Morgunblaðið - 11.06.2004, Qupperneq 51
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 51
DAGBÓK
Opnunartími
mán.-fös. kl. 11-18
lau. kl. 11-14
Hverafold 1-3 • Torgið Grafarvogi • Sími 577 4949
Skipagötu 5 • Akureyri • Sími 466 3939
Úrval af sparifatnaði fyrir
brúðkaupið,
útskriftina
og hátíðleg tækifæri
Láttu verðið koma þér á óvart
STJÖRNUSPÁ
Frances Drake
TVÍBURAR
Afmælisbörn dagsins:
Þú ert kjarkmikil/l og hikar
ekki við að fara út á ystu nöf.
Þú átt þér mörg áhugamál
og átt auðvelt með að vinna
með öðrum. Það verða
spennandi breytingar í lífi
þínu á árinu. Sýndu
sveigjanleika.
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Það er hætt við að þú ætlist
til of mikils í dag. Reyndu að
forðast deilur við systkini þín
og aðra ættingja. Mundu að
sálarró þín skiptir mestu
máli.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Þér finnst þú bara verða að
kaupa einhvern ákveðinn hlut
í dag.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þú munt að öllum líkindum
lenda í deilum við maka þinn í
dag. Reyndu að vera ekki of
plássfrek/ur.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú skalt fara varlega og forð-
ast skuggalega staði í dag.
Það eru óvenjumiklar líkur á
að þú verðir fyrir óhappi eða
jafnvel einhvers konar árás.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þú munt líklega lenda í
snörpum orðaskiptum við
einhvern í dag. Hvort sem þú
ert í veikri eða sterkri valda-
stöðu gagnvart viðkomandi
skaltu forðast að spila á það.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það er hætt við að þú lendir í
deilum við valdamikinn ein-
stakling í dag. Reyndu að
forðast þetta því það getur
reynst þér erfitt að komast út
úr deilunum aftur.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Þú munt líklega lenda í til-
gangslausum rökræðum um
heimspeki og trúmál í dag.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þér finnst þú þurfa að verja
eigur þínar í dag.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Það er hugsanlegt að nánu
sambandi, sem þú hefur verið
í, ljúki í dag. Þetta má rekja
til þess að báðir aðilar telja
sig hafa á réttu að standa og
neita að hlusta á það sem
hinn aðilinn hefur að segja.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú ert ákveðin/n í að breyta
einhverju til batnaðar í
vinnunni hjá þér í dag. Það
sama getur átt við um heilsu-
far þitt.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Gættu þess að sýna ekki öðr-
um yfirgang í dag. Fólk held-
ur oft að það viti hvað öðrum
er fyrir bestu án þess þó að
skilja aðstæður þeirra til
fullnustu.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Þú munt hugsanlega lenda í
deilum við foreldra þína eða
aðra í fjölskyldunni í dag.
Einhvers konar bilanir gætu
einnig sett strik í reikninginn
hjá þér. Reyndu að sýna þol-
inmæði.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægradvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
SVEITASÆLA
Man ég grænar grundir,
glitrar silungsá,
blómabökkum undir,
brunar fram að sjá.
Bændabýlin þekku
bjóða vina til,
hátt und hlíðarbrekku,
hvít með stofuþil.
Léttfætt lömbin þekku
leika mæðrum hjá,
sæll úr sólskinsbrekku
smalinn horfir á.
Kveður lóu kliður,
kyrrlát unir hjörð.
Indæll er þinn friður,
ó, mín fósturjörð.
– – –
Steingrímur Thorsteinsson
LJÓÐABROT
90 ÁRA afmæli. Mánu-daginn 14. júní verð-
ur níræð Jóna Þ. Snæ-
björnsdóttir frá Grund í
Kolbeinsstaðarhreppi. Hún
tekur á móti gestum að
Grund sunnudaginn 13. júní
milli kl. 14-17.
60 ÁRA afmæli. GísliSkarphéðinsson,
Kjarrholti 5 á Ísafirði, verð-
ur sextugur í dag, föstudag-
inn 11. júní. Af því tilefni
tekur hann og eiginkona
hans, Ingibjörg Sveins-
dóttir, á móti vinum og ætt-
ingjum í Sigurðarbúð (Kiw-
anishúsinu) frá kl. 20 á
afmælisdaginn.
„ENGINN sagði neitt,“
kvartaði sá ungi.
„Taktu það sem hrós,“
hughreysti sá gamli.
Austur gefur; enginn á
hættu.
Norður
♠ÁDG10752
♥KD32
♦G6
♣--
Vestur Austur
♠K983 ♠--
♥G654 ♥Á98
♦D2 ♦943
♣1085 ♣DG97632
Suður
♠64
♥107
♦ÁK10875
♣ÁK4
Vestur Norður Austur Suður
-- -- 3 lauf 3 grönd
Pass 4 hjörtu* Pass 4 spaðar
Pass 6 lauf ** Pass 6 spaðar
Pass Pass Pass
* Yfirfærsla í spaða.
** Eyða í laufi, alslemmu-
tilraun.
Spilið kom upp á æfingu
landsliðsins á laugardaginn.
Landsliðsparið Magnús
Eiður Magnússon og Matth-
ías Þorvaldsson voru í NS.
Magnús var í suður og tók
djarfa ákvörðun með því að
segja þrjú grönd við þremur
laufum, og eftir það var úti-
lokað að halda Matthíasi á
jörðinni. Hann yfirfærði
fyrst í spaðann með fjórum
hjörtum og stökk svo í sex
lauf til að sýna eyðu og
bjóða upp á alslemmu. Sem
Magnús afþakkaði pent.
Sex spaðar er svo sem
ágæt slemma, sem vinnst
oftast ef vestur er með
kónginn í trompi. En hér er
kóngurinn fjórði og það
flækir málið heldur betur.
Ef vestur hefði hitt á hjarta
út hefði verið fátt til frá-
sagnar, en hann valdi laufið.
Magnús henti hjarta úr
blindum og svínaði fyrir
spaðakóng. Spilaði svo tíg-
ulgosa úr borði og stakk upp
ás heima. Hann svínaði aft-
ur í trompi og spilaði tígli úr
blindum. Líkindafræðin
segir að rétt sé að svína í
slíkum stöðum, en Magnús
ákvað að fylgja heilræði Zia:
Austur lagði ekki á gosann
og er því líklegur til að eiga
ekki drottninguna. Hann
stakk upp tígulkóng og
felldi drottninguna. Nú var
björninn unninn. Magnús
henti hjarta í lauf og spilaði
svo hálftígli. Við þessu á
vestur ekkert svar: Ef hann
trompar, hverfur tromp-
slagurinn og vörnin fær að-
eins einn slag á hjartás. Og
ef vestur hendir tvisvar,
fara tvö hjörtu blinds niður í
frítígla.
„Og enginn sagði neitt?“
„Víst,“ sagði Matthías.
„Ég sagði glæsilegt makker
– heyrðirðu það ekki.“
BRIDS
Guðmundur Páll
Arnarson
50 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 11. júní,
er fimmtugur Kristinn T.
Haraldsson (Kiddi Rót), til
heimilis að Heiðarbrún 72,
Hveragerði. Hann og kona
hans munu taka á móti vin-
um og kunningjum á nýjum
veitingastað þeirra hjóna
Cafe Kidda Rót í versl-
unarmiðstöðinni Sunn-
umörk við hringtorgið í
Hveragerði í kvöld kl. 20.
60 ÁRA afmæli. Í dag,föstudaginn 11. júní,
er sextugur Jón Þór Hann-
esson, forstjóri Sagafilm, til
heimilis að Blikanesi 1,
Garðabæ. Jón Þór og eig-
inkona hans, Valgerður
Lárusdóttir, ætla af því til-
efni, að njóta nærveru ætt-
ingja og vina á Hótel Borg
milli kl. 17 og 19, á afmæl-
isdaginn.
1. e4 c5 2. Rf3 d6 3. d4 cxd4
4. Rxd4 Rf6 5. Rc3 a6 6. Be3
e5 7. Rb3 Be6 8. f3 Be7 9.
Dd2 O-O 10. O-O-O Dc7 11.
g4 Hc8 12. g5 Rh5 13. Rd5
Bxd5 14. exd5 Rd7 15. Bh3
a5 16. Dd3 a4 17. Rd2 Rc5
18. Dc3 He8 19. Re4 Rf4 20.
Bf1 Hed8 21. Kb1 Hac8 22.
h4 a3 23. b3 Db8 24. Dd2
Bf8 25. h5 Rxe4 26.
fxe4 Dc7 27. c4 g6
28. hxg6 hxg6 29.
Bh3 Hb8 30. Hdf1
Bg7 31. Dh2 Da5 32.
Bxf4 exf4 33. Dxf4
Hf8 34. Hf3 Dc5 35.
Hd3 b5 36. Dh4 Hfe8
37. Be6 Hb7 38.
Dh7+ Kf8 39. Hf1
Staðan kom upp á
heimsmeistaramóti
FIDE sem lauk fyrir
skömmu í Elista. El-
isabeth Paehtz
(2385) hafði svart
gegn kínversku stöll-
unni sinni Pin Wang (2417).
39... Hxe6! 40. dxe6 De5 41.
Kc2 bxc4 42. Hd2 cxb3+ 43.
axb3 Dxe6 44. Hd3 a2 45.
Dh1 De5 46. Dh3 Db2+ og
hvítur gafst upp. Meist-
aramót Skákskóla Íslands
hefst í kvöld en nánari upp-
lýsingar um það eru að finna
á www.skak.is. Á sömu
heimasíðu er einnig að finna
upplýsingar um skemmti-
kvöld skákmanna sem Tafl-
félagið Hellir heldur.
SKÁK
Helgi Áss
Grétarsson
Svartur á leik.
ÁRNAÐ HEILLA
Neskirkja. Leikjanámskeið Neskirkju
hefst mánudaginn 14. júní. Námskeiðin
er fyrir 6-10 ára (’94-’98) og eru frá
mánudegi til föstudags á milli kl. 13-17.
Þátttökugjald er 3.000 kr. fyrir hvert
barn. Innifalið í því eru allar dagsferðir og
efnisgjald, auk nestis. Innritun fer fram í
Neskirkju milli kl. 10-12 alla virka daga í
síma 511-1560 eða á neskirkja@nes-
kirkja.is
Breiðholtskirkja. Foreldramorgnar kl. 10-
12. Kaffi og spjall.
Grafarvogskirkja. Al-Anon fundur kl. 20.
Boðunarkirkjan, Hlíðarsmára 9. Sam-
komur alla laugardaga kl. 11:00. Bæna-
stund alla þriðjudaga kl. 20:00. Biblíu-
fræðsla allan sólarhringinn á Útvarp
Boðun FM 105,5. Allir velkomnir.
Kirkja sjöunda dags aðventista:
Laugardagur:
Aðventkirkjan Ingólfsstræti 19, Reykja-
vík. Biblíufræðsla kl. 10:00. Guðsþjón-
usta kl. 11:00. Ræðumaður: Eric Guð-
mundsson.
Loftsalurinn Hólshrauni 3, Hafnarfirði:
Guðsþjónusta/Biblíufræðsla kl. 11:00.
Ræðumaður: Styrmir Ólafsson.
Safnaðarheimili aðventista Gagnheiði
40, Selfossi: Biblíufræðsla kl. 10:00.
Guðsþjónusta kl. 11:00. Ræðumaður
Björgvin Snorrason.
Safnaðarheimili aðventista Blikabraut 2,
Keflavík: Biblíufræðsla kl. 10.15. Guðs-
þjónusta kl. 11:00.
Aðventkirkjan Brekastíg 17, Vestmanna-
eyjum: Biblíufræðsla kl. 10:00. Guðs-
þjónusta kl. 11.00. Ræðumaður Sigríður
Kristjánsdóttir.
Safnaðarstarf
Kvöldguðsþjón-
ustur í Lang-
holtskirkju í júní
Í JÚNÍMÁNUÐI verða guðsþjón-
ustur í Langholtskirkju á sunnu-
dagskvöldi kl. 20.00. Stundirnar
verða með einföldu sniði í umsjón
prests og organista. Vegna sum-
arleyfa og framkvæmda við lóð
kirkjunnar verður Langholtskirkja
lokuð í júlímánuði en helgihald
hefst að nýju í ágústmánuði.
KIRKJUSTARF