Morgunblaðið - 02.05.2004, Page 50
50 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Leonardó
© LE LOMBARD BRÉF
TIL BLAÐSINS
Kringlunni 1 103 Reykjavík Sími 569 1100
Símbréf 569 1329 Netfang bref@mbl.is
Allt efni sem birtist í Morgunblaðinu og Lesbók er varðveitt í upplýsinga-
safni þess. Morgunblaðið áskilur sér rétt t i l að ráðstafa efninu þaðan, hvort
sem er með endurbirtingu eða á annan hátt. Þeir sem afhenda blaðinu efni
ti l birtingar teljast samþykkja þetta, ef ekki fylgir fyrirvari hér að lútandi.
FJÖLMIÐLAFRUMVARP for-
sætisráðherra mun að líkindum
verða samþykkt á Alþingi, en í aug-
um þeirra sem lögin ná til verða þau
vart annað en ólög, valdníðsla
byggð á ómálefnalegri andúð á til-
teknu fyrirtæki og hefnigirni ráða-
manna í garð einstaklinga. Eins og
ríkisstjórnin hefur haldið á málinu
er líklegt að stór hluti þjóðarinnar
sé einnig þessarar skoðunar. Eina
leiðin til að gefa lögunum eitthvert
lögmæti, annað en eftirlit lögregl-
unnar með framkæmd þeirra, er að
þjóðin sjálf fái að gera upp um mál-
ið í þjóðaratkvæðagreiðslu. Verði
lögin samþykkt í þjóðaratkvæða-
greiðslu verður ekki sagt að þau
byggist á valdníðslu þó að þeir sem
lögin varða geti auðvitað og eftir
sem áður látið reyna á þau fyrir
dómstólum. Verði lögin felld verður
ríkisstjórnin að vinna nýjar tillögur
til að ná fram því markmiði sínu að
tryggja fjölbreytni í fjölmiðlun.
Frumvarpið er að sögn til að
vernda lýðræðið í landinu. Tildrög
málsins eru þó í hæsta máta ólýð-
ræðisleg. Sjálfstæðisflokkurinn hef-
ur í meira en áratug farið með
menntamálaráðuneytið og aldrei
talað fyrir neinum tilllögum í þessa
áttina. Þvert á móti. Stefnubreyting
flokksins nú kemur því flatt upp á
fólk og því er fyllilega málefnalegt
að spyrja hvað liggi hér að baki.
Svarið virðist eingöngu liggja í því
hver í hlut á, fremur en hvað. Lítil
umræða hefur farið fram um þessi
mál í samfélaginu almennt, hvað þá
heldur Sjálfstæðisflokknum, enda
hefur fólk ekki orðið vart við að fjöl-
breytnin minnkaði neitt á síðustu
mánuðum. Innkoma Baugs í rekst-
ur fjölmiðla viðist þvert á móti
tryggja ákveðna fjölbreytni, enda
voru þau fyrirtæki sem nú eru inn-
anborðs í Norðurljósum flest gjald-
þrota eða á barmi gjaldþrots fyrir
stuttu.
Stuðningsmenn frumvarpsins
geta á móti bent á að fjölbreytnin
geti minnkað til lengdar og við
verðum því að horfa til langs tíma.
En hvers vegna liggur þá svona á?
Hvers vegna mátti ekki leggja fram
skýrslu nefndarinnar og fá um hana
málefnalega umræðu og leggja
fram heildstæða stefnu í haust? Þó
að skýrsla nefndarinnar sé um
margt ágæt, þá eru á henni gallar
sem eðlilegt hefði verið að ræða áð-
ur en rokið er í að semja frumvarp.
Engin tilraun hefur verið gerð til að
skapa samstöðu um málið eða skiln-
ing á mikilvægi þess. Offorsið í
þessu máli verður að teljast með
miklum ólíkindum.
Samþykkt frumvarpsins á Al-
þingi gæti haft alvarleg áhrif á
traust landsmanna á stjórnvöldum
og lýðræðislegum vinnubrögðum. Í
húfi er því meira en eignarhald á
fjölmiðlum. Alþingsmenn ættu því
að íhuga vandlega þann kost að vísa
málinu til þjóðarinnar og hreinsa
þar með andrúmsloftið. Ég skora á
ritstjóra Morgunblaðsins að styðja
þessa málsmeðferð, enda prófsteinn
á það hvort hugur fylgi máli í
áherslum blaðsins á almennar at-
kvæðagreiðslur um meginmál.
BIRGIR HERMANNSSON,
stjórnmálafræðingur,
Hjarðarhaga 38, 107 Reykjavík.
Þjóðaratkvæða-
greiðsla um fjöl-
miðlafrumvarpið!
Frá Birgi Hermannssyni:
PÁSKARNIR eru afstaðnir og það
seldust fleiri páskaegg en áður og
fleiri borgaralegar fermingar voru
framkvæmdar. Af þessum meintu
tveimur staðreyndum er önnur að
minnsta kosti röng. Ef einhver er
trúaður á þessum páskum er það
fermingarbarnið úr borgaralegu
fermingunni sem svarar frétta-
manni: Ég er trúlaus.
Þessi smágrein er ekki um trúmál.
Hún er um foreldra eða aðstandend-
ur sem ganga fram í uppeldi af
hroka. Foreldrið segir: Sjáið þið
bara, barnið mitt er trúlaust en hef-
ur verið uppýst um öll aðaltrúar-
brögð heimsins. Lítum á hvernig
þetta stenst. Í okkar samfélagi er
bara Guð. Þessi guð hefur þá sér-
stöku hæfni í safni guðanna, að hann
gerir þá kröfu til þeirra sem á hann
trúa að þeir skilji hann ekki.
Vegna þessa hæfileika sleppur
hann oft vel. Hann lætur ekki nappa
sig í málum og menn halda áfram að
ákalla hann.
Af hverju? Af hverju ég? Guð
svarar ekki í viðtalstímum. Ekki
náðist í Guð! Og menn eru gáttaðir.
Sálmurinn „Alfaðir ræður“ er ekki
ortur af einstaklingi sem var fermd-
ur borgaralegri fermingu. Samt sá
hann ekki aðra leið.
Þessi grein er ekki um Guð heldur
fjölskylduna. Og Guð hefur viðhengi.
Um það hafa margir rætt og ritað,
þar á meðal Bertrand Russell,
breskur heimspekingur. Í síðustu
viðtölunum sem tekin voru við hann,
segir hann um þessa spurningu um
Guð, að hann trúi ekki á Guð en geti
ekki svarið fyrir það að hann sé ekki
til. Fleira er í þessu viðhengi, en það
er kristin siðfræði. En í þeirri þróun
sem heimurinn er í dag, á kristin sið-
fræði minna og minna griðland, ein-
mitt í okkar heimshluta. Þar af leið-
andi eru afdrif fjölskyldunnar í dag í
raun það fáa sem við getum lagt
áherslu á til að komandi kynslóðir
eigi grundvöll fyrir áframhaldandi
siðmenningu og þar kemur sá Guð
sem við erum að tala um við sögu.
Allir geta átt það í vændum að þurfa
að ráða við ofurmannlegar aðstæður
og þá er engin ástæða til að strika yf-
ir þýðingu trúarinnar. Ekki á þetta
síst við um barnatrúna.
HRAFN SÆMUNDSSON,
fv. atvinnumálafulltrúi,
Kópavogi.
Fleiri páskaegg
Frá Hrafni Sæmundssyni:
MIKIÐ ER ÉG
SVANGUR! EN
HVAÐ Á ÉG AÐ
FÁ MÉR?
ÉG ER
SVO
SVANGUR
ÞETTA ER
ALLS EKKI
SVO SLÆM
HUGMYND
EGG ERU
MJÖG GÓÐ FULL AF
ORKU...
...OG
VÍTAMÍNUM
OG
FULLT AF
...Ö
VANTAR ÞIG
AÐSTOÐ
MEISTARI?
JÁ
ÞAÐ ER
EKKI
LENGUR
HÆGT AÐ
TREYSTA Á
HÆNUR!
ÉG ÞARF AÐ FARA Í FERÐALAG Í
TÍMAVÉLINNI TIL ÞESS AÐ
SAFNA UPPLÝSINGUM FYRIR
KOMANDI UPPFINNINGAR. OG
ÞÚ KEMUR MEÐ
KANNSKI
SÚKKULAÐI
TIL ÞESS AÐ SAFNA
UPPLÝSINGUM ÞARFTU BLAÐ
EN EKKI LÆRISVEIN
GÓÐ HUGMYND!
FULLT AF ORKU
OG VÍTAMÍNUM
EF ÞÚ FERÐ Í TAUGARNAR Á MÉR ÞÁ FÆRÐU
HAMARSHÖGG Í HÖFUÐIÐ EÐA BYSSUSKOT Í RASSINN!
ÞÚ KEMUR MEÐ
HVERT ER
HÆNAN AÐ
FARA MEÐ
UNGANN
SINN?
EN... ÞÚ VARST AÐ ENDA VIÐ
AÐ FARA Í TAUGARNAR Á MÉR
RÉTT ÁÐAN
ÉG...
...ÉG KEM
MEÐ
ÉG HELD AÐ ÉG SÉ
MEÐ EITTHVAÐ Á MILLI
TANNANA
KOMDU NÚ!
LOKSINS ERUM VIÐ
KOMNIR!
ÞETTA FERÐALAG
FÓR Í TAUGARNAR Á
MÉR. EN ÞÉR?
BARA ÞAÐ
AÐ VERA
ALLTAF
SKOTINN
ÉG VERÐ AÐ SKRIFA
ÞETTA HJÁ MÉR. FINNA
UPP ÚTSÖLUNA
HANN
HERMIR
BARA
OG
SYKURLOPA
MMM
NAMMI
NAMM!
SYKURLOPI