Morgunblaðið - 11.09.2004, Síða 11
FRÉTTIR
MORGUNBLAÐIÐ LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004 11
ÚR VERINU
„VERTÍÐIN hefur farið vel af stað
og byrjunin er svipuð og undanfarin
ár. Þó virðist minna af sandkola á
slóðinni en oft áður en þeim mun
meira af skarkola,“ sagði Karl Ólafs-
son, skipstjóri á dragnótabátnum
Erni KE, í samtali við Morgunblaðið í
gær. Dragnótaveiðar í Faxaflóa
máttu hefjast hinn 1. september en
jafnan er mjög góð veiði fyrstu daga
veiðitímabilsins.
Örn KE var með um 10 tonn að
jafnaði í róðri fyrstu þrjá dagana og
sagði Karl það viðunandi afla. Byrj-
unin væri þannig í góðu meðallagi í
samanburði við síðustu ár. „Reyndar
fáum við minna af sandkola en und-
anfarin ár en það var mjög góð sand-
kolaveiði í fyrra. Aftur á móti hefur
skarkolaflinn aukist mikið, svo mikið
að til vandræða horfir. Skarkolakvót-
inn er tiltölulega lítill og ef menn ætla
að láta kvótann duga út haustið er
ekki hægt að beita sér í skarkolanum.
Við reynum því að sækja meira í
sandkolann.“
Að sögn Karls hefur skarkolaafli í
Faxaflóa aukist jafnt og þétt undan-
farin ár en hann telur aflaheimildir
ekki hafa aukist til samræmis við
aflann. „Það var mjög léleg skarkola-
veiði í flóanum fyrir nokkrum árum.
Allra síðustu ár hefur aflinn hins veg-
ar aukist mikið og það á ekki aðeins
við um Faxaflóann, heldur hefur orðið
vart við meiri skarkola allt í kringum
landið. Það þarf að auka veiðiheim-
ildir til samræmis við aukinn afla.
Núna er skarkolakvótinn 5 þúsund
tonn en að mínu viti væri óhætt að
leyfa veiðar á að minnsta kosti 7 þús-
und tonnum.“
Flestir flýja skarkolann
Alls hafa 14 bátar leyfi til dragnóta-
veiða í Faxaflóa og voru að sögn Karls
allir nema tveir að veiðum í Garðsjón-
um í gær, þar sem jafnan fæst meira
af sandkola en skarkola. „Norðar í fló-
anum fá menn nánast eingöngu skar-
kola og þá flýja menn þaðan hingað
suður eftir, þar sem meira er af sand-
kola. En það er því miður minna af
sandkola núna en áður. Sumir telja að
hann sé seinna á ferðinni núna en það
er ekkert hægt að fullyrða um slíkt.“
Karl sagði kolann afar vel haldinn,
feitan og fallegan. Alls fást um 80
krónur að meðaltali fyrir kílóið af
sandkola og hefur verðið verið
óbreytt í mörg ár, að sögn Karls. Verð
á skarkola er nú í kringum 130 krón-
ur, sem er viðunandi verð að mati
Karls.
Meðalgóð byrjun
í Faxaflóanum
Morgunblaðið/Hafþór Hreiðarsson
Í aðgerð Örn KE fyrir utan höfnina í Keflavík eftir fyrsta dragnótaróð-
urinn í Faxaflóa á þessari vertíð. Vertíðin hefur farið vel af stað.
BÁTASMIÐJAN Seigla hefur smíð-
að nýjan bát af gerðinni Seigur
1160 sem hlotið hefur nafnið Matt-
hías SH og er í eigu Kristjáns Jóns-
sonar, útgerðarmanns á Hellis-
sandi.
Matthías SH er 14,9 brúttótonna
trefjaplastbátur sem gerður verður
út í krókaaflmarki. Hann er 11,6
metra langur og 3,6 metra breiður
og er fjórði báturinn af þessari teg-
und sem Seigla smíðar. Matthías
SH eru þó fyrsti báturinn sem er
með yfirbyggingu en hann búinn
beitningarvél frá Mustad. Í bátnum
er 650 hestafla Volvo-aðalvél og er
mesti ganghraði 30 sjómílur á
klukkustund. Í lest er rými fyrir
tólf 660 lítra fiskikör og íbúð er að-
staða fyrir þrjá menn. Þá er bát-
urinn búinn fellikili.
Mikill bátur
Kristján Jónsson útgerðarmaður
segist afar ánægður með nýja bát-
inn. „Þetta er mikill bátur og vel
búinn. Fellikjölurinn er sagður
gera mikið fyrir þessa báta, auka
bæði stöðugleika, draga úr reki og
gera bátana betri í andófi. Þá er vit-
anlega mikill munur að hafa bátinn
yfirbyggðan, það er öruggara fyrir
sjómennina og miklu þægilega, því
þá eru menn lausir við stöðuga
ágjöf í andlitið. Og það er mikil
framför að vera með beitningarvél
um borð í bát af þessari stærð. Við
kusum það frekar en að handbeita
til að fá að njóta línuívilnunar. Við
vildum ekki láta þvinga okkur til að
taka upp fornaldarvinnubrögð. Þá
gætum við alveg eins fengið okkar
árar líka.“
Kristján hefur verið til sjós í 40
ár og hefur verið lengi í útgerð,
gerði síðast út Þorstein SH frá Hell-
issandi. Hann segist hins vegar ætla
að fara að draga úr sjósókninni.
„Ég reikna með því að sonurinn
verði með þennan bát að mestu. En
ætli ég verði ekki með fyrst um
sinn, svona til að skóla til strákinn
og kenna honum réttu handtökin.“
Kristján fær bátinn formlega af-
hentan eftir helgi og gerir ráð fyrir
að sigla rakleiðis til heimahafnar á
Hellissandi og hefja veiðar eins
fljótt og auðið er.
Nýr bátur á Hellissand
Morgunblaðið/Alfons
Skipstjórinn Kristján Jónsson útgerðarmaður við nýja bátinn.
KFUM og K í Reykjavík fylgja vetr-
arstarfi sínu úr hlaði með hausthátíð
í félagsheimilinu að Holtavegi á
sunnudag. Að sögn Kjartans Jóns-
sonar, framkvæmdastjóra félagsins,
eru þó nokkrar nýjungar í starfinu í
vetur, en íþróttaiðkun og kórsöngur
er meðal þess sem í boði er.
„Við vorum að ráða listrænan
stjórnanda, Keith Reed, sem nú þeg-
ar hefur stofnað tvo kóra. Annars
vegar er kór fyrir 16–20 ára og síðan
gospelkór fyrir 20 ára og eldri,“ seg-
ir Kjartan. Ætlunin er að hans sögn
að vera með ýmiss konar listræna
tjáningu í kórnum fyrir yngri hóp-
inn, s.s. dans og leiklist auk hefð-
bundinna söngæfinga. Auk hinna
tveggja nýstofnuðu kóra er starf-
ræktur svokallaður TenSing-kór
fyrir unglinga á aldrinum 13–15 ára,
en þar er lögð áhersla á að vinna
með tónlist sem unglingar hlusta á.
Þá segir Kjartan að listrænn stjórn-
andi hafi þegar komið á fót tónlist-
arhóp til að hafa umsjón með viku-
legum samkomum sem eru klukkan
fimm á sunnudögum í félagsheim-
ilinu á Holtavegi. Að sögn Kjartans
er löng hefð fyrir öflugu tónlistar-
starfi innan fé-
lagsins, t.d. eigi
karlakórinn Fóst-
bræður rætur
sínar að rekja til
KFUM.
Möguleikar í
íþróttastarfi
„Enn ein nýj-
ung hjá okkur er
tilraun með fótboltadeild fyrir stelp-
ur og stráka. Við erum með fótbolta-
völl á Holtavegi og ætlum að bjóða
upp á fótbolta í tveimur flokkum, 9–
12 ára og 13–15 ára. Þetta er bara
tilraunastarfsemi en er mjög spenn-
andi.“
Kjartan segir að fyrir nokkrum
árum hafi um aldargamalt knatt-
spyrnufélag, sem upphaflega var
stofnað af Friðriki Friðrikssyni,
stofnanda KFUM og K á Íslandi,
verið endurvakið. Félagið heitir
Hvatur en gengur nú undir heitinu
Sportfélagið Hvatur og innan þess
rúmast einnig skák, blak, körfubolti,
borðennis og badminton svo eitthvað
sé nefnt. „Þarna sjáum við mögu-
leika í framtíðinni til að þróa meira
starf fyrir börn og unglinga,“ segir
Kjartan.
Þúsundir barna, unglinga og full-
orðinna taka þátt í starfi KFUM og
K og fyrir félagið starfar um 200
manns í sjálfboðavinnu. „Mjög víða
erum við inni í kirkjum eða safn-
aðarheimilunum og eigum félags-
heimili í Reykjavík, á Akureyri,
Akranesi og í Vestmannaeyjum,“
segir Kjartan sem er einn af um átta
starfsmönnum.
Kjartan kveðst hafa verið viðloð-
andi KFUM og K frá blautu barns-
beini. Hann starfaði við kristniboð í
Afríku og víðar um tveggja áratuga
skeið en hefur gegnt stöðu fram-
kvæmdastjóra félaganna síðastliðin
fjögur ár. „Veturinn leggst vel í mig.
Það er svo margt nýtt að gerast. Við
erum með þessum nýjungum að
reyna að ná til fleira fólks,“ segir
Kjartan.
Hausthátíðin á sunnudag stendur
frá klukkan 13–19. Heiðursgestur er
forseti Íslands, Ólafur Ragnar
Grímsson, en meðal þeirra sem fram
koma eru Jón Gnarr, Guðrún Gunn-
arsdóttir og Valgeir Skagfjörð og
Stoppleikhópurinn.
Listir og íþróttir á
dagskrá KFUM og K
Kjartan Jónsson
LANDSPÍTALI – háskólasjúkra-
hús (LSH) hefur sent blaðinu eft-
irfarandi athugasemd:
„Í frétt Morgunblaðsins sunnu-
daginn 5. september sl. var gefið í
skyn að tæknifrjóvgunardeild LSH
hafi verið lokað vegna sparnaðar-
aðgerða. Hið rétta er að á hverju
sumri hefur deildinni verið lokað
vegna sumarleyfa starfsmanna. Þeir
sögðu hins vegar upp störfum frá og
með 1. júlí og því var ljóst að deildin
tæki ekki til starfa aftur í sömu
mynd. Auk þess tilkynnti heilbrigð-
is- og tryggingamálaráðherra for-
stjóra LSH þann 2. júní að leyfi yrði
veitt til einkarekinnar tæknifrjóvg-
unarstöðvar og spítalanum var falið
að gera samning við hið nýstofnaða
fyrirtæki í samráði við ráðuneytið.
Í grein á síðu 18 í sama tölublaði
er enn fremur ýjað að því að biðtími
eftir þjónustu deildarinnar hafi
verði óeðlilega langur. Um 300 að-
gerðir hafa verið árlega. Það er
nokkuð undir afkastagetu deildar-
innar en hún hefur ráðist af op-
inberum fjárframlögum, ekki sér-
stökum aðgerðum stjórnenda
spítalans. Sagt er að um 200 manns
séu á biðlista en stór hluti þess hóps
hefur verið í venjubundnum und-
irbúningi og því á eðlilegum vinnu-
lista.“
Athugasemd frá
Landspítalanum
GRAFARVOGSDAGURINN verð-
ur haldinn hátíðlegur í dag með
veglegri dagskrá frá morgni til
kvölds, en rúmlega átta hundrað
manns hafa tekið þátt í undirbún-
ingi dagskrárinnar með einum eða
öðrum hætti. Annar laugardag-
urinn í september hefur verið fast-
ur hátíðisdagur Grafarvogsbúa
frá árinu 1988 og þegar ljóst var
dagurinn bæri í ár upp á 11. sept-
ember, sama dag og árásirnar
voru gerðar á tvíburaturnana í
New York, þótti við hæfi að þema
dagsins yrði vináttan.
Af því tilefni verður unnið vin-
áttulistaverk, sýndar verða mynd-
ir um vináttuna unnar af leik-
skólabörnum í hverfinu,
vináttutextar úr bókmenntunum
verða settir upp á spjöld af nem-
endum Borgarholtsskóla og í
Húsaskóla verða vináttutextar og
vináttuljóð fyrirferðarmikil í skól-
anum.
Dagskráin hefst kl. 8 með morg-
unkaffi í pottinum í Grafarvogs-
laug, en í framhaldinu mun séra
Lena Rós Matthíasdóttir stjórna
vatnsleikfimi. Boðið er upp á
sögugöngu um Keldnaholt og
Húsahverfi, helgistund við hjúkr-
unarheimilið Eir og opið hús í
Húsaskóla. Þórólfur Árnason
borgarstjóri ræsir Grafarvogs-
hlaup Fjölnis og Landsbankans kl.
11 og Stefán Jón Hafsetin, for-
maður hverfisráðs Grafarvogs, af-
hendir Máttarstólpann, verðlaun
fyrir framúrskarandi starf að fé-
lags og menningarmálum í Húsa-
skóla kl. 13.30. Seinni partinn
verður afhjúpað listaverk við
Gufunesbæinn til minningar um
síðustu ábúendur í Gufunesi, en
það voru hjónin Þorgeir Jónsson
og Guðný Guðlaugsdóttir.
Af öðrum viðburðum má nefna
að fjöldi hljómsveita og ein-
staklinga kemur fram á tónleikum
sem hefjast í íþróttamiðstöðunni
Dalhús kl. 16, listakonan Alda Ár-
manna sýnir verk sín í anddyri
Grafarvogslaugar og að vanda fer
fram Grafarvogsglíma. Tónlist-
armennirnir KK og Magnús Ei-
ríksson sjá síðan um að skemmta
Grafarvogsbúum á kvöldvöku
Grafarvogsdalsins, en dagskránni
lýkur með flugeldasýningu kl. 22.
Allar nánari upplýsingar um dag-
skrá Grafarvogsdagsins má nálg-
ast á slóðinni: www.midgardur.is.
Vináttan í fyrirrúmi
á Grafarvogsdeginum
Morgunblaðið/Golli
Hátíðarstemmning er jafnan á Grafarvogsdeginum sem íbúar fagna í dag.
TAFLFÉLAGIÐ Hellir verður
fulltrúi Íslands á Norðurlandamóti
taflfélaga sem fram fer á Netinu í
dag. Þetta er í fimmta sinn sem
keppnin fer fram og er Hellir móts-
haldari. Meðal keppenda eru sterk-
ustu taflfélög Noðurlandanna. Í liði
Hellis keppa auk annarra stórmeist-
ararnir Hannes Hlífar Stefánsson,
Helgi Áss Grétarsson og skákmeist-
arinn Stefán Kristjánsson. Mótið
hefst klukkan 11 og lýkur um 16 og
er m.a. hægt að fylgjast með því á
slóðinni: www.hellir.com/nordic2004.
Norður-
landaskák-
mót á Netinu
í dag