Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 32
32 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ Hallgrímur B. Geirsson. Styrmir Gunnarsson. Framkvæmdastjóri: Ritstjóri: STOFNAÐ 1913 Útgefandi: Árvakur hf., Reykjavík. Aðstoðarritstjórar: Karl Blöndal, Ólafur Þ. Stephensen. Fréttaritstjóri: Björn Vignir Sigurpálsson. JÓNATAN Þórmundsson, pró- fessor í refsirétti, sagði í útvarps- viðtali að viljandi eða óviljandi ætl- uðu stjórnmálamenn líklega að „ræna“ lýðræðislegum rétti af landsmönnum. Tilefnið var, að at- hygli hafði verið vakin á því, að við atkvæða- greiðslu Reykvíkinga um framtíð flugvall- arins var ákveðið að krefjast 75% kosn- ingaþátttöku til að nið- urstaða yrði bindandi. Þegar fundið er að þessum óvarlegu orð- um prófessorsins, skrif- ar hann grein í Morg- unblaðið, og segir tilgangi sínum kannski náð, af því að mönnum virðist eitthvað hafa „sviðið“ undan ummælum hans! Tilgangurinn helgar með öðrum orðum meðalið, þegar prófessorinn nýtir sér hinn stjórnarskrárvarða rétt til málfrelsis. Stjórnarskráin ver menn á hinn bóginn ekki fyrir gagnrýni á sjónarmið þeirra, jafn- vel þótt þeir séu prófessorar. Stærðfræðingar velta fyrir sér vegna umræðna um 75% regluna, hvers vegna ekki eigi bara að miða við 100% og telja sig þar með skjóta regluna í kaf með pott- þéttum rökum. Hvers vegna tóku þeir ekki þennan stóra slag, þegar reglunni var hrundið í framkvæmd með flugvall- arkosningunni? 75%-reglusmið- urinn sjálfur, Ingi- björg Sólrún Gísladóttir, vill eins og jafnan sverja af sér eigin ákvarðanir. Flumbrugangur hennar er svo mik- ill, að hún les ekki einu sinni eigin til- lögur og grein- argerðir. Hún seg- ir í leiðréttingu við Morgunblaðsgrein sína um málið, að vegna brigðuls minnis hafi hún byggt á vitlausum gögnum frá skjalasafni Ráðhússins. Í Reykjavík hefur verið sett regla um lágmarksþátttöku í al- mennri atkvæðagreiðslu. Þeirri ákvörðun hefur ekki verið and- mælt. Ákvæði um lágmarksþátt- töku hefur um árabil verið í sam- þykktum um stjórn Reykjavíkurborgar og með vís til þess var gerð krafa um þáttt ¾ kjósenda í flugvallarkosning unum í mars 2001. Í ágúst 2001 ákvæðinu um lágmarksþátttök hins vegar breytt í samþykktu um stjórn Reykjavíkurborgar nú er þar gerð krafa um þátttö 2⁄3 kjósenda samkvæmt 38. grei samþykktanna, sem fjallar um borgarafundi og almenna at- kvæðagreiðslu. Í athugasemd v greinina segir: „Sbr. 104. gr. sveitarstjórn- arlaga og 19. gr. eldri samþykk Lagt er til að ákvæði 19. gr. um (svo!) gildandi samþykkt um b andi atkvæðagreiðslu haldi gild sínu þar sem segir að atkvæða greiðsla geti verið skuldbindan að vissum skilyrðum fullnægðu Gert er ráð fyrir að atkvæða- greiðsla sé bundin ef kosn- ingaþáttakan nær 2⁄3 í stað 3⁄4 áð Algeng þátttaka í borgarstjórn arkosningum er um 85% og þy tæpast raunhæft að þátttaka í kosningum um einstök málefni geti náð 75%. Því er lagt til að markið verði settt við 2⁄3.“ Í 5. og 6. mgr. 104. grein sve Þátttökukrafa Reykj Björn Bjarnason Eftir Björn Bjarnason HOLDAFAR OG LÍFSSTÍLL Samkvæmt rannsókn á holdafariog líkamsrækt höfuðborgarbúasem sagt var frá í Morgun- blaðinu í gær, stundar fjórði hver karlmaður og fimmta hver kona á höf- uðborgarsvæðinu enga reglulega lík- amsþjálfun. Jafnframt kemur fram að ríflega helmingur fullorðinna íbúa höfuðborgarsvæðisins er of feitur. Í niðurstöðum skýrslunnar sem birtist í nýjasta tölublaði Læknablaðsins, er því haldið fram að fleiri Íslendingar lifi „kyrrsetulífi en flestar grannþjóð- ir okkar“, og að „setja [þurfi] fram raunhæf markmið til að auka almenna ástundun þjálfunar meðal þjóðarinn- ar“. Þetta eru orð að sönnu og brýnt að bregðast við þeim sem fyrst. En orð Sigríðar Láru Guðmundsdóttur, íþróttafræðings og eins aðstandenda rannsóknarinnar, um samspil annarra þátta vekja einnig athygli í þessu sambandi. Hún segir þá sem að rann- sókninni standa hafa „ leitt að því lík- ur að vinnutími, veðurfar og mataræði hérlendis sé orsakavaldurinn“. Vafa- laust hefur veðurfar hér á landi nei- kvæð áhrif varðandi útivist og hreyf- ingu í daglegu lífi fólks, auk þess sem flestir eru mjög háðir bifreiðum sín- um. En þar að auki er staðreyndin sú að það er ekki nóg með að Íslendingar séu orðnir kyrrsetuþjóð heldur vinna flestir Íslendingar ákaflega langan vinnudag og eiga því erfitt með að finna sér tíma til að stunda líkams- rækt. Sami tímaskortur leiðir til þess að fólk leggur minni áherslu en ella á að hafa sjálft til mat úr hollum hráefn- um og grípur frekar til neyslu tilbú- inna eða mikið unninna rétta, eða hreinlega skyndibita. Ekki bætir úr skák að flest grænmeti annað en það allra algengasta er dýrt á Íslandi og lítil hefð fyrir neyslu þess. Sumir hafa hreinlega ekki efni á því að láta sig áróður um aukna neyslu grænmetis einhverju varða. Því má heldur ekki gleyma að á Íslandi taka bæði kynin að öllu jöfnu þátt í atvinnulífinu og vegna þess að hér er engin hefð fyrir því að fólk kaupi sér aðstoð við umönnun heimila sinna og þjónustu við fjölskyldurnar eru tómstundir vinnandi fólks færri en víða í ná- grannalöndunum. Hraðar breytingar á lífsstíl þjóðar- innar hafa m.ö.o. orðið til þess að heilsu fólks er stefnt í voða vegna kyrrsetu. En til þess að framfara megi vænta á þessu sviði er nauðsyn- legt að horfa heildstætt á myndina og setja holdafar fólks í samhengi við þær skorður sem því eru settar af nú- tímalifnaðarháttum. Vinna þarf að því að móta raunhæfar leiðir sem eru venjulegu fólki færar hvað breytingu á lífsstíl varðar, en sú vinna verður að vera í samhengi við þær aðstæður – til að mynda á vinnumarkaði – er flestir þurfa að kljást við í daglegu lífi sínu. UPPFRÆÐSLA EYKUR ÖRYGGI Bifhjólasamtök lýðveldisins,Sniglarnir, vilja efla umferðar- öryggi með öflugu forvarnarátaki. Í Morgunblaðinu í gær vísar Pétur Ásgeirsson, talsmaður þeirra, til tveggja banaslysa með stuttu milli- bili og augljóst er af ummælum hans að mikill vilji er meðal samtakanna til að stuðla að þeirri uppfræðslu sem nauðsynleg er til að fækka slys- um á ökumönnum mótorhjóla í um- ferðinni. Ágúst Mogensen, framkvæmda- stjóri Rannsóknarnefndar umferðar- slysa, tekur í samtali við Morgun- blaðið undir þessar áhyggjur Sniglanna. Hann segir m.a. að „öku- menn [gæti] sín ekki nógu vel á bif- hjólum og [eigi] það til að keyra í veg fyrir bifhjólamenn. Bifhjólin eru minni en bílarnir og fólk virðist mis- reikna sig við það að meta hröðunina og hraðann á bifhjólunum“. Jafn- framt segir hann að bifhjólafólk gleymist stundum þegar unnið er að hönnun umferðarmannvirkja. Undan því hafa hjólreiðamenn reyndar einnig kvartað og svo virðist sem full ástæða sé til þess að bæta um- ferðarmenninguna hér á landi með markvissri uppfræðslu til að auka umferðaröryggi þeirra sem nota önnur farartæki en bifreiðar. Í öllu falli er ljóst að allt forvarnarstarf og aukin uppfræðsla eykur öryggi okk- ar allra í umferðinni, sama hvernig við ferðumst, og því er full ástæða til að ljá röddum Sniglanna eyra. EINMUNA blíða var á landinu í gær og fyrradag og er áfram gert ráð fyrir hægri breytilegri átt eða hafgolu og víða léttskýjuðu í dag og 10-18 stiga hita, samkvæmt spá Veðurstofunnar. Á morgun þykknar upp og fer að rigna, fyrst suðvestanlands. Vestlæg átt og dálítil rigning eða skúrir verða fram eftir næstu viku, en bjart með köflum og fremur hlýtt austanlands. Íslendingar eru vanalega þakklátir góða veðrinu og allir sem vettlingi geta valdið skella sér í sund eða í ísferð. Sumir koma sér fyrir á skjólsælum stað og freista þess að fá smá lit eftir veturinn en aðr- ir nota tækifærið til útivista. Dýrin eru eflaust frelsinu fegin og njóta ilsins frá sólinni og þau sem lyst hafa japla á fersku grasi. Á Flúðum hefur verið sérlega hlýtt í veðri enda skjólsælt inn til landsins. Að sögn Karls H. Cooper, framkvæmdastjóra Ferðamiðstöðvarinnar á Flúðum, er orðið algengt að fjölskyldur setji upp tjald- vagna eða hjólhýsi á tjaldstæðinu í byrjun sumars og nýti svo aðstöðuna yfir sumarið líkt og um sum- arbústað sé að ræða. Þá er alla jafna mikið um erlenda ferðamenn en þeir eru víst fyrr á ferðinni á vorin en Íslendingar og staldra yfirleitt lengur við. Morgunblaðið/Skapti HallgrímssFerðamenn nutu veðurblíðunnar í Lystigarðinum á Akureyri. Morgunblaðið/RAXÞessar stúlkur nutu blíðunnar og fengu sér ís á Hvolsvelli. Gs Áfram léttskýjað í dag STUTT Í FORSETAKOSNINGAR Nú eru liðlega tvær vikur til for-setakosninga. Fram að þessu hefur lítið borið á umræðum um embætti forseta Íslands í aðdrag- anda kosninga. Frambjóðendur hafa sig lítt í frammi, a.m.k. sumir hverj- ir. Á þessu þarf að verða breyting á næstu tveimur vikum. Þjóðin á rétt- mæta kröfu á því, að frambjóðend- urnir þrír geri grein fyrir viðhorfum sínum til forsetaembættisins; hver þeir telji að stjórnskipuleg staða þess sé og eigi að vera og hvernig hver þeirra um sig hugsar sér að halda á málum næstu fjögur árin verði þeir kjörnir til þessa embættis. Eðlilegt er að slíkar umræður fari fram, ekki sízt í ljósi þeirra miklu umræðna um forsetaembættið, sem orðið hafa í kjölfar þeirrar ákvörð- unar núverandi forseta Íslands að beita 26. gr. stjórnarskrárinnar vegna fjölmiðlalaganna. Þegar forseti gaf þá yfirlýsingu gaf hann jafnframt til kynna, að hann væri tilbúinn að ræða efni hennar við blaðamenn eða á opinber- um vettvangi síðar. Þær umræður þurfa að fara fram af hans hálfu vel fyrir kosningar en þær myndu jafn- framt auðvelda meðframbjóðendum forsetans tveimur þátttöku í þessum umræðum.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.