Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 1
STOFNAÐ 1913 158. TBL. 92. ÁRG. FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
LEIKURINN
Sendu 3 strikamerki,
merkt Cocoa Puffs -
Shrek2 leikurinn,
Vatnagörðum 20,
104 Reykjavík
Í
SL
EN
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
N
A
T
24
93
4
06
/2
00
4
Stuðmenn í
sumarskapi
Stuðmenn frumflytja sumarsmell
og hefja yfirreið um landið | Fólk
Tískusaga í
Árbæjarsafni
Þegar íslenskar konur gengu í mörg-
um lögum af pilsum | Daglegt líf
Fólkið í dag
Mínusliðar uppteknir Halla í
Malasíu Heimspeki Andrésar
Andar Heimilda- og stuttmyndahátíð
FUNDI átta helstu iðnríkja heims,
G-8, lauk í Bandaríkjunum í gær með
lokayfirlýsingu um stuðning við um-
bótaáætlun í Mið-Austurlöndum.
Hvatt var til lausnar á deilum Ísraela
og Palestínumanna og fagnað ákvörð-
un um brottför ísraelskra herja og
landtökumanna frá Gaza. Samþykkt
var áætlun um að láta þjálfa 75.000
manna lið friðargæslu- og lögreglu-
manna á næstu árum. Liðið er eink-
um ætlað til aðgerða í Afríku.
Framlengd var um tvö ár áætlun
um að létta skuldabyrði þróunarríkj-
anna sem átti að renna út um næstu
áramót. Hins vegar var tillaga Breta
um að fella slíkar skuldir alveg niður
ekki samþykkt, að sögn fréttavefjar
BBC. Sameinuðu þjóðirnar voru
hvattar til að koma í veg fyrir harm-
leik í Darfur-héraði í Súdan en þar
hafa hundruð þúsunda manna flúið
heimili sín undan óaldarflokkum.
George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna, vísaði í gærkvöldi á bug að
sambúð Bandaríkjamanna og Frakka
væri slæm. Ekki væri nauðsynlegt að
þjóðirnar tvær væru sammála um allt
og viðræður hans við forseta Frakk-
lands, Jacques Chirac, hefðu verið
vinsamlegar. Bush sagði að ekki væri
gert ráð fyrir að Atlantshafsbanda-
lagið, NATO, kæmi að öryggismálum
í Írak en bandalagið gæti tekið að sér
þjálfun íraskra hermanna. Frakkar
eru andvígir því að NATO taki form-
lega að sér hlutverk í Írak.
Stofna öflugt friðargæslulið
Sea Island í Georgíu. AFP, AP.
Mið-Austurlandaáætlun/16
ÍSKJARNI sem boraður var upp úr jökul-
breiðunni á Suðurskautslandinu, þar sem ís-
inn er þrír kílómetrar að þykkt, gerir vísinda-
mönnum frá Íslandi og fleiri löndum kleift að
skyggnast 740 þúsund ár aftur í tímann og
skoða breytingar á veðurfari á þessu tímabili.
Þetta er elsti ís sem vísindamenn hafa komist í
tæri við, áður hafði 400 þúsund ára gamall ís
verið boraður upp á Suðurskautslandinu.
Þrír Íslendingar hafa unnið við ískjarna-
borunina, sem sagt er frá í nýjasta hefti tíma-
ritsins Nature. Þorsteinn Þorsteinsson, jökla-
fræðingur á Vatnamælingum Orkustofnunar,
segir að úr borkjörnunum fáist bestu gögn
sem hægt sé að fá um breytingar á gróður-
húsalofttegundum yfir nokkur hundruð þús-
und ára tímabil. „Þarna staðfestist enn og aft-
ur að styrkur gróðurhúsalofttegunda núna er
óvenjulega hár,“ segir Þorsteinn.
Þorsteinn Þorsteinsson við ískjarnaboranir
á Suðurskautslandinu.
Spáð í veðrið
fyrir 740
þúsund árum
Styrkur gróðurhúsalofttegunda/6
VERÐBÓLGAN mælist nú 3,9% á ársgrundvelli
eftir 0,77% hækkun vísitölu neysluverðs milli maí
og júní. Í síðasta mánuði mældist verðbólgan
3,2%.
Verðhækkanir á húsnæði og bensíni eru meg-
inskýringin á aukinni hækkun vísitölu neyslu-
verðs. Standa þessir tveir liðir fyrir um ¾ hlutum
hækkunarinnar að þessu sinni.
Greining Íslandsbanka bendir á það í vefriti
sínu í gær, Morgunkorni, að verðbólgan hafi það
sem af er þessu ári að stórum hluta étið upp þær
almennu kauphækkanir sem samið var um í
kjarasamningum í upphafi ársins.
Má búast við frekari vaxtahækkunum
Birgir Ísleifur Gunnarsson, bankastjóri Seðla-
bankans, segir að mikið þurfi að koma til eigi
verðbólga ekki að fara yfir 4% þolmörk bankans.
Hann segir enga ákvörðun hafa verið tekna um
hugsanlega hækkun stýrivaxta, en minnir á yf-
irlýsingu bankans frá því vextir voru síðast
hækkaðir. „Þar sögðum við að gæfu nýjar upp-
lýsingar ekki sterkar vísbendingar um betri
anfarið, og bensínverð á heimsmarkaði hefur
lækkað. Þetta hefur áhrif til lækkunar verð-
bólgu,“ segir Birgir Ísleifur Gunnarsson.
Vextir óverðtryggðra inn- og útlána viðskipta-
bankanna þriggja hækka frá og með deginum í
dag. Íslandsbanki og Landsbanki hækka þessa
vexti um allt að 0,25% en KB banki um allt að
0,45%.
Eftir vaxtahækkunina eru kjörvextir óverð-
tryggðra skuldabréfa 8,0% hjá Landsbankanum,
8,4% hjá KB banka og 8,85% hjá Íslandsbanka.
Í fréttatilkynningum frá bönkunum kemur
fram að vaxtahækkanir þeirra komi í kjölfar
hækkunar stýrivaxta Seðlabankans, en þeir hafa
verið hækkaðir í tvígang síðastliðinn mánuð,
samtals um 0,45%. Íslandsbanki hækkaði vexti
óverðtryggðra inn- og útlána einn banka í kjölfar
hækkunar stýrivaxta Seðlabankans um 0,2% fyr-
ir mánuði, en það gerðu hinir bankarnir þá ekki.
Bankarnir hækka ekki vexti af verðtryggðum
inn- og útlánum að þessu sinni.
verðbólguhorfur mætti fljótlega búast við frekari
vaxtahækkunum.“ Birgir Ísleifur segir hins veg-
ar vel hugsanlegt að verðbólgan nú verði skamm-
vinn og að ýmislegt bendi til þess að svo verði.
„Gengi krónunnar hefur eitthvað hækkað und-
Verðlag og vextir hækka
Verðbólgan fer líklega yfir þolmörk, segir seðlabankastjóri
!
"!
#$ %&'
$ $%
()*
()* ()(+*
Verðbólgan/12
SVO getur farið að borgaryfirvöld í París
banni innan skamms akstur stórra jeppa í
borginni, að sögn breska blaðsins The
Guardian. Samþykkt var nýlega tillaga full-
trúa græningja, Denis Baupins, um að slík
farartæki megi ekki vera í miðborginni þeg-
ar loftmengun er mest.
Ken Livingstone, borgarstjóri Lundúna,
sagði nýlega að jeppar væru slæmir fyrir
borgina, þeir væru „ónauðsynlegir“ og eig-
endurnir „algerir hálfvitar“.
Lögregluyfirvöld í París þurfa að sam-
þykkja tillögurnar eigi þær að verða að
veruleika. Baupin segir torfærujeppa ekki
henta í borgum. „Þeir menga, þeir taka mik-
ið pláss, þeir eru hættulegir gangandi fólki
og öðrum sem nota göturnar. Þeir eru
skrípamynd af bifreið.“
„Skrípamynd
af bifreið“
BIFHJÓLAMENN áttu kyrrðarstund í Kúa-
gerði við Reykjanesbraut í gærkvöldi og
minntust bifhjólamanna sem látist hafa í um-
ferðarslysum. Að lokinni minningarstundinni,
sem boðað var til í því skyni að „hugleiða lífið
og liðna atburði“ fóru Sniglanir sem leið lá að
óku einir 150 sniglar fram hjá sjúkrarúmi
Baldvins. „Mér var ýtt út á plan og hér biðu
allir eftir mér. Þótt ég eigi nú marga vini bjóst
ég alls ekki við þessu,“ sagði Baldvin.
Landspítalanum í Fossvogi og heimsóttu fé-
laga sinn, Baldvin Jónsson, en hann slasaðist
alvarlega í mótorhjólaslysi 4. maí sl. Baldvin
er mjaðmagrindarbrotinn og ökklabrotinn og
hefur verið rúmliggjandi í rúman mánuð.
Fagnaðarfundirnir fóru fram utan dyra og
Morgunblaðið/Sverrir
„Lífið og liðnir atburðir“
Leiðari á miðopnu
♦♦♦