Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 42

Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 42
MINNINGAR 42 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ ✝ Halldór Guð-mundsson, fyrrv. framkvæmdastjóri í Njarðvík, fæddist í Reykjavík 13. febr- úar 1928. Hann lést á Sjúkrahúsi Keflavík- ur 1. júní síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Guðmundur Ármann Björnsson, búfræðingur frá Hvanneyri, bóndi í Görðum á Álftanesi, f. 9.8. 1896, d. 23.2. 1968, og Þorbjörg Halldórsdóttir, hús- freyja, f. 23.9. 1905, d. 14.12. 1934. Guðmundur kvæntist síðar Helgu Sveinsdóttur, húsfreyju, f. 30.6. 1911, d. 22.2. 1998. Bróðir Hall- dórs er Eggert, f. 9.7. 1931. Systur Halldórs, samfeðra, eru Sigríður Bergþóra, f. 27.9. 1943, og Þórunn Erla, f. 9.10. 1950. Uppeldisbræð- ur Halldórs eru Sveinn, f. 10.12. 1930, og Þorsteinn, f. 21.8. 1936, d. 22.4. 1998. Halldór kvæntist 19.11. 1949 Helgu Ingólfsdóttur, f. 9.7.1928, d. 14.6. 1991. Foreldrar hennar voru Ingólfur Erlendsson, skósmiður á Akureyri, og Þórunn Magnúsdótt- ir, húsfreyja. Börn Helgu og Hall- dórs eru: 1) Inga Þórunn, skóla- stjóri, f. 31.7. 1947, Reykjavík, gift Þorsteini H. Gunnarssyni, bú- fræðikandídat. Börn þeirra eru: a) Erlendur Smári, f. 27.5. 1971, b) Ágústa Björg, f. 17.12. 1972, c) Þórólfur Heiðar, f. 16.6. 1980. Barnabörn þeirra eru þrjú. 2) Hall- dór, f. 19.11. 1948, dósent í stærð- fræði, kvæntur Ragnheiði Héðins- dóttur, framkvæmdastjóra. Synir þeirra eru: a) Kári, f. 30.6. 1979, b) Ingólfur, f. 6.4. 1988. Ragnheiður átti einn son fyrir, Skarphéðin. Oddnýju, á Laufásvegi 10, síðar Lokastíg 16 í Reykjavík. Halldór varð stúdent frá Menntaskólanum á Akureyri 1948, nam lögfræði og hagfræði við Háskóla Íslands árin 1948–1952 og 1957. Hann starfaði sem bókhaldsfulltrúi hjá Mecalfe- Hamilton verktakasamsteypunni á Keflavíkurflugvelli á árunum 1952–1957 og var starfsmaður fasteignasölu í Reykjavík 1958– 1960. Halldór stundaði sjó og var háseti og matsveinn á ýmsum tog- urum og bátum frá 1961 til 1967, m.a. fimm vertíðir frá Grindavík. Árið 1967 hóf hann störf sem skrif- stofustjóri Vélsmiðju Njarðvíkur hf., varð framkvæmdastjóri og meðeigandi fyrirtækisins 1972, og aðaleigandi þess á árunum 1975– 1990. Þá var hann framkvæmda- stjóri félagsíbúða Njarðvíkurbæj- ar, síðar Reykjanesbæjar, frá 1992 og sinnti öðrum störfum fyrir bæj- arfélagið þar til hann lét af störf- um fyrir aldurs sakir. Halldór gegndi ýmsum félags- og trúnaðarstörfum um ævina. Hann sat í stjórn Verslunarmanna- félags Suðurnesja 1955–1957. Hann var landsfundarfulltrúi Sjálfstæðisflokksins og í kjördæm- isráði hans í Reykjaneskjördæmi, síðar Suðurkjördæmi, frá 1970 til dauðadags. Einnig var hann vara- formaður fulltrúaráðs sjálfstæðis- félaganna í Njarðvík 1978–1980, og formaður 1980–1989. Hann sat í flokksráði Sjálfstæðisflokksins frá 1980–1989. Árið 1982 var hann kjörinn í bæjarstjórn Njarðvíkur- kaupstaðar og sat þar til 1986 sem varaforseti bæjarstjórnar og vara- formaður bæjarráðs. Þá var hann varaformaður skólanefndar Fjöl- brautaskóla Suðurnesja 1982–86. Halldór og Steinunn bjuggu í Ytri-Njarðvík sína búskapartíð en síðastliðin fjögur ár áttu þau heim- ili í Heiðarholti í Keflavík. Útför Halldórs verður gerð frá Ytri-Njarðvíkurkirkju í dag og hefst athöfnin klukkan 14. Jarð- sett verður í Innri-Njarðvík. Þau eiga eitt barna- barn. Helga og Hall- dór skildu 1954. Barnsmóðir Halldórs er Margrét Sæmunds- dóttur, f. 24.11. 1924. Foreldrar hennar voru Sæmundur Brynjólfsson, bóndi í Gufudalssveit, og Þor- katla Soffía Ólafsdótt- ir, húsfreyja. Sonur þeirra er, Sæmundur Garðar, f. 12.10. 1960, kvæntur Pascale Escaig. Halldór kvæntist 31.12. 1968 eftirlifandi konu sinni, Steinunni Gunnarsdóttur, f. 10.12. 1931. For- eldrar hennar voru Gunnar Árna- son, sjómaður í Ólafsvík, síðar í Höfnum og Ytri-Njarðvík, f. 25.10. 1896, d. 27.6. 1951, og Bjarney Sig- ríður Guðjónsdóttir, ljósmóðir, f. 5.12. 1894, d. 19. nóv. 1981. Dóttir Steinunnar og Halldórs er Oddný, verkefnastjóri, f. 9.3. 1968, í sam- búð með Valdimar Birgissyni, sölustjóra, f. 1.6. 1962. Dóttir þeirra er Þorbjörg Edda, f. 2.4. 2003, en Valdimar á tvö börn fyrir, Aldísi Maríu og Matthías Má. Fyrir átti Steinunn Dórotheu Herdísi Jó- hannsdóttur, kennara, f. 13.9.1956, sem Halldór gekk í föð- urstað. Maður hennar er Snæbjörn Reynisson, skólastjóri, f. 12.10. 1951. Börn þeirra eru: a) Andri Steinn, f. 22.6. 1977, b) Álfheiður, f. 11.7. 1979, c) Bergrún, f. 15.2. 1987. Halldór ólst upp á kirkjustaðn- um Görðum á Álftanesi, þar sem ættingjar hans búa enn, og var gjarnan kenndur við þann stað sem Haddi í Görðum. Móður sinn- ar naut hann ekki lengi en átti alla tíð skjól hjá móðursystur sinni, Með Halldóri Guðmundssyni er genginn litríkur og stórbrotinn persónuleiki sem mig langar að minnast nokkrum orðum. Leiðir okkar lágu fyrst saman þegar við vorum verkamenn hjá Grænmet- isverslun ríkisins í skólafríi. Tókst þá með okkur vinátta sem hefur enst alla tíð síðan. Halldór var svo lifandi og skemmtilegur að maður naut samvistanna við hann. Næst lágu leiðir okkar saman þegar við vorum báðir ráðnir 1953 til að sjá um ráðningar og annað skylt starfsmannahald hjá Metcalfe Ha- milton Smith Bech, bandarísks byggingarfyrirtækis sem sá um allar framkvæmdir við uppbygg- ingu Keflavíkurflugvallar eins og t.d. flugstöð og önnur mannvirki sem þurfti til reksturs og viðhalds alþjóðaflugvallar. Þetta voru mikl- ir umbrotatímar sem höfðu var- anleg áhrif á íslenskt þjóðlíf. Voru þetta langmestu framkvæmdir sem ráðist hafði verið í á Íslandi til þess tíma. Fólk streymdi til starfa á Keflavíkurflugvelli hvað- anæva frá og af öllum stigum þjóð- félagsins, jafnvel heilu bekkirnir komu úr Háskólanum. Mig minnir að ég hafi heyrt að það hafi verið allt að 1.400 Bandaríkjamenn og 2.000 Í.slendingar við þessar fram- kvæmdir þegar mest var. Mátti þar kenna marga sem síðar urðu landsþekktir menn svo sem ráð- herrar, viðskiptaforkólfar o.fl. Í upphafi voru miklir byrjunarerfið- leikar og árekstrar tíðir. Til dæmis vantaði í upphafi næga mötuneyt- is- og svefnaðstöðu fyrir þennan skara og vankunnátta og skiln- ingsleysi atvinnuveitandans á ís- lenskum lögum og réttindum gerði starfið oft erfitt á þessum vett- vangi. Dáðist ég oft að þolinmæði, lagni og skilningi Halldórs í við- kvæmum viðtölum og útfyllingu atvinnumsóknanna sem voru mjög flóknar og nákvæmar og oft erf- iðar fyrir fólk sem hafði aldrei komið nálægt slíku áður. Eftir að Halldór lét af störfum á flugvell- inum missti ég sjónar á honum um tíma en frétti að hann hefði farið að stunda fasteignaviðskipti eða þangað til hann réðst sem skrif- stofustjóri til Vélsmiðju Njarðvík- ur. Starfaði hann við það þangað til aðaleigandi og framkvæmda- stjóri fyrirtækisins, Magnús Krist- insson, lést. Varð Halldór þá fram- kvæmdastjóri og meðeigandi í fyrirtækinu. Rak hann það þangað til hann hætti af heilsufarsástæð- um fyrir nokkrum árum. Fyrr á árum átti Halldór við áfengis- vandamál að stríða en hann tók á því af karlmennsku og gerðist einn af stofendum SÁÁ. Varð hann einna fyrstur til þess að fara í meðferð á ,,Freeport“ á vegum SÁÁ. Upp frá því bragðaði Halldór aldrei áfengi eða í nær 30 ár. Var hann ávallt ötull stuðningsmaður AA-samtakanna. Halldór var vina- margur, félagslyndur og fróður um menn og málefni. Var hann alla tíð dyggur stuðningsmaður Sjálfstæð- isflokksins og gegndi mörgum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn sem aðrir munu fjalla um. Kona mín og ég sendum Steinunni, Odd- nýju, Dórotheu og öðrum aðstand- endum okkar innilegustu samúðar- kveðjur. Blessuð sé minning Halldórs Guðmundssonar. Guðmundur Jóhannsson. Vinur minn hann Halldór Guð- mundsson er látinn. Mér varð brugðið þegar tengdasonur hans hringdi í mig og tilkynnti mér að hann væri látinn. Þegar ég heim- sótti hann á Landspítalann eftir slysið sem hann lenti í fannst mér hann vera nokkuð hress, hann fór strax að spyrja frétta og ræða um pólitíkina eins og honum var svo tamt að gera þegar við hittumst. Ég hef orðið þess aðnjótandi að hafa starfað í tugi ára með vini mínum Halldóri. Það voru ófáar heimsóknir mínar að heimili Hall- dórs og Steinunnar þegar þau bjuggu á Móavegi í Njarðvík, og alltaf voru jafn góðar móttökur hjá þeim hjónum. Ég hef starfað með Halldóri í bæjarstjórn Njarðvíkur, hann var mjög virkur liðsmaður Sjálfstæð- isflokksins alla tíð og í flestum ráðum og nefndum flokksins í Njarðvík sinnti hann þessu öllu með mikilli samviskusemi og trú- mennsku enda lét hann sig sjaldan vanta þegar Sjálfstæðisflokkurinn hélt fundi í Njarðvík. Fyrir hönd okkar sjálfstæðismanna í Reykja- nesbæ vil ég þakka þér fyrir mjög fórnfúst starf í áratugi. Það er mikil gæfa fyrir mig sem ungan mann að kynnast svona visku- brunni eins og Halldór vinur minn var, hann var alltaf tilbúinn með góð ráð ef einhver vandamál komu upp, enda voru margir sem leituðu ráða hjá honum með úrlausn mála. Halldór var mjög heiðarlegur og góður drengur, hann mátti ekkert aumt sjá, þá var hann tilbúinn að hjálpa, enda eru mjög margir vinir hans sem sakna hans, hann setti mikinn svip á þessa tilveru. Ég og synir mínir Arnar og Guðmundur þökkum Halldóri fyrir góðar heim- sóknir á verkstæðið okkar í ára- raðir, þar sem hann hafði ávallt viðkomu og fékk sér kaffibolla þegar hann átti leið um og munum við sakna þess. Ég og kona mín Halldóra og fjölskylda okkar þökkum Halldóri fyrir mjög góð kynni gegnum árin. Við viljum votta þér, Steinunn mín, og fjölskyldu þinni innilega samúð. Kæri vinur, við þökkum þér fyr- ir áratuga vináttu sem aldrei bar skugga á. Minningar um góðan dreng mun lifa með okkur. Hvíl þú í friði, kæri vinur. Guð blessi minningu Halldórs Guð- mundssonar. Ingólfur Bárðarson, rafverk- taki og formaður Sjálfstæð- isfélagsins Njarðvíkings. Hann var stór í sniðum hann Halldór hvernig sem á hann var litið bæði til orðs og æðis. Kynni mín af Halldóri byrjuðu þegar hann hóf störf hjá Njarðvíkurbæ sem framkvæmdastjóri hjá hús- næðisnefnd bæjarins en þá var ég bæjarstjóri Njarðvíkurkaupstaðar. Halldór hafði þá nokkru áður hætt með fyrirtæki sitt, Vélsmiðju Njarðvíkur. Töldu þeir sem þekktu hann þá betur en ég að ef við kræktum í Halldór sem fram- kvæmdastjóra fengjum við þar góðan mann. Það kom fljótt í ljós að Halldór var traustsins verður og sýndi hann skjólstæðingum bæjarins mikla natni og sást að þarna fór maður með stórt hjarta. Við sameiningu Njarðvíkur, Kefla- víkur og Hafna árið 1994 hélt hann áfram störfum hjá sameinuðu sveitarfélagi þangað til hann fór á eftirlaun. Leiðir okkar Halldórs áttu þó eftir að liggja enn frekar saman á öðrum vettvangi en það var í störf- um fyrir Sjálfstæðisflokkinn. Þeg- ar ég ákvað að hella mér í próf- kjörsbaráttu fyrir þingsæti í flokknum árið 1994 var hann einn af þeim fyrstu til að lýsa stuðningi við þann ásetning minn. Það var mér mikils virði því Halldór var vel þekktur innan flokksins í Reykjaneskjördæmi og hafði setið í helstu nefndum hans innan kjör- dæmisins. Það var ekki ónýtt að hafa hann á kosningaskrifstofunni að taka á móti fólki og hvetja til dáða þegar það átti við. Þegar töl- urnar voru að berast í prófkjör- skosningunni 1994 leit ekki vel út í upphafi talningar. Sóley eiginkona mín var orðin ansi áhyggjufull en þá sagði Halldór: ,,Hafðu engar áhyggjur, elskan mín, kassarnir okkar eiga eftir að koma.“ Það varð og raunin en eftir það var Halldór óaðskiljanlegur hluti af mínu pólitíska lífi. Fyrir alþingskosningar var hann ævinlega einn af starfsmönnunum og var alltaf hægt að treysta því að hann kæmi á tilsettum tíma þegar kallið kæmi. Engin samtök eða flokkar eru annað en fólkið sem þar er og þegar hlustað er á hjarta þeirra, grasrótina, þá vegn- ar þeim vel. Áhugi Halldórs á velferð flokks- ins var fölskvalaus og sinnti hann störfum fyrir hann frá unglings- árum og allt til dauðadags. Síðasta ferð hans fyrir flokkinn var að sækja kjördæmisþing Suðurkjör- dæmis á Selfossi 8. maí sl. og lék hann við hvern sinn fingur í þeirri ferð. Banalega Halldórs var stutt en meðan hann barðist fyrir lífi sínu var hugur hans samt hjá flokknum og eitt það síðasta sem hann bað mig fyrir var að skila kveðju til Davíðs í tilefni 75 ára af- mælis Sjálfstæðisflokksins. Allar hugsanir hans og gerðir voru að hans mati til þess að styrkja og efla stoðir hans með kjörorðinu sem hann var stofnaður undir. Um leið og við Sóley kveðjum vin okkar með miklu þakklæti vottum við Steinunni eiginkonu hans og fjölskyldu okkar dýpstu samúð. Guð blessi minningu Hall- dórs Guðmundssonar. Kristján Pálsson. Við Halldór vorum bekkjarfélag- ar í Flensborgarskólanum árin 1941 til 1944. Eftir kennslu um vorið 1944 fórum við saman norður til Akureyrar til að taka gagn- fræðapróf við Menntaskólann á Akureyri. Það var mikið álag á þeim, sem áttu heima í Garðahverfi, þar sem þau þurftu að ganga á hverjum morgni í skólann. Halldór átti skyldfólk á Akur- eyri, sem var Guðný Björnsdóttir, föðursystir hans, og sonur hennar Björn Halldórsson lögfræðingur. Halldór bjó hjá þeim, og var ég því fastagestur á því heimili, sem var mér ómetanlegt. Halldór var afburða námsmaður, og varð stúdent frá MA. Við héldum ávallt vinskap, og þegar ég vann í Vélsmiðju Njarð- víkur, réð ég hann sem bókara, og tók hann seinna við smiðjunni, sem eigandi og forstjóri, og rak hana vel í mörg ár. Við Helga viljum, með þessum fáu orðum, þakka vin- áttu í gegnum árin, og vottum Steinunni og ættingjum innilega samúð okkar. Gísli Júlíusson. HALLDÓR GUÐMUNDSSON Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda- faðir, afi og langafi, ÞÓRIR GUÐMUNDSSON, Kleppsvegi 62, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Fossvogskirkju mánu- daginn 14. júní kl. 15:00. Arnfríður Snorradóttir, Methúsalem Þórisson, Oddný Þórisdóttir, Ragnar Karlsson, Snorri Þórisson, Erla Friðriksdóttir, Soffía J. Þórisdóttir, Baldur Dagbjartsson, Ragna B. Þórisdóttir, Gylfi G. Kristinsson, barnabörn og barnabarnabörn. Eiginmaður minn, faðir okkar og tengdafaðir, EINAR ÁRNASON skipstjóri frá Sóleyjartungu, síðast til heimilis á Höfðagrund 19, Akranesi, verður jarðsunginn frá Akraneskirkju í dag, föstudaginn 11. júní, kl. 14.00. Halldóra Gunnarsdóttir, Árni Einarsson, Guðbjörg Halldórsdóttir, Gunnar Einarsson, Ragnheiður Pétursdóttir, Marteinn Einarsson, Guðrún Sigurbjörnsdóttir, Einar H. Einarsson, Guðmundur Einarsson, Sóley Sævarsdóttir og fjölskyldur. Afmælis- og minningargreinum má skila í tölvupósti eða á disklingi (netfangið er minning@mbl.is, svar er sent sjálfkrafa um leið og grein hefur borist). Ef greinin er á disklingi þarf útprentun að fylgja. Nauð- synlegt er að símanúmer höfundar og/eða sendanda (vinnusími og heimasími) fylgi með. Þar sem pláss er takmarkað getur þurft að fresta birtingu greina, enda þótt þær berist innan hins tiltekna frests. Nán- ari upplýsingar eru á mbl.is. Um hvern lát- inn einstakling birtist formáli og ein aðal- grein af hæfilegri lengd á útfarardegi, en aðrar greinar skulu ekki vera lengri en 300 orð, u.þ.b. 1.500 slög (með bilum) eða um 50 línur í blaðinu (17 dálksentimetrar). Tilvitn- anir í sálma eða ljóð takmarkast við eitt til þrjú erindi. Einnig er hægt að senda ör- stutta kveðju, HINSTU KVEÐJU, 5–15 lín- ur, og votta virðingu án þess að það sé gert með langri grein. Greinarhöfundar eru beðnir að hafa skírnarnöfn sín en ekki stutt- nefni undir greinunum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.