Morgunblaðið - 05.09.2004, Page 45
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 45
Samband hennar við frændfólkið í
Bolungarvík var alla tíð mikið og gott.
Hún bjó erlendis í 43 ár en kom alltaf
reglulega heim og oftast kom hún þá í
Víkina sína sem hún batt svo mikla
tryggð við. Doddý og Kalli voru jafn-
aldrar og miklir mátar. Þegar hann
veiktist 1985 og fór í mikla aðgerð til
London, kom hún til þeirra og var hjá
þeim, sem var ómetanlegt fyrir alla.
Þegar ég kom til London var ég með
íslenskan mat. Hún ljómaði og naut
þess að borða íslenska matinn og fá
fréttir að heiman.
Silla mín þakkar ykkur öllum fyrir
móttökurnar og dvölina í Houston
1983 og 1986.
Elsku Vinný Rósa, Linda, Jón,
Dagga og fjölskyldur. Höddi, Grétar
og fjölskyldur. Missir ykkar er mikill.
Guð gefi ykkur styrk á erfiðum tím-
um. Megi minningin um yndislega
konu lýsa ykkur um ókomin ár. Elsku
frænka mín. Þegar við töluðum síðast
saman fyrir um það bil mánuði sagð-
ist þú vera tilbúin að fara. Svo róleg
og sátt við alla og viss um endurfundi.
Við fjölskyldan þín í Bolungarvík
kveðjum þig með söknuði að sinni og
biðjum Guð að geyma þig. Við
sjáumst síðar. Minning þín mun lifa
með okkur um ókomin ár.
Kristný Pálmadóttir.
Elskuleg systir og mágkona,
Oddný Esther Magnúsdóttir Ceris-
ano (Doddý), er látin. Þó hún hafi átt
við erfið veikindi að stríða og vitað
væri hvert stefndi var vonin þó eftir,
vonin um að ef til vill myndi henni
batna, og vonbrigðin voru erfið við-
ureignar.
Þau ljós sem skærast lýsa,
þau ljós sem skína glaðast
þau bera mesta birtu
en brenna líka hraðast
og fyrr en okkur uggir
fer um þau harður bylur
er dauðans dómur fellur
og dóm þann enginn skilur.
En skinið loga skæra
sem skamma stund oss gladdi
það kveikti ást og yndi
með öllum sem það kvaddi.
Þótt burt úr heimi hörðum
nú hverfi ljósið bjarta
þá situr eftir ylur
í okkar mædda hjarta.
(Friðrik Guðni Þórleifsson.)
Minningar streyma fram í huga.
Doddý að heilsa við komu til Íslands:
Faðmlög, fögnuður, gleðibros í aug-
um, kossar beint frá hjartastað.
Doddý að kveðja við brottför til Am-
eríku, þar sem hún bjó: Söknuður en
fyrirheit um endurfundi. Hún kom ár-
lega til Íslands. Eiginmaður hennar
Vinny og börn þeirra létu ekki sitt eft-
ir liggja að styðja hana í þeirri við-
leitni því oftast komu þau með henni.
Þá var oft glatt á hjalla.
Doddý unni Íslandi og hlúði að vin-
áttu við ættingja og vini svo af bar.
Hún hafði ljúft viðmót, sýndi ávallt
hjálpsemi og ástúð, þannig að manni
gat ekki annað en liðið vel í návist
hennar. Hafi hún þökk fyrir allt sem
hún var okkur öllum í fjölskyldunni.
Við vottum Vinny, börnum þeirra,
tengdabörnum og barnabörnum okk-
ar dýpstu samúð. Blessuð sé minning
hennar.
Grétar og Gréta.
Fleiri minningargreinar um Odd-
nýju Esther Magnúsdóttur Ceris-
ano bíða birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga. Höfundar
eru: Sigríður Hannesdóttir, Martha
og Karvel Pálmason, Svana Jós-
epsdóttir, Áslaug Guðbrandsdóttir,
Helga Guðbrandsdóttir (Lissa).
ÚTFARARSTOFA
HAFNARFJARÐAR
Flatahrauni 5A, sími 565 5892
ÚTFARARSTOFA ÍSLANDS
Símar 581 3300 - 896 8242
Allan sólarhringinn - Áratuga reynsla
Suðurhlíð 35 — Fossvogi — www.utforin.is
Sverrir Olsen,
útfararstjóri.
Sverrir Einarsson,
útfararstjóri.
Kistur - Krossar
Prestur - Kirkja
Kistulagning
Blóm - Fáni
Val á sálmum
Tónlistarfólk
Sálmaskrá
Tilk. í fjölmiðla
Erfisdrykkja
Gestabók
Legstaður
Flutningur kistu á
Komum heim til aðstandenda ef óskað er
Bryndís Valbjarnardóttir,
útfararstjóri.
milli landa og
landshluta
Landsbyggðar-
þjónusta
Baldur Frederiksen,
útfararstjóri.
Guðmundur Þór
Gíslason,
útfararstjóri.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýju við andlát og útför elskulegrar
eiginkonu minnar, móður okkar, tengdamóður,
ömmu og langömmu,
ARNBJARGAR JÓNSDÓTTUR
(Ebbu),
Klapparstíg 1,
Reykjavík,
áður Kárastíg 15, Hofsósi.
Gunnar Geir Gunnarsson,
Jóna Þórðardóttir, Kristján Arason,
Gunnar Geir Gunnarsson,
Þröstur Viðar Gunnarsson, Kristín Bergmann,
Pálína Sif Gunnarsdóttir, Einar Marteinsson,
barnabörn og barnabarnabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra, sem sýndu
okkur samúð og hlýhug við andlát og útför
bróður okkar og mágs,
GUÐNA KÁRASONAR
frá Presthúsum
í Vestmannaeyjum.
Jón Trausti Kárason, Bjarghildur Stefánsdóttir,
Kári Þórir Kárason, Anna Eiríksdóttir,
Guðríður Svala Káradóttir.
Ástkær eiginmaður minn, faðir okkar, tengda-
faðir, afi og langafi,
VILHJÁLMUR S. V. SIGURJÓNSSON,
lést á heimili sínu Hlaðbrekku 20, Kópavogi,
miðvikudaginn 1. september sl.
Útförin fer fram frá Fossvogskirkju miðviku-
daginn 8. september nk. kl. 10.30.
Blóm og kransar vinsamlegast afþakkaðir, en
þeim, sem vilja minnast hans, er bent á Heima-
hlynningu Krabbameinsfélagsins.
Erla Bergmann Danelíusdóttir,
Sverrir Bergmann, Soffía Guðmundsdóttir,
Heimir Bergmann,
Bragi V. Bergmann, Ingibjörg S. Ingimundardóttir,
Guðrún Bergmann, Kolbeinn Reynisson,
Pálmi Bergmann, Guðrún Linda Jónsdóttir,
Bjarni V. Bergmann, Guðrún María Helgadóttir,
Vilhjálmur H. Vilhjálmsson, Aldís Tryggvadóttir,
Vilhelmína S. Vilhjálmsdóttir,
afa- og langafabörn.
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við fráfall ástkærrar eigin-
konu, móður, tengdamóður, ömmu, lang-
ömmu og systur,
DÓRU GUNNFRÍÐAR
BRYNJÓLFSDÓTTUR,
sem lést miðvikudaginn 18. ágúst sl.
Útförin fór fram í kyrrþey að ósk hinnar látnu.
Halldór Ó. Stefánsson,
Bára Halldórsdóttir,
Brynja Halldórsdóttir
og fjölskyldur.
Elskulegur faðir okkar, tengdafaðir, afi og
langafi,
ERLENDUR EINARSSON
múrarameistari,
Tjarnarstíg 9,
Seltjarnarnesi,
sem lést þriðjudaginn 31. ágúst, verður jarð-
sunginn frá Fossvogskirkju mánudaginn
6. september kl. 13.30.
Blóm og kransar eru afþakkaðir.
Einar Erlendsson, Turid Erlendsson,
Erla Erlendsdóttir, Bragi Guðmundsson,
Árni Erlendsson, Inga Hrönn Pétursdóttir,
Snorri Erlendsson, Hanna Erlendsson,
Sigrún Erlendsdóttir, Jón Ingi Haraldsson,
Helgi Erlendsson, Lilja Brynjarsdóttir,
barnabörn og barnabarnabörn.
Ástkær móðir okkar, tengdamóðir, amma og
langamma,
HANSÍNA MARGRÉT BJARNADÓTTIR
(Haddý),
Suður-Reykjum 3,
Mosfellssveit,
sem lést föstudaginn 27. ágúst, verður jarð-
sungin frá Lágafellskirkju þriðjudaginn 7. sept-
ember kl. 15.00.
Ásta Jónsdóttir, Ragnar Björnsson,
Bjarni Ásgeir Jónsson, Margrét Atladóttir,
Kristján Ingi Jónsson, Einar Bogi Sigurðsson,
Baldur Jónsson, Hugrún Svavarsdóttir,
barnabörn og langömmubörn.
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og hlýhug við andlát og útför móður
okkar, tengdamóður og ömmu,
ÞÓRU SVÖNU SVEINBJÖRNSDÓTTUR,
Klapparstíg 7,
Reykjavík.
Sérstakar þakkir til starfsfólks deildar 13-G á
Landspítala við Hringbraut.
Sigrún Sigurðardóttir, Hermann Ólason,
Gylfi Sigurðsson, Súsanna Jónsdóttir
og ömmubörn.