Morgunblaðið - 02.05.2004, Síða 40
UMRÆÐAN | FJÖLMIÐLAR
40 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÉG vann sem kynningarstjóri
dagskrárefnis hjá DR-TV, danska
ríkissjónvarpinu, í 4
ár og þar á undan var
ég í 2 ár í sama starfi
hjá TV-Danmark,
sjónvarpsstöð í einka-
eign. Þar sem ég hef
unnið við stefnumót-
un hjá bæði ríkis- og
einkaaðilum í sjón-
vapsrekstri hef ég
talsverða innsýn í
dönsk sjónvarpsmál
og þess vegna rak
mig í rogastans þegar
ég heyrði nokkra ís-
lenska ráðherra tala
um danska fyrirmynd
í sambandi við fjölmiðlafrum-
varpið.
Þegar ég flutti til Íslands fyrir
rúmu ári var ég hissa að hér væri
til gott íslenskt sjónvarp í einka-
eign. Þetta hefur Dönum ekki tek-
ist. Þeir eru 20 sinnum fleiri og 20
sinnum ríkari og hafa haft sömu
20 árin og við til að byggja upp
sjónvarp óháð ríkinu. Dönum hef-
ur mistekist algjörlega. „Danskt“
sjónvarp er DR-TV, ríkiseign fjár-
magnað með afnotagjöldum, TV2,
hlutafélag í ríkiseign, TV3, eigandi
er Modern Times Group sem er
sænsk fjölmiðlasamsteypa og
sendir frá London og
síðast skal talið
TvDanmark sem er
eign SBS sem er
bandarísk fjölmiðla-
samsteypa. TvDan-
mark sendir eina rás
frá London og aðra
rás í gegnum net af
litlum dönskum svæð-
isstöðvum sem eru
tæknilega gjaldþrota
en haldið í öndunarvél
af bandaríska fjöl-
miðlarisanum. Það er
sem sagt ekki til
danskt sjónvarp utan
þess sem ríkið rekur. Þvílík fyr-
irmynd.
Þessar erlendu einkastöðvar
sem senda út í Danmörku eru
hrein afþreying og sinna ekki
þjóðfélagsumræðu.
Er það takmarkið með fjöl-
miðlafrumvarpinu að koma á
einkareknu sjónvarpi að danskri
fyrirmynd?
Það sem fjölmiðlafrumvarpið
snýst um er algjört bann við að
svokölluð markaðsráðandi fyr-
irtæki eigi í ljósvakamiðlum.
Meira að segja Danir eru ekki svo
vitlausir. TV2 hlutafélag í eign
danska ríkisins er að fara í útboð.
Þetta er úrslitatilraun Dana að
koma á dönsku sjónvarpi í einka-
eign. Þar sitja öll fyrirtæki við
sama borð, markaðsráðandi og
ekki markaðsráðandi.
Þegar menn tala um árás á
Baug þá er það algjört aukaatriði.
Það sem er öllu alvarlegra er að
þetta er allsherjaratlaga að sjón-
varpi í einkaeign á Íslandi. Við
eigum að vera stolt af íslensku
sjónvarpi og íslensku einka-
framtaki og ekki að reyna að
ganga frá því dauðu.
Danskur misskilningur
Einar Bjarnason skrifar
um fjölmiðlafrumvarp ’Það sem er öllu alvar-legra er að þetta er alls-
herjaratlaga að sjón-
varpi í einkaeign á
Íslandi.‘
Einar
Bjarnason
Höfundur er kynningarstjóri hjá
Íslenska útvarpsfélaginu.
UMRÆÐAN um fjölmiðla ætti
öðru fremur að fjalla um sjálf-
stæði ritstjórna þeirra, en því mið-
ur gerir hún það ekki.
Sjálfstæðið er fjöregg
hvers fjölmiðils og
það allra mikilvæg-
asta er sjálfstæði rit-
stjórna, sjálfstæði
fréttamanna.
Nú eru uppi hug-
myndir um að afnema
afnotagjald Rík-
isútvarpsins. Með því
er vegið að sjálfstæði
Ríkisútvarpsins því
afnotagjaldið gerir
Ríkisútvarpið að fjöl-
miðli þjóðarinnar en
ekki fjölmiðli ríkisins. Rík-
isútvarpið þarf að sækja afnota-
gjaldið til eigenda útvarps- og
sjónvarpstækja og þannig er kom-
ið á sambandi milli fyrirtækisins
og eigenda þess. Greiðendur af-
notagjalda líta á Ríkisútvarpið
sem sitt og notfæra sér það til
dæmis þegar þeir segja álit sitt á
dagskrá Ríkisútvarpsins. Afnota-
gjaldið er einnig gegnsætt gjald
sem stendur undir kostnaði við
RÚV ásamt auglýsingum. (Stend-
ur reyndar líka undir fjórðungi af
kostnaði við Sinfóníuhljómsveitina
en það er annað mál.)
Nefskattur myndi slíta á tengsl
eigenda Ríkisútvarpsins, greið-
enda afnotagjalda, og fyrirtæk-
isins. Nefskatturinn
yrði innheimtur af
öðrum en Rík-
isútvarpinu og myndi
auk þess leggjast allt
öðruvísi á landsmenn.
Fjölskyldur með einn
eða tvo unglinga á
heimilinu eldri en 18
ára myndu greiða
meira en núna. Ein-
staklingar myndu
greiða minna. Einnig
er óljóst hvaða fyr-
irtæki ættu að greiða
nefskattinn. Nú
greiða til dæmis hótel töluverða
upphæð í afnotagjald vegna fjölda
sjónvarpstækja, sama á við um
krár sem eru með fjölda tækja til
að draga að viðskiptavini. Þannig
gæti greiðsla fyrirtækja minnkað
og þá yrði nefskatturinn hærri á
almenning.
Þetta eru þó smáatriði miðað
hættuna á því að sjálfstæði Rík-
isútvarpsins verði rýrt. Vissulega
hafa stjórnvöld haldið Rík-
isútvarpinu í spennitreyju með því
að hækka ekki afnotagjaldið, þótt
bætt hafi verið úr því að hluta á
undanförnum misserum. En
stjórnvöld hafa ekki beinlínis
lækkað afnotagjaldið sem yrði
hinsvegar leikur einn með nef-
skattinn. Hótunin væri alltaf til
staðar og aldrei þyrfti að nefna
hana. Þannig yrði vegið að sjálf-
stæði Ríkisútvarpsins.
Afnotagjaldið er stuðpúði eig-
enda Ríkisútvarpsins, þjóðarinnar,
gagnvart stjórnvöldum sem síðan
hafa sín áhrif í gegnum útvarps-
ráð. Það dugir þeim, þeir þurfa
ekki líka að hafa fjárhagslegt vald
yfir Ríkisútvarpinu.
Ekki er hægt annað en að minn-
ast á ótrúlega sýn leiðarahöfundar
Morgunblaðsins á Ríkisútvarpið. Í
leiðara 28. apríl telur Morg-
unblaðið að RÚV ætti að sinna
helst af öllu útsendingum frá Al-
þingi og frá fundum sveitarstjórna
vítt og breitt um landið og reynd-
ar líka því sem kallað er „hágæða
menningarefni“. Af hverju birtir
Morgunblaðið fréttir af fólki, beð-
málum Beckhams til dæmis? Af
því að blaðið vill höfða til sem
flestra lesenda. Fjölmiðill sem
ekki sýnir efni sem einhvern tíma
höfðar til meginþorra þjóðarinnar
er ekki ríkisútvarp, það er ekki
miðill þjóðarinnar. Hið mikla
áhorf og hin mikla hlustun á fjöl-
breytt dagskrárefni Ríkisútvarps-
ins réttlætir tilveru þess frekar en
nokkuð annað, þar eiga hvort-
tveggja heima Mósaík og Beðmál í
borginni og já, líka útsendingar
frá fundum Alþingis. Þjóðarútvarp
næst ekki nema með fjölbreyttu
efni. Það er ekki þar með sagt að
ekki megi bæta núverandi dag-
skrá. Sjálfum finnst mér sláandi
tilfinnanlegur skortur á frétta-
tengdu efni, fréttaskýringum og
leiknu íslensku sjónvarpsefni. Það
skortir verulega á, í íslensku sjón-
varpi að við endurspeglum ís-
lenskan veruleika einsog hann er
á hverjum tíma.
Sjálfstæði afnotagjaldsins
G. Pétur Matthíasson
skrifar um málefni RÚV ’Afnotagjaldið er stuðpúði eigenda Rík-
isútvarpsins, þjóð-
arinnar, gagnvart
stjórnvöldum …‘
G. Pétur Matthíasson
Höfundur er fréttamaður.
…með 105 verslanir, veitingastaði og kaffihús
FASTEIGNASALA
HÁTÚNI 6a
SÍMI 512 1212 FAX 512 1213
Mjög skemmtileg og rúmgóð 113,4 fm 4ra herbergja hæð í góðu þríbýlishúsi á vinsælum
stað í vesturbænum. Íbúðin skiptist í hol, gang, tvær samliggjandi stofur, baðherbergi,
stórt húsbóndaherbergi sem hægt er að breyta í tvö herbergi, stórt hjónaherbergi og
rúmgott eldhús. Dökkt parket á öllum gólfum nema í baðherbergi sem er flísalagt hólf í
gólf. Húsið er nýlega búið að taka í gegn. Góð eign á frábærum stað. Verð 18,9 millj.
Þorleifur tekur vel á móti væntanlegum kaupendum í dag frá kl. 14-16
HJARÐARHAGI 23
Opið hús í dag frá kl. 14.00-16.00
Heimilisfang: SIGLUVOGUR 5
Stærð eignar: 68,4 fm
Byggingarár: 1954
Brunabótamat: 7,2 millj.
Verð: 11,9 millj.
Hrafnhildur Bridde, löggiltur fast-
eignasali RE/MAX Suðurlandsbraut.
Falleg og skemmtilega hönnuð 2ja herb.
íbúð á neðri hæð í tvíbýlishúsi í grónu
hverfi. Rúmgóð stofa með stórum glugg-
um. Herbergi með fataskáp. Eldhús með
snyrtilegri innréttingu. Plastparket og
dúkur á gólfi. Sérafnotaréttur af hluta
lóðar. Húsið var málað að utan í sumar.
Hrafnhildur Bridde, löggiltur fast-
eignasali RE/MAX Suðurlandsbraut
sýnir eignina í dag á milli kl. 16-17
OPIÐ HÚS - SIGLUVOGUR 5
Hrafnhildur Bridde - sími 899 1806
Netfang: hrafnhildur@remax.is
Fasteignasala: RE/MAX Suðurlandsbraut
Erlurimi Selfossi
Vandað timburhús á rólegum stað
Vorum að taka í sölumeðferð þetta fallega og vel byggða 204 fm. timburhús á
góðum stað á Selfossi. Í húsinu eru fimm svefnherbergi, tvö baðherbergi, stór stofa
og tvöfaldur jeppafær bílskúr Verð kr. 21,5 milljónir.
AKKURAT // Lynghálsi 4 // Lögg. fasteignasali: Halla Unnur Helgadóttir - eins og þú vilt hafa það
Túngata 21b - 820 Eyrarbakka
Opið hús í dag á milli þrjú og fjögur
Garðshorn Eyrarbakka - Algjörlega endurnýjað lítið einbýlishús á Eyrarbakka. Stór
stofa, eldhús, svefnherbergi, baðherbergi og geymsla. Tilvalið frístundahús á þessum
vinsæla stað. Verð aðeins 6,9 milljónir. Elísabet sölufulltrúi Akkurat tekur á móti
gestum í dag milli þrjú og fjögur.
AKKURAT // Lynghálsi 4 // Lögg. fasteignasali: Halla Unnur Helgadóttir - eins og þú vilt hafa það
Til sölu
Gaukur á Stöng
Höfum tekið til sölumeðferðar allan rekstur þessa landsþekkta skemmtistaðar í hjarta
borgarinnar. Öll leyfi til staðar. Nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Akkurat
fasteignasölu, Lynghálsi 4.
AKKURAT // Lynghálsi 4 // Lögg. fasteignasali: Halla Unnur Helgadóttir - eins og þú vilt hafa það