Morgunblaðið - 11.06.2004, Qupperneq 47
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 47
Landsins mesta úrval af bátum,
utanborðsmótorum og bátavör-
um. Sumaropnun í verslun opið
frá kl. 8.00 til 18.00.
Vélasalan ehf., Ánanaustum 1,
s. 580 5300, www.velasalan.is
Lítil sem engin útborgun Nýr
Iveco 120 E 18, bíll ársins. Burð-
argeta 6 tonn, stærð 36 rúmmetr-
ar. Einn með öllu. Til afgreiðslu
strax. Öll skipti skoðuð.
Allar uppl. í síma 693 3730.
Gullfallegur Toyota Yaris 1000
tera, 5 dyra, ek. 85 þús. Fæst með
15.000 út, 15.000 á mán. á bréfi
á 785 þúsund.
Uppl. í símum 568 3737/896 3677.
Ford Excursion árg. 2000.
4*4. 310 p, sjálfsk., leður, rafm.
í öllu, filmur, toppb., kúla, álfelg.,
cd/magasin, cruise, akst.tölva, 8
manna, (stærstur). Ath. skipti eða
góður staðgreiðsluafsl. Uppl. í s.
820 8096.
Varahlutir í vörubíla og vinnu-
vélar. Erum að rífa Volvo FH 12,
FL 10. Einnig varahl. í Volvo,
Scania, M. Bens og Man. Útveg-
um ennfremur varahl. í flestar
gerðir vinnuvéla. Heiði vélahlutir,
s. 534 3441.
Jeppapartasala Þórðar, Tangar-
höfða 2, sími 587 5058. Sérhæfum
okkur með varahluti í jeppa og
Subaru. Nýrifnir: Patrol '95,
Impreza '97, Pajero V6 '92, Patrol
'92, Legasy '92, og Vitara '91-'97
Ökukennsla
Ökukennsla, endurhæfing,
akstursmat og vistakstur.
Upplýsingar í símum 892 1422 og
557 6722, Guðbrandur Bogason.
Ökukennsla Reykjavíkur ehf.
Ökukennsla akstursmat.
Snorri Bjarnason
Toyota Avensis, bifhjólak.
892 1451/557 4975.
Sverrir Björnsson
Wolksvagen Passat,
892 4449/557 2940.
Vagn Gunnarsson
Mersedes Benz,
894 5200/565 2877.
Ævar Friðriksson
Toyota Avensis '02,
863 7493/557 2493.
Gylfi Guðjónsson
Subaru Impreza,
696 0042/566 6442.
Gylfi K. Sigurðsson
Nissan Almera,
892 0002/568 9898.
Driver.is
Öku- og bifhjólakennsla, aksturs-
mat. Subaru Legacy, árg. 2004.
Björgvin Þ. Guðnason,
sími 895 3264 www.driver.is
Kúri til sölu. Coleman Taos, 8
feta fellihýsi árgerð '99 til sölu.
Vel með farið, snyrtilegt og reyk-
laust alla tíð. Verð ca 500 þúsund.
Uppl. 896 9898.
Kajakar Sjókajakar til leigu með
ár, svuntu og vesti.
Leitið upplýsinga hjá:
Sportbúð Títan, s. 580 0280.
www.sportbud.is .
Álkanóar frábært fjölskyldusport
verð aðeins kr. 110 þús. með
árum. Vega aðeins 32 kg., burð-
arg. 295 kg.
Uppl. í s. 893 5777. d-tour.is
Línubalar 70-80 og 100L með
níðsterkum handföngum
Fiskiker fyrir smærri báta, gerðir
300-350 og 450
Blóðgunarílát 250-500L
BORGARPLAST
Seltjarnarnesi: S 5612211
FRÉTTIR
MENNTASKÓLINN á Ísafirði
brautskráði 53 nemendur, þar af 33
stúdenta, við hátíðlega athöfn í Ísa-
fjarðarkirkju 29. maí sl. Á skóla-
árinu sem er að ljúka hafa 68 nem-
endur útskrifast úr skólanum sem er
met í sögu skólans.
Hafdís Sunna Hermannsdóttir var
dúx skólans en hún fékk 9,17 í með-
aleinkunn á stúdentsprófi.
Í skýrslu skólameistara, Ólínu
Þorvarðardóttur, kom fram að í vet-
ur voru 389 nemendur við skólann.
Hún lýsti yfir ánægju með sértækar
aðgerðir sem miða að því að minnka
brottfall við skólann en þær hafa
borið þann árangur að prófgengi
nemenda hefur aukist undanfarin
þrjú ár úr tæpum 83% í 95%.
Braut-
skráning
frá Mennta-
skólanum
á Ísafirði
NÁMSKEIÐ um borgaralega
óhlýðni og friðsamleg mótmæli verð-
ur haldið um helgina en Samtök her-
stöðvarandstæðinga hafa boðið Milan
Rai og Emily Johns, breskum friðar-
og umhverfissinnum, til landsins.
Rai og Johns hafa bæði verið virk í
friðarhreyfingum í fjölda ára. „Borg-
araleg óhlýðni gengur út á að reyna
að breyta óréttlæti á einhvern hátt þó
það sé ekki hægt að fara til þess hefð-
bundnar leiðir. Aðgerðirnar geta
jafnvel leitt til handtöku eða málsókn-
ar. Borgaraleg óhlýðni gæti krafist
þess að brjóta lög en það er ekki endi-
lega það sama og að brjóta „lögin“.
Oft eru t.d. alþjóðalög eða einhver
önnur lög sem segja hið gagnstæða,“
segir Rai nefnir að hann hafi tekið
þátt í að flytja lyf til Íraks þrátt fyrir
viðskiptabann.
Emily Johns sér m.a. um vinnu-
hópa í tengslum við námskeiðið en
hún hefur mikla reynslu af friðsam-
legum leiðum til mótmæla og annarra
aðgerða. Hún segir mótmæli sem
þessi vera sérlega mikilvæg þegar
stjórnvöld taka ekki vilja fólks með í
reikninginn. „Þetta á sér stað þegar
umræður eru ekki eðlilegar og lýð-
ræðið ekki virkt. Sem dæmi má nefna
að meirihluti fólks var andvígur þátt-
töku Bretlands í stríðinu í Írak. Engu
að síður var sú ákvörðun tekin og það
var ekki hlustað á vilja fólksins.“
Rai bendir á að námskeiðið verði
ekki einungis fræðilegt heldur bygg-
ist það mikið á umræðum. „Þetta er
hagnýtt námskeið. Við förum yfir
skipulagningu á friðsamlegum mót-
mælum og aðgerðum,“ segir Rai og
bætir við að borgaraleg óhlýðni sé í
raun leið til þess að brjóta upp
hneigðina til að hlýða yfirvöldum allt-
af skilyrðislaust. Nánari upplýsingar
má finna á http://www.fridur.is.
Námskeið í borgara-
legri óhlýðni
Morgunblaðið/Eggert
Rai og Johns verða með námskeið í borgaralegri óhlýðni um helgina.
MARGIR af bestu ungu skákmönn-
um Íslands taka þátt í Meistaramóti
Skákskóla Íslands sem fer fram í
þrettánda sinn um helgina. Þá taka
nokkrar konur úr ólympíuliði kvenna
þátt í mótinu.
Bestu skákkonum Íslands er sér-
staklega boðin þátttaka og hafa þær
Harpa Ingólfsdóttir, Guðfríður Lilja
Grétarsdóttir og Sigurlaug Frið-
þjófsdóttir þekkst boðið.
Mótið hefst kl. 20 í kvöld, 11. júní,
og því lýkur sunnudaginn 13. júní.
Fyrstu þrjár umferðirnar eru tefldar
með atskákfyrirkomulagi en loka-
umferðirnar fjórar með kappskák-
fyrirkomulagi.
Meistara-
mót skák-
skóla
Íslands
OPIÐ hús verður í Blóðbankanum
við Barónsstíg í Reykjavík mánu-
daginn 14. júní í tilefni Alþjóða
blóðgjafadagsins. Gestum verður
boðið upp á veitingar ásamt því að
fólk getur kynnt sér starfsemi
Blóðbankans, þar á meðal Blóð-
bankabílsins, og blóðgjafélags Ís-
lands Að hátíðahöldum vegna Al-
þjóðablóðgjafadagsins koma
Alþjóða Heilbrigðisstofnunin
(WHO), Alþjóða Rauði Krossinn.
Alþjóðasamtök blóðgjafafélaga og
Alþjóðasamtök blóðgjafar (Int-
ernational Society of Blood
Transfusion). Að baki greindra
samtaka eru 192 aðildarríki Al-
þjóða heilbrigðisstofnunarinnar,
181 landssamtök Rauða krossins,
50 landssamtök blóðgjafafélaga
og þúsundir sérfræðinga um blóð-
gjafir.
Alþjóðasamtök knattspyrnu-
félaga, FIFA, munu styðja fram-
takið, auk margra annarra, eins
og Rótarýklúbba og Lionsklúbba
víða um heim og heilbrigðisyfir-
valda á hverjum stað.
Þann 11. júní verður blóðsöfn-
unarbíll Blóðbankans í Efstaleiti á
starfsmannahátíð Ríkisútvarps-
ins, Rauða krossins, Logos lög-
mannaþjónustunnar og heilsu-
gæslunnar í Efstaleiti.
Alþjóðablóðgjafa-
dagurinn 14. júní
STAÐA mála í Írak og réttlæting
Bandaríkjamanna og Breta á
innrásinni verður meðal efnis í
fyrirlestri Milans Rai í Reykja-
víkurAkademíunni í kvöld, föstu-
dagskvöld. Rai er staddur hér á
landi í boði Samtaka herstöðva-
andstæðinga, ásamt Emily Johns
en þau eru baráttumenn fyrir
friði og umhverfisvernd.
Rai hefur haldið fjölda fyrir-
lestra og ritað bækur, m.a. um
stríðsrekstur í Írak og um kenn-
ingar Noams Chomsky.
Í fyrirlestrinum í kvöld mun
hann m.a. ræða hlutverk friðar-
hreyfinga í stríðum og fara yfir
ástandið og framtíðarhorfur í
Írak. „Ég ætla að fjalla um inn-
rásina í Írak og þær réttlætingar
sem yfirvöld höfðu fyrir henni.
Fyrir stríðið benti ég á að yf-
irvöld í Bandaríkjunum vildu í
raun ekki breyta stjórn landsins
heldur einungis fella leiðtog-
ann.“ Rai bendir á að kerfið í
Írak sé eins og það var og að það
hafi í raun aldrei staðið til að
breyta því. „Þegar búið var að
steypa Sadam Hussein og nokkr-
um öðrum var stríðið sagt búið.
Þetta voru ekki stjórnarskipti
heldur leiðtogaskipti. Sama her-,
stjórnmála, lögreglu- og skrif-
ræðiskerfið er til staðar,“ segir
Rai.
Fyrirlesturinn hefst kl. 20 og
er öllum opinn.
Milan Rai flytur
fyrirlestur um
málefni Íraks
DAGUR hinna villtu blóma er á
sunnudaginn, 13. júní. Í tilefni
dagsins verður farið í níu plöntu-
skoðunarferðir þennan dag á ýms-
um stöðum og hafa flóruvinir tekið
að sér að skipuleggja göngurnar.
Farið verður frá eftirtöldum
stöðum: Suðurnes, mæting við
Háabjalla (næsti afleggjari við
Grindavíkurveg) kl. 15. Skoðunar-
svæði: Háibjalli, Snorrastaðatjarn-
ir.
Hvanneyri, mæting við Rann-
sóknahús Landbúnaðarháskólans á
Hvanneyri kl. 14. Skoðunarsvæði:
Klapparásar og mýrar suður af
Heimavist Landbúnaðarháskólans.
Bolungarvík, mæting á planinu
fyrir ofan Þjóðólfstungu kl. 16.
Skoðunarsvæði: Tungudalur.
Ísafjörður, mæting á tjaldsvæð-
inu í Tungudal kl. 13. Skoðunar-
svæði: Tungudalur.
Hólmavík, mæting við félags-
heimilið á Sævangi, Hólmavíkur-
hreppi kl. 14. Skoðunarsvæði:
Næsta nágrenni.
Skagafjörður, mæting í anddyri
Hólaskóla, kl. 13.30. Skoðunar-
svæði: Hólar í Hjaltadal.
Dalvík, mæting við Dalvíkur-
kirkju kl. 10. Skoðunarsvæði: Hól-
arnir ofan Dalvíkur.
Akureyri, mæting á bílastæði
Friðlandsins í Krossanesborgum
(skammt fyrir innan Húsasmiðj-
una) kl. 10. Skoðunarsvæði:
Krossanesborgir.
Egilsstaðir, mæting á bílastæð-
inu við Selskóg kl. 20.
Nánari upplýsingar má finna á
www.floraislands.is
Dagur hinna villtu blóma 13. júní