Morgunblaðið - 11.06.2004, Síða 58
58 FÖSTUDAGUR 11. JÚNÍ 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Ó.H.T Rás2
SV MBL
SKONROKK
Sýnd kl. 10. Sýnd kl. 8.
25.000
manns
á 12 dögum!!!
Sýnd kl. 6, 8 og 10.10.
PIERCE BROSNAN JULIANNE MOORE
FRUMSÝNING
Frábær ný gamanmynd frá höfundi
Adaptation og Being John Malkovich
Með stórleikurunum Jim Carrey og
Kate Winslet.
"stílhreint snilldarverk"
HP Kvikmyndir.com
HUGSAÐU STÓRTMiðasala opnar kl. 15.00
ELLA
Í ÁLÖGUM
Sýnd kl. 3.50.Sýnd kl. 5.50, 8 og 10.15.
Sýnd kl. 4, 5.20, 6.40, 8, 9.20 og 10.40. Sýnd kl. 5.30, 8, 10.30.
EINI THX LÚXUSSALUR LANDSINS
DV
kl. 5.50, 8.30 og 11.10.
Svakaleg stórmynd um náttúruhamfarir í sinni
mögnuðustu mynd sem stefna öllu lífi á jörðinni í
hættu. Þvílíkt sjónarspil hefur aldrei áður sést á hvíta
tjaldinu! Missið ekki af þessari.
Ó.H.T Rás2
SV MBL
Kvikmyndir.com
SKONROKK
25.000
manns
á 12 dögum!!!
FRUMSÝNING
Frábær ný gamanmynd frá höfundi
Adaptation og Being John Malkovich
Með stórleikurunum Jim Carrey og Kate Winslet.
"stílhreint snilldarverk"
HP Kvikmyndir.com
HITT HÚSIÐ mun í sumar standa
að því verðuga verkefni að auka
menningarflóru miðborgar Reykja-
víkur. Hluti af sumarstarfsemi
þeirra eru 18 hópar ungmenna á
aldrinum 18 til 25 ára sem starfa
munu með hvers kyns listsköpun að
leiðarljósi svo sem myndlist, tónlist,
ritlist, leiklist, dans og hönnun.
Þrjá föstudaga í sumar munu hóp-
arnir svo stíga á stokk í miðborginni
og kynna afrakstur sumarstarfsins
auk þess sem vænta má óvæntra
uppákomna af þeirra hendi í allt
sumar.
Lykkjufall … úps
Sigrún Baldursdóttir og Bryndís
Sveinbjörnsdóttir vinna í sumar
undir vinnuheitinu Lykkju-
fall … úps. Þær stöllur eru nem-
endur fata- og textílhönnunardeildar
Listaháskóla Íslands og munu
standa fyrir óhefðbundnum tísku-
sýningum til að koma hönnun sinni á
framfæri.
Að sögn Sigrúnar er í bígerð litrík
og sumarleg fatalína sem er ögrandi
en jafnframt með rómantísku yf-
irbragði.
Í dag, föstudag, ætla þær Sigrún
og Bryndís að standa fyrir tískusýn-
ingu með óvenjulegu sniði niðri á
Austurvelli þar sem jafnt gínur sem
þær sjálfar sýna hönnun þeirra.
Sigrún segist hæstánægð með að
fá að starfa við aðaláhugamálið sitt í
sumar og að fá styrk í formi launa til
að sinna því sem henni finnst
skemmtilegast.
Henni finnst þetta framtak Hins
hússins kjörið tækifæri til að lífga
upp á miðbæ Reykjavíkur.
„Maður sér varla fólk á ferli nema
sólin skíni eða einhverjir sérstakir
viðburðir séu í boði. Ég vona að
þetta framtak muni draga fleira fólk
niður í miðbæ og eiga þátt sinn í að
auðga menningarlífið hér í Reykja-
vík,“ sagði Sigrún.
Bestikk
Rithópurinn Bestikk sam-
anstendur af þeim Hannesi Óla
Ágústssyni, Friðgeiri Einarssyni,
Kára Tulinius og Þórdísi Helgadótt-
ur. Þeirra verkefni fyrir sumarið er
að skrifa saman skáldsögu.
Að sögn Hannesar Óla ganga
skriftir vel enn sem komið er og
hann segir þau komin vel á veg.
Spurður um efni og uppbyggingu
samvinnuskáldsögunnar segir
Hannes hana vera í viðtalsformi.
„Sagan segir frá atburði sem átti
sér stað á Þorláksmessu fyrir nokkr-
um árum þegar óeirðir og uppþot
brutust út á Austurvelli. Verið var
að samþykkja frumvarp á Alþingi
sem bannar sölu á orkudrykknum
Gemüse Boost og efedrín-sjúklingar
stofna til mótmæla,“ upplýsir Hann-
es Óli.
Hann segist vonast til að sagan
verði gefin út í lok ferlisins en enn sé
of snemmt um það að segja. Hann
segist jafnframt hæstánægður með
þetta framtak Hins hússins og segist
taka þátt í því með bros á vör.
Í dag ætlar rithópurinn Bestikk
að bjóða upp á orkudrykkinn
Gemüse Boost í miðbæ Reykjavíkur.
Hægt er að fylgjast með fram-
leiðsluferli sögunnar á vefslóðinni
www.blog.central.is/bestikk.
Föstudagsflipp Hins hússins
verða sem hér segir: 11. júní, 25. júní
og 2. júlí. Búast má við uppákomum
á Austurvelli, Austurstræti, Lækj-
artorgi og Ingólfstorgi á milli klukk-
an 13.00 og 15.00. Hóparnir munu
auk þess láta að sér kveða hver í
sínu lagi í allt sumar.
Hitt húsið stendur fyrir Föstudagsflippi í sumar
Lykkjufall og
önnur listsköpun
Rithópurinn Bestikk er með skáldsögu í smíðum.
Lykkjufall…úps mun standa fyrir óhefðbundnum tískusýningum í sumar.
birta@mbl.is