Morgunblaðið - 11.06.2004, Qupperneq 27
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 27
SÝNINGAR tveggja listamanna
verða opnaðar í Listasafni Reykja-
víkur - Hafnarhúsi kl. 20 í kvöld. Um
er að ræða sýningu Þorvaldar Þor-
steinssonar „Ég gerði þetta ekki,“ og
nýja safnsýningu á verkum Errós.
Á sýningu Þorvaldar gefur að líta
blöndu af gömlum og nýjum verkum,
myndbönd, innsetningar og hljóð-
verk sem gerast utan veggja sýning-
arsalanna. Sýningin tekur yfir fimm
sali og hluta af opnu rými Hafnar-
hússins. Meðal verka eru „Ósóttar
pantanir“ sem samanstendur af
pöntunum frá fyrirtækjum sem ekki
hafa verið sóttar. Þarna er líka „Við-
talsveggur“ sem prýddur er lista-
verkum úr eigu Listasafns Reykja-
víkur. Hann er gerður með það í
huga að lífga upp á bakgrunn við-
mælenda í sjónvarpsviðtölum. Fjöl-
miðlafólki er frjálst að nota vegginn
allt sýningartímabilið. Jafnframt er
þarna að finna verkið „Verkaskipti“
sem sýnir hluti sem tengjast
ákveðnum aðilum órjúfanlegum
böndum en hafa verið fengnir að láni
fyrir sýninguna gegn láni listaverks
úr eigu listasafnsins. Á sýningunni
getur einnig að líta hefðbundnari
verk frá ferli Þorvalds; teikningar,
málverk, ljósmyndir, texta-, hljóð-
og veggverk.
Í samstarfi við Icelandair
Í sal á fyrstu hæð hússins hefur
Þorvaldur virkjað eitt af stærstu fyr-
irtækjum þjóðarinnar, Icelandair, til
samstarfs, sem felst í því að upplýsa
gesti um hvaða sýn fyrirtækið hefur
dregið upp af Íslandi á erlendum
vettvangi til að gefa sem eftirsóknar-
verðasta mynd af landi og þjóð og að
hvaða marki sú mynd hefur haft
áhrif á sjálfsmynd okkar sem þjóðar.
Í kaffiteríu Hafnarhússins verður
sýnt myndbandsverk, sem sérstak-
lega var hannað inn í rýmið og í fjöl-
notasalnum verða einnig reglulega á
dagskrá myndbandssýningar og
heimildarmyndir eftir og um lista-
manninn.
Á sunnudag kl. 15 mun Þorvaldur
fara um sýninguna, segja frá ferli
sínum og ræða um verkin. Nánari
upplýsingar um feril og verk Þor-
valds er að finna á síðunni
www.this.is/mypocket.
Sýningin stendur til 8. ágúst.
Sýning Þorvaldar er unnin í sam-
starfi við Konsthallen í Gautaborg.
Sýningarstjóri er Ágústa Kristófers-
dóttir.
Fagurfræði og stjórnmál
Fagurfræði og stjórnmál er yfir-
skrift og þema nýrrar safnsýningar á
verkum Errós. Verkin tilheyra mörg
hver myndaflokkum um stjórnmál
eins og Kínversku málverkin, Póli-
tískar myndir, Bandarískar innrétt-
ingar og Framleitt í Japan. Önnur
verk eins og Ýlfrandi málmur, Mae
West og Tölvum kennnt eru öll úr
myndaflokknum 1002 nætur en sagt
hefur verið að hugmyndin að honum
sé sú að áhorfandinn geti haldið
áfram að búa til nýjar sögur, eins-
konar framhald af arabísku sögun-
um Þúsund og einni nótt. Í verkinu
Desert Storm, eða Eyðimerkurstríð
frá árinu 1991 er efniviðurinn sóttur í
heim myndasögunnar. Viðfangsefnið
er pólítiskt; myndin er gerð sama ár
og Flóabardagi hófst.
Í frétt frá listasafninu segir m.a.:
„Listamaðurinn Erró lætur sér ekk-
ert mannlegt óviðkomandi og er við-
fangsefni verka hans ótrúlega fjöl-
breytt. Hann er mjög afkastamikill
og vinnur yfirleitt verk sín í seríum
eða myndaflokkum. Pólitík og sam-
félagsleg málefni hafa löngum verið
eitt megin viðfangsefni verka hans
ásamt tilvísunum í lista- og menning-
arsöguna. Erró hefur alltaf haft
næmt auga fyrir menningarlegu
samspili og víxlverkun menningar-
tákna. Þessi atriði ásamt staðfastri
samfélagsgagnrýni gera það að
verkum að myndir hans eiga alltaf
erindi við samtímann.“
Sýningarstjóri er Þorbjörg Br.
Gunnarsdóttir.
Við opnun sýninganna í kvöld
verður afhentur styrkur úr Lista-
sjóði Guðmundu S. Kristinsdóttur,
frænku Erró.
Verk eftir Erró á sýningunni í Listasafni Reykjavíkur – Hafnarhúsi. Verk Þorvaldar Þorsteinssonar á sýningunni Ég gerði þetta ekki.
Ég gerði þetta ekki í Hafnarhúsinu
FÍFILBREKKUHÁTÍÐ verð-
ur haldin á Hrauni í Öxnadal á
sunnudag. Hraun er fæðingar-
staður Jónasar
Hallgrímsson-
ar [1807-1845],
fyrsta nútíma-
skálds Íslend-
inga og
fremsta nátt-
úrufræðings
Íslands á 19.
öld. Að hátíð-
inni stendur
félagið Hraun í
Öxnadal ehf. sem keypt hefur
jörðina og hyggst koma þar á
fót fræðasetri og minningar-
stofu um Jónas, kynna verk
hans og störf og vinna með öðr-
um stofnunum og einstakling-
um að því að efla lifandi og
sögulega menningu lands og
þjóðar. Einnig er stefnt að því
að koma á fót fólkvangi í Öxna-
dal sem m.a. nái yfir land
Hrauns í Öxnadal.
Fífilbrekkuhátíðin hefst kl.
13.30 og stendur til sólarlags.
Rakin verður saga jarðarinnar,
sagt verður frá þjóðsögum og
sögnum, sem tengjast jörðinni
og dalnum, og rakin ævi Jón-
asar Hallgrímssonar. Sagt
verður frá náttúrufari, blóm-
gróðri og jarðmyndunum í
Öxnadal og farið í gönguferðir.
Einnig verður sagt frá framtíð-
aráætlunum Hrauns í Öxnadal
ehf. Þá syngur Þórarinn Hjart-
arson ljóð Jónasar Hallgríms-
sonar.
Undirbúningur að
200 ára afmæli skáldsins
Eitt fyrsta verkefni stofnun-
ar Jónasar Hallgrímssonar er
að undirbúa 200 ára afmæli
skáldsins og náttúrufræðings-
ins Jónasar Hallgrímssonar
hinn 16. nóvember 2007. Í til-
efni þess verður gefið út mynd-
skreytt úrval af kvæðum með
æviágripi, ásamt geisladiski
með sönglögum við ljóð skálds-
ins. Einnig verður efnt til ráð-
stefnu um skáldið og náttúru-
fræðinginn Jónas
Hallgrímsson með þátttöku
bókmenntafræðinga, náttúru-
fræðinga og almennings. Stofn-
unin verður rekin í samráði við
ýmsar skyldar kennslu- og
fræðastofnanir, en allt verkið
er unnið í samvinnu við sveit-
arstjórn Hörgárbyggðar og
heimamenn.
Fífil-
brekku-
hátíð á
Hrauni í
Öxnadal
Jónas
Hallgrímsson
FRÍKIRKJUKÓRINN í Hafnarfirði
heldur í söngför til Vestfjarða um
helgina og heldur tvenna tónleika fyr-
ir Vestfirðinga á morgun kl. 14 í Vík-
urbæ og í Samkomuhúsinu á Þingeyri
við Dýrafjörð kl. 18. Þá verður kórinn
með tónleika í Fríkirkjunni í Hafn-
arfirði kl. 20.30 að kvöldi 16. júní og
eru tónleikarnir liður í dagskrá menn-
ingardaga Hafnarfjarðar, Bjartir
daga. Á efnisskránni eru söngvar frá
suðrænum slóðum auk íslenskra sum-
arlaga og sálma. Á síðasta ári fór kór-
inn í söngför til Danmerkur og söng
þá meðal annars á Plænen, stóra svið-
inu í Tívolí í Kaupmannahöfn.
Félagar í kórnum eru um þrjátíu.
Stjórnandi er Örn Arnarson tónlistar-
stjóri kirkjunnar og undirleikari er
Skarphéðinn Hjartarson organisti.
Þá hefur kórinn einnig fengið til liðs
við sig á tónleikum og við fleiri við-
burði Guðmund Pálsson bassaleikara
og söngkonuna Ernu Blöndal.
Kvennakór í söngför
Listmunahorn Árbæjarsafns Sig-
ríður Elva Sigurðardóttir opnar nýja
sýningu á fatnaði og fylgihlutum úr
þæfðri ull. Sýningin stendur til 18.
júní.
Hótel Hvolsvöllur kl. 21 Sumarið
og ástin er yf-
irskrift tónleika
þar sem Gerður
Bolladóttir sópr-
an og Sophie
Marie Schoonj-
ans hörpuleikari
flytja íslensk
sönglög, eftir
Atla Heimi
Sveinsson, Árna
Thorsteinsson,
Sigfús Einarsson, Sigvalda Kalda-
lóns og Pál Ísólfsson. Þá munu þær
einnig flytja írsk og ensk sönglög og
ítalskar antík-aríur.
Í DAG
Sjá einnig Staður og stund á mbl.is
Gerður
Bolladóttir
FORVITNI og ævintýraþrá ís-
lenzkra tónlistarunnenda nær
greinilega ekki til enn lítt kunnra er-
lendra listamanna, þá sjaldan sem þá
rekur á okkar fjörur. Það sannaðist
eina ferðina enn í Norræna húsinu á
dögunum, þegar aðeins átta manns
létu sig hafa að mæta á tónleika
danska tvíeykisins Duo Saxopran.
Að vísu á vonlitlum tíma – sunnu-
dagssíðdegi í bezta útivistarveðri, og
þar á ofan í miðri Listahátíð, sem lík-
lega hefði þurft mun kröftugra kynn-
ingarátak til að yfirstíga en Nor-
ræna húsið gat lagt af mörkum. En
því skal ítrekaður gamalkunnur
harmsöngur að dúó dagsins reyndist
meira en meðalvogun vaxið hvað
áhættuhlustun varðar. Og eins og
reyndustu tónleikagestir vita er fátt
gjöfulla en þegar manni er komið
gleðilega á óvart.
Slíkt gerðist einmitt á þessum tón-
leikum, þar sem sérstaklega korn-
ung sópransöngkona frá Kaup-
mannahöfn með hið sænskhljómandi
nafn Rebecca Persson afhjúpaði svo
rífandi hæfileika, að maður ætlaði
varla að trúa því að hún væri rétt að
hefja nám í Kgl. tónlistarskólanum
þar í borg, nema þá helzt hvað texta-
framburður gat verið misskýr. Dag-
skráin var fjölbreytt og spannaði auk
dönsku verkanna m.a. þrjú sönglög
eftir Vaughan-Williams við ljóð eftir
Blake (upphaflega fyrir óbó & sópr-
an) og að sögn eina frumsamda verk
í heimi fyrir sópran og sópran-sax,
nefnilega The Paradoxes of Love (2.
hluta) eftir Walter Zimmermann.
Býsna erfitt verk, m.a. í „sprechge-
sang“-stíl, en kom samt furðuþjált úr
flutningi. Af dönskum lögum fyrri
hlutans bar af hið viðkvæma lag
Carls Nielsens Sænk kun dit hoved
(Johs. Jørgensen), sem m.a. skartaði
óvæntri krómatík miðað við venju-
legan einfaldleika meistara hins
danska alþýðusönglags, og var nán-
ast „hörundslaust“ túlkað á seiðandi
ofurveikum nótum.
Flytjendur kynntu skemmtilega
efnivið sinn og sögðu m.a. frá eft-
irtektarverðri nýbreytni í dönsku
tónleikahaldi – leikskólatónleikum[!]
– og hvernig staðið væri að því að
koma nýrri tónlist á framfæri við
yngstu árganga í smáskrefum.
Dæmi um þetta var nýtt verk eftir
Færeyinginn Edvard Nyholm
Debess um frumskógardýrið Húgó,
er flutt var af smitandi gáska. Eg-
holm, er fór með píanóundirleik af
öryggi þó að saxófónninn væri
greinilega aðalhljóðfæri hans, blés
sönghæft líðandi kadenzu úr altsax-
konsert eftir Ibert, en síðan „leyni-
tónverk“ eins og hann kallaði, sem
mátti til sanns vegar færa um flestöll
miðilsvænu eða „ídíómatísku“ æfing-
arstykki tónskálda (etýður) fyrir til-
tekin hljóðfæri, er varla heyrast
nema á prófum. Nánar tiltekið nr. 4
eftir Vierne; að hluta í barokkstíl og
leikið af lipru öryggi. Einnig mátti
heyra nokkur örverk fyrir sópran og
sax eftir Birgitte Alsted við ljóð og
„bon mots“ eftir Halfdan Rasmussen
og hinn hugmyndaríka hönnuð Poul
Henningsen, er reyndu sum töluvert
á flytjendur, þó varla sæist þess
merki í blæbrigðaríkri túlkun þeirra.
Rífandi hæfileikar
í kyrrþey
TÓNLIST
Norræna húsið
Verk eftir m.a. Vaughan-Williams, Harder,
Schierbeck, Alsted, C. Nielsen, Nyholm
Debess og W. Zimmermann. Duo
Saxopran (Rebecca Persson sópran og
Per Egholm S- & A-saxófónn/píanó).
Sunnudaginn 23. maí kl. 14.
EINSÖNGSTÓNLEIKAR
Ríkarður Ö. Pálsson
Í TILEFNI af 60 ára lýðveldisaf-
mæli Íslands þann 17. júní nk. verð-
ur efnt til íslenskrar menningar-
veislu í Berlín
dagana 11.-19
júní. Hátíðin
hefst á því að
Steinunn Sigurð-
ardóttir les úr
bók sinni Jökla-
leikhúsinu kl. 20 í
kvöld hjá Literar-
isches Collo-
quium Berlin.
Á þriðjudag
verður umfjöllun um íslenska rokk-
og popptónlist í sendiráðinu. Claudia
J. Koestler, íslenskumælandi blaða-
maður og umboðsmaður Stuðmanna
í Þýskalandi, fjallar um þróun ís-
lenskrar rokk- og popptónlistar í
máli, myndum og með tónlistardæm-
um. Umfjöllunin hefst í Felleshúsi,
sameiginlegu húsi norrænu sendi-
ráðanna, kl. 19. Á miðvikudag verður
Stuðmannaball, tónleikar á
skemmtistaðnum Big Eden kl. 21. Á
fimmtudag, 17. júní, verður boðið til
þjóðhátíðarmótttöku í sendiráði Ís-
lands í Berlín kl. 13-15. Gerður
Gunnarsdóttir, fiðluleikari og söng-
kona, og Claudio Puntin flytja þjóð-
legt tónlistaratriði. Arthúr Björgvin
Bollason flytur stutt erindi í tilefni af
lýðveldisafmæli Íslands. Ferðamála-
ráð og Icelandair standa fyrir Ís-
landskynningu. Í framhaldi af mótt-
tökunni flytja Stuðmenn nokkur lög
á sendiráðstorginu.
Berlínarrapp
Á föstudag verða Íslandstónleikar
í Rauða ráðhúsinu kl. 19. Frumflutt
verður nýtt Berlínrapp eftir Atla
Heimi Sveinsson að tónskáldinu við-
stöddu. Þá verða flutt verk eftir Jón
Leifs, Þorkel Sigurbjörnsson og
Herbert H. Ágústsson.
Á laugardag opnar Berlínarþing
húsakynni sín fyrir almenningi frá
11-18. Ísland ásamt Eystrasaltslönd-
unum tekur þátt í menningarkynn-
ingu þennan dag. Guitar Islancio
flytur tónlist í kjölfar opnunarat-
hafnar um kl. 11 og svo aftur síðdeg-
is um 14.30. Sýndar verða íslenskar
stuttmyndir með léttu ívafi. Sendi-
ráðið, Ferðamálaráð, Icelandair og
önnur fyrirtæki standa fyrir Íslands-
kynningu á staðnum.
Íslensk menning-
arvika í Berlín
Atli Heimir
Sveinsson