm
3ja herbergja endaíbúð á 2. hæð
í fjórbýli. Aðeins ein íbúð á hverri
hæð. Parket á gólfum. Baðher-
bergi með baðkari og flísum á
gólfi. Ágæt eldhúsinnrétting,
marmaraflísar á gólfi í eldhúsi.
Stórar suðursvalir. Góður garð-
ur. Sameign í góðu ásigkomu-
lagi. Áhv. 2,3 m. byggsj. V. 14,4
m. (3812)
ÁLFHÓLSVEGUR
Frábær 75 fm 3ja herbergja íbúð
á 1. hæð í fjórbýlishúsi ásamt 25
fm bílskúr. Sérþvottahús innan
íbúðar. 2 góð svefnherbergi.
Baðherbergi flísalagt í hólf og
gólf, baðkar. Góð eldhúsinnrétt-
ing. Stofa parketlögð. Suðursvalir. Góður sameiginlegur garður.
Áhv. 6,1 m. húsbr. V. 12,8 m. (3893)
Skeljagrandi
Stórglæsileg ca 80 fm 3ja herb.
íbúð á 1. hæð með frábærri
sjávarsýn auk stæðis í bíla-
geymslu. Íbúðin er nýstandsett
með fallegu eikarparketi á öllum
gólfum, en fallegar flísar eru á
anddyri og baðherbergi. Áhv.
8,4 m. (húsbr.) V. 13,4 m. (3885)
VITASTÍGUR/LAUGAVEGUR 63
Glæsilega nýlega standsett 2-3ja
herb. íbúð á 2. hæð. Stór stofa
með kókosteppi á gólfi. Útgengt
á svalir úr stofu á Vitastíg. Eldhús
innrétting eftir stofuveggnum
með flísum á borðplötu. Baðher-
bergi flísalagt í hólf og gólf. Stórt
svefnherbergi með stórum sér-
smíðuðum fataskáp. Útgengt á
stórar 25fm svalir úr svefnher-
bergi. Uppl. veitir Kristbjörn í síma 692-3000. Áhv. 8,5 V.14,9m
BRATTAKINN 1 OPIÐ HÚS Í DAG
Vorum að fá í sölu glæsilegt 180
fm einbýli á 2 hæðum á besta
stað í Hafnarfirði með aukaíbúð
til útleigu. Afar skemmtilegt
skipulag. 4 rúmgóð svefnher-
bergi og baðherbergi á báðum
hæðum. Þvottahús á efri hæð.
Vandaðar innréttingar og hlyns-
parket og flísar á gólfum sem
eru upphituð að hluta. Tvennar svalir. Upphitað hellulagt bílaplan.
Húsið er byggt 1998 og er í mjög góðu standi. Laust fljótlega. Op-
ið hús í dag á milli kl. 15:00 og 17:00. Stefán og Geirlaug taka vel á
móti ykkur. Áhv. 13,0 m. V. 26,9 m. (3892)
BOGAHLÍÐ
FALLEG 83,4 FM 3JA HER-
BERGJA ÍBÚÐ Í GÓÐU HÚSI Á
FRÁBÆRUM STAÐ. Eignin
skiptist í: Forstofu, stofu, eldhús,
baðherbergi, 2 herb., geymslu
og sameiginlegt þvottahús. Eld-
hús með glæsilegri ljósri innrétt-
ingu og nýlegri eldavél, útgengi
er út í garð úr eldhúsinu. Baðherbergi allt ljóst með baðkari, dúkur
á gólfi. Stofan björt með fallegu parketi á gólfi. Tvö góð herbergi
með skápum. Búið er að endurnýja glugga og gler í íbúðinni. Áhv.
7,5 m. V. 12,9 m. (3882)
Tvö glæsileg verslunar- og skrifstofuhús
Frjálsi Fjárfestingarbankinn hefur falið okkur að selja þessi tvö glæsilegu verslunar- og skrifstofuhús.
Hlíðasmári 3 er fimm hæðir samtals að gólffleti 4.238,6 fm og er til afhendingar nú þegar undir
innréttingar. Húsið er frágengið að utan með vandaðri utanhússklæðningu.
Hlíðasmári 1 er fimm hæðir samtals að gólffleti 3.203,7 fm og afhendist í fokheldu ástandi.
Eignirnar henta vel fyrir hvers kyns skrifstofur, verslanir og þjónustu.
Húsin eru sérlega vel hönnuð. Fyrirkomulag er gott og nýting húsanna góð. Hægt er að tengja húsin
saman, enda liggja þau samsíða. Aðkoma og staðsetning húsanna er mjög góð í vaxandi viðskiptahverfi
með fögru útsýni. Húsunum fylgir fjöldi bílastæða.
Allar nánari upplýsingar veita:
HLÍÐASMÁRI 1 OG 3 - KÓPAVOGI
FASTEIGNA
MARKAÐURINN
ÓÐINSGÖTU 4. SÍMI 570 4500, FAX 570 4505.
Netfang: fastmark@fastmark.is - Heimasíða: http://www.fastmark.is/
Jón Guðmundsson, sölustjóri, lögg. fasteigna- og skipasali.Sverrir Kristinsson, lögg. fasteignasali