Morgunblaðið - 05.09.2004, Page 1
STOFNAÐ 1913 241. TBL. 92. ÁRG. SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 PRENTSMIÐJA ÁRVAKURS HF. mbl.is
N
O
N
N
I
O
G
M
A
N
N
I
Y
D
D
A
/
S
IA
.I
S
/
N
M
1
3
3
3
5
fiÚ fiARFT EKKI
A‹ HAFA ÁHYGGJUR
AF fiVÍ A‹ VEXTIRNIR
HÆKKI NÆSTU
40 ÁRIN
KB ÍBÚ‹ALÁN
– kraftur til flín!
Stórafmæli
stórsöngvara
Raggi Bjarna heldur upp á afmælið
með plötu og skemmtun | Menning
Tímaritið og Atvinna í dag
Tímarit | Draumur í Danaveldi Skutlur í skreytistíl Brot-
hætt fegurð Sykur, sælgæti og gos Atvinna | Menntun mikil-
væg Hæfni félagsmanna VR meiri nú
5 6 9 0 9 0 0 0 0 0 9 0 0
SUNNUDAGUR VERÐ KR. 350
NETFÍKN eða netárátta
færist í vöxt meðal ungra
karlmanna undir þrítugu.
Þeir ánetjast tölvuleikjum,
einkum svokölluðum fjölda-
þátttökuleikjum, spjallrásum
og ýmsu öðru sem Netið hef-
ur upp á að bjóða. Afleiðingar
eru þær að þeir vanrækja allt
annað, svo sem nám, starf,
vini og fjölskyldu.
Í Tímariti Morgunblaðsins
í dag segja sálfræðingarnir
Einar Gylfi Jónsson og Björn
Harðarson að fylgikvillar net-
fíknar séu oft þeir sömu og
hjá vímuefnaneytendum, t.d.
sinnuleysi, félagsleg einangrun, þung-
lyndi, skapofsaköst og veruleikafirr-
ing. Einar Gylfi segir vandamál tengd
tölvuleikjanotkun býsna algeng;
„… þetta er eitt af því sem við sjáum
aukast“, segir hann og kveðst spyrja
alla sem til hans leita hvernig tölvu-
notkun þeirra er háttað, líkt og hann
spyr alla sem til hans leita um áfeng-
isnotkun þeirra. „Fyrir áratug hefði
maður ekki spurt um tölvunotkun en
þetta er orðið ein af rútínuspurn-
ingunum í dag,“ segir hann. Björn
segir að net- og leikjafíkn feli ekki í
sér alvöruvímu, en sé hegðun sem
menn missi stjórn á, enda eyði ákafur
tölvuleikjamaður oft frá átta upp í
sextán tímum á sólarhring í leikina.
Netfíkn hefur ekki aðeins áhrif á
þann, sem henni er haldinn, heldur
einnig fjölskyldu og nánasta um-
hverfi. Þannig segir móðir pilts, sem
var átján ára þegar hann ánetjaðist
fjöldaþátttökuleik, að ástandið hefði
verið eins og að vera með
sjúkling á heimilinu. Og við-
brögðin þegar hún tók til
sinna ráða að hefta aðgang
hans að tölvunni eins og hún
hefði tekið flösku af drykkju-
sjúklingi. „Hann sagði að það
væri hundleiðinlegt að lifa og
var hreinlega niðurbrotinn að
hafa ekki Netið. Þetta var
skelfilegt ástand og honum
leið greinilega mjög illa.“
Missa vinnuna
Dæmi eru um að menn hafi
misst vinnuna vegna þess að
þeir eru of uppteknir í tölvu-
leikjum og tengdri afþreyingu. „Þetta
virðist ná svo miklum tökum á fólki að
það missir algerlega stjórnina og læt-
ur þetta fara í svona far, jafnvel þótt
það viti af því að þetta er vandamál og
vilji ekki hafa hlutina svona. Það bara
ræður ekki við þessa hegðun,“ segir
rekstrarstjóri í tölvufyrirtæki, sem
þurfti að segja upp 25 ára starfsmanni
vegna þessarar áráttu.
Fylgikvillar netfíknar oft eins og hjá vímuefnaneytendum
„Eins og að vera með
sjúkling á heimilinu“
Tímarit
FORSÍÐA eins af virtustu dag-
blöðum Rússlands, Izvestia, var án
fyrirsagnar og fréttar í gær. Þess í
stað var forsíðan lögð undir mynd
af manni bera stúlku út úr skól-
anum í Beslan eftir að sérsveitar-
menn réðust inn í bygginguna.
Stúlkan var hálfnakin og ríghélt
skelfingu lostin í háls mannsins.
Ritstjórar Izvestia töldu myndina
lýsa hryllingnum betur en nokkur
orð. Forsíðan endurspeglaði einnig
geðshræringu margra Rússa sem
urðu orðlausir af hryllingi vegna
blóðsúthellinganna í skólanum.
Izvestia
varð orðlaus
VLADÍMÍR Pútín Rússlandsforseti
heimsótti í gær bæinn þar sem sér-
sveitarmenn réðust inn í skóla til að
frelsa hundruð gísla úr höndum
hryðjuverkamanna á föstudag. 322
lík höfðu fundist í skólanum í gær,
þar af 155 börn, að sögn aðstoðarrík-
issaksóknara Rússlands, Sergejs
Frídínskís.
„Þetta er ekki endanleg tala lát-
inna og líklegt er að hún hækki, en
ekki of mikið,“ sagði hann. Ljóst er
að þetta er mannskæðasta gíslataka
í sögu Rússlands.
„Allir Rússar syrgja með ykkur,“
sagði Pútín á fundi með embættis-
mönnum í bænum Beslan í sjálf-
stjórnarhéraðinu Norður-Ossetíu.
Pútín kvaðst hafa fyrirskipað að
öllum undankomuleiðum úr Norður-
Ossetíu yrði lokað vegna leitar að öll-
um sem kynnu að vera viðriðnir
gíslatökuna. Talið var að nokkrir
gíslatökumenn kynnu enn að vera í
felum í Beslan.
Pútín áréttaði að ekki hefði verið
áformað að beita valdi til að frelsa
gíslana. Rússnesk yfirvöld segja að
sérsveitarmennirnir hafi neyðst til
að ráðast inn í skólann eftir að gísla-
tökumennirnir hafi skotið á gísla
sem reyndu að flýja þegar miklar
sprengingar urðu í byggingunni.
Gíslarnir voru um þúsund og þeim
var haldið án matar og vatns í hita-
svækju í íþróttahúsi skólans. Farið
var með á sjöunda hundrað á sjúkra-
hús. Á meðal þeirra sem særðust
voru 283 börn.
Basajev kennt um
Aðstoðarríkissaksóknarinn sagði
að 26 gíslatökumenn og tíu sérsveit-
armenn hefðu fallið í átökunum.
Engin hreyfing lýsti gíslatökunni
á hendur sér. Haft var eftir embætt-
ismönnum í rússnesku öryggislög-
reglunni að Shamil Basajev, ill-
ræmdur tétsenskur stríðsherra,
hefði skipulagt gíslatökuna.
Rússneskir fjölmiðlar sögðu að
hryðjuverkamennirnir hefðu hafið
undirbúning gíslatökunnar í júlí þeg-
ar verið var að gera upp íþróttahús-
ið. Þeir þóttust vera verkamenn að
flytja byggingarefni í húsið og földu
sprengjur og byssur í kjallara þess.
Á fjórða hundrað gísla
lét lífið í skólanum
Mannskæðasta
gíslataka í sögu
Rússlands
Reuters
Íbúar Beslan í N-Ossetíu syrgja átta ára dreng sem var á meðal gíslanna er biðu bana í skóla bæjarins á föstudag.
Beslan. AP.