Morgunblaðið - 02.05.2004, Page 45

Morgunblaðið - 02.05.2004, Page 45
MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 45 Afi í Eyvindartungu er látinn. Heilsu hans hafði farið ört hrakandi síðustu árin og það er sárt til þess að hugsa að yngri bræður okkar kynntust ekki á sama hátt elsku hans og hlýju. Stutt er frá Austurey til Eyvindar- tungu og oft lá leiðin upp í Tungu. Við fengum ávallt góðar móttökur. Afi bjó til heimsins besta grjóna- graut og oft átti hann til einhver sæt- indi handa okkur. Eftir að við höfð- um gætt okkur á kræsingunum hafði hann jafnan á lofti: ,,Viltu ekki fá þér aðeins meira, væni minn?“ Afi var lengst með fjárbúskap og við munum mörg sumur við heyskap eða heiðasmölun að hausti. Afi vann sitt verk á jöfnum hraða, og það staf- aði af honum ró sem færðist yfir mann. Aldrei nein læti, og hann gaf sér alltaf tími til að vera með okkur bræðrunum. Segja sögur eða vara okkur við hættum og hér kemur lýs- ing eins okkar á löngu liðnum vor- degi í Eyvindartungu: Ungur drengur gengur smá spor með afa sínum um bæjarhlaðið. Framhjá stóra reyniviðinum, við hliðina á rólunni, sem afi hafði svo oft bannað honum að klifra í. Framhjá Land-Rovernum, þar sem oft var að finna brjóstsykurspoka í hanskahólf- inu. Framhjá fjósinu, þar sem kýrn- ar hans afa lágu áður jórtrandi við sterklegar trébeislurnar er voru þá nýlega horfnar á braut, í átt að fjár- húsunum þar sem allt iðaði af lífi. Þá, rétt eins og nú voru lömbin orðin nokkur. Afi sýndi mér lambadrottn- inguna og ég fékk að halda á henni en missti hana fljótlega. Hún var lík- lega ekki jafn hrifin af mér og ég var af henni. Afi spurði mig hvort ég væri nokkuð hræddur við hrútana, þeir væru nú yfirleitt í góðu skapi hrútarnir hans afa en best væri að láta þá í friði. Einn þeirra var með af- sagað horn, það er svo hann sjái bet- ur sagði afi og gaf mér hornið. Degi er tekið að halla þegar við göngum heimleiðis, tunglið komið upp. „Þekkir þú þessi ljós,“ spyr afi og bendir út í myrkrið. „Þetta eru Syðri-Reykir og Böðmóðsstaðir þarna aðeins nær. Veist þú hver býr þar? Spyr hann mig. Eða þekkir þú eyktamörkin? Þetta er Nónhóll þarna.“ Þú munt lifa í hugum þeirra sem þig þekktu og unnu þér. Farvel afi minn. Bræðurnir Austurey. Nú er komið að kveðjustund. Fyr- ir tæpum 44 árum tengdist Jón Teitsson fjölskyldu okkar. Ingunn systir fór ung ekkja til sumardvalar austur að Hlíð í Grafningi með tvö eldri börn sín. Þetta sumar kynntist hún Jóni og um haustið flutti hún til hans í Eyvindartungu og tók jafn- framt að sér kennslu við Héraðsskól- ann á Laugarvatni. Í Eyvindartungu var henni tekið með hlýju og velvild af Sigríði móður Jóns sem hafði rek- ið heimilið með honum eftir að önnur börn hennar höfðu hleypt heimdrag- anum. Þarna áttu þau Ingunn og Jón saman góðan vetur og um vorið, um leið og skóla lauk, sóttu þau yngsta barn Ingunnar, Helgu, sem hafði verið í fóstri hjá foreldrum okkar frá vorinu áður. Þau voru full bjartsýni um framtíðina og 8. maí 1961 giftu þau sig Jón og Ingunn. Ekki var ein báran stök í lífi systur minnar. Fáum JÓN TEITSSON ✝ Jón Teitssonfæddist á Böð- móðsstöðum í Laug- ardal 26. apríl 1923. Hann lést á Dvalar- heimilinu Lundi á skírdagskvöld 8. apríl síðastliðinn og var útför hans gerð frá Skálholtskirkju 20. apríl. vikum síðar lést hún úr hvítblæði. Hún hafði misst fyrri mann sinn af slysförum í ágúst 1958. Þá átti hún tvö ung börn og gekk með það þriðja. Við þessar aðstæður og síðar kom glöggt í ljós hvern mann Jón hafði að geyma. Honum fannst ekkert annað koma til greina en axla þá ábyrgð að taka að sér og ala upp eldri börnin tvö, Sigurð og Lauf- eyju. Þarna nutu börn- in ástríkis og alúðar Jóns og Sigríðar öll æskuárin. Einnig reyndist Ása systir Jóns systkinunum afar vel og þau eignuðust heila stórfjölskyldu. Helga sem áður hafði verið hjá ömmu sinni og afa, Helgu Kristjáns- dóttur og Arnóri Sigurjónssyni, fór til þeirra aftur og ólst upp hjá þeim til unglingsára, en fór þá til stjúpa síns. Aldrei er hægt að fullþakka allt sem Jón gerði fyrir systkinin öll. Allt hans líf var raunar miðað við þessi börn sem hann eignaðist svo óvænt. Hann vann af natni við bú sitt, sem hann hafði tekið við af foreldrum sín- um og sinnti fjölskyldunni í hvívetna, studdi börnin til að afla sér mennt- unar og koma sér fyrir í lífinu. Jón var lengst af heilsugóður. Allt- af var gott til hans að koma. Síðustu árin eftir að heilsan brast voru hon- um erfið. Þá naut hann umhyggju og hlýju stjúpbarna sinna sem sinntu honum vel. Blessuð sé minning góðs manns. Arnþrúður Arnórsdóttir. Í dag er lagður til hinstu hvílu, móðurbróður minn, Jón Teitsson bóndi í Eyvindartungu. Undanfarna daga hefur hugurinn leitað aftur til bernskunnar og þeirra daga sem alltaf verða bjartir í minningunni. Nonni frændi minn var mér kær og nákominn, sérstaklega fyrstu ár ævi minnar þegar ég dvaldi langdvölum hjá honum og ömmu í Eyvindar- tungu. Það var gaman að fá að fara með honum til gegninganna og þótt trúlega hafi félagsskapur minn tafið störf hans verulega var viðmótið allt- af hlýtt og þolinmæði hans jafnmikil. Hann var sérstaklega barngóður og öll börn hændust að honum. Lífshlaup Jóns í Eyvindartungu var að mörgu leyti sérstakt. Hann tók við búi föður síns og hélt fyrst í stað heimili með móður sinni, Sigríði. Hann var natinn bóndi og annaðist jörð og búpening með virðingu. Bú- skapur var í hans augum hugsjón og meira en vinna fyrir daglegu brauði og bar vott um smekkvísi og snyrti- mennsku. Hann fór með varfærni í nýjungar og taldi það best fullnýtt sem fyrir hendi var. Árið 1961 kvænist Jón ungri konu, Ingunni Arnórsdóttur. Hún var ekkja með þrjú ung börn sem Jón gekk í föðurstað. Ingunn lést eftir skammvinn veikindi nokkrum mán- uðum síðar. Það er skemmst frá því að segja að þó sorgin hafi gengið nærri Nonna frænda mínum, þá lagði hann ótrauður í það hlutverk að ala börnunum önn og gott atlæti. Hann naut að einhverju leyti aðstoð- ar móður sinnar fyrstu árin meðan heilsa hennar leyfði, en eftir það ól hann þau einn upp af sömu ást og umhyggju og um hans eigin börn væri að ræða. Hann leit á það sem skyldu sína í upphafi og börnunum kom hann öllum til manns og ég held að sú hamingja sem yfirgaf hann þegar Ingunn lést, hafi átt aftur- kvæmt í hjarta hans í uppeldi barnanna. Það var alltaf gott fyrir lítinn dreng að fara bæjarleið og heilsa upp á ömmu, Nonna, Sigga, Lauf- eyju og Helgu. Oft var farið snemma morguns og ekki komið fyrr en seint að kveldi, stundum flesta daga vik- unnar. Uppátektarsemi okkar Sigga og framkvæmdargleði gekk stund- um fram af Nonna og fyrir kom að okkur sinnaðist. Að morgni næsta dags var allt eins og áður og nærvera frænda míns eins góð og ævinlega. Í Eyvindartungu var oft gest- kvæmt og Jón var vinsæll af sam- ferðamönnum sínum. Hann sagði oftast ekki mikið, lét aðra um orða- gjálfur, en gat verið hnyttinn í til- svörum. Flestir báru hlýjan hug til hans, ekki síst systkini hans og börn þeirra. Ég hitti Nonna frænda minn fyrir ári síðan í veislu sem haldin var í Ey- vindartungu í tilefni af áttræðisaf- mæli hans. Hann var ekki samur og áður og hugur hans fjarri og ekki víst að hann hafi áttað sig á stað og stund. En nærveran var sú sama og þegar hann leiddi lítinn dreng um fjós og fjárhús fyrir meira en fjöru- tíu árum. Hinsta hvíla hans verður hjá kon- unni sem hann unni, en missti í blóma lífsins. Hvíldin er honum ef til vill kærkomin. Ég votta Sigga, Laufeyju, Helgu og fjölskyldum þeirra samúð mína. Eyvindur Eiríksson. Í dag er kvaddur öðlingur aldar- innar, Jón í Eyvindartungu. Við ná- grannarnir áttum sameiginlegt að eignast góð heimili í sveitinni okkar að Eyvindartungu og Laugarvatni, varla þornaðir. Þar átti Jón heima til æviloka og ég geymi með mér sömu örlög. Jón var af öndvegis fólki kominn. Faðir hans Teitur Eyjólfsson, Reyk- víkingur, var dugmikill og einkar vandvirkur bóndi, ræktunarmaður og byggði myndarlega upp á jörð sinni. Í þessu umhverfi ólst Jón upp með mörgum efnilegum systkinum og miklu hjartarými móður sinnar, Sigríðar Jónsdóttur, sem að mestu var alin upp í Efstadal. Sigríður í Ey- vindartungu var fríð kona og virðu- leg, friður og festa í svipnum, átti í sálu sinni mannkosti æðruleysis og hjálpsemi og skipti vart skapi. Sí- felld hlýja hennar var fágæt af dugn- aðarforki að vera. Minnist ég gest- risni Sigríðar og hlýs vinfengis, þegar við strákapjakkarnir á Laug- arvatni komum niðureftir að leika okkur við jafnaldra okkar, bræðurna í Eyvindartungu. Að aldarhætti voru við allir „bændur“, það var næstum eina fyrirmyndin í uppvexti okkar. Þá var trítlað vestur á Stöðul að leika sér „í búinu“ hjá bræðrunum, kofum og eigulegum búpeningi. Myndarleg hrútshorn þóttu gersemar og vel brennimerkt og rámar í horn af van- inhyrndum sauðum. Alltaf vorum við grallararnir kvaddir við heimför með glóðvolgum pönnukökum, ef ekki mjólkursopa líka. Já, bara veisla í lokin, en Sigríði gleymum við seint. Jón lærði ungur sund hér heima á Laugarvatni og er hann kom í hér- aðsskólann var hann manna fremst- ur í íþróttinni, en átti sér þó skóla- bróður, sem veitti harða keppni, Kára Steinsson frá Efra-Ási í Hjaltadal. Man ég vel hve hart var barist, þar skildu sekúndubrot, eða hnífjafnir. En ólíkt var sundlagið, Kári var harður og snöggur, ham- aðist sem óður væri en Jón synti af mýkt, löng, föst tök, þungum skriði. Jón var formaður Ungmenna- félags Laugdæla um árabil og síðar heiðursfélagi til hins síðasta. Á þeim árum stofnuðu ungmennafélögin í nærsveitum til fagnaða og héldu saman íþróttamót. Við Laugdælir vorum, minnir mig, alltaf undir í frjálsum en áttum um árabil ósigr- andi sundmenn af báðum kynjum á sundmótum Skarphéðins. Þar stóðu stúlkurnar sig best. En við reyndum með aukamönn- um að styrkja frjálsíþróttir okkar, sem við gátum, jafnvel með Íþrótta- skólastrákum, en dugði skammt. Eitt sinn var íþróttamót á Borg, sem gekk nokkuð vel. Við vorum með „gamlan“ Þróttara sem bjó í Grinda- vík. Þetta var sunnudagsmót og kappanum varð að skila heim, um kvöldið. Við Jón leystum það, ég fékk til fararinnar jeppann föður míns og Jón taldi ekki eftir sér að fara suður, við ókum til skiptis. Það var handleggur að fara úr Grímsnes- inu og suður í Grindavík í þá daga, hvergi malbikaður spotti. Víst var rauðamalarbrautin talin góð, niður að Sogi, þó hlykkjótt væri. Síðan bara holur og skrölt, sem hristi marga „rennireiðina“ í sundur. Það var komið fram á miðja nótt er við náðum heim. Svona var nú fé- lagsstarfið í þá daga, það gat tekið tíma. Oftar en einu sinni var farið ríðandi á íþróttamót að Þjórsártúni, þess tíma háttur. Þá er það bóndinn Jón, sem bjó með kýr og kindur og grái klárinn hans var fallegur og ganggóður. Allt í röð og reglu, snyrtilegt og vel við haldið. Maðurinn var svo lagtækur og þurfti ekki hjálpar við, sem á líka við um þá bræður. Síðast bjó Jón við kindurnar, sitt helgasta vé. Var lengi æfinnar einyrki og sá um allt, innan- bæjar sem utan. Fór sér ekki óðs- lega en sívinnandi, með harðdugleg- ustu mönnum þó aðrir hafi oftar verið tíundaðir. Lengi var Jón for- maður Búnaðarfélags Laugdæla og hreppsnefndarmaður um tíma. Til þess var hann kvaddur að þótta sam- félagsins en ekki eftir sætaröð. Mér verður hugsað til natninnar og verk- lagsins við alla tæknina, sem smátt og smátt birtist. Að vísu býst ég við að enginn trúi því, að snúningsvél frá véladeild S.Í.S., árgerð um 1950, gæti enn verið í fullu „fjöri“, ef á reyndi. Það segir okkur sögu um að- ferð Jóns við vélarnar, alltaf var far- ið með gætni og hægt. Þykir mér trúlegt að víða á bæjum hafi ekki færri en fjórar til sex gerðir slíkra heyskaparvéla (kallast nú fjölfætlur) farið í gegn á liðinni hálfri öld, en einkasonurinn Sigurður fékk að vísu rýrar æfingar á það tæki. Jón var svo hógvær í kraðaki mannfélagsins að honum hlotnaðist seint kvenkost- ur, þó úr rættist svo um munaði á miðri æfinni. Hann kynntist fallegri og spengilegri sér yngri konu, Ing- unni Arnórsdóttur, sem misst hafði mann sinn, og áttu 3 ung börn. Þau nutust aðeins í tæpt ár, þá lést Ing- unn. Sú mikla sorg var Jóni og börn- unum erfið. Sýndi hann þá stillingu slíka, sem einkenndi allt hans líf og bar harm sinn í hljóði. Þetta var öll- um kunnugum afar þungt. Ekki má ég teygja lopann við að minnast vin- ar míns og nágranna en að síðustu þetta: Jón var með hærri mönnum, vel beinn í baki og þreklegur, þó heldur væri holdskarpur. Hann var fríður maður og hárprúður, grann- leitur, sem þau systkini mörg, er meira líkjast móður sinni. Þá var hann heljarmenni að burðum, hand- leggir þykkir sem á jötni. Jón var enginn veifiskati, bjó yfir góðri greind og glöggum skoðunum og varð lítt afvegaleiddur á þeirri braut. Gerði kurteislegar athugasemdir en lét engan hrófla við skapi sínu, þó deilt væri. Alltaf vel hittur, spaugið á hraðbergi, fullur af glaðværð enda vel metinn. Við erfiðan heilasjúkdóm, þegar minnið var mjög þorrið, gat Fjóla í Skarði, starfandi á Lundi, helst hróflað við vitund Jóns, með því að bæði fóru saman að telja kindur. Það er sjónarsviptir að drengnum góða, sveitungarnir sakna vinar í stað. Við Ester færum fjölskyldunni hluttekn- ingu. Þorkell Bjarnason. …með allt fyrir bragðlaukana Helluhrauni 10, 220 Hfj. Sími 565 2566 Englasteinar Legsteinar Kársnesbraut 98 • Kópavogi 564 4566 • www.solsteinar.is Þökkum innilega öllum þeim, sem sýndu okkur samúð og hlýhug við andlát og jarðarför ástkærrar móður okkar, tengdamóður, ömmu og langömmu, HJÖRDÍSAR STEFÁNSDÓTTUR, Víðilundi 24, Akureyri. Stefán Jónsson, Heiðrún Björgvinsdóttir, Eiríkur Jónsson, Sigríður Jóhannesdóttir, Teitur Jónsson, Valgerður Magnúsdóttir, barnabörn og langömmubörn. Minningargreinum þarf að fylgja formáli með upplýsing- um um hvar og hvenær sá sem fjallað er um er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um foreldra hans, systkini, maka og börn og loks hvaðan útförin verður gerð og klukkan hvað. Ætlast er til að þetta komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. Formáli minning- argreina

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.