Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 37

Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 37
UMRÆÐAN MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 37 ÞRÁTT fyrir deilur fræðimanna um hvort persónulegt synjunarvald forseta sé til staðar eða ekki er hitt óumdeilt, að því skuli ekki beitt nema við aðstæður, sem að öllu jöfnu eru óhugsandi í lýð- frjálsu ríki og fela í sér ótvíræð grundvall- arbrot á mannrétt- indum eða stórkostlega skerðingu á sjálfstæði þjóðarinnar. Þannig hefur verið litið á synj- unarvaldið sem ein- hvers konar stjórn- skipulegan neyðarrétt eða öryggisventil, sem ekki þurfi að grípa til í nútímaþjóðfélagi. Ólafur Ragnar Grímsson, stjórnmála- fræðingur og núverandi forseti, nefndi sem frambjóðandi til forseta árið 1996 tvenns konar aðstæður sem hugsanlega myndu reyna á synjunarvaldið. Annars vegar, ef mikil gjá myndaðist milli þings og þjóðar um djúpstæð siðferðileg álitaefni eins og dauðarefsingar og hins vegar, ef í ákvörðunum þings fælist umtalsvert afsal fullveldis. Af þessum sökum kusu fjölmargir Ólaf Ragnar, þar á meðal undirritaður, þrátt fyrir að hafa ekki að jafnaði fylgt honum að máli á vettvangi stjórnmálanna. Útilokað var að skilja Ólaf Ragnar Grímsson í aðdraganda forsetakosn- inganna 1996 með þeim hætti, að lög, sem eiga sér skýrar fyrirmyndir í fjölmörgum lýðræðisríkjum og miða að því að koma í veg fyrir, að sömu aðilarnir geti haft ráðandi vald á öllum helstu fjölmiðlum í landinu, geti talist til djúpstæðra siðferði- legra álitaefna, hvað þá afsals full- veldis. Ólafur minntist þá heldur ekki á, að það gæti verið tilefni beit- ingar synjunarvaldsins, ef mikil and- staða myndaðist við mál sem þingið teldi til heilla fyrir land og þjóð þeg- ar til lengri tíma væri litið, enda veit hann sjálfur, að slíkar aðstæður koma óhjákvæmilega upp, með reglulegu millibili, í öllum lýðræð- isríkjum, sem lúta ábyrgri þingræð- isstjórn. Með því að synja nýsamþykktum útvarps- og samkeppnislögum stað- festingar, þvert á vilja réttkjörins þingmeirihluta, hefur Ólafur Ragnar Grímsson brugðist tugþúsundum kjósenda. Stór hópur kjósenda Ólafs Ragnars sem og stuðningsmenn annarra forsetaframbjóðenda töldu útilokað í ljósi hefðbundinnar túlk- unar synjunarákvæðisins auk yf- irlýsinga hans sjálfs, að nokkur heið- virður maður gæti komið aftan að fólki með slíkum hætti. Skyndilega ákveður Ólafur Ragn- ar Grímsson án nokkurrar skipu- legrar umræðu meðal fólksins í land- inu, þings eða annarra ráðamanna, að embætti forseta Íslands skuli frá og með miðvikudeginum 2. júní 2004, vera pólitískt. Skilja beri 26. grein stjórnarskrárinnar sem ský- lausan rétt forseta til að grípa fram fyrir hendurnar á sitjandi ríkisstjórn og þingræð- inu í landinu. Ástæður geta verið ýmsar svo sem óvönduð máls- meðferð – að mati for- seta, lítil sátt í þjóð- félaginu – að mati forseta, ótímabær lög – að mati forseta, og svo framvegis. Nú skal for- setinn ekki lengur vera hið tignarlega samein- ingartákn, sem kemur fram fyrir hönd þjóðarinnar á hátíð- arstundu heldur fulltrúi tiltekinna stjórnmálaafla sem veitir þingi og þjóð rækilegt aðhald og jafnvel ráðningu, ef svo ber undir. Slík stjórnskipun hefur aldrei ver- ið til alvarlegrar umræðu hér á landi. Því er það með eindæmum, að þingmenn eins og Steingrímur J. Sigfússon skuli skyndilega breytast í talsmann tvískipts þingræðis þar sem þingmeirihluti geti að jafnaði ekki treyst því að frumvörp verði að lögum þar sem pólitískt kjörinn for- seti muni hugsanlega synja þeim staðfestingar. Þetta kallar Stein- grímur J. Sigfússon „valddreifingu“ og var á honum að skilja að það tæki fram því fyrirkomulagi sem verið hefði við lýði undanfarin 60 ár. Er ótrúlegt til þess að hugsa, að menn skuli geta gerst sekir um slíka skammsýni eða telja menn eins og Steingrímur, að pólitískur yfirfrakki í embætti forseta Íslands verði þá um aldur og ævi vinstrimaður? Björgvini G. Sigurðssyni, þing- manni Samfylkingarinnar, finnst svo gaman að nú sé pólitískt synj- unarvald forseta Íslands orðið það raunverulegt, að nú getum við staðið fyrir veðmálum um hvort synj- unarvaldi verði beitt eða ekki líkt og um spennandi handboltaleik væri að ræða! Þegar viðbrögð fólks, sem kjörið hefur verið til trúnaðarstarfa fyrir land og þjóð við jafnalvarlegu athæfi og því að breyta eðli forsetaembætt- isins í einni svipan – frá sameining- artákni í pólitískan yfirfrakka – eru með þeim hætti, sem raun ber vitni, er hætt við, að tækifærimennskan í pólitíkinni eigi sér engar hömlur ut- an þeirra sem ímyndunaraflið setur. Sé slíkt ástand það sem fólk vill, þá verða menn jafnframt að vera við- búnir afleiðingunum af því – ekki einungis næstu misserin – heldur a.m.k. út þennan áratug og jafnvel um ófyrirsjánlega framtíð. Pólitískur forseti, gaman, gaman? Guðmundur Edgarsson skrifar um deilur um forsetann ’Þegar viðbrögð fólks,sem kjörið hefur verið til trúnaðarstarfa fyrir land og þjóð við jafn- alvarlegu athæfi og því að breyta eðli forseta- embættisins í einni svip- an – frá sameining- artákni í pólitískan yfirfrakka … ‘ Guðmundur Edgarsson Höfundur er verkefnastjóri hjá Námsmatsstofnun og kennari við MH og HÍ. TUTTUGASTA og sjötta grein stjórnarskrárinnar, sem oft hefur verið vitnað til undanfarið, hljóðar svo: „Ef Alþingi hefur samþykkt laga- frumvarp, skal það lagt fyrir for- seta lýðveldisins til staðfestingar eigi síð- ar en tveim vikum eft- ir að það var sam- þykkt, og veitir staðfestingin því laga- gildi. Nú synjar for- seti lagafrumvarpi staðfestingar, og fær það þó engu að síður lagagildi, en leggja skal það þá svo fljótt sem kostur er undir atkvæði allra kosn- ingabærra manna í landinu til sam- þykktar eða synjunar með leynilegri at- kvæðagreiðslu. Lögin falla úr gildi, ef sam- þykkis er synjað, en ella halda þau gildi sínu.“ Ég get ekki séð að í þessari grein felist neitt sem kalla má málskotsrétt, það orð finnst mér vera til- raun til að færa það að skrifa ekki undir í rangan búning. Það að skrifa ekki undir er nefnilega ákvörðun forseta og það er sú ákvörðun sem er verið að bera und- ir þjóðaratkvæði. Auðvitað standa og falla lögin líka með þeirri at- kvæðagreiðslu. Mér finnst þetta ekki vera svona „ég vísa“-staða eins og reynt er að gefa í skyn. Forseti tók ákvörðun og finnst mér leitt að hann skuli hafa reynt að firra sig ábyrgð á þeirri gerð með orðaleikjum. Lögin fara í þjóðaratkvæðagreiðslu þó að forseti „vísi“ þeim ekki þangað ef hann neitar að staðfesta þau. Getur hann kannski neitað að skrifa undir og ekki „vísað“ þeim ef svo má segja? Má svo ekki spyrja hvort til- gangur greinarinnar sé ekki síður að taka á því ef forseti bregst skyldu sinni og neitar að skrifa undir lög? Hún sé öryggisventill þingsins gagnvart forsetanum. Þetta, ekki síður en sú merking sem alltaf heyrist að greininni sé ætlað að tryggja rétt þjóðarinnar gagnvart þinginu. Það að skrifa ekki undir lög er nefnilega miklu al- varlegri hlutur en til dæmis að neita að skrifa undir skipun manns í embætti. Þess vegna þurfi að vera leið framhjá hugsanlegri höfnun forseta í tilvikum þar sem ekki er næg ástæða eða stuðningur fyrir því að leysa hann frá embætti. Það stendur fleira í stjórn- arskránni en tuttugasta og sjötta greinin, t. d. stendur þar: „Forseti lýðveldisins er ábyrgðarlaus á stjórnarathöfnum. Svo er og um þá, er störfum hans gegna …“, „For- setinn lætur ráðherra framkvæma vald sitt. Ráðuneytið hefur aðsetur í Reykjavík“ og einnig „Ráðherrar bera ábyrgð á stjórnarfram- kvæmdum öllum …“ Ég held að sem flest okkar ættu að lesa stjórnarskrána og freista þess að mynda sér einhverja skoð- un á því sem þar stendur. Ekki kann ég að leggja saman áhrifin af ofangreindum setningum né öðrum sem þar eru með lagalegum skiln- ingi. Ég vil hins vegar segja hvað mér finnst – eftir efalaust ekki nógu mikla skoðun – og það er þetta: Forsetinn er valdalaus, því ef hann hefur þann rétt sem felst í 26. grein hefur hann margs konar ann- að vald. Hann gæti t.d. rofið þing og sent þingmenn heim á eigin spýtur, leyst einstaka ráðherra frá störfum og neitað að staðfesta ráðn- ingar manna. Í stjórnarskránni stendur til dæmis: „Forseti lýðveld- isins veitir þau embætti, sem lög mæla“. Í lögum um dómstóla frá 1998 hljóðar fjórða grein svo: „Í Hæstarétti eiga sæti níu dómarar sem forseti Íslands skipar ótíma- bundið samkvæmt tillögu dóms- málaráðherra“. Gat forseti þá neit- að að skrifa undir nýlega, umdeilda skipun hæstaréttardómara? Hvað hefði gerst? Hefði sú skipun staðið án undirskriftar hans? Vilja menn meina að atbeini forseta að löggjaf- arvaldinu sé annar en að framkvæmdavald- inu? Forsetinn virðist mér vera táknmynd valdsins sem allt er fal- ið öðrum, löggjaf- arvaldið þinginu og framkvæmdavaldið rík- isstjórninni. Hann stað- festir einungis form- lega með undirskrift sinni að með réttum hætti hafi verið staðið að málum. Ef menn hins vegar óska þess að mál séu með þeim hætti sem nú hefur skipast þarf að koma því fyrir í stjórn- arskránni með skýrum hætti. Að endingu vil ég segja þetta: Ég hef heyrt sagt og hef til- hneigingu til að vera sammála að í raun og veru sé hér um póli- tíska deilu að ræða sem þá ífærist þessum „dularklæðum“ sem eru það sem við sjáum og heyrum og virðist svo oft vera deila um eitt- hvað annað. Einnig bera margir því við að ekki sé um svo mikla and- spyrnu við frumvarpið að ræða heldur sé andspyrnan við það hvernig frumvarpið fór í gegnum þingið. Er það sem sagt svo að til- gangurinn, að koma Davíð frá væntanlega, helgi meðalið? Mér finnst þetta lítilvæg rök. Ég hef einnig heyrt sagt að markmið Jóns Ásgeirs sé að koma Davíð frá og á sama hátt sé það markmið Davíðs að klekkja á Jóni. Nú spyr ég því: Er hér um að ræða átök milli póli- tísks valds og efnahagslegs? Og í framhaldi af því vil ég slá því fram að við kjósum yfir okkur pólitískt vald á fjögurra ára fresti en efna- hagslega valdið er til langs tíma. Davíð kemur og Davíð fer en Jón Ásgeir, kemur hann ekki bara? Og enn: „Gjá milli þings og þjóð- ar“. Stefán Jónsson alþingismaður skrifaði einhvers staðar að Íslend- ingar hefðu tilhneigingu til að trúa öllu sem félli í stuðla og þeim mun frekar ef það rímaði í þokkabót, sem þetta „slagorð“ gerir reyndar ekki. Þetta skrifaði hann að vísu af allt annars konar tilefni en það er önn- ur saga. Um „málskotsrétt“ Snæbjörn Friðriksson skrifar um stjórnarskrána og forsetann Snæbjörn Friðriksson ’Vilja mennmeina að atbeini forseta að lög- gjafarvaldinu sé annar en að framkvæmda- valdinu?‘ Höfundur er eðlis- og stærðfræðingur. STAKSTEINAHÖFUNDUR Morgunblaðsins telur í pistli í gær að Alþingi hafi rætt fjölmiðla- frumvarpið „svo rækilega, að sennilega er einungis eitt dæmi á síðari tímum um að mál hafi verið meira rætt.“ Allar athugasemdir um óeðlilegan hraða og þar af leið- andi ónógan undirbúning komi lögfræði ekkert við – þær séu „pólitík.“ Allir þeir, sem kvaddir voru til umsagnar um frumvarpið og ég hef haft spurnir af, kvörtuðu yfir ónógum tíma til að athuga málið – sjálfur fékk ég tæplega tvo daga til að gefa umsögn – og ýmsir sem leitað var til treystu sér ekki til að sinna slíkum erindum á þessum skamma tíma. Sá þáttur sem lýtur að löggjöf Efnahagssvæðis Evr- ópu var til dæmis mjög lítið kann- aður. Engu máli skiptir hversu lengi umræður standa á Alþingi og hversu „rækilegar“ þær eru ef á skortir um öflun upplýsinga og annan undirbúning. Við það veik- ist staða þingsins innan stjórn- skipunarinnar. Um stöðu þess er fjallað í stjórnskipunarrétti sem er ein grein lögfræðinnar. Þetta er kjarni málsins. Umræður og upplýsingar Höfundur er fyrrverandi prófessor. Sigurður Líndal Á MÁNUDAGINN kemur verður haldinn hátíðlegur Alþjóða blóðgjafadagurinn til þess að þakka blóð- gjöfum fyrir þeirra framlag til heilbrigð- isþjónustu í heim- inum. Alþjóða blóð- gjafadagurinn (World Blood Donor Day) verður haldinn hátíð- legur 14. júní næst komandi. Að því verk- efni koma Alþjóða heilbrigðisstofnunin (WHO), Alþjóða Rauði krossinn. Al- þjóðasamtök blóð- gjafafélaga og al- þjóðasamtök blóðgjafar (Int- ernational Society of Blood Transfusion). Að baki greindra samtaka eru 192 að- ildarríki Alþjóða heilbrigðisstofn- unarinnar, 181 landssamtök Rauða krossins, 50 landssamtök blóðgjafa- félaga og þúsundir sérfræðinga um blóðgjafir. Alþjóðasamtök knattspyrnu- félaga, FIFA, munu styðja fram- takið, auk margra annarra, eins og Rótarýklúbba og Lionsklúbba víða um heim og heilbrigðisyfirvöld á hverjum stað. Blóðgjafafélag Íslands og Blóð- bankinn munu leggja sitt af mörk- um og verður opið hús í Blóðbank- anum við Barónsstíg í Reykjavík mánudaginn 14. júní þar sem gest- um verður boðið upp á veitingar og pylsur verða grillaðar. Fólki gefst kostur á að kynna sér starfsemi Blóðbankans, Blóðbankabílsins og Blóðgjafafélags Ís- lands. Í tilefni af Alþjóða blóðgjafadeginum verður blóðsöfnunarbíll Blóðbankans stað- settur í Efstaleiti í dag, 11. júní, á starfs- mannahátíð Rík- isútvarpsins, Rauða krossins, Logos lög- mannaþjónustunnar og heilsugæslunnar í Efstaleiti. Minnt er á mik- ilvægi þess að heilbrigt fólk á aldrinum 18 til 65 ára gefi blóð. Sér- staklega er því fagnað að ungum konum í hópi blóðgjafa fjölgar stöðugt og voru nærri helmingur nýrra blóð- gjafa í fyrra. Blóðgjafir eru stór þáttur í heilbrigðiskerfinu, sem ekki má gleymast. Með því að halda daginn hátíðlegan er verið að þakka þeim 9 þúsund virku blóð- gjöfum sem leggja sitt af mörkum á Íslandi, með nærri 14 þúsund blóðgjöfum ári, fyrir sitt framlag. Til hamingju með blóðgjafadag- inn íslenzkir blóðgjafar og þakkir fyrir ómetanlegt framlag. Alþjóða blóðgjafa- dagurinn 14. júní 2004 Ólafur Helgi Kjartansson skrifar um blóðgjafir Ólafur Helgi Kjartansson ’Minnt er ámikilvægi þess að heilbrigt fólk á aldrinum 18 til 65 ára gefi blóð.‘ Höfundur er formaður Blóðgjafafélags Íslands og sýslumaður á Selfossi.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.