Morgunblaðið - 02.05.2004, Side 54
AUÐLESIÐ EFNI
54 SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
MYNDIR af bandarískum
hermönnum, sem virðast
pynda og niðurlægja íraska
fanga í fangelsi í Bagdad,
hafa vakið hneysklun og
reiði víða og þá ekki síst í
araba-ríkjunum.
Stjórnmálamenn í
Bandaríkjunum, Bretlandi,
Evrópu, Mið-Austurlöndum
og víðar hafa lýst hneykslun
á því sem myndirnar sýna.
En þær voru birtar á
CBS-sjónvarps-stöðinni
bandarísku. Þar kom fram,
að í síðasta mánuði hefði 17
hermönnum verið vikið til
hliðar meðan á rannsókn
stendur. Fyrir nokkrum
dögum var og hershöfðingi,
sem bar ábyrgð á
fangelsis-málum bandaríska
hersins, settur af um
stundar-sakir. Búist er við að
þau verði dregin fyrir herrétt.
Talsmaður Tony Blair,
forsætis-ráðherra Bretlands,
sagði að honum hefði
„boðið við“ myndunum. Og
Bandaríkja-stjórn sagði
framferði af þessu tagi ekki
liðið.
Sjónvarps-stöðvar í
araba-ríkjunum hafa sýnt
myndirnar og munu þær ekki
verða til auka hróður
Bandaríkjanna þar. Þá geta
þær kynt undir þeirri miklu
ólgu, sem er í Írak.
Myndir af pyndingum vekja reiði
MIKLAR umræður hafa farið
fram nú í vikunni um skýrslu
nefndar um eignarhald á
fjölmiðlum og frumvarp
ríkis-stjórnarinnar sem byggt
er á niðurstöðum þeirrar
skýrslu. En umræðurnar hafa
bæði farið fram á Alþingi og
eins meðal almennings.
Þorgerður Katrín
Gunnarsdóttir
menntamála-ráðherra fylgdi
skýrslunni úr hlaði á
þingfundi, sem hófst eftir
hádegi á miðvikudag.
Eftir það tóku síðan við
umræður sem stóðu yfir
allan daginn og fram á nótt.
Menntamála-ráðherra
sagði við umræðurnar að
samþjöppun á
fjölmiðla-markaði væri
langtum meiri en í öðrum
vestrænum lýðræðis-ríkjum.
Sagði hún að eitt stærsta
fyrirtækið í íslensku
viðskipta-lífi, það er Baugur,
hefði á stuttum tíma náð
undir sig stærstum hluta af
íslenska fjölmiðla-
markaðinum. Nauðsynlegt
væri að grípa til viðeigandi
aðgerða. Þess vegna þyrfti
að setja lög sem
takmörkuðu eignarhald á
fjölmiðlum.
Harðar deilur urðu á
Alþingi um þetta mál.
Þingmenn ríkis-stjórnarinnar
voru flestir sammála um að
skýrslan væri vel unnin og
ítarleg.
Stjórnar-andstæðingar á
þingi gagnrýndu aftur á móti
fjölmiðla-frumvarp
ríkis-stjórnarinnar harðlega.
Bryndís Hlöðversdóttir,
þingmaður Samfylkingar,
sagði að ríkis-stjórnin hefði
fallið í þá gryfju að semja
upp úr skýrslunni ótrúlega
illa unnið frumvarp. Frumvarp
sem stæðist engar kröfur
um lagasetningu. Kolbrún
Halldórsdóttir, þingmaður
Vinstri-hreyfingarinnar –
græns framboðs, sagðist
ekki skilja hvers vegna lægi
svona á að afgreiða
frumvarpið á vor-þingi. Árni
Magnússon,
félagsmála-ráðherra, sagði
hins vegar frétta-umfjöllun
síðustu daga sönnun þess
að eignarhald fjölmiðla gæti
haft og hefði stundum
úrslita-áhrif um það hvernig
fjölmiðlar fjölluðu um
umdeild mál.
Deilur um
eignarhald á
fjölmiðlum
Morgunblaðið/Brynjar Gauti
Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir menntamála-ráðherra í ræðustól á Alþingi.
ÍSLAND og Lettland gerðu
markalaust jafntefli í
vináttu-landsleik, sem fram
fór í Riga, höfuðborg
Lettlands, á miðvikudag.
Ásgeir Siguvinsson,
landsliðs-þjálfari Íslands
sagði eftir leikinn að hann
hefði verið ánægður með
strákana í liðinu. „Þeir léku
mun betur en í Albaníu á
dögunum. Með smá heppni
hefðum við getað unnið
leikinn,“ sagði Ásgeir.
Árni Gautur Arason,
mark-vörður, var hetja
íslenska liðsins. Hann varði
tvisvar meistaralega í
leiknum. Vörn íslenska
liðsins var einnig traust. Þá
náðu miðjumennirnir að
halda boltanum vel og leika
honum á milli sín. Jafntefli
var sanngjörn úrslit.
Eggert Magnússon,
formaður
Knattspyrnu-sambands
Íslands var mjög ánægður
með leikmenn Íslands eftir
jafntefliðð. „Jafntefli var
fullkomlega réttlát úrslit og
nú vona ég að stígandin verði
rétt hjá okkur í framhaldinu.
Við eigum tvo skemmtilega
leiki framundan í Englandi,
gegn Englandi og Japan, og
síðan rætist draumurinn um
að fá Ítali í heimsókn á
Laugardalsvöllinn,“ sagði
Eggert. En hann bíður
spenntur eftir framhaldinu.
Morgunblaðið/Árni Torfason
Árni Gautur Arason, mark-vörður íslenska lands-liðsins í
knattspyrnu, stóð sig vel í leiknum.
Árni Gautur var
hetja Íslands
MIKIÐ umstang er nú á
Snæfellsnesi, nánar tiltekið í
Björgunar-stöðinni á
Gufuskálum. Þar er nefnilega
verið að taka upp nýja
kvikmynd. Myndin er stór í
sniðum og er að hluta til
framleidd af Íslendingum,
ásamt Kanadamönnum og
Bretum. Myndin mun heita
Guy X og er sagan byggð á
skáldverkinu No One Thinks
of Greenland eftir John
Griesemer.
Hilmir Snær Guðnason fer
með hlutverk í myndinni og er
eini Íslendingurinn sem
kemur þar við sögu að ráði,
en heimamönnum frá
Hellissandi mun þó bregða
fyrir í smá-hlutverkum. Auglýst
var eftir fólki á aldrinum 15 til
35 ára sem vildi spreyta sig á
kvikmynda-leik. Nokkrir á
Hellissandi gripu tækifærið
að komast á tjaldið. Einnig
hefur komið fólk úr Reykjavík,
Akranesi og víðar að til að
taka þátt í ævintýrinu.
Slík gestakoma sem þessi
setur nokkuð svip á staðinn á
Hellissandi. Hótel
Hellissandur er fullsetið af
leikurum og starfsfólki sem
tengist kvikmyndatökunni og
þessir gestir koma líka við í
verslunum á staðnum.
Aðal-hlutverk í myndinni eru
í höndum heimskunnra
leikara. Þar ber helstan að
nefna Bandaríkjamanninn
Jason Biggs en hann lék
aðalhlutverkið í vinsælum
bandarískum
unglinga-myndum sem hétu
American Pie. Auk hans fara
bresku leikararnir Jeremy
Northam og Natasha
McElhone með stór hlutverk í
myndinni.
Það er Anna María
Karlsdóttir sem kemur að
framleiðslu myndarinnar fyrir
hönd fyrirtækisins Ex ehf.
Gert er ráð fyrir að tökur
standi til 9. maí, en þá eftir
þær verður þeim haldið áfram
í Kanada.
Stórmynd
tekin upp
á Snæ-
fellsnesi
Ljósmynd/Alfons Finnsson
Frá tökustað á Snæfellsnesi.
…með allt fyrir tískuna