Morgunblaðið - 11.06.2004, Blaðsíða 20
Morgunblaðið/Kári Jónsson
Guðmundur Sæmundsson sýnir Gunn-
laugi Ástgeirssyni og Þrúði Haralds-
dóttur bókina Heimskringlu.
Laugarvatn | Stofa íslenskra fræða var
formlega opnuð við Menntaskólann á
Laugarvatni, í tilefni af útskrift frá skól-
anum. Hún var sett á laggarnir á grund-
velli gjafar sem skólanum barst frá afmæl-
isárgöngum við skólann vorið 2003.
Stofan er einkum tileinkuð íslensku-
fræðingunum Ólafi Briem, Haraldi Matt-
híassyni, Jóhanni S. Hannessyni og Kristni
Kristmundssyni sem allir hafa starfað við
skólann. Stofan er nú til húsa í herbergjum
númer 114 og 116 á „gömlu vistinni“ en til
stendur að flytja þangað ýmsar þeirra ger-
sema sem eru á bókasafninu í Héraðs-
skólahúsinu. Guðmundur Sæmundsson er
forstöðumaður stofunnar.
Skólanum bárust veglegar peningagjafir
frá júbilöntum til Stofu íslenskra fræða.
Einn fyrrverandi nemandi, Grétar Ólafs-
son, stúdent 1959, gaf skólanum síðan pen-
ingagjöf sem verður stofnframlag í sjóð til
styrktar efnilegum nemendum sem braut-
skrást frá skólanum.
Stofa ís-
lenskra fræða
opnuð í ML
Höfuðborgin | Akureyri | Suðurnes | Austurland | Landið
Minnstaður
Höfuðborgarsvæðið Svavar Knútur Kristinsson, svavar@mbl.is, sími 569-1100.
Suðurnes Helgi Bjarnason, helgi@mbl.is, sími 569-1310 og 669-1310. Akureyri Skapti
Hallgrímsson, skapti@mbl.is, Margrét Þóra Þórsdóttir, maggath@mbl.is og Kristján
Kristjánson, krkr@mbl.is, sími 461-1600. Vesturland Ásdís Haraldsdóttir, asdish@mbl.is,
sími 898-5258. Austurland Steinunn Ásmundsdóttir, austurland@mbl.is, sími 669-1115.
Árborgarsvæðið og Landið Guðrún Aðalsteinsdóttir, frett@mbl.is, sími 569-1290.
Mínstund frett@mbl.is
Eyjamenn á menningarnótt | Bæjarráð
Vestmannaeyja hefur ákveðið að þiggja með
þökkum rausnarlegt boð borgarstjórans í
Reykjavík um að Vestmannaeyingar taki
þátt í menningarnótt í Reykjavík og annist
dagskrá í Ráðhúsi Reykjavíkur 21. ágúst
næstkomandi. Bæjarráð fól bæjarstjóra í
samráði við framkvæmdastjóra fræðslu- og
menningarsviðs og markaðsfulltrúa Nýsköp-
unarstofu að annast undirbúning málsins.
Úr
bæjarlífinu
HÉÐAN OG ÞAÐAN
Krefjast rannsóknar | Sveitarstjórn
Raufarhafnarhrepps lýsir í samþykkt yfir
hneykslan sinni á því að
teikningar á fram-
kvæmdum við Heilsu-
gæslustöð Raufarhafnar
skuli enn ekki vera til-
búnar til útboðs. Vísað er
til þess að á fundi stjórn-
enda Heilbrigðisstofn-
unar Þingeyinga, verk-
taka og sveitarstjórnar
Raufarhafnarhrepps hafi verktaki fullyrt
að allri vinnu vegna útboðsgagna yrði lok-
ið 27. apríl. Þau gögn séu enn ekki tilbúin.
Sveitarstjórn lýsir fullri ábyrgð á mál-
inu á hendur stjórnendum Heilbrigð-
isstofnunar Þingeyinga og sér ekki annað
fært en að fara fram á opinbera rannsókn
á málinu, segir í samþykkt sveitarstjórnar.
Sveitarstjóra var falið að fara fram á
rannsóknina.
Vegur um Svínadal | Byggðaráð Dala-
byggðar hefur samþykkt að skora á sam-
göngunefnd Alþingis að
flýta framkvæmdum við
veg með bundnu slitlagi
um Svínadal. Séð verði til
þess við endurskoðun
vegaáætlunar að vegurinn
verði kominn með bundið
slitlag haustið 2005. Einn-
ig skorar byggðaráðið á
samgöngunefnd Alþingis að taka veg um
Arnkötludal og Gautsdal, yfir í Reykhóla-
sveit, inn á vegáætlun.
Flugið með ólympíu-eldinn um heim-inn gengur sam-
kvæmt áætlun að sögn
Arngríms Jóhannssonar,
flugstjóra og eins eiganda
flugfélagsins Atlanta, sem
er einn áhafnarmeðlima.
Tvær þotur Atlanta af
B747 gerð fljúga með eld-
inn um heiminn.
Ferðin hófst í byrjun
mánaðar í Aþenu. Þaðan
var haldið til Ástralíu,
síðan Japans, Kóreu og
Kína. Eftir viðkomu á
Indlandi liggur leiðin til
Egyptalands, Suður-
Afríku og síðan Suður-
Ameríku og komið verður
við víða í Norður-
Ameríku. Þá verður hald-
ið til Evrópu.
Þrjár áhafnir Atlanta
er í förinni, alls um 60
manns, og segir Arn-
grímur að allt hafi gengið
vel. Ferðinni á að ljúka
10. júlí.
Ólympíu-
eldurinn
Hvolsvöllur | Grunnskóla Austur-Landeyja var slitið í
síðasta sinn með mikilli viðhöfn á dögunum. Skólinn
verður nú lagður niður og nemendur hans, 19 talsins,
munu stunda nám í Hvolsskóla á Hvolsvelli næsta vetur.
Athöfnin hófst með messu í Krosskirkju sem séra Hall-
dór Gunnarsson leiddi, en gamlir og núverandi nem-
endur skólans sáu að öllu leyti um messuhaldið. Þá var
farið í Gunnarshólma þar sem skólinn hefur verið til
húsa. Formaður skólanefndar flutti ávarp, gamlir nem-
endur rifjuðu upp sögu skólans og nemendur sungu
sumarlög og sýndur var afraksturinn af starfi vetrarins.
Skólastjóri útskrifaði nemendur og afhenti hverjum og
einum þeirra blóm í tilefni dagsins. Á samkomuna voru
mættir núverandi og fyrrverandi starfsmenn skólans
auk foreldra, nemenda og annarra gesta.
Ljósmynd/Halldóra Magnúsdóttir
Skólaslit í síðasta sinn
Friðrik Stein-grímsson fréttiþað norður í Mý-
vatnssveit að Davíð Odds-
son hefði sagt að stjórn-
arandstaðan ætti við
hegðunarvanda að stríða.
Seint mun þeim leiðindum
linna
sem landsfeður þurfa að
sinna.
Það sem er verst
og þreytir þá mest,
er hegðunar vandamál hinna.
Jón Ingvar Jónsson orti
sumarljóð þegar hann
kom úr Landmannalaug-
um:
Fyllast lífi holt og hólar,
hlýir vindar strjúka kinn,
undir glöðum geislum sólar
gljáir litli jeppinn minn.
Efalaust eru ýmsir farnir
að leggja drög að æv-
intýrum helgarinnar.
Haraldur Hjálmarsson
frá Kambi orti til ölkærs
vinar:
Hættu að bragða brennivín,
breyttu öðruvísi.
Biddu Guð að gæta þín
og gefa þér þorskalýsi.
Hegðunarvandi
pebl@mbl.is
Grímsey | Einn af vaxtar-
broddum í atvinnulífi Gríms-
eyjar er ný útgerð. Hjónin
Magnús Þór Bjarnason og
Anna María Sigvaldadóttir
stofnuðu nýlega Stertuna.
Báturinn sem er Sómi 800,
fékk nafnið Sædís EA 54. Sæ-
dís er kvótabátur keyptur af
SM kvótaþingi og kvótinn
leigður af sama fyrirtæki.
Magnús Þór hefur verið sjó-
maður í nokkur ár en draum-
urinn um að verða eigin herra
sem hefur alltaf blundað með
honum er nú orðinn að veru-
leika með Sædísi.
Magnús er farinn að róa en
segir veiði á handfærafiski
enn sem komið er dræma.
Anna María hugsar sér að
stokka upp línuna hjá bónda
sínum í framtíðinni og eins
segist hún munu sækja sjóinn
með honum þegar færi gefst.
Á myndinni sjást hjónin
Magnús Þór Bjarnason og
Anna María Sigvaldadóttir á
nýja bátinum, Sædísi EA 54, í
Grímseyjarhöfn.
Morgunblaðið/Helga Mattína
Eigin herra á nýjum bát
Draumur
Siglufjörður | Síldarminjasafnið í Siglu-
firði hefur fengið bátahús til umráða. Þar
eru til húsa gamlir síldarbátar og endur-
gerð höfn og bryggjuhús. Húsið var afhent
nýlega og var það fyrsti liður í 100 ára af-
mælisfagnaði síldarævintýrisins á Íslandi.
Smíði bátahússins hófst í ágúst á liðnu
ári og annaðist það byggingafélagið Berg
ehf. Húsið stendur nyrst á lóð Síldarminja-
safnsins og er rúmir þrjú þúsund fermetr-
ar að gólffleti.
Síldarminjasafn-
ið fær bátahús
♦♦♦