Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 64
MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI 1, 103 REYKJAVÍK, SÍMI 569 1100, SÍMBRÉF 569 1181, PÓSTHÓLF 3040,
ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 569 1122, NETFANG: RITSTJ@MBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI 1 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 VERÐ Í LAUSASÖLU 220 KR. MEÐ VSK.
HVÍTUR skötuselur veiddist í grásleppu-
net í fyrradag við Búlandshöfða á milli
Grundarfjarðar og Ólafsvíkur. Fiskurinn
rataði í net Sævars og Birgis Guðmunds-
sona en þeir sendu hann á Náttúrugripa-
safn Vestmannaeyja. Kristján Egilsson,
forstöðumaður safnsins, telur þetta vera í
fyrsta skipti sem slíkur fiskur veiðist við
Ísland. „Þetta er sá eini sem ég hef heyrt
um. Það er ekki óalgengt að það komi
hingað hvítir fiskar en við höfum aldrei
fengið hvítan skötusel áður.“
Kristján segir að kalla megi fiskinn alb-
ínóa en að hann sé ekki alveg snjóhvítur
og með brúnar doppur. „Fiskurinn er
hérna hjá okkur og við munum reyna að
halda lífi í honum áfram,“ segir Kristján.
Morgunblaðið/Sigurgeir
Hvítur skötu-
selur á Náttúru-
gripasafnið
í Eyjum
EMBÆTTI landlæknis barst
181 kvörtun með formlegum
hætti á síðasta ári sem beindist
gegn heilbrigðisstarfsmönnum
og/eða heilbrigðisstofnunum.
Þetta kemur fram í nýrri árs-
skýrslu embættisins fyrir árið
2003.
Kvörtunum hefur fækkað
nokkuð á allra síðustu árum
Á síðustu árum hefur fjöldi
skráðra kvartana hjá embættinu
verið vel á þriðja hundrað á ári.
Þrátt fyrir að kvörtunum hafi
farið heldur fjölgandi sl. áratug
hefur þeim fækkað nokkuð á
allra síðustu árum. Þannig voru
kvartanir nokkru færri í fyrra
en árið á undan en á síðast-
liðnum þremur árum (2001–
2003) bárust embætti landlæknis
samtals 713 kvartanir, þar af
voru 329 vegna meintrar rangr-
Röng eða ófullnægjandi með-
ferð er langalgengasta orsök
kvartana til landlæknis á sl.
þremur árum. Því næst koma
kvartanir vegna samstarfserfið-
leika og þar á eftir kvartanir
vegna aðgengis að heilbrigðis-
þjónustu.
Niðurstöður þessara mála
hafa verið þær að kvörtun hefur
verið staðfest að öllu leyti eða
hluta í fjórðungi tilvika. „Það er
svipað eða heldur hærra en
gengur og gerist á Norðurlönd-
unum, þar sem algengt er að
kvörtun sé staðfest í um 20% til-
vika,“ segir í ársskýrslunni.
Í 68% tilvika hefur embættið
ekki séð ástæðu til að grípa til
aðgerða en aðfinnslur hafa verið
settar fram í 6% tilvika.
Leyfissviptingar hafa verið ein
til þrjár á ári undanfarin þrjú
ár.
ur verið á skráningu kvartana.
Hert hefur verið á kröfum til
þeirra sem kvarta og hætt er að
skrá kvartanir sem berast með
óformlegum hætti, sérstaklega
ef kvartandinn vill ekki láta
nafns síns getið.
ar meðferðar í heilbrigðisþjón-
ustunni.
Fram kemur í ársskýrslu
Landlæknisembættisins að með-
al ástæðna þess að kvörtunum
hefur heldur fækkað upp á síð-
kastið sé breyting sem gerð hef-
Landlækni bárust 713 kvart-
anir á síðustu þremur árum
0: (/%;/"%
<;! * &
(/%;/"%
<;! * &
/;+" +
(+";/";% / (+/";% 9/
"+O++
2% /
N"M %"
"'+
* )'++'"%
&M""
2#N2
, ' $ '
% "
BORGARRÁÐI hefur borist bréf frá Eysteini
Yngvasyni, framkvæmdastjóra Viðeyjarferj-
unnar ehf., og Jörundi Guðmundssyni þar sem
óskað er eftir leyfi borgaryf-
irvalda til reksturs lítillar
farþegalestar milli Reykja-
víkurhafnar og Sundahafnar
yfir sumartímann. Eysteinn
segir fyrirmyndina koma frá
ýmsum stórborgum í Evr-
ópu þar sem litlar lestir á
hjólum flytja fólk, og þá
helst ferðamenn, milli staða. „Lestin myndi
ganga eftir áætlun þarna á milli og er hugsuð
þannig að fólk geti farið í útsýnisferðir meðfram
ströndinni. Við myndum hafa leiðsögn í lestinni
og vera með átta til tíu ferðir á dag.“
Eysteinn segir að lestin bjóði upp á tengsl við
Viðeyjarferjuna en að hún geti jafnframt komið
sér vel fyrir farþega skipa sem koma í Sunda-
höfn.
Hugmynd að
farþegalest frá
Sundahöfn
HESTAR sluppu lausir og hlupu inn á golfvöll
Fróðárhrepps í Snæfellsbæ um kvöldmat-
arleytið í gær. Að sögn Rafns Guðlaugssonar,
golfmanns og sjónarvotts, urðu miklar
skemmdir á vellinum. Rafn segir að hestarnir
hafi sloppið fyrir mistök. Þeir hafi verið tekn-
ir úr kerrum og til stóð að reka þá inn í girð-
ingu þegar þeir ruku af stað.
„Við vorum að slá á fyrsta teig og sáum
stóðið koma, yfir ána og inn á golfvöllinn.
Hrossinn voru náttúrlega hvekkt og frjáls-
ræðinu fegin þegar þau komust út úr kerr-
unni. Þetta var eins og flóðalda,“ segir Rafn.
Golfvöllurinn er níu holur en skemmdirnar
eru miklar á áttundu flöt og á braut númer
tvö. Rafn segir þetta sérlega slæmt þar sem
til standi að halda stórt golfmót á laugardag.
„Við förum í viðgerðir á áttundu flötinni á
morgun en svo gæti farið að við þyrftum að
sleppa áttundu brautinni og leyfa uppstill-
ingar á braut númer tvö,“ segir Rafn og bætir
við að það megi þakka skjótum viðbrögðum
að skemmdirnar urðu ekki enn meiri.
Hrossastóð stór-
skemmdi golfvöll
BÆKLUNARLÆKNAR frá Sví-
þjóð, tveir íslenskir og sex sænsk-
ir, nota óvenjulega leið til að kom-
ast á norræna ráðstefnu
bæklunarlækna, sem hefst í
Reykjavík um miðja næstu viku.
Þeir eru ásamt tveimur félögum
sínum á leiðinni með 57 feta skútu,
Ionu, sem lagði af stað frá Gauta-
borg síðastliðinn föstudag. Áætluð
koma til Vestmannaeyja er um
helgina og á mánudag eða þriðju-
dag til Reykjavíkur.
Friðfinnur Sigurðsson, sem
starfað hefur sem bæklunarlækn-
ir og sérfræðingur í íþrótta-
meiðslum í Stokkhólmi í rúm 30
höfn áði hópurinn og gæddi sér í
gærkvöld á glænýju grind-
hvalakjöti.
Læknarnir sigla ekki til baka til
Svíþjóðar, heldur fara með flugi
að ráðstefnu lokinni, en eigandi
skútunnar tekur nýjan hóp um
borð í Reykjavík og ætlar í sigl-
ingu í kringum landið næstu vik-
urnar.
Friðfinnur sagðist vera vanur sigl-
ingamaður og hefði siglt um flest
heimsins höf. Fleiri slíkir væru
með um borð.
Frá Gautaborg lá leiðin til
Hjaltlandseyja og þaðan til Þórs-
hafnar í Færeyjum. Friðfinnur
sagði siglinguna hafa gengið vel,
þeir hefðu um tíma fengið góðan
vind í seglin úr „réttri“ átt. Í Þórs-
ár, er annar Íslendinganna um
borð og hinn er Ólafur Ingimars-
son, bæklunarlæknir í Lundi.
Morgunblaðið náði tali af Friðfinni
í Færeyjum í gærkvöld, þangað
sem leiðangurinn var kominn eftir
vel heppnaða siglingu frá Svíþjóð.
Þriðja Íslandsferðin á
skútu í sama tilgangi
Hann sagði þetta vera í þriðja
sinn sem hann kæmi með þessum
hætti, siglandi á skútu frá Svíþjóð,
á norræna ráðstefnu bækl-
unarlækna, þegar hún væri haldin
á Íslandi. Fyrst hefði það gerst ár-
ið 1984, síðan 1994 og loks 2004.
Átta norrænir bæklunarlæknar velja óvenjulegan ferðamáta
Sigla skútu frá
Svíþjóð til að
fara á ráðstefnu
Skútan Iona siglir nú seglum þöndum til Íslands með tíu manna áhöfn,
þar af átta bæklunarlækna.
LANGISANDUR á Akranesi
gefur bestu erlendu sólar-
ströndunum ekkert eftir þegar
veðrið er jafngott og verið hef-
ur í vikunni. Þetta kunna
krakkarnir á Skaganum vel að
meta og skunda oft þangað í
leik.
Arnór og Haukur voru að
skola af sér í laug eða lóni sem
þeir höfðu sjálfir búið til en
auk mannvirkjaframkvæmda
stunduðu þeir útræði frá sand-
inum á uppblásinni fleytu. Þeir
félagar sögðust fegnir að vera
búnir með skólann og geta ver-
ið á Sandinum en þegar spurt
var hvað annað þeir ætluðu að
gera í sumar kom eitt sam-
hljóða svar: fótbolti. Þeir eru í
5. flokki á fyrra ári og báðir í
liðinu, annar frammi en hinn á
miðjunni./MiðopnaMorgunblaðið/Einar Falur
Leikið
á Langa-
sandi