Morgunblaðið - 05.09.2004, Page 22
22 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
O
kkur finnst að
stefni í skipu-
lagsslys. Við
erum ekki að
slá þessu fram
í einhverju
áróðursskyni.
En við mynd-
um gjarnan vilja fá að vita hvort aðrir
kostir eru í stöðunni,“ segir Þór
Whitehead, prófessor og íbúi við
Unnarbraut. Hann er ásamt Stefáni
Erni Stefánssyni, framkvæmdastjóra
og íbúa við Bakkavör, í hópi sem hef-
ur kallað sig áhugahóp um betri
byggð á Seltjarnarnesi og er að þeirra
sögn ekki einsleitur þrýstihópur held-
ur sjálfsprottinn hópur sem m.a. vill
fá fram fleiri hugmyndir að byggð á
Hrólfsskálamel og við Suðurströnd.
Fyrri bæjarstjóri lofaði útsýni
Stefán Örn hefur búið á Seltjarn-
arnesi í fjörutíu ár. Með tilkomu fjöl-
býlishúsa við Suðurströnd segir hann
útsýni sitt í austurátt þurrkast út.
„Fyrri bæjarstjóri gaf þeim fyrir-
heit þegar þau keyptu lóðirnar, jafn-
vel fyrir andvirði þriggja herbergja
íbúða í Reykjavík, að útsýni yrði ekki
skert. Þetta teljum við réttlætismál í
bæjarfélagi sem vill styðja rétt ein-
staklingsins gegn ofstjórn og valdógn
hins opinbera. Við teljum að þarna
hafi þessir einstaklingar keypt sér
ákveðin hlunnindi,“ segir Þór.
Þeir telja að ljósmyndir og mynd-
bönd í kynningarbæklingi bæjaryfir-
valda gefi ekki rétta sýn á það hversu
stórar byggingarnar verða. „Á mynd-
bandinu virðast blokkirnar jafnvel
ekkert ósvipaðar að stærð og ein-
býlishúsin,“ bendir Stefán á.
Forsendur breytinga deiliskipu-
lagsins eru m.a. þær að fjölga þurfi
íbúðum til að halda í tiltekinn íbúa-
fjölda á Seltjarnarnesi. Þór og Stefán
eru ekki sammála því að fólksfækkun
sé vandamál á Nesinu. „Við teljum að
þetta sé ekkert sérstakt vandamál.
Við búum við besta fjárhag bæjar-
félags á Íslandi og bæjarbúar eru
meðal tekjuhæsta fólks á landinu. Og
þó að það fækki hér um innan við
hundrað manns á einhverju tilteknu
ári miðað við eitthvert annað ár þá er
það ekki endir alls. Það er búið til úr
þessu vafasamt reiknidæmi og sagt
að fjárhagurinn, skólastarf og annað
geti komist á heljarþröm út af þessari
smávægilegu fækkun sem er hugsan-
lega tímabundin. Við teljum að vanda-
málið vaxi þeim mjög í augum,“ segir
Þór.
Stefán segir fólksfækkun eitur í
beinum sveitarstjórnarmanna. „Þeir
sjá þá fram á að þurfa að grípa til hag-
ræðingaraðgerða. Það eru þeir að
mikla fyrir sér. Þó svo að þessar
framkvæmdir verði með þessum
hætti þá komum við aftur til með að
standa í nákvæmlega sömu sporum
og við erum í í dag eftir nokkur ár,“
segir hann og spyr hvar eigi þá að
byggja. Því fyrr sem bæjaryfirvöld
horfist í augu við þá staðreynd að Sel-
tjarnarnes er landlítið því betra, segja
þeir.
Þeir telja að þótt sú tillaga sem nú
er uppi á borðum um uppbyggingu á
þessum svæðum hafi verið kynnt þá
sé réttara að skoða málið í miklu víð-
ara samhengi. Til þess að fá heildar-
sýn yfir byggingarmöguleika sé bráð-
nauðsynlegt að gera nýtt aðal-
skipulag fyrir bæinn.
Spurðir að því hvers vegna gagn-
rýni á breytingu á deiliskipulagi sem
nú stendur fyrir dyrum hafi ekki
komið fram fyrr segir Stefán að engin
fastmótuð tillaga hafi verið kynnt
þegar ljóst var fyrir ári að byggja ætti
á þessum stöðum.
Framtíð knattspyrnuvallarins telja
þeir stefnt í hættu með flutningi á lóð
Ísbjarnarins. „Það var gerð fagleg út-
tekt á þessu og niðurstaðan varð sú að
núverandi staðsetning væri heppileg-
ust. Þetta er ítrekað í grein frá árinu
2000 af núverandi forseta bæjar-
stjórnar. Það var einróma sátt um að
hafa þennan völl áfram á þessum
stað,“ segir Stefán.
Greinin sem hann vitnar til birtist í
Nesfréttum í júlí 2000. Þar er haft eft-
ir Ásgerði Halldórsdóttur, formanni
æskulýðs- og tómstundaráðs Sel-
tjarnarness, sem nú er forseti bæj-
arstjórnar, að náðst hafi sameiginleg
niðurstaða um „að byggja upp svæðið
sem malarvöllurinn er á og setja þar
gervigrasvöll“, eins og hún orðar það.
Þór telur að tilflutningur knatt-
spyrnuvallarins muni gera svæðið
sundurlaust auk þess sem mjög muni
þrengja að honum.
Vantar miðbæjarkjarna
„Það sem hefur vantað á Seltjarn-
arnes er miðbæjarkjarni. Vonir stóðu
til að þegar þessi hús yrðu rifin yrði
hægt að mynda þarna lífvænlegan
miðbæ með tengingu við Eiðistorg.
Okkur finnst að þarna skorti allar
hugmyndir við að tengja þetta saman.
Það liggur við að segja að menn hafi
gefist upp á að byggja upp slíkan
miðbæ,“ segir Stefán.
Í kynningarbæklingnum sem dreift
var í hús í ágúst er bent á að lítil sem
engin eftirspurn sé eftir húsnæði und-
ir verslun og þjónustu á Seltjarnar-
nesi. „Ástæðan er sú að hugmyndin á
bakvið þessa verslunarmiðstöð varð
því miður viðskila við þróun þó að hún
væri góðra gjalda verð, en það segir
okkur ekki að það séu ekki mögu-
leikar þarna. Það vantar bara vilja og
hugmyndir til þess að taka á þessu
máli,“ segir Þór og bætir við að það
sem helst skorti á Nesið sé lífvæn-
legur miðbær eins og hann orðar það.
„Þessi ofuráhersla hjá bæjaryfir-
völdum er að hámarka byggingar-
magn. Það er út frá rekstrarlegum
forsendum, þá geta kannski ársreikn-
ingarnir litið betur út. Það sjónarmið
er skiljanlegt en það á ekki að ráða,
heldur á að ráða það sjónarmið sem
íbúarnir vilja. Þó að það sé aðeins
óhagstæðara fyrir bæjarreikningana
er það miklu raunhæfari lausn í sátt
við íbúana.“
Þeir segja andstöðu við breytingur
á deiliskipulagi ekki bundna við þá
sem eigi beinna hagsmuna að gæta.
Þór býr á Unnarbraut og hans útsýni
skerðist því ekki. „Ég tek afstöðu
meðal annars út frá umhverfissjónar-
miðum. Við viljum jafnvægi milli
byggðarinnar og umhverfisins. Við
teljum að það sé rofið með þessu.“ Að
mati Þórs er það lágreist byggð sem
einkennir Nesið umfram annað. „Hér
er verið að hlamma þessum blokkar-
lengjum niður í einbýlis- og raðhúsa-
hverfi. Í mörgum öðrum löndum
kæmi þetta bara alls ekki til greina,“
segir Þór og Stefán bætir við: „Þetta
er í svo hrópandi mótsögn við aðra
byggð á Nesinu. Þær blokkir sem fyr-
ir eru á Seltjarnarnesi eru á tiltölu-
lega afmörkuðu svæði.“
Þeir segjast þó ekki hafa neitt á
móti fjölbýlishúsum. „Að sjálfsögðu
ekki. Við gætum vel hugsað okkur að
búa í slíkum húsum og höfum gert
það drjúgan hluta ævinnar. En það
verður að finna blokkum réttan stað.“
Þeir segja skammtímasjónarmið
liggja að baki breytingum á deili-
skipulagi. „Þetta er afturför að okkar
mati, ekki síst fyrir knattspyrnu-
menn. Við teljum að það sé verið að
fórna meiri hagsmunum fyrir minni,“
segir Þór.
Stefán segir að ákveðin þversögn
felist í málflutningi bæjaryfirvalda.
Seltirningarnir Stefán Örn Stefánsson og Þór Whitehead eru ósáttir við fyrirhugaðar framkvæmdir
„Stefnir í skipulagsslys“
Útsýni frá húsi við Skólabraut yfir byggingarsvæðið á Suðurströnd.
„ÉG LÍT þannig á málið að það sé
krafa íbúanna á okkur að leiða þetta
mál til lykta,“ segir Jónmundur Guð-
marsson bæjarstjóri Seltjarnarness
um fyrirhugaða byggingu fjölbýlishúsa
á Hrólfsskálamel og við Suðurströnd.
Hann segir það ekki vera markmið að
fjölga íbúum heldur að viðhalda til-
teknum íbúafjölda sem og viðhalda
hagkvæmni í rekstri bæjarins. Jón-
mundur undrast það hversu seint
gagnrýni á fyrirhugaðar framkvæmdir
og tilheyrandi skipulagsbreytingar
komi fram, enda hafi verið ljóst að
byggja ætti á þessum svæðum fyrir
einu og hálfu ári síðan.
„Við teljum að við getum þjónustað
bæjarbúa vel með lágum álögum mið-
að við þennan mannfjölda, 4.500–
4.600,“ segir Jónmundur. Í nýlegum
kynningarbæklingi um framkvæmd-
irnar kemur fram að börnum hafi
fækkað um allt að 30–40% í sumum
árgöngum og Jónmundur segir þau
gögn sem fyrir liggja, m.a. mannfjölda-
spá Hagstofunnar, sýna að fækkunin
muni trúlega halda áfram. „Þannig að
við erum öðrum þræði að bregðast við
til að halda í tiltekinn íbúafjölda. En við
viljum þó fyrst og fremst skapa ný
skilyrði fyrir Seltirninga í íbúða-
samsetningu, bæði þá sem yngri eru,
sem annað hvort vilja hefja búskap í
smærri íbúð eða bara bíða eftir því að
losni hér raðhús eða einbýlishús, og
þann hóp sem er ört stækkandi hjá
okkur sem er í rúmgóðu húsnæði í ein-
býli og vill komast í vandað húsnæði í
fjölbýli.“
Jónmundur segir að það svæði sem
nú stendur til að byggja á hafi verið í
skipulagningu frá því 1990. Búið sé að
fara í gegnum ýmsar hugmyndir og
leggja fram tillögur sem sambærileg
átök hafa verið um. Þegar núverandi
bæjarstjórn tók við hafi verið ákveðið
að byrja frá grunni og ryðja fyrri hug-
myndum út af borðinu. „Það var hald-
ið íbúaþing og úr því var síðan unnið
með markvissum hætti. Það komu til-
lögur út úr því sem bæjarstjórn var
sammála um að halda áfram með. Úr
þeim varð síðan þessi tillaga sem við
erum að auglýsa. Þar af leiðandi er bú-
ið að vinna þetta mál í langan tíma
með mjög kirfilegum hætti. Við erum í
raun að bregðast við óskum fólks og
væntingum um hvernig það vill haga
hlutunum með tilliti til uppbyggingar
og þjónustu.“
Jónmundur kveðst telja eðlilegt að
skoðanir séu skiptar í jafn flóknu máli.
„En ég held að það sé mikilvægt að
fólk átti sig á því með hvaða hætti
verkefnið var unnið. Ég fullyrði að það
sé einsdæmi meðal sveitarfélaga. Það
var unnið með samráði við íbúa, fyrir
opnum tjöldum og með mjög mark-
vissri kynningu á tillögunum. Auk þess
sem íbúum hefur hvað eftir annað gef-
ist kostur á að gera athugasemdir. Við
þeim hefur í allnokkrum tilfellum verið
orðið.“
Jónmundur segir að upphaflega
hafi íbúðirnar átt að vera 182 en þeim
hafi verið fækkað í 165 og byggðin
lækkuð til að bregðast við at-
hugasemdum sem fram komu.
„Græni trefillinn“ ekki skertur
Að sögn bæjarstjórans er ekki
ástæða fyrir Nesbúa til að hafa
áhyggjur af skerðingu á útivist-
arsvæðum þótt farið verði út í fram-
kvæmdir. „Byggingarsvæðið við Suð-
urströndina er eingöngu vallarstæðið
sjálft. Í upphafi hafði fólk áhyggjur af
því að við ætluðum að skerða hinn
„græna trefil“ sem svo er kallaður en
það stendur ekki til og stóð aldrei til.
Þetta er í raun ekki skerðing á opnu
svæði heldur tilflutningur á opnu
svæði. Um 40% af landsvæði Sel-
tjarnarness eru útivistarsvæði. Sam-
fara þessum hugmyndum eru engar
aðrar fyrirætlanir um byggð á Sel-
tjarnarnesi.“
Álögur gætu lækkað í kjölfarið
Seltjarnarnesbær hefur verið ann-
álaður fyrir lágar álögur og hag-
kvæman rekstur. Einhverjir hafa spurt
hvort þörf sé á framkvæmdum fyrst
allt gangi vel.
„Við erum vel rekið sveitarfélag en
reksturinn er auðvitað mjög við-
kvæmur. Rekstrarafgangur bæjarins
ár hvert nemur um 150 milljónum,
sem er gott miðað við önnur sveit-
arfélög. En þetta eru ekki miklir pen-
ingar. Við erum ekki ríkt bæjarfélag í
þeim skilningi að við liggjum á ein-
hverjum sjóðum.“ Hann segir að eftir
að greitt hafi verið af langtímaskuld-
um standi eftir um 100 milljónir króna
til að standa í uppbyggingu.
„Við leggjum í aðgerð nú sem við
teljum að sé nægjanleg til þess að við
viðhöldum þessu jafnvægi. Horft er til
langs tíma og við álítum auðvitað um
leið að við séum að skapa skilyrði fyrir
bættri þjónustu og auknum lífsgæðum
íbúanna. Ef fleiri íbúar bætast við, þá
auðvitað styrkist reksturinn og gefur
okkur færi á að ráðast í viðameiri
framkvæmdir fyrir íbúanna.“
Jónmundur segir að þegar hafi ver-
ið ákveðið að söluandvirði landsins
sem tekið verður undir byggingarnar
renni til uppbyggingar sundlaugar og
hjúkrunarheimilis. „Það gætum við
annars ekki gert nema stofna til
skulda eða bara hækka álögur. Fyrir
því er ekki vilji. Ég álít að það sé hlut-
verk okkar að veita sem besta þjón-
ustu fyrir sem minnst fé, þannig að
sem flestar krónur sitji eftir í vasa
þeirra sem hér búa. Reyndar hefur
það verið rætt að ef hagkvæmni bæj-
arins vex með merkjanlegum hætti í
kjölfar þessa þá gætum við verið í
stakk búin í framtíðinni að lækka hér
hreinlega álögur. Veita til dæmis þjón-
ustu leikskóla fyrir lægra verð en við
gerum nú, eða lækka hreinlega út-
svarið. Mér finnast þetta verðug mark-
mið.“
Staðsetning knattspyrnuvallarins er
umdeild, en hann verður færður þang-
að sem hús Ísbjarnarins stóð en það
hefur nú verið rifið. Jónmundur segir
niðurstöður íþrótta- og æskulýðsráðs,
skipulagsnefndar og bæjarstjórnar, all-
ar samhljóma, hafa verið á þá leið að
þessi landnýting væri heppilegust. Þá
hafi málið verið rætt við íbúa í húsum
fyrir aldraða sem standa við Skóla-
braut, ofan við fyrirhugað vallarstæði.
„Þeir íbúar virðast ekki á móti því að
það sé líf við húsin þeirra.“
Annars konar miðbær
Segja má að fyrirhugað vallarstæði
standi í miðbæ Seltjarnarness og Jón-
mundur kveðst ekki hafa áhyggjur af
því að knattspyrnuiðkun henti ekki
sem miðbæjarstarfsemi. „Ég held að
við séum með þessu að skapa góðan
og öflugan miðbæ. Þetta er bara ann-
ars konar miðbær en þekkist. Það hef-
ur ekki verið nein eftirspurn eftir hús-
næði undir kaffihús eða annað slíkt
hér. Það er lítil eftirspurn eftir því
verslunarhúsnæði sem er til staðar í
bænum. Ég sé þetta fyrir mér sem
miðbæ þar sem þungamiðja mannlífs-
ins á Nesinu á sér stað. Þarna eru
skólarnir, þarna er tónlistarskólinn,
þarna er íþróttastarfsemin sem er
með öflugasta starfi meðal sveitarfé-
laga. Þarna iðar allt af lífi á daginn.
Mér finnst það ekkert úr vegi að líta á
þess konar mannlíf sem miðbæj-
armannlíf, alveg eins og verslun og
kaffihúsamenningu. Íþróttafélagið
Grótta beitti sér sérstaklega fyrir því
að völlurinn yrði staðsettur þarna. Fé-
lagið hefur bæði samþykkt og stutt
staðsetningu og stærð vallarins og tel-
ur hana íþróttastarfinu og knattspyrn-
unni til framdráttar.“
Jónmundur segir áhugahóp um
betri byggð, sem hefur undanfarið
beitt sér gegn framkvæmdum á þess-
Jónmundur Guðmarsson bæjarstjóri segir ný skilyrði skapast í íbúðasamsetningu á Seltjarnarnesi
„Krafa íbúanna
á okkur“
Þessi mynd birtist í bæklingi frá Seltjarnarnesbæ sem borinn var í hvert hús á
Nesinu í maí í fyrra. Rauðbrúnu reitirnir sýna fyrirhugað byggingarsvæði og blái
flöturinn er knattspyrnuvöllurinn. Síðar var ákveðið að betur færi á því að snúa
knattspyrnuvellinum þvert.