Morgunblaðið - 11.06.2004, Page 45
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 45
ATVINNU-
AUGLÝSINGAR
I
I
ⓦ í Hraunbæ,
Vesturberg.
Einnig í afleysingar
í Kvíslar.
Ekki yngri en
18 ára.
Upplýsingar
í síma 569 1376
R A Ð A U G L Ý S I N G A R
FUNDIR/ MANNFAGNAÐUR
Aðalfundur Neistans
Aðalfundur Neistans, styrktarfélags hjartveikra
barna, verður haldinn í Seljakirkju miðviku-
daginn 23. júní kl. 20:00.
Á dagskrá eru venjuleg aðalfundarstörf.
Með kveðju.
Stjórn Neistans.
Aðalfundur
Hótels Ísafjarðar hf.
fyrir árið 2003 verður haldinn á Hótel Ísafirði
þann 30. júní 2004 kl. 15.00.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Aðalfundur
Lífeyrissjóðs starfsmanna
Áburðarverksmiðju ríkisins
verður haldinn í Hafnarstræti 5, 4. hæð, þriðju-
daginn 29. júní kl. 17:00.
Fundarefni:
1. Skýrsla stjórnar.
2. Reikningar sjóðsins.
3. Tryggingarfræðileg úttekt.
4. Fjárfestingarstefna sjóðsins kynnt.
5. Ákvörðun um þóknun til stjórnar.
6. Tillögur um breytingar á samþykktum.
7. Kosning stjórnar.
8. Kosning endurskoðanda.
9. Önnur mál sem löglega eru fram borin.
Endurskoðaðir og undirritaðir reikningar sjóðs-
ins ásamt skýrslu tryggingarfræðings liggja
frammi á skrifstofu Landsbankans, Hafnar-
stræti 5, viku fyrir aðalfund, sjóðfélögum til
sýnis.
Stjórnin.
TILKYNNINGAR
Tilkynning um
uppgreiðslu
skuldabréfa í flokki Olís 96 1
Olíuverzlun Íslands hf. hefur ákveðið að nýta
sér heimild til uppgreiðslu á skuldabréfaflokkn-
um Olís 96 1 sem skráð eru í Kauphöll Íslands
hf. Útgáfudagur skuldabréfanna er 10. júlí 1996
og ISIN númer flokksins er IS0000003218.
Skuldabréfin verða greidd upp þann 5. júlí 2004.
Óskað verður afskráningar skuldabréfanna úr
Kauphöll Íslands hf. og verða skuldabréfin,
sem útgefin voru á pappírsformi, eyðilögð
þegar uppgreiðsla þeirra hefur farið fram.
Reykjavík, 2. júní 2004.
Olíuverzlun Íslands hf.
UPPBOÐ
Uppboð
Framhald uppboðs á eftirfarandi eignum verður háð á þeim
sjálfum sem hér segir:
Akurholt 21, 0101, Mosfellsbær, þingl. eig. Hans Þór Jensson, Sigurð-
ur Helgi Hansson, Alda Kristinsdóttir og Hjördís Sigurðardóttir,
gerðarbeiðandi Lífeyrissjóður verslunarmanna, þriðjudaginn 15.
júní 2004 kl. 15:00.
Hafnarstræti 20, 0204, Reykjavík, þingl. eig. Fasteignasölukerfi ehf.,
gerðarbeiðendur Sparisjóður Hafnarfjarðar og Þ. Þorgrímsson og
Co ehf, þriðjudaginn 15. júní 2004 kl. 10:30.
Hólmsheiði, hús nr. 21 í Fjárborg, Reykjavík, þingl. eig. Lárus Kristinn
Viggósson, gerðarbeiðendur Lífeyrissjóður verslunarmanna og
Tollstjóraembættið, þriðjudaginn 15. júní 2004 kl. 14:00.
Viðarás 20, 0101, Reykjavík, þingl. eig. Reynir Jónsson og Kristín
Sigurðardóttir, gerðarbeiðendur Íbúðalánasjóður, Lífeyrissjóður
starfsmanna Reykjavíkurborgar, Lífeyrissjóður verslunarmanna,
Sparisjóður Reykjavíkur og nágrennis, útibú og Tollstjóraembættið,
þriðjudaginn 15. júní 2004 kl. 13:30.
Sýslumaðurinn í Reykjavík,
10. júní 2004.
Í kvöld kl. 20.00 Bæn og
lofgjörð í umsjón Elsabetar og
Miriam. Allir velkomnir.
RAÐAUGLÝSINGAR
sendist á augl@mbl.is
mbl.is
ATVINNA
að búið var að opna gjafirnar var
ótrúleg. Þá drifu sig allir heim til afa
á Hringbrautina í ís og ávexti. Afi
var mjög stoltur af sínu fólki og var
hann duglegur að láta hvert okkar
vita hversu stoltur hann væri. Fyrir
mér var það sérstaklega mikilvægt
þegar ég var verðlaunuð fyrir
frammistöðu mína í Lögregluskóla
ríkisins fyrir tæplega hálfu ári þeg-
ar ég lauk þaðan námi. Afi gat ekki
verið viðstaddur útskriftina vegna
veikinda sinna en að lokinni athöfn-
inni hringdi ég strax í afa og lét
hann vita af verðlaununum. Afi var
ánægður með sína og sagði við mig:
„ Ég vissi þetta, elskan mín, ég var
löngu búinn að segja þetta við hana
mömmu þína að þú yrðir lögreglu-
maður Íslands.“ Ég reyndi nú að-
eins að draga úr þessu við hann og
sagði að það hafi nú ekki verið að
velja lögreglumann landsins, en fyr-
ir honum var ég það.
Eitt máttu vita, elsku afi. Þú varst
elskaður og dáður af okkur, betri
afa og pabba er vart hægt að hugsa
sér. Elsku mamma, Dæja, Lauga,
Gunni og Sævar. Takk fyrir þá ein-
lægu umhyggju sem þið sýnduð afa,
þá sérstaklega í kringum veikindi
hans. Ég veit að hann er stoltur af
ykkur því það er ég svo sannarlega.
Minning ykkar um yndislegan föður
mun aldrei gleymast. Ykkar missir
er mikill og vil ég biðja algóðan Guð
að hugsa vel um ykkur og styrkja í
sorginni.
Lokið er kafla í lífsins miklu bók.
Við lútum höfði í bæn á kveðjustund.
Biðjum þann Guð, sem gaf þitt líf og tók
Græðandi hendi á milda sorgarstund.
Ó, hve við eigum þér að þakka margt
þegar við reikum liðins tíma slóð.
Í samfylgd þinni allt var blítt og bjart,
Blessuð hver minning, fögur, ljúf og góð.
Okkur í huga er efst á hverri stund
ást þín til hvers, sem lífsins anda dró,
hjálpsemi þín og falslaus fórnarlund.
Friðarins Guð þig sveipi helgri ró.
(Vigdís Runólfsd.)
Elsku afi, ég vil þakka þér fyrir
allar þær frábæru stundir sem við
áttum saman, þær geymi ég í hjarta
mínu. Þú hefur fengið frið og ljósið í
myrkrinu er það að nú hafið þið
amma hist á ný og getið haldið
áfram ykkar ferðalagi, saman. Ég
kveð þig með þínum alkunnu orðum:
Bless, elskan mín.
Bjarney Sólveig.
Hinn 4. júní síðastliðinn andaðist
elskulegur afi minn. Afi var ekki
bara afi heldur einn af mínum bestu
vinum. Við náðum mjög vel saman
og segja má að við höfum varla séð
sólina hvor fyrir öðrum. Hann
reyndist mér allra besti afi sem
hægt var að hugsa sér. Það var al-
veg sama hversu háleitar hugmynd-
ir ég fékk, alltaf studdi afi þær.
Hann hafði svo mikla trú á mér að
hann trúði að ég gæti afrekað allt
sem ég tæki mér fyrir hendur.
Virðing mín fyrir afa var tak-
markalaus og óx gríðarlega síðustu
mánuði. Þvílíkt æðruleysi og reisn
sem hann sýndi í veikindum sínum
er mér óskiljanlegt. Aldrei kvartaði
hann yfir örlögum sínum heldur
reyndi hann að hlífa okkur hinum
við erfiðleikum sem þeim fylgdu.
Mér eru minnisstæðar skötuveisl-
urnar sem afi hélt á Þorláksmessu
en þá var hann aldeilis í essinu sínu.
Ég svelti mig heilu og hálfu hungri
dagana fyrir skötuna og tróð svo í
mig, þegar á hólminn var komið, að
við lá að ég væri pakksaddur allt til
áramóta. Síðasta skötuveislan
stendur upp úr en þá var kallinn
farinn að sjá illa. Af þeim sökum
lenti ég í því að fá slatta af brjóski í
minni stöppu. Ekki hvarflaði annað
að mér en að borða, brosa og fá mér
ábót því ekki vildi ég særa þann
gamla á þessari hátíðarstundu, þó
matarlystin væri af skornum
skammti.
Það þurfti ekki mikið til að gleðja
afa en hann var maður sem gaman
var að gleðja. Hafði ég lofað sjálfum
mér því að ef hann næði heilsu
myndum við fara saman með Nor-
rænu í siglingu í sumar, en það var
draumur afa. Alveg er ég viss um að
við félagarnir hefðum skemmt okk-
ur konunglega. Því miður varð ekki
af því í þessu lífi en eitt er ég viss
um og það er að við eigum eftir að
sigla saman um önnur framandi höf
þó síðar verði.
Rúnar Már Sigurvinsson.
Elsku afi, nú ert þú farinn frá
okkur. Það er erfitt og sárt að trúa
því að þú sért ekki hjá okkur lengur.
Það eru svo margar góðar stundir
sem við áttum öll saman og margar
góðar minningar skilur þú eftir. Ég
veit að þú ert á góðum stað og að
Guð geymir þig vel á himnum og
passar þig. Hann var að fá góðan
engil í sínar raðir.
Minningarnar eru margar og
komast ekki allar fyrir hér en aldrei
gleymi ég þegar við komum öll til
þín og þú bakaðir pönnsur handa
okkur. Þú varst bestur í því! Þær
voru svo þykkar og góðar og svo
fengum við ískalda mjólk með. Oft
fórstu líka með okkur út í búð að
kaupa nammi eða í ísrúnt þegar við
krakkarnir vorum hjá þér. Það var
sko aldeilis veisla þegar við fórum til
afa og ömmu á Hringbraut. Það eru
minningar sem aldrei gleymast.
Þú lifir áfram í hjörtum okkar,
elsku afi minn, og í minningunum
um okkar góðu stundir saman.
Vertu sæll, afi minn, við sjáumst öll
einhvern tíma aftur.
Ásthildur Ása Harðardóttir.
Í dag kveðjum við hinstu kveðju
mág okkar og svila Gunnar Einar
Líkafrónsson, en hann andaðist á
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja hinn
4. júní sl. á sjötugasta aldursári. Það
mun hafa verið síðla árs 1960 sem
fundum okkar bar fyrst saman þá
kynntist Gunnar systur okkar Ást-
hildi. Frá fyrsta degi var okkur ljóst
að þar var á ferð öðlingur mikill,
enda stóðu að manninum tryggar
stoðir vestfirskar. Gunnar fæddist á
Hrafnfjarðareyri í Jökulfjörðum
sonur hjónanna Bjarneyjar Sólveig-
ar Guðmundsdóttur og Líkafróns
Sigurgarðssonar og var hann yngst-
ur 14 barna þeirra hjóna. Árið 1943
flytur Gunnar með foreldrum sínum
til Ísafjarðar. Eins og títt var um
unga menn sem fæddir voru á Vest-
fjörðum á fyrri helmingi síðustu ald-
ar. Lá leiðin til sjós á gömlu síðutog-
arana svo fljótt sem kraftar leyfðu
og þar var Gunnar á heimavelli.
Fátt var það í fangbrögðunum við
Ægi konung sem kom þessum unga
manni á óvart og fljótlega kom í ljós
að þar fór efni í úrvals netamann
sem á þeim árum og enn í dag eru
gulls ígildi. Ekki spilltu lyndisein-
kennin fyrir, því festa, ró og æðru-
leysi voru þau aðalsmerki sem fyrst
og síðast prýddu þennan ágætis-
mann. Ævistarfið var síðan helgað
sjómennsku og/eða netagerð allt til
þess að hann lauk starfsævinni hjá
Hampiðjunni í Reykjavík fyrir lið-
lega tveimur árum.
Ásthildur og Gunnar gengu í
hjónaband á annan dag jóla árið
1961 og stóð það hjónaband þar til
systir okkar Ásthildur lést í júní
1993, eftir langvarandi veikindi .
Þau hjón hófu búskap í sambýli við
móður Gunnars í Kópavoginum en
áttu síðan heima á Seltjarnarnesi og
í Reykjavík. Árið 1966 flytjast þau
síðan til Keflavíkur og hafa búið þar
síðan, lengst af á Hringbraut 128.
Þau hjón áttu miklu barnaláni að
fagna. Saman eignuðust þau fjögur
börn, en fyrir átti Ásthildur eina
dóttur sem Gunnar gekk svo sann-
arlega í föðurstað. Afkomendur
þeirra sem nú eru 16 að tölu eru
flest búsett í Keflavík og hafa alla
tíð verið sannir ljósgeislar í lífi
pabba og mömmu og afa og ömmu.
Á kveðjustund minnumst við ým-
issa atvika á liðlega fjörutíu ára veg-
ferð og kemur þá fyrst í huga sú
umhyggja, ást og æðruleysi sem þú
kæri mágur sýndir systir okkar í
hennar veikindum. Þar stóðu þínir
vestfirsku stofnar teinréttir og
svignuðu hvergi þó á móti blési og
hertust við hverja raun. Á sama hátt
barðist þú sem fullkomin hetja við
hinn illvíga sjúkdóm krabbameinið.
Í okkar huga skapar slíkt æðruleysi,
aðdáun og auðmýkt. En nú ert þú,
kæri mágur og svili, leiddur um
ljóssins lendur og hvílir nú í örmum
þeirrar konu sem skóp með þér ríki-
dæmi jarðlífsins börnin ykkar ynd-
islegu. Megi hið eilífa ljós Guðs lýsa
ykkur og ykkar afkomendum nú og
að eilífu. Við biðjum algóðan Guð að
milda sorg barna, tengdabarna og
barnabarna og erum þess fullviss að
minningin um góðan föður, tengda-
föður og afa verður þeim hið milda
leiðarljós. Þig, kæri mágur, kveðj-
um við með orðum Valdimars Briem
og segjum:
Far þú í friði,
friður Guðs þig blessi,
hafðu þökk fyrir allt og allt.
Börn og tengdabörn Jóns og
Geirnýjar.
Ég sendi þér kæra kveðju,
nú komin er lífsins nótt.
Þig umvefji blessun og bænir,
ég bið að þú sofir rótt.
Þó svíði sorg mitt hjarta
þá sælt er að vita af því
þú laus ert úr veikinda viðjum,
þín veröld er björt á ný.
(Þórunn Sig.)
Við kveðjum þig, elsku afi,
með tregafullu hjarta. Við mun-
um alltaf minnast þín í bænum
okkar. Perlum minninga okkar
um þig munum við deila með
okkar börnum og þannig munt
þú lifa áfram í gegnum okkur.
Guð geymi þig, ástarengillinn
okkar. Með eilífri þökk fyrir
gleðina og hlýjuna sem þú veitt-
ir okkur í gegnum árin.
Tanja Mist, Annel, Sigrún,
Birgitta og Elín María.
HINSTA KVEÐJA