Morgunblaðið - 05.09.2004, Blaðsíða 57
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 57
†mis starfsmanna- og stéttarfélög
veita styrki vegna dansnámskei›a.
Fame
Mambó
Tjútt
Freestyle
Salsa
Brú›arvals
Barnadansar
Samkvæmisdansar
Sérnámskei› fyrir hópa
N‡justu tískudansarnir
Börn – Unglingar – Fullor›nir
Dansrá› Íslands | Faglær›ir danskennarar Bolholti 8 | 105 Reykjavík | sími 553 6645 | fax 568 3545 | dans@danskoli.is | www.dansskoli.is
VI‹ BJÓ‹UM
UPP Í DANS
Innritun og
uppl‡singar alla
daga kl. 12–19
í síma 553 6645
e›a me› pósti til
dans@dansskoli.is
Ein helsta rokkhátíð Evrópuer Airwaves-tónlistarveislansem haldin verður í mið-borg Reykjavíkur 20. til 24.
október næstkomandi. Dagskrá há-
tíðarinnar þetta árið er betri en
nokkru sinni og nægir að nefna The
Shins, Hood, Hot Chip, Adem, Four
Tet, Non Phixion, Kid Koala, To
Rococo Rot og Radio 4 til sann-
indamerkis til viðbótar við fjölmarg-
ar íslenskar sveitir sem standa þeim
erlendu síst að baki. Heimildir eru
fyrir því að fleiri forvitnileg nöfn
eigi eftir að slást í hópinn, þó varla
sé þörf á því.
Innblástur yfir hafið
Áður hefur verið getið um það á
þessum stað hve hljómsveitir vestan
hafs hafa sótt innblástur til breskra
rokksveita fyrri tíma, til að mynda
Interpol og Delorean svo dæmi séu
tekin. Radio 4 er gjarnan nefnd í
sömu andrá og slíkar sveitir og þá
nefna menn hve henni svipar til
Clash. Má svo sem til sanns vegar
færa, því fyrstu skífur hennar draga
dám af fjörlegu pönkuðu rokki og
pólitískur boðskapur sveitarinnar er
vinstrisinnaður, en sitthvað er ólíkt,
til að mynda er tónlistin dansrokk
en ekki eiginlegt pönk svo dæmi séu
tekin.
Liðsmenn Radio 4 eru þeir Anth-
ony Roman, sem spilar á bassa og
syngur, Tommy Williams, sem leik-
ur á gítar, og Greg Collins, sem
leikur á trommur.
Þeir Roman, Williams og Collins
byrjuðu að spila saman vorið 1999.
Þeir segja svo frá sjálfir að þeim
hafi þótt lítið varið í það sem menn
voru helst að fást við í rokki á aust-
urströnd Bandaríkjanna undir lok
tíunda áratugarins, en þeir eru allir
frá Long Island. Þeir leituðu að inn-
blæstri aftur í tímann, litu aftur til
pönks áttunda áratugarins og sóttu
nafn á sveitina þangað: í lokalag
plötunnar mögnuðu Metal Box.
Öðrum þræði vildu þeir endurvekja
pönkandann en svo um leið forðast
eins og unnt væri að spila indie-
rokk.
Danstónlist stúderuð
Fyrsta breiðskífan, The New
Song And Dance, kom út í maí fyrir
fjórum árum. Plötunni var ekki sér-
lega vel tekið en sveitin hélt sínu
striki, spilaði talsvert eftir að skífan
kom út og stúderaði danstónlist. Á
næstu plötu, stuttskífunni Dance To
The Underground, hafði rokkinu
miðað í átt að dansrokki, en laginu
var stefnt gegn Giuliani borg-
arstjóra New York og reglum sem
hann kom á um að ekki mátti dansa
við tónlist á skemmtistöðum og
krám nema viðkomandi staður hefði
sérstakt leyfi til þess – fyrir þeim
Radio 4-mönnum var það að dansa
því pólitískt athæfi.
Upptökur á næstu breiðskífu
Radio 4 hófust snemma árs 2001 og
við stjórnvölinn voru upptökumenn-
irnir frægu Tim Goldsworthy og
James Murphy, sem kalla sig DFA
og hafa meðal annars lagt gjörva
hönd á verk David Holmes, BS
2000, Rapture og Primal Scream
svo dæmi séu tekin.
Áður en tókst að ljúka við plötuna
urðu miklar sviptingar í New York
svo ekki sé meira sagt, þegar
hryðjuverkamenn réðust á tví-
turnana 11. september 2001. Árás-
anna sér og stað á plötunni sem var
í smíðum, en eftirköst árásanna áttu
líka eftir að hafa gríðarlega mikil
áhrif á rokklíf New York-borgar
eins og sést á gróskunni síðustu
þrjú árin, nefni sveitir eins og The
Rapture, Interpol, !!!, The Strokes
og Out Hud.
Afrakstur samstarfs DFA og
Radio 4 kom út í ársbyrjun 2002,
kallaðist Gotham og er mikil af-
bragðsplata. Þegar kom að því að
hefja tónleikahald til að fylgja plöt-
unni eftir gengu til liðs við Radio 4
slagverksleikarinn P.J. O’Connor og
hljómborðsleikarinn Gerard
Garone.
Þjóðinni stolið
Eins og vill gjarnan vera með
bandaríska framúrstefnu var Radio
4 mun betur tekið í Evrópu en
heimafyrir og spilaði víða um álf-
una út árið. Vinna við nýja plötu
hófst svo á síðasta ári og sú, Steal-
ing of a Nation, kemur út um þess-
ar mundir.
Roman, sem hefur gjarnan orð
fyrir sveitinni, hefur látið þau orð
falla í viðtölum að platan sé fyrst
og fremst um Bandaríkin og
Bandaríkjamenn; nafn hennar vísi
til þess hvernig sigrinum var stolið
í síðustu forsetakosningum, innrás-
arinnar í Írak og þess hvernig
stjórnvöld vestan hafs hafi varpað
fyrir róða öllu sem jákvætt sé og
gott í eðli Bandaríkjanna.
„Málum er svo komið að maður
stendur sjálfan sig að því að biðjast
afsökunar á því að vera Banda-
ríkjamaður þó þjóðin hafi í raun lít-
ið um það að segja sem gert er í
hennar nafni.“
Tónlist á sunnudegi
Árni Matthíasson
Pönkandinn
endurvakinn
Meðal hljómsveita sem leika hér á landi á
Airwaves-tónlistarhátíðinni er danspönksveitin
Radio 4. Hún sendir frá sér nýja breiðskífu um
þessar mundir.