Morgunblaðið - 11.06.2004, Síða 8
FRÉTTIR
8 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Við erum komnir til að ganga frá starfslokasamningnum.
Landnámsdagur í Skeiða- og Gnúpverjahreppi
Á þjóðlegum
nótum
Á morgun verðurhaldinn hátíðlegur ífyrsta sinn svokall-
aður Landnámsdagur í
Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi. Að sögn Ingunnar
Guðmundsdóttur, sveitar-
stjóra Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps, verður boðið
upp á fjölbreytta skemmti-
dagskrá fyrir alla fjölskyld-
una í tilefni dagsins þar
sem þjóðlegt yfirbragð
verður í fyrirrúmi. Hún
segir jafnframt hluta af
Skeiða- og Gnúpverja-
hreppi vel varðveitt leynd-
armál sem heimamenn
hyggjast opinbera almenn-
ingi
– Hvað er Landnámsdag-
urinn?
Landnámsdagurinn er
hátíð sem við höldum til að
vekja athygli á mannlífi, sögu og
náttúru Skeiða- og Gnúpverja-
hrepps. Hátíðarhöldin tengjast al-
þjóðlegu verkefni, Destination Vik-
ing Sagaland sem hreppurinn er
aðili að. Dagurinn verður nokkuð
frábrugðinn öðrum slíkum viðburða-
dögum þar sem dagskráin verður á
þjóðlegum nótum. Reikna má með
að einhverjir af heimamönnum verði
í víkingaklæðum á landnámsdaginn
því meðal þess sem gert var í að-
dragandanum var að kynna klæða-
gerð víkinga.
– Hvaða verkefni er Destination
Viking Sagaland?
Skeiða- og Gnúpverjahreppur er
aðili að alþjóðlegu verkefni sem
gengur undir þessu heiti og er
styrkt af Evrópusambandinu. Aðilar
að verkefninu eru 18 frá 8 löndum
og sameina þeir krafta sína við að
móta hugmyndir sem nýta má við
menningartengda ferðaþjónustu.
Meginviðfangsefnið er menning og
saga víkinganna og áhersla lögð á
að tengja söguna við landið og miðla
henni. Svo skemmtilega vill til að
árið 2000 komu nokkrir Norðmenn í
heimsókn til Ólafsvalla á Skeiðum í
þeim erindagjörðum að leita uppi
landnám víkings sem talinn er hafa
siglt frá þeirra heimaslóð, Borg í
Lofot. Sú heimsókn hefur leitt af
sér vináttusamning Skeiða- og
Gnúpverjahrepps við sveitarfélag í
Lofot sem verður undirritaður af
oddvita okkar Aðalsteini Guðmunds-
syni nú um Jónsmessuna en auk
hans mun hópur sveitunga heim-
sækja uppeldisstöðvar Ólafs tvenn-
umbrúna en svo hét landnámsmað-
urinn. Á Borg í Lofot eru miklar
minjar frá söguöld og stórkostlegt
sýningarsvæði því tengt, Víkinga-
safnið að Borg er einmitt aðili að
verkefninu Destination Viking Saga-
land.
– Hverjar eru aðaláherslurnar í
hátíðardagskránni?
Aðaláherslan er á útivist, menn-
ingu og sögu. Nautgriparæktarfélag
Gnúpverja er 100 ára um þessar
mundir og verður af því tilefni opið
hús í fjósinu í Þrándarholti sem er
þannig útbúið að kýrnar ákveða
sjálfar hvenær þær eru
mjólkaðar. Til sýnis
verða minnsta og
stærsta kýrin, fallegir
kálfar til að klappa og í
boði verður að smakka
ískalda mjólk jafnt sem
spenvolga. Fornleifa-
vernd ríkisins verður
með opið hús og leiðsögn í bænum
Stöng sem er minjar um byggð á
söguöld. Í Gjánni, þeirri einstöku
náttúruperlu, syngja félagar úr
Karlakór Hreppamanna og Vörðu-
vinafélagið mun kenna gestum
vörðuhleðslu. Þá verður í boði létt
skógarganga sem hentar ungum
sem öldnum í Þjórsárdal og einn-
ig gönguferð undir leiðsögn Sig-
þrúðar Jónsdóttur náttúrufræð-
ings frá Gjánni á Skeljafell og að
Þjóðveldisbæ. Við Þjóðveldisbæ-
inn verður sýnd glíma, Skugga-
Sveinn mun eiga orð við gesti og
sr. Axel Árnason mun hafa stutt-
ar helgistundir í kirkjunni við
þjóðveldisbæinn. Í félagsheim-
ilinu Árnesi verða til sýnis ný-
gerð kort með örnefnum í Gnúp-
verjahreppi og einnig
vinnslutillögur að aðalskipulagi
fyrir Skeiða- og Gnúpverjahrepp.
Þorgrímur Gestsson rithöfundur
mun segja frá bók sinni Ferð um
fornar sögur. Noregsferð í fót-
spor Snorra Sturlusonar. Um
kvöldið verður svo dansleikur í
Árnesi með hljómsveitinni
Karma. Landsvirkjun verður
með opið hús í Hrauneyjum og
Sultartanga en í Sultartangastöð
verður boðið uppá sýninguna
Andlit Þjórsdæla – mannlíf fyrr
og nú.
Hér má finna náttúruperlur
eins og Háafoss, Hjálparfoss og
Gjána svo ekki sé nú minnst á
Þjórsárdalinn. Margir heima-
manna hafa sýnt áhuga á að gera
daginn eftirminnilegan. Þannig
verður opið hús í fjallaskálanum
Hólaskógi og opið í Kertasmiðj-
unni í Brautarholti. Verslunin
Árborg í Árnesi verður með
landnámstilboð, Hótel Hekla hef-
ur á boðstólum þríréttaðan land-
námskvöldverð. Þrjár sundlaugar
eru í hreppnum og þær verða all-
ar opnar og til að ögra öllum
þjóðlegheitunum verðurð Nýi
pizzavagninn á ferð-
inni. Tilgangurinn með
hátíðahöldunum er
fyrst og fremst að laða
til okkar gesti.
– Hverjum eru há-
tíðahöldin ætluð?
Við vonum að bæði
heimamenn og gestir
muni njóta dagsins með okkur.
Allir aldurshópar ættu að finna
eitthvað við sitt hæfi og tilvalið
að fara í bíltúr út úr bænum og
velja svo það sem hentar hverj-
um og einum. Miðað við útlitið í
dag þá getum við lofað góðu
veðri.
Ingunn Guðmundsdóttir
Ingunn Guðmundsdóttir er
sveitarstjóri Skeiða- og Gnúp-
verjahrepps. Ingunn Guð-
mundsdóttir er fædd árið 1957
á Selfossi og uppalin þar. Hún
er með verslunarpróf úr gagn-
fræðaskólanum á Selfossi og
próf frá Endurmenntunar-
stofnun Háskóla Íslands í op-
inberri stjórnsýslu og stjórnun.
Vel varðveitt
leyndarmál
sem heima-
menn hyggj-
ast opinbera
almenningi