Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 25
AUSTURLAND
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 25
Seyðisfjörður | Listahátíðin Á seyði hefst í
Skaftfelli á Seyðisfirði á morgun.. Hátíðin
er að þessu sinni tileinkuð minningu lista-
mannsins Dieters Roth, sem tengdist Ís-
landi og ekki síst Seyðisfirði sterkum
böndum.
Upphafsstef Á seyði hljómar í Skaftfelli
kl. 15, með tónlist Fiddlenfolk frá Hjalt-
landi og ávörpum. Kl. 16 verða sýndar
þrjár myndir í Herðubreið; mynd Edith
Jud um Dieter Roth og stuttmyndirnar
dot.pop.doc. og EG the movie. Listahátíðin
stendur út ágúst og má finna upplýsingar
um dagskrá á vefnum www.sfk.is og í
götuauglýsingum á Seyðfirði.
Á seyði tileinkuð
Dieter Roth
Neskaupstaður | Fyrir
skemmstu kom út ljóða-
bókin Metrófóbía eftir
bæjarskáldið Baj, eða
Björn Axel Jónsson.
Þetta er þriðja ljóða-
bók Baj á sex árum og
hefur hann haft þann
sið að ganga með bækur
sínar í hús og bjóða til
sölu.
„Ég er nokkuð sáttur
við söluna en hún hefði
mátt ganga betur“ sagði Baj, þegar frétta-
ritari hitti hann á förnum vegi á dögunum.
Skáldið situr ekki auðum höndum og hef-
ur þegar hafist handa við að semja efni í
næstu ljóðabók, en Björn Axel fæst líka við
annars konar skáldskap og undanfarið
hefur hann verið að semja tónlist, dæmi-
gert kassagítarrokk eins og hann segir
sjálfur. Hann hefur dreift lögum sínum á
netinu undir listamannsnafninu Quicksilv-
er Moon.
„Það getur vel verið að ég snúi mér
meira að tónlist“ sagði skáldið að lokum
og arkaði af stað til að selja fleiri ljóða-
bækur.
Bæjarskáldið Baj
og Metrófóbía
Bæjarskáldið Baj:
Gengur í hús og
selur ljóðabækur.
Neskaupstaður | Á dögunum fóru
Viðar Guðmundsson og Marías
Kristjánsson í siglingu um Norð-
fjarðarflóa og tóku land í Barðs-
nesi. Ofan við Barðsnesbæinn
blasti við þeim heldur óskemmtileg
sjón, þar sem dautt hreindýr hékk
fast í neti sem strengt hafði verið á
milli staura. Neðri hluti dýrsins
var bara beinagrind og verður að
teljast líklegt að rebbi hafi komist
í kræsingar og étið eins langt og
hann náði. Að sögn Viðars er ljóst
að dýrið hefur mikið barist um til
að reyna að losa sig, því netið var
illa flækt um horn þess.
Þetta er ekki í fyrsta sinn sem
hreindýr drepast með þessum
hætti á Gerpissvæðinu, en svo
virðist sem forvitni dýranna dragi
þau að slíkum fyrirbærum. Svo
festast hornin í böndunum og dýr-
in komast hvorki lönd né strönd og
hljóta þannig skelfilegan dauð-
daga. Mikilvægt er að þeir sem
dvelja á hreindýraslóðum í
óbyggðum taki niður bönd, hengi-
rúm og annað slíkt, sem dýrin geta
fest horn sín í, þegar þeir yfirgefa
svæðin.
Hreindýr flækti horn
sín í neti og drapst
Egilsstaðir | Hvað er yndislegra
en að vera ungur og á leið út í
lífið, með stúdentspróf í fartesk-
inu og bjartar vonir um framtíð-
ina?
Þessi snót var að útskrifast
frá Menntaskólanum á Egils-
stöðum og var eitthvað svo
dæmalaust falleg, þar sem hún
sat og lagaði sig til fyrir mynda-
töku af útskriftarhópnum. Hún
heitir Kristín Arna Sigurð-
ardóttir, hannaði kjólinn sinn
sjálf og þæfði í hann ullina.
Morgunblaðið/Steinunn Ásmundsdóttir
Ung og yndisleg
Marmenn | Listaverkið Marmenn
var afhjúpað með viðhöfn á Eski-
firði á dögunum. Það er unnið af
nemendum Grunnskóla Eskifjarðar
og er tilefni þess nálægðin við sjó-
inn og nýafstaðinn sjómannadagur.
Gaman er að fylgjast með sjáv-
arföllunum að verki á listaverk-
unum, en þá kaffærast hausarnir
einn af öðrum.
Morgunblaðið/Helgi Garðarsson
fiegar kemur a› RX300 skaltu gera
rá› fyrir a› fla› taki flig mun lengri
tíma a› prufukeyra hann en a›ra bíla.
RX300 er svo flægilegur, lipur og
skemmtilegur í akstri a› flú einfaldlega
getur ekki hætt a› prófa hann.
RX300 er me› öfluga vél, frábæra
fjö›run, sérstaklega nákvæma svörun
í st‡ri, 5 flrepa sjálfskiptingu, rafst‡rt
st‡rishjól, hátækni öryggisbúna›,
sjálfvirka hur›aropnun á afturhlera,
tölvust‡r›a mi›stö›, 18" álfelgur,
6 diska geislaspilara og margs konar
annan búna› sem skipar RX300
í sérflokk. Hann kemur flér örugglega
á óvart og ver›i› líka. Vertu fless vegna
tilbúinn me› gó›a afsökun flegar flú
kemur of seint í vinnuna eftir a›
hafa veri› a› prufukeyra RX300.
RX300
ÍS
LE
N
SK
A
A
U
G
LÝ
SI
N
G
A
ST
O
FA
N
/S
IA
.I
S
T
O
Y
24
95
4
0
6/
20
04