Morgunblaðið - 02.05.2004, Side 57
FÓLK Í FRÉTTUM
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 2. MAÍ 2004 57
Árið 1992 hitti gítarleikarinnog söngvarinn Isaac Brockbassaleikarann Eric Judyá myndbandaleigu í Issaq-
uah, úthverfi Seattle, þar sem þeir
bjuggu báðir. Þeir tóku tal saman og
þegar í ljós kom að þeir höfðu álíka
skoðanir á tónlist ákváðu þeir að
stofna saman hljómsveit. Þriðji mað-
urinn var svo trymbillinn Jeremiah
Green sem Brock þekkti og hafði
spilað með í hljómsveit nokkru áður.
Brock byggði æfingaskúr skammt
frá húsvagninum sem móðir hans
bjó í og þar æfði sveitin frá því
snemma 1993, samdi lög og tók upp
prufur. Fyrsta smáskífan kom svo
út hjá þeirri ágætu útgáfu K Re-
cords 1994 og á næstu árum bættust
fleiri smá- og stuttskífur í safnið.
1995 var sveitin loks tilbúin í stóra
plötu, upptökur hófust þá um haust-
ið og í febrúar 1996 kom svo út
platan This Is a Long Drive for
Someone With Nothing to Think
About og síðar sama ár EP-platan
Interstate 8. Up Records gaf plöt-
urnar út. 1997 gaf K Records út
plötuna The Fruit That Ate Itself,
sem er síðasta Modest Mouse plat-
an, en þá um haustið kom svo út The
Lonesome Crowded West á vegum
Up sem vakti á sveitinni mikla at-
hygli.
Þegar hér var komið sögu voru
stórfyrirtæki farin að veita Modest
Mouse verulegan áhuga og svo fór
að Brock og félagar sömdu við Sony
/ Epic. Fram að þessu hafði sveitin
verið gríðarlega afkastamikil, sent
frá sér efni sem dugað hefði venju-
legri hljómsveit á fjórar til fimm
breiðskífur á aðeins tveimur árum.
Það kom því mörgum á óvart hve
langan tíma tók að setja saman
fyrstu stóru plötuna. Skýringin er
væntanlega að einhverju leyti sú að
sveitin tekur gríðarlegt stökk fram
ávið á plötunni, bætir verulega við
sig í hljóm- og útsetningum og nýtir
aðstöðuna sem samningur við stór-
fyrirtæki gaf afskaplega vel. Aðrir
hafa reyndar gert því skóna að hluta
skýringarinnar sé að leita í því að
Brock var kærður fyrir nauðgun
1999, en það mál var reyndar látið
niður falla þegar stúlkan sem kærði
dró kæruna til baka. Brock fékk
miklar ákúrur fyrir þetta í fjöl-
miðlum vestan hafs enda meintur
glæpur alvarlegur.
Hvað sem því líður kom platan
langþráða, The Moon & Antarctica,
út sumarið 2000 og var og er mikill
gæðagripur. Til gamans má geta
þess að platan var endurútgefin um
daginn með mjög endurbættum
hljóm og öðlaðist við það nýtt líf.
Bestu meðmæli. Þess má og geta að
Modest Mouse kom hingað til lands
á lágmenningarhátíð Hljómalindar
sumarið 2001, enn eitt grettistak
Kidda Kanínu sem sárt er saknað í
íslensku tónlistarlífi.
Næsta útgáfa sveitarinnar, Sad
Sappy Sucker, sem K Records gaf
út, var nánast gefin út í óþökk
hljómsveitarinnar, en á henni er að
finna upptökur frá 1994 sem áttu að
verða fyrsta breiðskífa Modest
Mouse. Vissulega forvitnileg útgáfa
en bætir litlu við myndina af sveit-
inni í sjálfu sér.
Næstu ár voru sérkennileg fyrir
Brock svo ekki sé meira sagt; hann
gaf út sólóplötu, var kjálkabrotinn af
unglingum, fékk ákúrur frá aðdá-
endum fyrir að láta lög í auglýs-
ingar, var handtekinn fyrir morð-
tilraun og trommuleikari
sveitarinnar til tíu ára hætti óforvar-
andis.
Sólóplatan fyrst: Sagan hermir að
1998 hafi geðtruflaður aðdáandi
Modest Mouse, Edgar Graham,
ruðst upp á svið og heimtað að fá að
syngja með. Hann var með í fartesk-
inu talsvert af lögum og textum sem
hann vildi koma á framfæri. Brock
tók að sér að taka lögin upp fyrir
kauða, en áður en platan kom út var
Graham horfinn. Platan sem eftir
hann lá var einkar skemmtileg og
kemur kannski ekki á óvart, í ljósi
þess að Graham var vitanlega til-
búningur, aukasjálf Brocks. Á skíf-
unni, Sharpen Your Teeth, kallaði
Brock sig Ugly Casanova og fékk
sér til aðstoðar þá Paul Jenkins úr
Black Heart Procession, John Orth
úr Holopaw og Tim Rutili og Brian
Deck úr Califone, en Deck var ein-
mitt upptökustjóri á The Moon &
Antarctica.
Kjálkabrotið er öllu einfaldara:
Brock, sem var drukkinn, gaf sig á
tal við unglingagengi skammt frá
hljóðverinu í Chicago þar sem The
Moon & Antarctica var tekin upp og
var varla búinn að yrða á þau þegar
hann var kýldur og kjálkabrotinn.
Skömmu eftir að The Moon &
Antarctica kom út vakti það mikla
gremju aðdáenda að Brock gaf leyfi
fyrir því að tvö lög sveitarinnar yrðu
notuð í auglýsingar og í sjálfu sér
ekkert meira um það að segja; hann
vantaði salt í grautinn.
Þá er það morðtilraunin: Brock
rekur söguna svo að hann hafi verið
að keyra undir áhrifum og lent í
óhappi þar sem einn farþegi í bílnum
meiddist lítillega, þumall á annarri
hendi fór úr lið. Þetta var í Oregon
og þar er víst til siðs að telja öll slys
sem verða vegna drykkju morð-
tilræði. Brock segist hafa ráðið lög-
fræðing og greitt honum fyrir að sjá
um öll formsatriði og síðan gleymt
öllu saman. Ári síðar brá hann sér
svo yfir til Kanada að skoða Niag-
ara-fossana en þegar hann sneri til
baka var hann handtekinn á landa-
mærunum enda var það komið í
tölvukerfi að hann væri eftirlýstur í
Oregon fyrir morðtilraun. Kom á
daginn að lögfræðingurinn sem
hann hafði ráðið til að sinna málum
hafði ekki unnið vinnuna sína og
Brock var settur inn í hálfa aðra
viku.
Loks trommuleikarahvarfið: Op-
inber skýring er að Jeremiah Green
hafi viljað sinna betur hljómsveitinni
Veils sem hann var að spila með í frí-
stundum. Á milli línanna má þó lesa
að Green hafi átt í erfiðleikum vegna
vímuefnaneyslu og ekki ljóst hvort
hann sé einu sinni meðlimur Veils.
Þegar Green hætti í sveitinni voru
upptökur að nýrri skífu komnar í
gang, plötunni sem er kveikjan að
þessari samantekt, Good News for
People Who Love Bad News. Þeir
Brock og Judy voru þó ekki af baki
dottnir, héldu sínu striki, þó Brock
hafi puttabrotnað í miðjum klíðum,
og skiluðu frá sér afbragðsplötu.
Tónlistin er venju fremur fjölbreytt,
blásarar og órafmögnuð hljóðfæri í
bland við rafgítarrokk. Brock hefur
látið þau orð falla að hann hafi viljað
hafa plötuna sem jákvæðasta þrátt
fyrir hörmungarnar sem gengið
höfðu yfir hann og sveitina, en
hremmingarnar skila sér þó eðlilega
í textunum, til að mynda The Good
Times Are Killing Me, sem fjallar
opinskátt um vímuefnaneyslu þeirra
Modest Mouse félaga. Brock segist
vera búinn að ná tökum á neyslunni
og hann umgangist ekki lengur þá
sem séu í slíku. „Ég sé á eftir því
hvað ég neytti mikils af vímuefnum;
það virtist góð hugmynd á sínum
tíma en var það eflaust ekki.“
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Hrakfallabálkurinn
Isaac Brock
Bandaríska rokksveitin Modest Mouse er með for-
vitnilegustu hljómsveitum vestan hafs og hefur ver-
ið svo lengi. Hún sendi á dögunum frá sér breiðskíf-
una Good News for People Who Love Bad News.
AKUREYRARKIRKJA: Tónleikar
með KK en hann verður í Siglufjarð-
arkirkju á mánudagskvöldið.
ÁSGARÐ-
UR, Glæsibæ:
Caprí-tríó
leikur fyrir
dansi í kvöld.
GRAND-
ROKK: Blús-
menn Andreu
og hollenski
gítarleikarinn
Joep Pelt klukkan 22.
HÓTEL BORG: Múlinn. Kristjana
syngur Julie London.
RÁÐHÚS REYKJAVÍKUR: Dagur
harmónikkunnar í dag klukkan
15.00. Harmonikkufélög Reykjavík-
ur, Rangæinga, Selfoss og Suð-
urnesja halda uppi kátlegu nikku-
stuði.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Harmonikkan mun
ráða ríkjum í Ráðhús-
inu í dag.