Morgunblaðið - 11.06.2004, Síða 54

Morgunblaðið - 11.06.2004, Síða 54
ÍÞRÓTTIR 54 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ÚRSLIT KNATTSPYRNA Bikarkeppni KSÍ, VISA-bikar kvenna, 2. umferð: Hvöt/Tindastóll – Þór/KA/KS................. 0:6 3. deild karla A Skallagrímur – Númi ................................2:1 Staðan: Árborg 3 2 1 0 7:3 7 Skallagr. 3 2 1 0 6:4 7 Númi 3 2 0 1 21:3 6 Grótta 3 2 0 1 10:5 6 Deiglan 4 2 0 2 6:6 6 Afríka 3 0 0 3 1:8 0 Freyr 3 0 0 3 0:22 0 3. deild karla C Boltaf. Húsvíkur – Neisti H .................... 4:0 Hvöt – Reynir Á ........................................5:0 Staðan: Magni 3 3 0 0 8:2 9 Hvöt 4 2 1 1 11:4 7 GKS 4 2 0 2 6:9 6 Neisti H. 4 1 1 2 6:8 4 Boltaf.Húsav. 3 1 0 2 8:8 3 Snörtur 3 1 0 2 6:9 3 Reynir Á 3 1 0 2 4:9 3 Noregur Bikarkeppnin, 3. umferð: Kvik Halden – Stabæk............................. 1:4 Lilleström – Hönefoss.............................. 2:0 KNATTSPYRNA Bikarkeppni KSÍ, VISA-bikar karla, 32 liða úrslit: Laugardalsvöllur: Fram – Grótta........19.15 Fylkisvöllur: Fylkir – ÍH......................19.15 Varmárvöllur: Afturelding – Haukar..19.15 Sandgerðisvöllur: Reynir S. – Þór.......19.15 Sauðárkróksvöllur: Tindastóll – KA....19.15 Fjölnisvöllur: Fjölnir – ÍBV .................19.15 Kópavogsv.: Breiðablik – Njarðvík .....19.15 Selfossvöllur: Selfoss – Grindavík .......19.15 Bikarkeppni KSÍ, VISA-bikar kvenna, 2. umferð: Valbj.völlur: Þróttur – HK/Víkingur........20 Akranesvöllur: ÍA – Stjarnan ...................20 Í KVÖLD  SUNNA Gestsdóttir, Íslandsmet- hafi í langstökki, hafnaði í fyrsta sæti í langstökki á móti í Borås í Svíþjóð í fyrrakvöld. Sunna stökk 5,96 m sem er 34 sentímetrum frá Íslandsmet- inu. Keppnin var afar jöfn því önnur kona stökk jafnlangt og Sunna en meðvindur í stökki hennar var yfir leyfilegum mörkum. Þá stukku tvær konur 5,92 metra.  ÞÁ keppti Gauti Jóhannesson í 800 m hlaupi á sama móti og kom fyrstur í mark í B-úrslitum á 1.55,33 mínútum.  KRISTJÁN Arason, fyrrverandi landsliðsmaður í handknattleik, fór holu í höggi á Hvaleyrarvelli í Hafn- arfirði í fyrradag. Þetta er í fyrsta sinn sem Kristján fer holu í höggi en ekki er svo langt síðan hann hóf að stunda golf. Draumahögginu náði Kristján á fjórðu braut vallarins, en það er par þrjú hola.  JÓHANNES Karl Guðjónsson landsliðsmaður í knattspyrnu lék sama leik og Kristján. Jóhannes fór holu í höggi á Garðsvelli í fyrra- kvöld. Jóhannes náði draumahögg- inu á holu númer 14 sem er 178 metra löng, par þrjú hola. Hann ku vera fyrsti kylfingurinn sem fer þessa holu í höggi frá því völlurinn var opnaður árið 2000.  UNNDÓR Sigurðsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs ÍS í körfu- knattleik. Hann tekur við af Ívari Ásgrímssyni sem þjálfað hefur liðið undanfarin ár.  HENNING Eyþór Jónasson leik- maður KR hefur verið lánaður til 1. deildarliðs Þróttar. Henning, sem leikur í stöðu framherja, hefur að- eins spilað einn leik fyrir KR.  MIÐJUMAÐURINN Bernharður Marselíus Guðmundsson hefur ákveðið að hætta að leika knatt- spyrnu með 1. deildar liði Stjörnunn- ar. Hann er 23 ára gamall og var fyr- irliði liðsins í fyrra.  HERTHA Berlín hefur skrifað undir þriggja ára samning við tyrk- neska landsliðsmanninn Yildiray Bastürk sem leikið hefur með Bayer Leverkusen. FÓLK KNATTSPYRNUÆÐIÐ í kring- um EM nær víða. Um það bil 25 ungir karlmenn frá Indónesíu vöktu mikla athygli þegar þeir söfnuðust saman á torgi í mið- borg Jakarta, höfuðborgar landsins. Báru þeir risastóra fót- bolta á höfðinu sögðu þeir að at- hæfi þeirra væri til þess fallið að tjá ást sína á evrópskri knatt- spyrnu. „Við erum allir knatt- spyrnuunnendur,“ sagði Gusta sem var klæddur í dómarabún- ing á meðan hinir voru annað hvort íklæddir grænum eða gul- um fótboltabúningum. Fyrir utan að tjá ást sína á evr- ópskum fótbolta sagði Gusta að þeir væru einnig að sýna þá von í verki að landslið Indónesíu yrði einhvern tíma keppnishæft á al- þjóðavettvangi. Liðinu gengur ekki vel í undankeppni HM en vann þó Sri Lanka með einu marki gegn engu á miðvikudag- inn var. Flestir leikirnir á EM í Portú- gal verða sýndir í Indónesíu og eru leikirnir þar sýndir á næt- urnar. Gusta sagði að hann bygg- ist við að vaka til að horfa á leik- ina enda þyrfti hann ekki að mæta í vinnu þar sem hann er at- vinnulaus. „Ég held með Ítalíu,“ sagði Gusta og nokkrir tóku und- ir með honum. EM-æðið nær alla leið til Indónesíu EF það er einhver leikmaður sænska landsliðsins sem er tilbúinn á átökin í Portúgal er það hinn stóri og skap- heiti framherji Zlatan Ibrahimovic. Þessi stóri og stæðilegi Svíi á ættir sínar að rekja til fyrrum Júgóslavíu. Faðir hans er frá Bosníu en móðir hans frá Króatíu en þau kynntust í Svíþjóð þar sem Ibrahimovic fæddist. Hann er aðeins 22 ára gamall en hefur tvisvar unnið hollenska meist- aratitilinn með liði sínu Ajax. Hann hefur þó lent í ýmsum deilum bæði innan og utan vallar sem sett hafa svartan blett á feril hans. Hann gekk til liðs við Ajax frá Malmö fyrir 12 milljónir dollara sem er það mesta sem fengist hefur greitt fyrir leik- mann í Skandinavíu en hann hefur þó heldur betur staðið undir væntingum. Þrátt yfir að hafa verið mikið meiddur á nýafstöðnu tímabili skoraði hann 13 mörk í aðeins 22 leikjum. Hann er lík- legur til að vera í byrjunarliðinu ásamt Henrik Larsson og saman eiga þeir eftir að mynda eitt allra athygl- isverðasta framherjapar keppninnar. „Ég er mjög ánægður að hann skuli vera aftur byrjaður að spila með landsliðinu. Hann er góður leikmaður, alls ekki of gamall og er fær um að spila á heimsmælikvarða. En mik- ilvægast af öllu er að hann skorar mörk. Ef hann fær tíu færi þá skorar hann níu mörk,“ sagði Ibrahimovic um landa sinn Henrik Larsson. Skapheiti Svíinn er tilbúinn í slaginn á EM í Portúgal Markverðir: 16-Fabien Barthez ( Marseille) 23-Gregory Coupet (Lyon) 1-Michael Landreau (Nantes) Varnarmenn: 2-Jean-Alain Boumsong (Auxerre) 8-Marcel Desailly (Chelsea) 5-William Gallas (Chelsea) 3-Bixente Lizarazu (Bayern M.) 19-Willy Sagnol (Bayern München) 13-Mikael Silvestre (Man. Utd) 15-Lilian Thuram (Juventus) Miðjumenn: 17-Olivier Dacourt (AS Roma) 6-Claude Makelele (Chelsea) 18-Benoit Pedretti (Sochaux) 7-Robert Pires (Arsenal) 14-Jerome Rothen (Mónakó) 4-Patrick Vieira (Arsenal) 10-Zinedine Zidane (Real Madrid) Sóknarmenn: 12-Thierry Henry (Arsenal) 21-Steve Marlet (Marseille) 9-Louis Saha (Man. Utd) 20-David Trezeguet (Juventus) 11-Sylvain Wiltord (Arsenal) 22-Sidney Govou (Lyon) Frakkland Markverðir: 1-David James (Man. City) 13-Paul Robinson (Tottenham) 22-Ian Walker (Leicester) Varnarmenn: 2-Gary Neville (Man. Utd) 3-Ashley Cole (Arsenal) 5-John Terry (Chelsea) 6-Sol Campbell (Arsenal) 12-Wayne Bridge (Chelsea) 14-Phil Neville (Man. Utd) 15-Ledley King (Tottenham) 16-Jamie Carragher (Liverpool) Miðjumenn: 4-Steven Gerrard (Liverpool) 7-David Beckham (Real Madrid) 8-Paul Scholes (Man. Utd) 11-Frank Lampard (Chelsea) 17-Nicky Butt (Man. Utd) 18-Owen Hargreaves (Bayern München) 19-Joe Cole (Chelsea) 20-Kieron Dyer (Newcastle) Sóknarmenn: 9-Wayne Rooney (Everton) 10-Michael Owen (Liverpool) 21- Emile Heskey (Birmingham) 23-Darius Vassell (Aston Villa) England Markverðir: 23-Fabrice Borer (Grasshoppers) 12-Pascal Zuberbuehler (Basel) 1-Joerg Stiel (Gladbach) Varnarmenn: 3-Bruno Berner (Freiburg) 2-Bernt Haas (WBA) 4-Stephane Henchoz (Liverpool) 20-Patrick Müller (Lyon) 5-Murat Yakin (Basel) 13-Marco Zwyssig (Basel) 17-Christoph Spycher (Grasshoppers) 14-Ludovic Magnin (Werder Bremen) Miðjumenn: 7-Ricardo Cabanas (Grasshoppers) 16-Fabio Celestini (Marseille) 8-Raphael Wicky (Hamburg SV) 18-Benjamin Huggel (Basel) 10-Hakan Yakin (VfB Stuttgart) 19-Tranquillo Barnetta (Leverkusen) 6-Johann Vogel (PSV Eindhoven) Sóknarmenn: 11-Stephane Chapuisat (Young Boys) 9-Alexander Frei (Stade Rennes) 21-Milaim Rama (FC Thun) 22-Johan Vonlanthen (PSV Eindhoven) 15-Daniel Gygax (FC Zürich) Sviss Markverðir: 1-Stipe Pletikosa (Shakhtar Donetsk) 12-Tomislav Butina (FC Brugge) 23-Joseph Didulica (Austria Vín) Varnarmenn: 13-Dario Simic (AC Milan) 21-Robert Kovac (Bayen München) 5-Igor Tudor (Juventus) 6-Boris Zivkovic (Stuttgart) 3-Josip Simunic (Hertha Berlín) 4-Stjepan Tomas (Fenerbahce) 14-Mato Neretljak (Hajduk Split) 2-Mario Tokic (GAK Graz). Miðjumenn: 10-Niko Kovac (Hertha Berlín) 7-Milan Rapaic (Ancona) 15-Jerko Leko (Dynamo Kiev) 16-Marko Babic (Leverkusen) 8-Dario Srna (Shakhtar Donetsk) 22-Nenad Bjelica (Kaiserslautern) 20-Giovanni Rosso (Maccabi) Sóknarmenn: 11-Tomo Sokota (Benfica) 19-Ivica Mornar (Portsmouth) 18-Ivica Olic (CSKA Moskva) 17-Ivan Klasnic (Werder Bremen) 9-Dado Prso (Mónakó). Króatía PATRICK Vieira, miðjumaður Frakklands, telur að leikurinn gegn Englendingum í Evrópukeppninni á sunnudaginn verði harður. „Ég held að það verði töluvert um harðar tæklingar gegn Englandi og það hentar mér vel. Fyrsta tæklingin gegn Englendingum verður mjög mikilvæg og þrátt fyrir að dómar- arnir ætli að vera mjög strangir ætla ég ekki að breyta leikstílnum mín- um. Ég hef ekki trú á því að Eng- lendingar muni reyna að æsa mig upp, þeir verða of uppteknir af því að reyna að hafa hemil á Thierry Henry og Zinedine Zidane,“ sagði Vieira. Að mati Vieira eru Liverpool-leik- mennirnir Michael Owen og Steven Gerrard mjög mikilvægir fyrir Eng- land. Hann segir að Englendingar treysti alfarið á að Michael Owen skori mörkin fyrir liðið. „Persónu- lega finnst mér bestu miðjumenn Englands vera þeir Steven Gerrard og Paul Scholes en ég kaus Gerrard sem leikmann ársins í úrvalsdeild- inni.“ Vieira mun þurfa að kljást við nokkra liðsmenn sína í Arsenal í leiknum á móti Englandi. „Það skipt- ir mig engu máli þótt ég leiki á móti vinum mínum á sunnudaginn. Það eina sem skiptir máli er að Frakk- land vinni leikinn,“ sagði fyrirliði Arsenal. Leikurinn gegn Eng- landi verð- ur harður Frakkarnir frábæru Thierry Henry, Patrick Vieira og Zinedine Zidane. IAN Rush, fyrrverandi sóknarleik- maður Liverpool, telur að miðju- maðurinn Steven Gerrard sé ekki síðri leikmaður en Frakkinn Zined- ine Zidane. „Ég myndi ekki skipta á Gerrard og Zidane ef ég væri lands- liðsþjálfari Englendinga og ætti þess kost að skipta á leikmönnum. Það er mesta hrós sem ég get gefið Gerrard,“ sagði Rush í viðtali á heimasíðu Liverpool. „Zidane stóð ekki undir væntingum á síðasta tímabili með Real Madrid en Gerr- ard var á sama tíma frábær fyrir Liverpool. Ég er ekki að segja að Gerrard sé betri leikmaður en Zid- ane um þessar mundir, en Gerrard er enn að þróast sem leikmaður og er alltaf að bæta sig. Zidane hefur verið einn sá allra besti í Evrópu síðustu fimm ár en ef við miðum við síðasta vetur stend ég við það að Gerrard hafi staðið sig betur en Zidane,“ segir Rush sem lék árum saman með Liverpool er einn mark- heppnasti leikmaður félagsins fyrr og síðari. Reuters Margir telja að Steven Gerrard geti orðið lykilmaður enska liðsins á EM í Portúgal. Gerrard betri en Zidane?

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.