Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 18

Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 18
ERLENT 18 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ HETJUR fótboltaunnenda lenda oft í því að meiða sig á vellinum en að sögn breskra sjúkraþjálfara eru þeir sem heima sitja líka í hættu. Helst þurfa þeir að gæta sín sem eru með mikla bjórvömb og almennt í lélegu ásigkomulagi. Hefur samband sjúkraþjálfara sent út leiðbeiningar til fót- boltafíkla sem vilja forðast meiðsl fyrir framan sjónvarpstækið. Slóðin er: http:// www.csp.org.uk. Fíklunum er ráðlagt að að þjóta ekki of skyndilega upp úr sitjandi stöðu að ekki sé minnst á þá sem hafa legið makindalega í sófanum. Einnig eru í bæklingnum sýndar aðferðir til að slaka á með öndunar- æfingum áður en mikilvægt fríspark er tekið. „Ef menn læra hvernig best er að fagna marki á öruggan hátt marki, hvernig á að mótmæla dómaranum og lifa af víta- spyrnukeppni ættu stuðningsmennirnir að komast slysalaust í úrslitin,“ segir Sammy Margo, sem tók þátt í að semja bæklinginn. Ekkert flug í dag BRESKT flugfélag hefur afrekað að fara á hausinn áður en nokkur vél á vegum þess hafði farið á loft. Félagið heitir Now Air- lines og var ætlunin að það yrði lággjalda- félag. Það er með bækistöðvar á Luton- flugvelli, norðan við London, en var lýst gjaldþrota í síðastliðnum mánuði og verða eignir þess seldar til að greiða lán- ardrottnum, að sögn yfirvalda. Illa séð MIKLA athygli vakti á sínum tíma þegar ein ríkasta sýsla í öllum Bandaríkjunum, Orange-sýsla í Kaliforníu, var lýst gjald- þrota 1994. Var ástæðan ekki síst að sýslu- yfirvöld höfðu fjárfest í svonefndum af- leiðuviðskiptum sem þá voru mjög í tísku í fjármálaheiminum en reyndust mörgum varasöm. Hlutabréfaeign Orange mun hafa verið um 21 milljarður dollara eða rösklega 1500 milljarðar ísl. króna áður en áfallið dundi yfir. Komið hefur í ljós að fjármálastjóri sveitarfélagsins, Robert L. Citron, ráð- færði sig meðal annars við sjáandann Jennie Smith um ýmis mál, að sögn nokk- urra heimildarmanna ræddu þau einnig um fjárfestingar. Segja þeir að hann hafi spurt hana hvernig hún héldi að vextirnir myndu þróast. Hollt kynlíf HÁSKÓLANEMAR sem stunda reglulega kynlíf fá betri einkunnir en þeir sem lifa ein- lífi, að sögn félagsfræðings við háskólann í Hamborg, Werner Habermehl. Hefur hann rannsakað frammistöðu hóps nema og kannað hvernig þeir stóðu sig meðan þeir sváfu hjá. Síðan var niðurstaðan borin sam- an við frammistöðu hóps sem segist að minnsta kosti hafa lifað einlífi og verða menn að vona að þeir skrökvi ekki. Kynlífið virtist auka andlega getu nem- anna. Þeir sem stunda reglulega kynlíf fá hærri einkunnir og þurfa minna fyrir nám- skeiðunum að hafa en þeir sem sofa einir. Og hinir síðarnefndu þurftu að puða mun meira en hinir til að klára hvert námskeið og ná þokkalegum einkunnum. ÞETTA GERÐIST LÍKA Íþróttameiðsl í sófanum Reuters RICO á heima í Berlín, er níu ára og af skosku fjárhundakyni en slíkir hundar þykja mjög greindir. Einnig þykja þeir afburða duglegir og er stundum líkt við svonefnda vinnualka. Rico þekkir minnst 200 leikföng eiganda síns með nafni og nær í rétta leikfangið ef hann heyrir nafnið á því. Í sjö tilfellum af tíu dugar að hann hafi heyrt nafnið á leik- fanginu einu sinni. Bandarískir vís- indamenn hafa komist að þeirri nið- urstöðu að heili hunds geti náð svipaðri greind og í þriggja ára barni. Gáfuhvuttinn Rico GRÍÐARLEGUR fjöldi Bandaríkjamanna hefur nú vottað Ronald Reagan, 40. forseta Banda- ríkjanna, virðingu sína en kista hans stóð í miðju aðalhvelfingar þinghússins í Washington í gær en verður flutt til Kaliforníu í dag. Talið er að um fimm þúsund manns hafi átt leið um hvelfinguna á hverjum klukkutíma í gær og því ljóst að tugir þúsunda hafa kvatt for- setann fyrrverandi. Þúsundir biðu í langri röð um hádegisbil að staðartíma í Washington í gær, röðin teygði sig út frá þinghúsinu, með- fram vesturhlið þess og í kringum hina miklu tjörn sem stendur fyrir framan þinghúsið. Kistan verður flutt í dómkirkjuna í Wash- ington í dag þegar 34 klst. eru liðnar frá því að henni var komið fyrir í þinghúsinu til þess að al- menningi gæfist kostur á að votta forsetanum virðingu sína. Margir af helstu þjóðhöfðingjum heims verða við opinbera útför í dómkirkjunni í dag ásamt núverandi forseta Bandaríkjanna, George W. Bush. Þaðan verður kistunni flogið til Kaliforn- ínu og verður Reagan jarðsettur þar í garði Reaganbókasafnsins í Simi-dal. Reuters Bandarískir hermenn standa heiðursvörð um kistu Reagans á leið hennar að þinghúsinu í Wash- ington. Þúsundir fylgdust með og veifuðu bandaríska fánanum en í bakgrunni sést í Hvíta húsið. Reuters Nancy Reagan, ekkja Ronalds Reagan, snertir kistu eiginmanns síns í hvelfingu þinghússins í Washington í fyrradag. Tugþúsundir kveðja Reagan í Washington Washington. AP. PÓLSKI kaupsýslumaðurinn Jerzy Kos, einn gíslanna sem frelsaðir voru af hersveitum í Írak á þriðjudaginn var, kom til heimalands síns í gær. Kos þótti fölur á að líta og rödd hans skalf er hann ræddi við fréttamenn sem staddir voru á Varsjárflugvelli. „Ég er virkilega hrærður yfir því að vera á lífi og að vera kominn til Póllands,“ sagði Kos. Kos er forstjóri pólska byggingarfyrirtækisins Jedynka en uppreisnarmenn námu hann á brott frá skrifstofu sinni í Bagdad 1. júní síðastliðinn og héldu honum föngnum í viku eða allt þar til gíslun- um var bjargað. Pólverjinn lýsti björg- uninni fyrir fréttamönn- um, sagðist hafa heyrt þyrlur nálgast, síðan hefði stálhurð herbergisins ver- ið sprengd af hjörunum og hann kastast í gólfið. Mikill mökkur ryks og reyks hefði gosið upp. Því næst hafi hann séð bandaríska hermenn og hefði einn þeirra sagt: „Hafið ekki áhyggjur, við erum Bandaríkja- menn.“ Leiddu þeir síð- an gíslana hlaupandi út í þyrluna sem flutti þá tafarlaust á brott. „Björgunin tók tvær eða þrjár mínútur,“ sagði Kos og þær myndi hann muna það sem eftir væri ævi sinnar. Atburðarásin hefði verið hröð og óvænt og framganga her- mannanna óaðfinnanleg. Kos sagði gíslana hafa verið flutta margoft milli staða. Þeir hefðu rætt mikið saman og veitt hver öðrum stuðning. Aðstæð- urnar hefðu verið slæmar, mat- urinn skelfilegur og hann hefði verið barinn nokkrum sinnum í höfuðið með riffilsskefti. „Það kemur mér á óvart að ég skuli hafa lifað þetta af,“ sagði Kos. Fjölskylda Kos fékk að taka á móti honum án þess að fjölmiðlar væru viðstaddir. „Hafið engar áhyggjur, við erum Bandaríkjamenn“ Varsjá. AP. AFP. Jerzy Kos ELLEFU kínverskir bygging- arverkamenn voru myrtir í Norðaustur-Afganistan í gær en þar hefur verið fremur friðsælt hingað til. Telja stjórnvöld í Ka- búl að liðsmenn talibana eða al- Qaeda hafi verið þar að verki. Um 20 vopnaðir menn réðust í fyrrinótt inn í svefnskála verkamannanna og létu kúlun- um rigna yfir þá, að sögn kín- verska sendiráðsins í Kabúl. Unnu þeir við vegarlagningu í Kunduz-héraði en það hefur að mestu sloppið við skærurnar í suður- og suðvesturhluta Afg- anistans. Tvö morð á einni viku Er þetta í annað sinn á rúmri viku sem útlendingar eru myrtir í landinu en 2. júní voru skotnir þrír Evrópumenn og tveir Afg- anar, sem störfuðu á vegum samtakanna Lækna án landa- mæra. Ellefu kín- verskir verka- menn myrtir Kabúl. AFP.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.