Morgunblaðið - 05.09.2004, Síða 28

Morgunblaðið - 05.09.2004, Síða 28
28 SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ Kynning á Alfa-námskeiðinu í Neskirkju þriðjudaginn 7. september kl. 20 Kaffi og veitingar Alfa fer sigurför um heiminn. Um 7 milljónir þátttakenda hafa sótt námskeiðið á 15 árum. Hver er tilgangur lífsins? Hver er kjarni kristinnar trúar? Alfa er fyrir fólk sem efast, trúir eða trúir ekki. Komdu á þriðjudagskvöldið og kynntu þér málið án allra skuldbindinga. Einnig er hægt að skrá sig á neskirkja@neskirkja.is Fyrirlesarar sr. Örn Bárður Jónsson og dr. Sigurður Árni Þórðarson. Alfa-námskeið í Neskirkju Allir í dans.. Samkvæmisdansar Para- og einstaklingshópar Kántrý Einkatímar Saumaklúbbar Fyrirtæki og lokaðir hópar Salsa - Mambó og Tjútt Skeifan 11.b Húnabúð.  Innritun 1. - 10.sept. Kennsla hefst sunnudaginn 12. september  Pör & Einstaklingar 14 vikur og ball. Innritun daglega frá kl. 13 - 19. í síma: 565 4027 861 6522  www.dih.is | audurdans@simnet.is | DÍ. faglærðir kennarar. Faglærðir Danskennarar. Auður Haralds Lizý Steinsd. ReykjavíkKennt á sunnudögum. I. Þetta var í gamla daga,þrem árum fyrir Lýð-veldisstofnun, vorið 1941.Kristján Birningur rakþá B.S.A. með miklum myndarbrag (hét fullu nafni Krist- ján Kristjánsson, f. 1899, d. 1968, kenndur við Birningsstaði). Ég tók mér far með Húsavíkurrútu hans, bílstjóri Óskar Sigvaldason (1908– 1998). Farþegar voru þessir, sem ég man: Sigurður Einarsson Hlíðar (1885–1962), dýralæknir í Norðlend- ingafjórðungi og alþingismaður Ak- ureyringa og fylgdi Sjálfstæðis- flokknum að málum, kaupamaður einn, sem ráðinn hafði verið til veit- ingafólksins á Fosshóli, þeirra Hólmfríðar Sig- urðardóttur (1879–1961) og sonar hennar Sigurðar Lúthers Vigfússonar (1901–1959). Ferð minni var aftur á móti heit- ið að Breiðumýri, en þaðan hugðist ég hjóla norður í Voga í Mývatnssveit til sjöttu sum- ardvalar minnar hjá þeim heiðurs- hjónum Þuríði og Þórhalli í Vogum. Sigurður E. Hlíðar er stríðnasti maður, sem ég hefi kynnst á lífs- leiðinni. Tók hann farþegana fyrir einn af öðrum, byrjaði á kaupa- manninum á Fosshól. „Hvað átt þú að gera á Fosshóli?“. Ég á að keyra bíl,“ er svarað. „Hefur þú meira- próf?“ „Nei, það hefi ég ekki og tel ekki að það þurfi meira próf til að sofa hjá, ef slíkt byðist.“ Næst tók Sigurður fyrir Björn á Brún. „Ert þú ekki oddviti, hreppstjóri eða eitt- hvað svoleiðis? A.m.k. veit ég, að þú ert framsóknarmaður í þessu Jón- asarveldi frá Hriflu og munt líkleg- ast verða Hrifluaðdáandi alla ævi.“ Björn var tregur til samræðna við þennan stæka íhaldsmann og nálg- uðumst við nú hliðið á Krossi í Ljósavatnshreppi, en það var með ekki ómyndarlegri hliðstólpum, en þversláin var nokkuð neðarlega, þannig að hjólið mitt, sem bundið var uppi á bílþakinu, rakst upp und- ir þverslána og beyglaðist smáveg- is. Áfram var nú haldið og blasti nú við brúin yfir Skjálfandafljót og þá segir Sigurður við mig: „Strákur, nú fer hjólið þitt alveg, nú í fljótið.“ II. Á Breiðumýri skildu leiðir, ég tók hjól mitt og þann eina farangur, sem ég ætlaði að hafa með mér í Voga, en það var fótbolti nr. 5, stór og harður. Ferðatösku mína skildi ég eftir á Breiðumýri og tók Illugi Jónsson (1909–1989) frá Reykjahlíð hana, er hann kom til baka úr kaupstaðarferð til Húsavíkur um kvöldið. Reið ég nú af stað á hjóli mínu, sem var þýskt af Bauergerð, hinn besti gripur. Sóttist mér ferðin vel, þar til komið var upp á Mývatnsheiði, þá hvessti svo gríðarlega við Más- vatnið, að á Brattásnum stóð hjólið næstum því lá- rétt upp í vindinn, þar sem ég hugðist leiða það. Skammt fyrir ofan Hellu- vað mætti ég fyrsta mal- arflutningabílnum, en það var Þ-2, en hann átti Ósk- ar Illugason (1913–1990) frá Reykjahlíð. Það var verið að bera ofan í veginn frá Álftagerði upp á Mý- vatnsheiði. Höfðu 3 eða 4 bílstjórar vinnu við þenn- an akstur. Einnig fékk ég far með öðrum malarbíl stuttan spöl, en frá Skútu- stöðum hjólaði ég alla leið í Voga og fögnuðu Vogungar mér vel og lengi, en þó gladdi fótboltinn þá enn meir. III. Ekki rættist spá Sigurðar E. Hlíðar um ævarandi fylgispekt Björns á Brún við Jónas á Hriflu, svo sem um getur í kafla I. Hinn 30. júní 1946 voru haldnar alþingiskosn- ingar hér á landi og voru þessir í framboði í Suður-Þingeyjarsýslu: Jónas Jónsson frá Hriflu (1885– 1968) fyrir Framsóknarflokkinn. Björn Sigtryggsson bóndi á Brún (1889–1956) fyrir Framsóknarflokk- inn. Jónas H. Haralz hagfræðingur (f. 1919) fyrir Sósíalista- flokkinn. Bragi Sigurjónsson kennari (1910–1995) fyrir Alþýðuflokkinn. Leifur Auðunarson skrifari (1907–1978) fyrir Sjálfstæðisflokk- inn. Miðstjórn Fram- sóknarflokksins hafði valið Björn á Brún sem frambjóðanda flokksins og fór Ey- steinn Jónsson (1906– 1993) norður til þess að banna með- limum flokksins að kjósa Jónas, þótt hann byði sig einnig fram sem framsóknarmaður. Birti Spegillinn skondna mynd af Eysteini, er hann hélt austur yfir Vaðlaheiði í róm- verskum stríðsvagni, mjög sigur- viss, en þá birtist lítill drengur í engilslíki fyrir ofan hann og mælti: „Minnstu þess, að þú ert bara mað- ur.“ Úrslit kosninganna urðu þau, að Jónas sigraði með yfirburðum, hlaut 866 atkvæði, en Björn aðeins 541. IV. Einar G.E. Sæmundsen (1917– Gömul ferðasaga Fosshóll og gamla brúin yfir Skjálfandafljót. Eftir Leif Sveinsson Sigurður Lúther Vigfússon vert, til hægri, ásamt Jóni Haraldssyni, bónda á Einarsstöðum. Jólaspegillinn 1946. Eysteinn Jónsson í sigur- vagni á leið yfir Vaðlaheiði. Kristján Kristjánsson á B.S.A. Sigurður E. Hlíðar Leifur Sveinsson

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.