Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 10

Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 10
FRÉTTIR 10 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ MALBIKSFRAMKVÆMDIR við nýju Þjórs- árbrúna voru í fullum gangi fyrr í vikunni og var umferð að ofan beint á meðan um gömlu brúna. Að sögn Páls Halldórssonar, rekstrarstjóra Vegagerðarinnar á Selfossi, náðist ekki að malbika brúna í fyrrahaust en hitastig þarf að vera á ákveðnu bili til að malbikið loði nægj- anlega vel við steypt undirlag brúarinnar. Lokið er við að malbika brúna og hefur um- ferð nú verið hleypt um hana að nýju. Að sögn Páls stendur til að reiðvegur liggi yfir gömlu brúna og mun hún því áfram þjóna hlutverki sínu; að ferja menn og skepnur yfir Þjórsá. Morgunblaðið/RAX Búið að malbika nýju Þjórsárbrúna HÉRAÐSDÓMUR Reykjavíkur dæmdi í gær Frétt ehf. til að greiða blaðamanni laun, sem hann átti inni hjá Fréttablaðinu ehf., fyrrverandi útgáfufélagi blaðsins. Um var að ræða innheimtumál sem Blaða- mannafélag Íslands höfðaði á hendur Frétt fyrir hönd 13 blaðamanna sem héldu áfram störfum á blaðinu þegar eigendaskipti urðu að því árið 2002 en Ábyrgðarsjóður launa hafnaði að greiða launakröfur starfsmannanna í þrotabú Fréttablaðsins ehf. Blaðamannafélagið taldi Frétt ehf. bera ábyrgð á skuld Fréttablaðsins ehf. við þá blaðamenn sem héldu áfram störfum á blaðinu eftir eig- endaskiptin. Frétt ehf. krafðist sýknu, m.a. á þeirri forsendu, að með kaupum á til- teknum verðmætum af Fréttablaðinu ehf. hafi ekki orðið aðilaskipti í skiln- ingi laga. Einungis hafi verið keypt tiltekin verðmæti af Fréttablaðinu ehf. en fyrirtækin séu um margt ólík þó svo að grunneiningarnar séu svip- aðar, enda verði ekki hjá því komist við rekstur dagblaðs. Í niðurstöðu héraðsdóms kemur fram að með kaupum Fréttar á Fréttablaðinu af Fréttablaðinu ehf. hafi orðið aðilaskipti í skilningi laga. Ekki var fallist á að stutt hlé, sem varð á útgáfu Fréttablaðsins, breytti neinu þar um enda hafi það verið ákvörðun Fréttar að gera hlé á útgáf- unni og að því loknu hafi blaðið komið út í sama búningi og fyrr. Því hafi réttindi og skyldur Fréttablaðsins ehf. samkvæmt ráðningarsamningi blaðamannsins, sem málið snerist um, færst yfir til Fréttar ehf. Blaðamannafélagið gerði alls kröfu um að blaðamaðurinn fengi greidda rúma 1,1 milljón króna, þ.e. föst laun auk ýmissa áunninna réttinda og ár- angurstengdra greiðslna. Dómurinn féllst aðeins á hluta kröfunnar, þ.e. laun fyrir júní og hluta júlí auk orlofs- greiðslna, samtals 411 þúsund krón- ur. Málið dæmdi Arngrímur Ísberg héraðsdómari. Karl Ó. Karlsson hdl. flutti málið fyrir Blaðamannafélag Ís- lands og Sigríður Rut Júlíusdóttir hdl. fyrir Frétt ehf. Frétt ehf. beri ábyrgð á launaskuld fyrri útgefanda MEIRIHLUTI norska Stór- þingsins vill að Guðrún Gísladóttir KE-15, sem sökk við strendur Lófóten í N-Noregi fyrir réttum tveimur árum, verði hífð upp. Rík- isstjórnin og sjávarútvegsráð- herra Noregs, Svein Ludvigsen, tilkynntu nýlega að ekki yrðu gerðar frekari tilraunir til að lyfta togaranum af sjávarbotni. Íbúar í Lófóten og sjómenn hafa verið mjög á móti þessari ákvörðun. Í athugasemd í endurskoðuðum fjárlögum norska ríkisins segir að meirihluta norska stórþingsins þurfi svo að hægt verði að lyfta skipinu og virðist sem sá meiri- hluti hafi nú myndast. Í fjárauka- lögum sem fjárlaganefnd Stór- þingsins lagði fram í gær er kveðið á um að skipið verði fjar- lægt, þvert á það sem norski sjáv- arútvegsráðherrann tilkynnti ný- lega, að björgunaraðgerðum skyldi hætt þar sem meiri skemmdir voru á skrokk skipsins en talið var. „Niðurstaða okkar er að rétt sé að lyfta skipinu upp frá sjávar- botni. Umhverfisþættir vega þyngra en efnahagslegir þættir. Þar að auki hefur það alltaf verið ætlunin að lyfta skipinu og það liggur á mjög mikilvægum fiski- slóðum,“ hefur Avisa Nordland eftir Geir Ketil Hansen, þing- manni sósíalíska vinstri flokksins, úr viðtali norska ríkissjónvarpsins við þingmanninn. Vefur norska svæðisútvarps ríkisins í Norður-Noregi segir að nýtt fyrirtæki hafi boðist til að hífa skipið upp. „Við erum klárir í að hífa Guðrúnu Gísladóttur upp af botni og treystum okkur til að ljúka verkinu á þremur til fjórum vikum,“ segir Georg Eide, hjá norska björgunarfyrirtækinu Eide Marine Services, í viðtali við svæðisútvarpið. Í næstu viku verða slétt tvö ár frá því Guðrún Gísladóttir steytti á skeri og sökk við Lófót hinn 19. júní 2002. Vilja bjarga Guðrúnu Gísladóttur Norska þingið vill skipið burt UNDIRBÚNINGUR fyrir Lands- mót hestamanna á Gadd- staðaflötum við Hellu er í fullum gangi um þessar mundir. Mótið hefst 28. júní nk. og stendur til 4. júlí en Landsmót telst jafnan vera hápunktur og uppskeruhátíð ís- lenska hestsins – þegar gæðingar og knapar sýna hvað í þeim býr í fjölbreyttum keppnis- og sýning- aratriðum. Þegar blaðamaður og ljósmynd- ari Morgunblaðsins komu þar við var búið að slétta úr skeiðvellinum og malbika bílastæðin fyrir ofan hann og unnið var við að ganga frá rimlaverki umhverfis völlinn. Það er fyrirtækið Plastmótun ehf. á Læk í Ölfusi sem sér um uppsetningu á rimlaverkinu og sést hér hvar Sigurhans Bollason stillir stöngina af og Einar Smári Einarsson mundar gröfuna. Hekla blasir við í baksýn. Morgunblaðið/RAX Undirbúa Landsmót hestamanna HALLDÓR Ásgrímsson utanríkis- ráðherra lýsir fyrir hönd íslenskra stjórnvalda ánægju með samþykkt ályktunar öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna, þar sem kveðið er á um ráð- stafanir í Írak í kjölfar valdatöku írösku bráðabirgðastjórnarinnar 30. júní nk. Kemur þetta fram í tilkynn- ingu sem utanríkisráðuneytið hefur sent fjölmiðlum. „Utanríkisráðherra telur að álykt- unin, sem áréttar fullveldi Íraks, verði til að styrkja írösku bráða- birgðastjórnina og sé þannig liður í viðleitni til að efla lýðræðislega stjórnarhætti í landinu. Miklu skiptir að ályktunin var samþykkt samhljóða af þeim ríkjum sem eiga sæti í örygg- isráðinu og að hún ætlar Sameinuðu þjóðunum lykilhlutverk í aðstoð við að koma á lögmætri fulltrúastjórn í land- inu og stjórnarstofnunum.“ Þá segir: „Utanríkisráðherra telur miklu skipta að í kjölfar formlegrar beiðni frá verðandi bráðabirgðastjórn veiti ályktunin fjölþjóðlega herliðinu umboð til öryggisgæslu í Írak þannig að nauðsynlegur stöðugleiki sé tryggður, a.m.k. til ársloka 2005. Það felur jafnframt í sér að ríkisstjórn Íraks getur óskað eftir endurskoðun á umboðinu eða vísað herliðinu úr landi.“ Ánægja með sam- þykkt SÞ FYRIRLESTRAR á norrænni ráð- stefnu um kvennahreyfingar hófust í morgun, föstudag, í Háskólabíói. Ráðstefnan er haldin á vegum rann- sóknastofu í kvenna- og kynjafræð- um við Háskóla Íslands og NIKK, Nordisk institutt for kvinne- og kjønnsforskning. Meðal dagskráratriða í dag má nefna að félagsfræðingarnir Þor- gerður Einarsdóttir og Ute Gerhard halda fyrirlestra um bylgjur í kvennahreyfingum, og haldin verður pallborðsumræða um kvennahreyf- ingar meðal íbúa vestnorrænna svæða og nágranna Norður- landanna. Alls sækja um þrjú hundr- uð konur og karlar frá Norðurlönd- um, Eystrasaltslöndum og víðar ráðstefnuna. Henni lýkur síðdegis á morgun, laugardag. Rætt um bylgj- ur í kvenna- hreyfingum EKKI tókst að koma hjólabátnum sem áformað var að flytja frá Vík í Mýrdal til Hafnarfjarðar upp á flutn- ingavagn aðfaranótt miðvikudags og verður því ekkert af siglingum við Látrabjarg um þessa helgi eins og ráð hafði verið fyrir gert. Áformað var að flytja bátinn frá Hafnarfirði um borð í skipinu Jaxlinum áleiðis að Látrabjargi. Að sögn Árna Johnsen, skipu- leggjanda verkefnisins, sem er liður í átaki í ferðaþjónustu í Vesturbyggð, féll verkefnið á tíma. Bátinn hefði eingöngu mátt flytja um nóttina og þegar ljóst þótti að ekki myndi nást að flytja hann til Hafnarfjarðar fyrir sex um morguninn, eins og reglur segja til um, var verkefnið blásið af. „Þeir frusu inni, það vantaði ein- hverja planka sem flytjandi þurfti að stilla undir og þeir voru ekki til á svæðinu,“ segir Árni. Báturinn sé því við Dyrhólaey og verkefninu verði frestað um 2–3 vikur. Að sögn Árna er ráðgert að bjóða upp á siglingar við Látrabjarg dag- ana 17.–20. júní og verður það nánar kynnt síðar. Siglingum í hjólabáti við Látrabjarg frestað Ekki tókst að koma bátnum á flutningavagn ♦♦♦ ♦♦♦
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.