Morgunblaðið - 05.09.2004, Síða 4
FRÉTTIR
4 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Plúsfer›ir • Hlí›asmára 15 • Sími 535 2100
Dubli
n
37.810kr.
Dublin bíður þín
á mann miðað við að 2 fullorðnir ferðist saman.
Innifalið: Flug, gisting í 3 nætur á Bewleys hótelinu,
íslensk fararstjórn og allir flugvallarskattar.
Netverð
4., 11., og 25. nóvember
SIGLINGASTOFNUN mun taka
mið af öllum tillögum rannsóknar-
nefndar sjóslysa, þar á meðal að
herða eftirlit með vélarrýmum, telji
nefndin ástæðu til þess.
Eins og fram hefur komið í Morg-
unblaðinu var Kópsnesið, sem sökk
sl. fimmtudag norður af Skagatá,
sjötti báturinn sem sokkið hefur á
þessu ári vegna óþekkts leka.
Hermann Guðjónsson, forstjóri
Siglingastofnunar, minnir á að skoð-
unarreglur séu að stærstum hluta al-
þjóðlegar auk þess sem einkaaðilar
sjái nú um skipaskoðun. Það verði
skoðað hvernig staðið verði að því að
herða eftirlit með vélarrýmum verði
þess óskað. Þá sé hugsanlegt að Sigl-
ingastofnun leggi áherslu á þetta at-
riði í skyndiskoðunum.
Kópsnesið var undirmannað þegar
það sökk. Þrír menn voru um borð en
samkvæmt lögum er skylt að hafa
fjóra menn í áhöfn í skipum af þess-
ari stærð; skipstjóra, stýrimann, yf-
irvélstjóra og vélavörð. Samkvæmt
lögum er heimilt að breyta þessum
ákvæðum en Kópsnesið hafði ekki
fengið slíka undanþágu, samkvæmt
upplýsingum frá Siglingastofnun.
Hjá Tryggingamiðstöðinni hf.,
sem er stærsti vátryggjandi skipa á
Íslandi, fengust þær upplýsingar að
undirmönnun gæti haft áhrif á tjóna-
bætur. Þórður Þórðarson í skipa-
tryggingadeild félagsins segir að í
þeim tilfellum sé metið hvort mann-
fæð hafi haft áhrif á tjónið, t.d. hvort
hægt hefði verið að koma í veg fyrir
það ef mannskapurinn hefði verið
meiri. Ekki hafi reynt á þetta ákvæði
hjá félaginu í seinni tíð.
Þórður segir tíð sjóslys af völdum
leka vera áhyggjuefni, sérstaklega
fyrir sjómenn.
Hert eftirlit með vélar-
rýmum skipa til skoðunar
BBC-sjónvarpsstöðin var við myndatökur í vík-
ingabænum á Eiríksstöðum í seinustu viku. Voru
starfsmenn sjónvarpsstöðvarinnar að mynda fyrir
ferðaþætti sem heita Holiday og eru sendir út á hverju
mánudagskvöldi á BBC og einnig á BBC world wide.
Er talið að 30 milljónir áhorfenda sjái þættina. Mun
þessi þáttur verða sýndur í vetur. Þátturinn fjallar um
föður og son sem ferðast saman til Íslands til að styrkja
tengslin og kynnast betur. Þeir heimsækja áhugaverða
staði og var víkingabærinn einn af þeim. Ferða-
málaráð, Flugfélag Íslands, Iceland Express og Ferða-
þjónusta bænda styrkja þennan þátt.
BBC myndar á Eiríksstöðum
Búðardal. Morgunblaðið.
Morgunblaðið/Helga Ágústsdóttir
UM 45 manns í Aftanskini, félagi eldri
borgara í Stykkishólmi og nágrenni, flugu á
föstudagsmorgun til Vága í Færeyjum með
Fokker-flugvél frá Flugfélagi Íslands sem
félagið hefur tekið á leigu. Dvalið verður í
Færeyjum fram á mánudag og bíður vélin
eftir eldri borgurunum í Færeyjum á með-
an. Áhöfn vélarinnar fer hins vegar til baka
til Íslands með Atlantic Airways og flýgur
svo aftur til Færeyja á mánudag til þess að
fljúga með eldri borgarana heim til Íslands.
Taka vel á móti Íslendingum
Emil Guðmundsson, sem sjálfur er kom-
inn á eftirlaun, vinnur í hlutastarfi hjá
Flugfélagi Íslands og sér um samband við
félög eldri borgara hér heima og útvegar
þeim ferðir með félaginu. Emil segir að
ekki hafi fengist nógu mörg sæti í áætl-
unarflugi til Færeyja þannig að Aftanskin
hafi einfaldlega ákveðið að taka vélina á
leigu. Hann segir félaginu hafa boðist góð
kjör hjá Flugfélagi Íslands, þeir séu góðir
við eldri borgara og því hafi þessi lausn
orðið ofan á.
Emil, sem margoft hefur komið til Fær-
eyja og verður leiðsögumaður hópsins
ásamt Gunnari Þorlákssyni, segir alltaf
ánægjulegt fyrir Íslendinga að koma þang-
að enda séu Færeyingar sérstaklega vin-
veittir Íslendingum. „Það er mikil til-
hlökkun í hópnum, hef ég heyrt. Það eru
ekki nema þrír eða fjórir sem hafa komið
þangað áður. Færeyingar taka svo vel á
móti Íslendingum, eiginlega eins og þegar
tekið er á móti frændum og vinum,“ segir
Emil. Í Þórshöfn ætla félagar í Aftanskini
m.a. að heimsækja Tilhaldið, félagsmiðstöð
eldri borgara í Þórshöfn. „Já, hún heitir Til-
haldið, ekki Viðhaldið. Tilhald þýðir bara
samkomustaður á færeysku,“ segir Emil.
Á laugardaginn verður farið í Kirkjubæ,
Norðurlandahúsið o.fl. Á sunnudag verður
farið í rútu að Eiði og Gjov en um kvöldið
er sameiginlegur kvöldverður og að honum
loknum fá Aftanskinsmenn að kynnast fær-
eyskum dönsum:
„Það á að kenna okkur þá. Það er félag
eldri borgara í Færeyjum sem ætlar að
vera með það og leiða okkur inn í dansinn.
Það er mjög spennandi. Það verða ræður og
kvöldvaka og svo færeyski dansinn og svo
áframhaldandi dans eins og menn endast
til,“ segir Emil.
Spurður hvort Færeyingar hætti nokkuð
þegar þeir eru á annað borð byrjaðir að
stíga dans segir Emil: „Ekki fyrr en þeir
detta niður dauðir, held ég.“
Leigðu Fokker-vél til Færeyjaferðar
Morgunblaðið/Þorkell
Lagt í ’ann. Félagar í Aftanskini stilltu sér upp við flugvélina fyrir brottförina frá Reykjavíkurflugvelli.
RÁÐHERRAR orkumála á Norð-
urlöndum urðu sammála á fundi á
Akureyri á föstudag um aðgerðir
til þess að hrinda í framkvæmd
hugmyndum um landamæralausan
norrænan raforkumarkað, sem
einnig getur átt viðskipti við um-
heiminn.
Í sameiginlegri yfirlýsingu sem
samþykkt var á fundinum á Ak-
ureyri var lögð áhersla á að sam-
hæfing reglna um ábyrgð á raf-
orkukerfinu ásamt sameiginlegum
lausnum hvað varðar fjárfestingar
í dreifikerfinu eru grundvallarskil-
yrði fyrir áframhaldandi þróun á
Norðurlöndum. Dreifingaröryggi
var einnig í brennidepli á ráð-
herrafundinum. Ráðherrarnir
lögðu áherslu á að betri aðstæður
til fjárfestinga myndu auka öryggi
kerfisins á Norðurlöndum.
Ólíkar orkuuppsprettur
Orkuuppsprettur Norður-
landanna er afar ólíkar. Finnar
byggja upp kjarnorkuver, en Svíar
loka þeim. Þessi tvö lönd ásamt
Noregi og Íslandi búa yfir mikilli
vatnsorku. Danmörk og sérstak-
lega Noregur eiga miklar gas- og
olíuauðlindir.
Öll eru þó löndin sammála um
að leggja meiri áherslu á endur-
nýjanlega orku. Íslendingar fá
72% af sinni orku frá jarðvarma og
vatnsorku, en Danmörk 25% sinn-
ar orku frá vindmyllum. Hin lönd-
in vilja einnig auka áherslu á end-
urnýjanlega orku, og ekki síður
betri orkunýtingu.
„Þetta var mjög ánægjulegur
fundur og gekk mjög vel,“ sagði
Valgerður Sverrisdóttir iðnaðar-
og viðskiptaráðherra, en það kom í
hennar hlut að stýra fundi nor-
rænna ráðherra sem fara með at-
vinnu-, orku- og neytendamál.
Efla á samkeppnisstöðu
„Það voru mörg mál á dagskrá
er varða norrænt samstarf,“ sagði
Valgerður Sverrisdóttir, en at-
vinnumálaráðherrarnir staðfestu
m.a. nýja stefnu sem miðar að því
að efla atvinnulíf og nýsköpun á
Norðurlöndunum og byggist á
skýrslu sem kom út fyrr á þessu
ári.
Markmiðið er að efla samkeppn-
isstöðu Norðurlandanna með
auknu rannsóknar- og tækniþróun-
arstarfi og samræmdri stefnu á
svið vísindarannsókna og nýsköp-
unar. Ráðherrarnir ræddu einnig á
fundinum leiðir til að ryðja úr vegi
hindrunum á norrænum landa-
mærum fyrir fyrirtæki sem vilja
vera með rekstur í fleiri en einu
landi.
Ráðherrar vilja
landamæralausan
raforkumarkað