Morgunblaðið - 12.08.2004, Blaðsíða 1
Hagsýn í
innkaupum
Kristbjörg og Kristens elta
tilboðin | Daglegt líf
Viðskipti | Gluggar á íslensku Gaman að vinna með ólíkum einstaklingum
Úr verinu | Verðmætin aukin Þúsund síðna handrit um sjávarútveginn
Íþróttir | Guðmundur verður fánaberi Ætlaði aldrei að æfa fótbolta
Skóladagar
Opið til
í kvöld21
12.-22.ágúst
Viðskipti, Úr verinu, Íþróttir í dag
STOFNAÐ 1913 217. TBL. 92. ÁRG. FIMMTUDAGUR 12. ÁGÚST 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
BANDARÍSKAR hersveitir bjuggu sig í
gær undir að hefja stórsókn í Najaf, helgri
borg sjíta í Írak, til að binda enda á upp-
reisn vopnaðra stuðningsmanna sjía-
klerksins Moqtada al-Sadrs. Klerkurinn
skoraði á fylgismenn sína að halda barátt-
unni áfram þótt hann félli eða yrði handtek-
inn.
Bandaríski herforinginn Anthony Hasl-
am sagði að bandarískir hermenn og íraskir
þjóðvarðliðar væru að ljúka undirbúningi
„stórsóknar til að binda enda á bardaga sem
vopnaðir liðsmenn Moqtada hófu“. Sóknin
gæti vakið reiði meðal íraskra sjíta verði
ráðist á grafhýsi imamsins Alis, tengdason-
ar Múhameðs spámanns, þar sem margir
uppreisnarmannanna hafa leitað skjóls.
Sadr skoraði á stuðningsmenn sína að
„berjast til síðasta blóðdropa“ í yfirlýsingu
sem dreift var í Najaf. „Ég hvet Mehdi-
herinn til að halda áfram að berjast gegn
hernámsliðinu fari svo að ég deyi sem písl-
arvottur eða verði tekinn til fanga,“ sagði
Sadr.
Bandaríkjamaður hálshöggvinn?
Um 20 manns biðu bana og 50 særðust
þegar breskir hermenn réðust á vígi vopn-
aðra stuðningsmanna Sadrs í borginni Am-
ara í sunnanverðu landinu.
Þjóðaröryggisráð Íraks sagði að olíuút-
flutningur landsins hefði minnkað um helm-
ing vegna þess að olíuleiðslu í Suður-Írak
var lokað eftir að uppreisnarmenn hótuðu
árás á hana.
Íslamskt vefsetur sýndi í gær myndskeið
þar sem hópur uppreisnarmanna í Írak sést
hálshöggva ungan mann. Fullyrt var að
maðurinn væri bandarískur og njósnari
leyniþjónustunnar CIA en bandarískur
embættismaður sagði í gærkvöldi að engra
CIA-manna væri saknað í Írak.
„Berjist til
síðasta
blóðdropa“
Sadr hvetur menn
sína til að veita harða
mótspyrnu í Najaf
Najaf. AFP.
Moqtada al-Sadr í grafhýsi Alis í Najaf.
NÝJAR umhverfisvænar rækt-
unaraðferðir kunna að vera orsök
mikillar fjölgunar geitunga í
Bretlandi, segir Michael Archer,
fyrrverandi lektor í dýraatferl-
isfræði og umhverfisfræði.
Fréttavefur breska ríkisútvarps-
ins, BBC, greinir frá þessu.
Rannsóknir Archers hafa leitt í
ljós, að geitungar eru nú fleiri en
verið hafa í 20 ár. Þeim hafði far-
ið fækkandi síðan 1980, að öllum
líkindum að nokkru leyti vegna
mikillar notkunar skordýraeiturs
og upprætingar á limgerðum.
Archer hefur sinnt geitungarann-
sóknum í 40 ár.
Hann tjáir BBC að nú á und-
anförnum árum hafi stjórnvöld
hvatt til umhverfisvænna búskap-
arhátta til að bæta skilyrði villtra
dýra í náttúrunni, „og ef til vill
er aukinn fjöldi geitunga til
marks um að þetta takmark sé að
nást“, segir Archer.
Aðrir sérfræðingar tjá BBC að
umhverfisvænir búskaparhættir
kunni að hafa haft eitthvað að
segja um fjölgun geitunga, en
það sé ekki eina ástæðan. Nú í
sumar hefði verið óvenju mikið af
skordýrum af fjölmörgum teg-
undum.
Geitungum fjölgar í Bretlandi
Rakið til lífrænnar ræktunar
EFTIRLITSSTOFNUN EFTA í
Brüssel, ESA, hefur samþykkt
starfsskilyrði Íbúðalánasjóðs og
telur þau ekki brjóta gegn ákvæð-
um EES-samningsins. Um leið
samþykkir ESA hækkun hámarks-
lána Íbúðalánasjóðs í 90% af kaup-
verði íbúðar. Árni Magnússon fé-
lagsmálaráðherra fagnar niður-
stöðunni, boðar frumvarp á
haustþinginu um breytt íbúðalána-
kerfi og reiknar með að breytingar
komi til framkvæmda þegar á
næsta ári.
ESA komst að þeirri niðurstöðu
að fyrirkomulag íbúðalána Íbúða-
lánasjóðs feli í sér almannaþjón-
ustu sem sé heimil samkvæmt
ákvæðum EES-samningsins.
Árni Magnússon segist í samtali
við Morgunblaðið vera ánægður
með niðurstöðu ESA. Hún staðfesti
það sem ríkisstjórnin hafi haldið
fram og sé ótvíræð. Stjórnvöldum
sé því ekkert að vanbúnaði að halda
áfram boðuðum breytingum á
íbúðalánakerfinu. „Næsta skref er
að ég mun á næstu vikum leggja
fyrir ríkisstjórn frumvarp um
breytingarnar á lánshlutfallinu.
Vonandi getur það þá komið fyrir
þingið á fyrstu dögum þess í haust
og verði afgreitt þaðan fyrir jól,“
segir Árni en vill á þessu stigi ekki
upplýsa efnisinnihald frumvarpsins
nánar, að öðru leyti en því að þar
birtist útfærsla ríkisstjórnarinnar
á því hve hratt verði farið í breyt-
inguna. Taka þurfi mið af áhrifum
þeirra á efnahagslífið.
Eftirlitsstofnun EFTA samþykkir starfsskilyrði og 90% lán Íbúðalánasjóðs
Ráðherra reiknar með
breyttu kerfi á næsta ári
GUÐJÓN Rúnarsson, fram-
kvæmdastjóri Samtaka banka og
verðbréfafyrirtækja, SBV, segir
það koma sér á óvart hve nið-
urstaða Eftirlitsstofnunar EFTA sé
afdráttarlaus um að starfsskilyrði
Íbúðalánasjóðs og fyrirhuguð út-
víkkun hans sé heimiluð án at-
hugasemda.
Guðjón segir að samtökin hafi
hins vegar ekki séð forsendur fyrir
úrskurðinum og það fáist ekki fyrr
en eftir þrjár vikur, samkvæmt
vinnureglum ESA. Eftir það hafi
stjórn SBV tvo mánuði til að
ákveða hvort ástæða sé til að
áfrýja niðurstöðunni til EFTA-
dómstólsins. „Við munum að sjálf-
sögðu fara vandlega yfir það,“ seg-
ir Guðjón.
Hlutdeild ríkisins einstök
meðal nágrannaríkja
Hann segir markmið banka og
verðbréfafyrirtækja með kvörtun
til Eftirlitsstofnunarinnar hafa ver-
ið skýr. Hlutdeild ríkisins í lánum
til einstaklinga, gegnum Íbúðalána-
sjóð, sé 53% sem sé einstakt meðal
nágrannaríkja. Það hafi verið von
og trú SBV að ESA myndi horfa til
þessa og setja einhverjar takmark-
anir fyrir starfsemi Íbúðalánasjóðs.
Bankar
íhuga áfrýj-
un til
EFTA-
dómstólsins
HEITASTI loftstraumur sem leikið hefur um landið
síðan mælingar hófust færði landsmönnum áfram
birtu og yl í gær. Ný hitamet litu dagsins ljós. Til
dæmis mældist hitinn í Reykjavík 24,8 gráður sem er
0,5 gráðum hærra en áður hefur mælst. Þá bar það
til tíðinda að engin úrkoma mældist á landinu í gær.
Á gervihnattamynd, sem tekin var um miðjan dag í
gær, er varla að sjá ský yfir landinu./4
Ísland í birtu og yl