Morgunblaðið - 11.06.2004, Side 4
FRÉTTIR
4 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ÞRJÁR stúlkur frá Suðureyri og
kennari þeirra, sem skipa Blokk-
flautukvartett Suðureyrar, voru
valin ein af fimm bestu flytjend-
unum á alþjóðlegri tónlistarhátíð
sem helguð er tónlist fyrri alda í
Malbork í Póllandi. Kvartettinn
skipa þær Adda Bjarnadóttir,
Anna Sigurðardóttir og Kristjana
Margrét Gísladóttir auk stjórnand-
ans Lechs Szyszko.
Ellefu misstórir hópar frá ýms-
um löndum tóku þátt í hátíðinni.
Kvartettinn lék lög frá end-
urreisnartímanum og barrokksvítu
eftir Henry Purcell og hlaut
myndbandsupptökuvél í verðlaun.
Tilkynnt var um úrslitin á gala-
tónleikum að viðstöddum um 500
manns m.a. fjölda áhrifa- og ráða-
manna. Þar lék blokkflautukvart-
ettinn aftur ásamt fleiri þátttak-
endum. Kvartettinn hefur vakið
áhuga fjölmiðla ytra og verið
skrifað um hann í blöðum og einn-
ig var tekið sjónvarpsviðtal við
þau. Þá hefur kvartettinn leikið
fyrir pólsk-íslenska vináttufélagið
í Varsjá.
„Þetta hefur verið alveg frá-
bært og gengið rosalega vel. Við
erum búnar að ferðast mikið og
spila úti um allt. Okkur langar að
fara aftur út á næsta ári og heim-
sækja fleiri staði og spila,“ segir
Kristjana.
Unnu til verðlauna í Póllandi
Ljósmynd/BB
Adda, Anna og Kristjana ásamt kennara sínum, Leslaw Szyszko.
en talið að um fitu eða annars konar
lífrænan úrgang hafi verið að ræða.
Tómas segir úrganginn hafa
komið út úr skólprásum úr Hamra-
og Hálsahverfi í Grafarvogi, sem
ekki verða tengdar við skólpdælu-
stöð fyrr en síðar á þessu ári. Hol-
ALLSTÓR mengunarflekkur sást í
Grafarvogi við Gullinbrú í gær. Að
sögn Tómasar Gíslasonar, heilbrigð-
isfulltrúa hjá Umhverfis- og heil-
brigðisstofu Reykjavíkurborgar, er
ekki vitað nákvæmlega hvað var á
ferðinni, eða hvaðan mengunin kom,
ræsadeild borgarinnar og starfs-
menn Umhverfis- og
heilbrigðisstofu fóru á vettvang í
gær, opnuðu brunna og fóru í fyr-
irtæki í kringum Hálsahverfið til að
reyna að finna upptök mengunar-
innar en án árangurs.
Hvítan flekk lagði yfir Grafarvog við Gullinbrú í gær og vakti mikla athygli vegfarenda.
Mengunarflekkur í Grafarvogi
Morgunblaðið/Jim Smart
HÉRAÐSDÓMUR Reykjavík-
ur dæmdi í gær 25 ára mann í 18
mánaða fangelsi fyrir fjölmarga
þjófnaði og tilraunir til þjófnað-
ar í fyrra og á þessu ári. M.a. var
ákærði sakfelldur fyrir vopnað
rán í 10–11 verslun í Arnar-
bakka og hafa á brott með sér 28
þúsund krónur. Þá játaði hann
innbrot í bíla en hann sagðist oft
hafa stolið úr bílum til að fjár-
magna fíkniefnaneyslu sína.
Ákærði á að baki nokkurn
sakaferil en frá árinu 1997 hefur
hann hlotið dóma fyrir m.a. stór-
fellda líkamsárás og fíkniefna-
brot. Með brotum sínum nú rauf
hann skilorð 10 mánaða fangels-
isdómi frá í desember, þar af 7 á
skilorði og var sá hluti dómsins
dæmdur upp og ákærða gerð
refsing í einu lagi. Tekið var tillit
til játninga ákærða á mörgum
brotanna og þess að hann hefði
ekki valdið miklu fjárhagslegu
tjóni með þeim.
Guðjón St. Marteinsson hér-
aðsdómari dæmdi málið. Verj-
andi ákærða var Hilmar Ingi-
mundarson hrl. og sækjandi
Dagmar Arnardóttir, fulltrúi
lögreglustjórans í Reykjavík
18 mánaða
fangelsi
fyrir rán og
þjófnaði
DAVÍÐ Oddsson forsætisráðherra
og Ástríður Thorarensen, eig-
inkona hans, verða viðstödd útför
Ronalds Reagans, fyrrverandi for-
seta Bandaríkjanna, í Washington í
dag, föstudaginn 11. júní.
Í frétt frá forsætisráðuneytinu
kemur fram að forsætisráðherra
hefur sent frú Nancy Reagan sam-
úðarkveðju.
Útförin fer fram í dómkirkjunni í
Washington og margir af helstu
þjóðhöfðingjum heims verða við-
staddir útförina. Þar á meðal verð-
ur George W. Bush, forseti Banda-
ríkjanna.
Reagan verður jarðsettur í garði
Reaganbókasafnsins í Simi-dal í
Kaliforníu en hann var 93 ára þeg-
ar hann dó.
Forsætisráðherra
verður við útför Reagans
FJÓRIR aðilar hafa lýst áhuga á
þátttöku í forvali vegna byggingar
tónlistar- og ráðstefnuhúss á hafn-
arbakkanum í Reykjavík, en umslög
með nöfnum þeirra voru opnuð í
gær. Þessir aðilar eru: Eignarhalds-
félagið Fasteign hf.; Portus Group:
Landsafl hf., Nýsir hf. og Íslenskir
aðalverktakar; Multiplex Group og
Poster Partners og Sparisjóðabanki
Íslands, Festing ehf., Eykt ehf. og
Höfðaborg ehf.
Verkefnið snýst um hönnun svæð-
isins og húsanna en í forvalsgögnum
er ekki kveðið á um að útlitið skuli
endilega vera í samræmi við verð-
launatillögu hugmyndasamkeppni
sem haldin var fyrir þremur árum.
Rekstur húsanna verður í einka-
framkvæmd en það verða ríkið og
Reykjavíkurborg sem standa undir
byggingarkostnaði.
Fjórir vilja
hanna tónlist-
ar- og ráð-
stefnuhús
LÖGREGLAN í Kópavogi upplýsti
fíkniefnamál á miðvikudagskvöld
þegar karlmaður var handtekinn
með talsvert magn af amfetamíni. Í
framhaldinu var gerð húsleit heima
hjá honum og fannst þá meira magn
af fíkniefninu. Honum hefur verið
sleppt úr haldi en málið verður rann-
sakað áfram og sent ákæruvaldi til
frekari meðferðar.
Tekinn með
amfetamín
KOMIÐ hefur í ljós að svonefnd
noro-veirusýking kom nýlega upp á
Húsafelli í Borgarfirði en ekki er vit-
að nánar um upptök sýkingarinnar.
Noro-veiran er bráðsmitandi og
smitast milli manna með saurmeng-
uðum neysluvörum og vatni, segir í
sameiginlegri yfirlýsingu frá sótt-
varnalækni landlæknisembættisins
og Heilbrigðiseftirliti Vesturlands.
Noro-veiran greindist í fólki sem
hafði dvalið í Húsafelli.
„Veiran veldur yfirleitt bráðum
einkennum með kviðverkjum, upp-
köstum, niðurgangi og hita. Ein-
kennin koma yfirleitt fram um 1–2
sólarhringum eftir að einstaklingar
smitast og vara þau yfirleitt í 1–2 sól-
arhringa. Fullfrískt fólk nær sér yf-
irleitt að fullu eftir veikindin en las-
burða einstaklingar og einstaklingar
með skert ónæmiskerfi geta verið
lengur að ná sér,“ segir í yfirlýsing-
unni. Mikilvægt er að einstaklingar
sem sýkjast af veirunni hafi hægt um
sig og drekki mikið af vatni eða öðr-
um vökva þar til sýkingin hefur
gengið yfir.
Noro-veira hefur stungið sér niður
víða um land á undanförnum árum,
meðal annars á Húsafelli í fyrrasum-
ar og á dvalarheimilum á suðvest-
urhorni landsins. Ekki er vitað um
upptök veirusýkingarinnar á Húsa-
felli en kannaðir verða allir mögu-
leikar.
Óljós upptök
veirusýkingar
♦♦♦
♦♦♦
ÓTTAR Felix Hauksson hjá útgáfu-
fyrirtækinu Sonet hefur samið um
sölu og dreifingu á tónlist ítalska
söngvarans Robertinos Loreti á
Norðurlöndunum. Samið var til
þriggja ára við EMI í Noregi og Sví-
þjóð, CMC í Danmörku, sem er dótt-
urfélag EMI, og Magnum Music í
Finnlandi. Góðar líkur eru á að sömu
aðilar geri svipaðan samning við Son-
et í haust vegna nýjustu plötu ís-
lenska tríósins Guitar Islancio.
Óttar Felix segir plötu með Ro-
bertino koma út á Norðurlöndunum í
haust. Stór og merkur áfangi hafi
náðst, bæði fyrir Sonet og einnig fyrir
íslenska tónlistarmenn vegna tengsla
við þetta markaðssvæði. Á síðustu ár-
um hafi lítið verið um útrás íslenskra
tónlistarmanna á Norðurlöndum, eða
síðan á árum Mezzoforte hjá Steinari
Berg, þáverandi hljómplötuútgef-
anda.
Óttar Felix segir að mjög vel verði
að útgáfu á söngvum Robertinos
staðið. Norðurlandabúar muni vel
eftir honum, einkum þeir af eldri kyn-
slóðinni. Hér á landi seldist platan
með Robertino í um átta þúsund ein-
tökum um síðustu jól. Að sögn Óttars
er ekki fjarri lagi að áætla að 70 til
100 þúsund eintök seljist á Norður-
landamarkaðnum. Vonast hann til að
söngvarinn ítalski geri sér ferð til Ís-
lands og annarra Norðurlanda næsta
vetur. Robertino hafi nýlokið við að
syngja í hljóðveri 40 lög með 120
manna hljómsveit og 200 manna kór.
Nýjar plötur að koma út
Í nógu er að snúast hjá Sonet þessa
dagana. Að sögn Óttars er í næstu
viku von á safnplötunni Sólargeislum
með íslenskum flytjendum, m.a.
Hljómum, Mannakorni og unga
söngvaranum Friðriki Ómari. Þá er
um næstu mánaðamót að koma út ný
plata með Mannakorni, sú fyrsta í ein
tíu ár með Magnúsi Eiríkssyni,
Pálma Gunnarssyni, Ellen Kristjáns-
dóttur og fleiri flytjendum.
Semur um
dreifingu á
Norður-
löndum