Morgunblaðið - 02.05.2004, Síða 51
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 51
Þú getur hætt að reykja!
- fyrir sumarið
Vegna mikillar eftirspurnar!
Grand Hótel dagana
4., 6. og 13. maí kl. 20.10.
Verð 15.000 kr. (jafngildir einum
sígarettupakka á dag í 30 daga)
Kennari: Guðjón Bergmann
Skráning á www.gbergmann.is
og síma 517 3330.
Námskeiðið byggir á metsölubókinni Þú getur hætt að reykja!
sem kom út milli jóla og nýars 2003. Sjálfur reykti Guðjón um
12 ára skeið og veit fullvel hvað það er að láta af fíkninni. Ekki
láta þetta tækifæri framhjá þér fara og farðu reyklaus inn í
sumarið!
Metsölubókin
Þú getur hætt
að reykja!
kostar einungis 990 kr. og
fæst í öllum bókaverslunum,
á bensínstöðvum og í matvöru-
verslunum víða um land.
Salómon Jónsson,
löggiltur fasteignasali.
Fyrirtæki til sölu
Upplýsingar um fyrirtæki ekki veittar í síma
Við sölu fyrirtækja er gagnkvæmur trúnaður mikilvægur og við gefum því
ekki upplýsingar um fyrirtæki í síma. Við viljum fá kaupendur til okkar og
kynnast þeim, en með því móti getum við einnig þjónað þeim betur.
Vinsamlega hringið áður og pantið tíma. Síminn er 533 4300, en einnig er
hægt að nota tölvupóstinn: jens@husid.is .
Eftirfarandi eru stuttar lýsingar á nokkrum fyrirtækjum sem eru fáanleg, en
við auglýsum ekki nema brot af þeim fyrirtækjum sem höfum til sölu:
Vélaverkstæði á Akranesi með fjölbreytta þjónustu.
Lítil líkamsræktarstöð. Búin fullkomnustu tækjum. Auðveld kaup.
Þekkt sérverslun/heildverslun í byggingariðnaði. 180 m. kr. ársvelta.
Útflutningsfyrirtæki með íslenskar afurðir. Rekstrarhagnaður 30 m. kr. á
ári. Hentugt til sameiningar við svipað fyrirtæki.
Stór og mjög vinsæl krá í úthverfi. Vinsæll sport- og helgarstaður.
Dagsöluturn í verslunarmiðstöð.
Íþróttavöruverslun með þekkt merki og góð viðskiptasambönd. Sami
eigandi í 20 ár. Hagstætt verð.
Þekkt vefnaðarvöruverslun. Ársvelta 60 m. kr. Góð framlegð. Tilvalið
fyrir „saumakonur“ með góðar hugmyndir.
Maraþon í Kringlunni. Sportvöruverslun með þekkt merki og mikla sölu.
Rekstrarhagnaður 11 m. kr. á ári.
Þekkt barnavöruverslun. Góð umboð.
Vörubílaverkstæði með mikil föst viðskipti. 4-5 starfsmenn. Vel tækjum
búið, í eigin húsnæði á góðum stað.
Fasteignasala í fullum rekstri. Gott húsnæði og allur búnaður. Þrír sölu-
menn og stækkunarmöguleikar.
Vitum af mörgum sérverslunum, heildverslunum og iðnfyrirtækjum í
ýmsum greinum fyrir rétta kaupendur. Ársvelta 100-1000 m. kr.
Tvær litlar tískuverslanir í Kringlunni.
Þekkt lítið framleiðslufyrirtæki í matvælageiranum. Hentugt til samein-
ingar.
Matvöruverslun, bensínsala og veitingarekstur í Búðardal. Eigið hús-
næði. Ársvelta er nú tæpar 200 m. kr. og hefur farið vaxandi með hverju
ári. Góður hagnaður um margra ára skeið og mjög heilbrigður rekstur.
Sérstaklega hentugt fyrir stóra fjölskyldu eða tvenn hjón.
Flottur sportbar í góðu hverfi með nýjum innréttingum og tækjum, m.a.
þrjú breiðtjöld. Velta 2-3 mkr. á mánuði. Tilvalið fyrir samhent hjón.
Söluturninn Hagamel. Auðveld kaup.
Álgluggaverksmiðja með miklum tækjakosti. Tilvalið til sameiningar.
Meðeign kemur til greina.
Arðbært þjónustufyrirtæki í byggingariðnaði með góða verkefnastöðu.
Ársvelta 60 m. kr. Tilvalið til sameiningar við fyrirtæki tengd bygging-
ariðnaði.
Rekstrarleiga með kauprétti. Stórt samkomuhús í nágrenni Reykjavíkur
með góðri aðstöðu fyrir dansleiki, veislur og fundi. Ársvelta 30 m. kr.
Gott tækifæri fyrir fagmenn.
Gagnlegur fróðleikur á heimasíðu
fyrirtækjadeildar: www.husid.is .
Suðurlandsbraut 50 (Bláu húsin v/Faxafen),
sími 533 4300, GSM 820 8658.
Salómon Jónsson, löggiltur fasteignasali.
…með allt fyrir sumarið
Setjum upp mjög algengt dæmi.Barn fylgir öðru hvoru foreldri
sínu inn í nýtt hjónaband eftir skilnað.
Nýi aðilinn sem kemur þar með til
sögunnar reynist vera ágætis maður
eða manneskja en eigi að síður getur
barnið ómögulega fengið af sér að
sýna hlýleika á móti
eða óþvingaða
ánægju þótt allt
virðist leika í lyndi á
heimilinu. Hið nýja
stjúpforeldri skilur
ekkert í þessu og
foreldrið er bæði
sárt og leitt og átel-
ur barnið fyrir framferði þess, það
mæti hlýju og góðlyndi en svari með
kulda og fráhrindandi framkomu.
Setjum svo að engin þessara
þriggja aðila átti sig á hvað þarna er í
gangi – sem sé hin máttuga vanhelg-
unartilfinning. Þá verður ástandið
viðvarandi. Barninu finnst að hinn nýi
aðili sitji í sæti sem hann eigi ekki með
að sitja í og finnst það svíkja foreldrið
sem það er ekki hjá með því að sýna
stjúpforeldrinu hlýju. Þetta ástand er
engum til góðs og í raun allra verst
fyrir barnið sem þannig einangrast og
verður einmana og ástlaust í örvænt-
ingarfullri tilraun til þess að halda í
gamla heimsmynd sína sem er horfin.
Annað dæmi er þegar maður eða
kona missir maka og giftir sig á ný.
Vinir og fjölskylda geta ómögulega
sætt sig við að hinn nýi maki taki sæti
þess sem horfinn er. Sá nýi er látinn
finna það óspart að nú sé kominn kött-
ur í ból bjarnar og ekkillinn eða ekkj-
an finnur til svo mikillar sektar fyrir
þá ósvífni að vilja vera til og lifa þrátt
fyrir að fyrri maki sé dáinn að hann
gerir ekkert í málinu og finnst jafnvel
eðlilegt að hinn nýi maki sé settur
skör lægra en sá sem látinn er.
Ekki verður séð að neinum skíni
heldur gott af þessu ástandi. Hvorki
sektartilfinningin, vanhelgunartil-
finningin né refsing sú sem hinn nýi
maki og ekkillinn eða ekkjan eru beitt
geta fært hinn látna inn í jarðlífið á ný.
Ef fólk skilur að um vanhelgunartil-
finningu er að ræða og sér hversu
vonlaust er að hún geti nokkru breytt
nema til ills þá fer hún að missa tökin.
Sé hún nefnd upphátt og útskýrð
hverfa tök hennar venjulega nánast
alveg.
Ef fólk er haldið óskiljanlegri þörf
til þess að láta einhvern nálægt sér
finna að sá hinn sami eigi ekki með að
sitja í því sæti sem hann er í, er rétt að
skoða gagnrýnum augum inn í hug-
skot sitt og athuga hvort um vanhelg-
un geti verið að ræða, einkum á þetta
við ef málið snertir sterk tilfinninga-
bönd. En hafa ber hugfast að vanhelg-
un getur dulist, þetta er ljósfælin til-
finning sem bregður sér gjarnan í
allra kvikinda líki í tilfinningaflórunni.
Fari maður að skoða hug sinn út frá
þessum forsendum kemur ýmislegt
forvitnilegt í ljós og margt verður
skiljanlegra í fortíð og nútíð.
ÞJÓÐLÍFSÞANKAR/Af hverju lætur manneskjan svona?
Hin ljósfælna tilfinning
eftir Guðrúnu
Guðlaugsdóttur
Innra með hverri manneskju hrærast hinar margvíslegustu tilfinningar. Ein
af þeim er vanhelgunartilfinningin, svonefnda. Hún er þeirrar náttúru að
halda fólki í heljargreipum – allt þangað til það áttar sig á hvernig er í pott-
inn búið, þá missir hún oft tökin, stundum á augabragði – en vandræðin eru
bara þau að stundum er erfitt að átta sig á að hún sé til staðar.
AUGLÝSINGADEILD
netfang: augl@mbl.is eða sími 569 1111
JAFNRÉTTISSTOFA heldur
málþing um kynja- og jafnrétt-
issjónarmið í norrænu sam-
starfi á Hótel KEA á Akureyri
4. maí nk. frá kl. 12.00–17.00.
Málþingið er í röð viðburða í til-
efni þess að Íslendingar, undir
yfirskriftinni Auðlindir Norð-
urlanda, leiða norrænt sam-
starf á árinu 2004. Á yfirstand-
andi ári eru 30 ár liðin frá því að
norræna ráðherranefndin hóf
samstarf um jafnréttismál. Ís-
lendingar ætla að minnast þess,
m.a. með því að líta yfir farinn
veg og skoða hvað hefur áunn-
ist og hvað hefur betur mátt
fara.
Málþingið um kynja- og jafn-
réttissjónarmið í norrænu sam-
starfi hefst á hádegisverði í
boði Norræna fjárfestingar-
bankans. Árni Magnússon, ráð-
herra félags- og jafnréttismála,
setur þingið. Meðal fyrirlesara
eru Siv Friðleifsdóttir, sam-
starfsráðherra Norðurlanda,
Sigurður Helgason, aðstoðar-
framkvæmdastjóri Norrænu
ráðherranefndarinnar, Ingólf-
ur V. Gíslason, félagsfræðingur
hjá Jafnréttisstofu, og Siv Hell-
en, yfirlögfræðingur, Norræna
fjárfestingarbankanum. Fund-
arstjóri þingsins er Jón Sig-
urðsson, framkvæmdastjóri
Norræna fjárfestingarbank-
ans.
Í framhaldi af þinginu er
boðið til menningardagskrár og
móttöku á Listasafni Akureyr-
ar frá kl. 17.00–19.00. Þar
stendur yfir sýningin Allar
heimsins konur.
Málþingið er öllum opið og
þátttakendum að kostnaðar-
lausu. Skráning hjá Jafnréttis-
stofu á jafnretti@jafnretti.is
fyrir kl. 12.00, mánudaginn 3.
maí.
Málþing um
kynja- og
jafnréttis-
sjónarmið
Fréttasíminn
904 1100