Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 55

Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 55
ÍÞRÓTTIR MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 55 ÁFRÝJUNARDÓMSTÓLL KSÍ dæmdi í gær ÍH sigur í leik liðsins gegn ÍR í 2. umferð VISA-bikars karla. Leikurinn, sem fram fór á Kaplakrikavelli 1. júní síðastliðinn, endaði með sigri ÍR en ÍH kærði á þeim forsendum að ÍR-ingar höfðu skipt inná fleiri varamönnum en leyfilegt er. Dómstóll KSÍ hafði áð- ur dæmt ÍR í vil en ÍH áfrýjaði úr- skurðinum og féllst áfrýjunardóm- stóll KSÍ á þau rök. Leikurinn var því dæmdur 3:0 ÍH í vil og mæta þeir Fylki í 3. umferð bikarkeppn- innar. ÍR-ingar eru mjög ósáttir við þessi málalok en dómur áfrýj- unardómstólsins er endanlegur. Þeir telja að dómariinn beri alfarið sök á þeim mistökum sem gerð voru en hann sagði við ÍR-inga að fyrra bragði að þeir mættu skipta fimm varamönnum sínum inná en í reglum KSÍ segir að einungis sé heimilt að nota þrjá varamenn. ÍH dæmdur sigurinn Ólafur Þór úr leik hjá Valsmönnum ÓLAFUR Þór Gunnarsson, markvörður 1. deildarliðs Vals í knatt- spyrnu, leikur ekki meira með Hlíðarendaliðinu á yfirstandandi leiktíð. Ólafur varð fyrir alvarlegum hnémeiðslum á æfingu Vals- manna í fyrrakvöld en fremra krossband slitnaði auk þess sem lið- þófi rifnaði. Ólafur varð fyrir meiðslunum þegar hann fékk að spreyta sig sem útileikmaður. Slysið átti sér stað með þeim hætti að Ólafur fór með fótinn fyrir boltann og lenti illa með fótinn í grasið. „Ég tel afar litlar líkur á að Óli spili meira með okkur í sumar og það er auðvitað mikið áfall fyrir liðið en hann hefur leikið mjög vel það sem af er sumri,“ sagði Njáll Eiðsson, þjálfari Vals, við Morg- unblaðið. Kristinn Geir Guðmundsson varamarkvörður kemur til með að leysa Ólaf af hólmi að sögn Njáls en Kristinn hefur jafnað sig á rif- beinsbroti sem hann varð fyrir í leik gegn KR á Reykjavíkurmótinu í vor. CHELSEA reyndi fyrr í sumar að kaupa brasilíska landsliðsmanninn Ronaldinho frá Barcelona en hann hafði ekki áhuga á að fara til Chelsea. Ronaldinho skrifaði nýlega undir nýjan samning við Barcelona sem gildir til ársins til 2008. „Ég sagði nei við Chelsea vegna þess að ég elska fótbolta og vil spila aðlað- andi knattspyrnu og það geri ég hjá Barcelona. Forráðamenn Chelsea buðu mér mjög háar fjárhæðir fyrir að leika með liðinu en ég ætla að vera áfram á Spáni,“ sagði hinn 24 ára Brasilíumaður. Ronaldinho var keyptur til Barcelona frá Paris Saint Germain síðasta sumar og hann spil- aði frábærlega fyrir liðið í vetur. Hann skoraði 15 mörk í spænsku deildinni og lagði upp ófá mörk fyrir félaga sína en Barcelona endaði í öðru sæti í deildinni. Ronaldinho neitaði Chelsea  GYLFI Einarsson skoraði fyrra mark Lilleström úr vítaspyrnu þeg- ar liðið sigraði Hönefoss, 2:0, í þriðju umferð norsku bikarkeppninnar í knattspyrnu í gær. Gylfi lék allan leikinn en Davíð Þór Viðarsson kom ekki við sögu.  VEIGAR Páll Gunnarsson var í byrjunarliði Stabæk en tókst ekki að skora þegar liðið hafði betur gegn Kvik Halden, 4:1, eftir að hafa lent 1:0 undir. Veigari var skipt útaf á 73. mínútu.  RAGNAR Óskarsson skoraði 5 mörk í fyrsta leik sínum fyrir Skjern þegar liðið steinlá fyrir Þýskalands- meisturum Flensborgar, 43:28, í æf- ingaleik í Danmörku í fyrrakvöld. Leikurinn var einnig sá fyrsti sem Skjern leikur undir stjórn Arons Kristjánssonar sem á dögunum var ráðinn þjálfari liðsins í stað Anders Dahl Nielsens.  TBR beið lægri hlut fyrir Record frá Rússlandi, 6:1, á Evrópumóti fé- lagsliða í badminton í Hollandi í gær. Eina sigur TBR vann Ragna Ingólfs- dóttir en hún lagði mótherja sinn, Anastasiu Kudinovu, 13:10 og 11:2. Í dag mætir TBR þýska liðinu Lang- efeld.  RAGNHEIÐUR Ragnarsdóttir náði bestu árangri þeirra fimm sund- manna sem kepptu í B-úrslitum á al- þjóðlegu móti í Barcelona á Spáni í gær. Ragnheiður var í 11. sæti í 100 metra bringusundi á 1:14,13 mín. Erla Dögg Haraldsdóttir varð í 12. sæti í sama sundi á 1:14,92 mín, og Flora Montagni í 16. sæti á 1:17,01 mín. Kolbrún Ýr Kristjánsdóttir varð í 16. sæti í 100 metra skriðsundi á 58,20 sek. og Anja Ríkey Jakobs- dóttir varð 16. í 100 metra baksundi á 1:06,95 mín.  EVRÓPUMEISTARAR Porto hafa hafnað tilboði frá þýska liðinu Bayern München í portúgalska landsliðsmanninn Deco. Heimildir herma að Bæjarar hafi boðið 20 milljónir evra í miðjumanninn knáa en forráðamenn Porto vildu ekki ljá máls á því boði.  DECO, sem er af brasilískum upp- runa, skoraði annað mark Porto í 3:0 sigri á Mónakó í úrslitaleik Meist- aradeildarinnar í síðasta mánuði. Jose Mourinho nýi knattspyrnu- stjóri Chelsea er sagður hafa mikinn áhuga á að klófesta fyrrum lærisvein sinn sem og Costinha félaga Deco hjá Porto en í síðustu viku keypti Mourinho fyrsta leikmanninn úr liði Porto, bakvörðinn Paulo Ferreira. FÓLK Ef leikmenn vilja ekki leika fót-boltanum á milli sín getum við kvatt knattspyrnuna. Í 100 ára af- mælisleik Alþjóða knattspyrnusam- bandsins á milli Brasilíu og Frakk- lands í maí síðastliðnum þá hugsuðu langflestir leikmenn liðanna aðeins um að verjast. Þetta veit ekki á gott,“ segir Cruyff í viðtali við portú- galska tímaritið Sabado. Cruyff segir að Luiz Felipe Scol- ari, þjálfari Portúgals, muni beita sömu leikaðferð í Evrópukeppninni og hann gerði með Brasilíu fyrir tveimur árum síðan í heimsmeistara- keppninni, en Cruyff varð fyrir von- brigðum að Brasilía skyldi sigra í keppninni með því að treysta á skyndisóknir. „Ég bjóst við meiru af brasilísku leikmönnunum. Brasilía spilaði með fimm varnarmenn. Já, Brasilía með fimm varnarmenn! Það sem bjargaði Brasilíu var að Rivaldo, Ronaldo og Ronaldinho voru í liðinu og þeir sáu um að skora mörkin. Ég hefði viljað sjá liðið spila hefðbundna brasilíska knattspyrnu þar sem aðal- áherslan er lögð á mikinn sóknarfót- bolta.“ Cruyff hlakkar til leiksins á sunnudaginn þegar England og Frakkland mætast. „England er England. Það er alltaf spennandi að fylgjast með hvað Englendingar gera. Ég hef þó enn meiri áhuga á að sjá hvað Frakkar gera. Munu þeir fífla hin liðin eins og þeir gerðu í heimsmeistarakeppninni fyrir sex árum og í Evrópukeppninni árið 2000 eða munu Frakkar endurtaka leikinn frá því fyrir tveimur árum þegar þeir gátu ómögulega skorað í heimsmeistarakeppninni? Ef Frakk- ar spila eins og þeir gerðu fyrir fjór- um og sex árum verður mjög erfitt að sigra þá.“ Hollendingar mæta Þýskalandi í upphafsleik liðanna á þriðjudaginn. Cruyff vonar að leikmenn eins og Marc Overmars og Patrick Kluivert muni halda uppi sóknarleik Hollend- inga en hann hefur ekki mikið álit á þýska liðinu. „Það er alltaf erfitt að sigra Þýskaland en um þessar mund- ir er liðið frekar slakt. Ólíkt Ítalíu hefur Þýskaland ekki neinn afburða- leikmann sem heillar mig,“ sagði Johan Cruyff. Cruyff segir hugsunar- hátt rangan JOHAN Cruyff telur að Evrópukeppnin verði ekki tilkomumikil en hann telur að í nútímaknattspyrnu ríki aðeins sá hugsunarháttur að tapa ekki. Hinn 57 ára gamli Hollendingur er af mörgum talinn vera í hópi allra bestu leikmanna sögunnar, en hann óttast að knatt- spyrnan sé á rangri braut. Morgunblaðið/Árni Torfason Sigurbjörn Árni Arngrímsson, UMSS, bar sigur úr býtum í hinu árlega Kaldalshlaupi á Vormóti ÍR á Laugardalsvellinum í gær. Hér kemur Sigurbjörn í mark á 8:59,06 mínútum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.