Morgunblaðið - 05.09.2004, Síða 61
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 5. SEPTEMBER 2004 61
EINN ástsælasti dægurlaga-
söngvari sem þjóðin hefur átt,
Ragnar Bjarnason, fagnar um
þessar mundir 50 ára söngafmæli
sínu, auk þess sem hann verður
sjötugur 22. september.
Af því tilefni tók Ragnar sig til
og ákvað að gefa út nýja sólóplötu
með nýjum upptökum af gömlu
góðu standördunum og svara
þannig um leið þeim fjölda áskor-
ana sem reglulega berast honum.
Það sem meira er þá verður haldin
heljarinnar afmælisskemmtun á
Broadway 25. september nk. þar
sem Ragnar mun syngja og
skemmta í hópi góðvina sinna, sem
sungið hafa og leikið með honum í
gegnum tíðina.
Ragnar leggur nú lokahönd á
plötuna sem hann tók upp í upp-
tökusal FÍH. Nýja platan kemur
til með að heita Vertu ekki að
horfa, eftir laginu sem hann gerði
svo frægt hér um árið, og innihalda
14–15 sígild dægurlög, mörg af
þeim kunnustu lögum sem hann
hefur sungið og gert fræg á ferli
sínum, auk annarra frægra stand-
arda sem hann hefur svo ótal sinn-
um sungið inn í hjörtu landsmanna
á dansleikjum. Þótt upptökur séu
nær allar nýjar leituðust útsetj-
ararnir Þórir Baldursson, Árni
Scheving, Jón Sigurðsson, Sig-
tryggur Baldursson, Karl Olgeirs-
son, Einar Jónsson og Björn Thor-
oddsen eftir því að hafa
útsetningarnar sem sígildastar og
jafnvel reyndu að endurskapa
hljóminn sem var á upprunalegu
upptökunum.
Valinkunnur hópur flytjenda
leggur Ragnari lið á plötunni.
Sveitina hans skipa Sigurður
Flosason á saxafón og öðrum blást-
urshljóðfærum, Árni Scheving á
víbrafón, Vilhjálmur Guðjónsson á
gíturum, Jón Rafnsson á bassa,
Þórir Baldursson á hljómborðum
og Alfreð Alfreðsson á trommum.
Þá syngja félagar úr Karlakórnum
Fóstbræðrum með honum í nokkr-
um lögum á plötunni. Guðrún
Gunnarsdóttir bregður sér enn
einu sinni í hlutverk Ellyjar Vil-
hjálmsdóttur og syngur með
Ragnari „Heyr mína bæn“. Borg-
ardætur syngja bakraddir m.a. í
nýrri íslenskaðri útgáfu á gamla
rokkslagaranum „Rockin’ Robin“
sem Kristján Hreinsson hefur
samið texta við sem heitir „Jakk-
inn minn“. Þá leika Milljónamær-
ingarnir og Páll Óskar með Ragn-
ari á plötunni og annar gamall
Milli, Bogomil Font, bregður sér í
hlutverk Jóns bassa Sigurðssonar
og syngur með Ragnari lagið „Út í
Hamborg“. Og fleiri Millar koma
við sögu því Bjarni Arason og kona
hans Silja Rut Ragnarsdóttir
syngja bæði með Ragnari á plöt-
unni.
Í samtalið við Morgunblaðið seg-
ir Ragnar að allir þessir listamenn
og fleiri til muni koma fram á af-
mælissöngskemmtuninni á Broad-
way. „Um leið verða þetta útgáfu-
tónleikar fyrir plötuna og því verða
öll lögin af henni tekin og fleiri til.“
Þá er gaman að geta þess að
Sumargleðin síkáta mun koma
saman aftur við þetta tilefni; Ragn-
ar, Hermann Gunnarsson, Ómar
Ragnarsson, Þorgeir Ástvaldsson,
Bessi Bjarnason og Magnús Ólafs-
son en þeir hafa verið að taka lagið
saman undanfarið í undirbún-
ingnum fyrir þessi stóru tímamót í
lífi Ragnars Bjarnasonar og sögu
íslenskrar dægurtónlistar.
Tónlist | Ragnar Bjarnason fagnar tvöföldu stórafmæli
Ný plata og söng-
skemmtun á Broadway
Morgunblaðið/Árni Sæberg
Raggi Bjarna og Borgardætur í góðri sveiflu við upptökur á nýju plöt-
unni hans Ragga í FÍH á dögunum.
Sextíu og eins árs gamall áhorf-andi á tónleikum hjá Rod Stew-
art íhugar málshöfðun gegn söngv-
aranum eftir að hann sparkaði bolta
í höfuð á áhorfandanum. Vincenzo
Costa, sem er tengdapabbi plötu-
snúðsins Paul Oakenfold, þurfti að
fara strax á spítala eftir að Stewart
þrusaði boltanum
í hausinn á hon-
um undir lok tón-
leikanna en
Stewart hefur
lengi stundað
þetta, ekki að
sparka bolta í
höfuð áhorfenda
sinna, heldur að
láta nokkra vaða út í skarann undir
lok tónleika sinna.
Fólk folk@mbl.is
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 4, 6, 8 og 10.20
KRINGLAN
Sýnd kl. 12 og 2. Ísl tal.
KRINGLAN
sýnd kl. 5.50 8 og 10.20.
KRINGLAN
Sýnd kl. 3.45
KRINGLAN
Sýnd kl. 4, 6, 8 og 10. b.i. 12 ára
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 8 og 10.15. B.i 14 ára.
Þeir hefðu átt að láta
hann í friði.
ir f tt l t
í fri i.
Sló rækilega í gegn í USA
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 3.50 og 6. Ísl tal.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2, 5.50, 8 og 10.20.
ÁLFABAKKI
Sýnd kl. 2 og 4.
KRINGLAN
Sýnd kl. 12, 2, 4, og 6.
AKUREYRI
Sýnd kl. 6.
AKUREYRI
Sýnd kl. 8 og 10. B.i 14 ára.
KEFLAVÍK
Sýnd kl. 6, 8 og 10. b.i. 12 ára
AKUREYRI
Sýnd kl. 6, 8 og 10.b.i. 12 ára
MEÐ ÍS
LENSKU
TALI
Jason Bourne er kominn aftur og leitar
hefnda í frábærum hasartrylli.
Meiri hraði, meiri spenna og ofsafengin
átakaatriði.
HÁDEGISBÍÓ MIÐAVERÐ KR. 400 Á ALLAR MYNDIRKL. 12 Í SAMBÍÓUM, KRINGLUNNI
S.V. Mbl.
HP. Kvikmyndir.com
Kemur steiktasta grínmynd ársins
Kemur steiktasta grínmynd ársins
Julia Stilesli il
The
Ó.H.T Rás 3.