Morgunblaðið - 11.09.2004, Qupperneq 50
DAGBÓK
50 LAUGARDAGUR 11. SEPTEMBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
Hrútur
(21. mars - 19. apríl)
Þú munt líklega lenda í valdabaráttu við
einhvern í vinnunni í dag. Það þykjast
ansi margir vita allt í dag.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Það eru miklar líkur á einhvers konar
deilum í kringum þig í dag. Þetta getur
snúist um peninga eða bara hvað sem er.
Tvíburar
(21. maí - 20. júní)
Þetta er ekki rétti dagurinn til að ræða
alvarlega við maka þinn eða nánustu
vini. Það er mikil hætta á því að ein-
hverjum finnist að sér ráðist. Reyndu að
bakka áður en það hleypur harka í mál-
in.
Krabbi
(21. júní - 22. júlí)
Þú ert staðráðin/n í að hafa þitt fram í
rökræðum í dag. Þú gætir einnig laðað
að þér fólk sem er þannig stemmt. Ekki
eyða allri orku þinni í deilur um hluti
sem skipta ekki máli.
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst)
Þig langar til að verja peningum til
styrktar málstað sem skiptir þig máli.
Þú vilt þó alls ekki láta aðra segja þér
hvernig þú átt að fara að þessu.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.)
Það gætu orðið einhvers konar bilanir í
kringum þig í dag eð þá að hlutirnir
ganga bara ekki eins og þeir eiga að
gera. Gerðu þitt til að bæta úr þessu.
Vog
(23. sept. - 22. okt.)
Það er hætt við að þetta verði erfiður
dagur. Eitthvað í undirmeðvitund þinni
setur þig í varnarstöðu. Reyndu að slaka
á og forðastu að ráðast á aðra.
Sporðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þér finnst eins og einhver sé að reyna
þig í dag. Láttu ekki draga þig út í eitt-
hvað sem þú kærir þig ekkert um. Þú
þarft ekkert að sanna þig fyrir öðrum.
Bogmaður
(22. nóv. - 21. des.)
Þetta er ekki góður dagur til að takast á
við fulltrúa yfirvalda. Það er hætt við að
fólk misnoti vald sitt með einhverjum
hætti.
Steingeit
(22. des. - 19. janúar)
Þú munt líklega lenda í deilum um
stjórnmál, trúmál eða heimspeki í dag.
Fólk stendur yfirhöfuð fast á sínu.
Vatnsberi
(20. jan. - 18. febr.)
Það er mikil hætta á deilum í dag og því
er þetta ekki góður dagur til að skipta
sameiginlegum eignum. Aðstæður ættu
þó að breytast innan nokkurra daga.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Fólk er óvenju þrætugjarnt í dag og því
er þetta afleitur dagur til alvarlegra
samræðna við maka þinn og nána vini.
Reyndu bara að láta sem minnst fyrir
þér fara.
Stjörnuspá
Frances Drake
Meyja
Afmælisbörn dagsins:
Eru frjálslynd og umburðarlynd og sýna
sínum nánustu mikla ástúð.
Komandi ár getur orðið besta ár ævi
þeirra. Þau ættu því að freista þess að
láta drauma sína rætast.
Stjörnuspána á að lesa sem dægradvöl. Spár
af þessu tagi eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
Evrópumót ungmenna í Prag.
Norður
♠ÁD982
♥Á8
♦Á854
♣85
Vestur Austur
♠107653 ♠G
♥K32 ♥DG109
♦9632 ♦KG107
♣10 ♣KG43
Suður
♠K4
♥7654
♦D
♣ÁD9762
Evrópumót yngri spilara var haldið í
Prag fyrstu tíu daga ágústmánaðar.
Spilað var í þremur flokkum: ung-
mennaflokki (25 ára og yngri), skóla-
flokki (20 ára og yngri) og stúlknaflokki.
Pólverjar hlutu gullið í ungmenna- og
skólaflokki, en Austurríki vann í flokki
stúlkna.
Spilið að ofan kom upp í fyrstu um-
ferð mótsins og víða varð suður sagn-
hafi í þremur gröndum. Flestir fóru nið-
ur eftir hjartaútspil, en ekki þó Rússinn
Evgeni Rudakov. Hann fékk út hjartat-
vist. Hvernig myndi lesandinn spila?
Rudakov tók réttilega strax á hjarta-
ás, enda vildi hann ekki fá á sig tíg-
ulsókn. Hann svínaði svo laufdrottningu
í öðrum slag og tók eftir því að tían féll.
Margir hlömmuðu niður laufás í þessari
stöðu og glutruðu þannig spilinu niður,
en Rudakov var vandvirkari. Hann spil-
aði smáum spaða á drottninguna og
laufáttu úr borði. Austur lét lítið lauf og
Rudakov yfirtók áttuna með níu. Vestur
mátti fá slaginn, ef því var að skipta, en
eins og spilið lá fékk Rudakov verðlaun
fyrir nákvæmnina. Nían hélt og Ruda-
kov fríaði laufið. Þegar vörnin gat að-
eins tekið þrjá hjartaslagi var spilið
unnið: tveir á spaða, tveir rauðir ásar og
fimm slagir á lauf.
BRIDS
Guðmundur Páll Arnarson | dagbok@mbl.is
1
7
11
15
22
24
12
14
3
9
20
10
4
8
21
23
25
13
17
5
18
6
19
2
16
Krossgáta
Hægt er að kaupa 10 krossgátur á 600 kr. á mbl.is. Slóðin er: http://www.mbl.is/mm/f olk/krossgata/index.html
Lárétt | 1 sjóða, 4 feyskn-
ar, 7 reyks, 8 berja,
9 kraftur, 11 beitu,
13 vaxi, 14 hökur,
15 spýta, 17 hljómar,
20 duft, 22 haldast,
23 sorg, 24 blauður,
25 nagdýrs.
Lóðrétt | 1 ístruvömb,
2 höndin, 3 svara, 4 dýr,
5 auðlindir, 6 sefaði,
10 segl, 12 andi, 13 tímg-
unarfruma, 15 ganglimir,
16 styrk, 18 afls,
19 lítilfjörlegar,
20 skítur, 21 ræfil.
Lausn síðustu krossgátu
Lárétt | 1 svertingi, 8 lofum, 9 lagni, 10 mór, 11 staka,
13 afræð, 15 bratt, 18 stýra, 21 iðn, 22 glatt, 23 úrinn,
24 hnullungs.
Lóðrétt | 2 vifta, 3 remma, 4 illra, 5 gýgur, 6 slys, 7 hirð,
12 két, 14 fát, 15 bugt, 16 asann, 17 titil, 18 snúru,
19 ýring, 20 anna
Tónlist
Café Rósenberg | Hljómsveitin Hraun! flyt-
ur eigin tónlist kl. 23 en líður svo smám
saman út í tökulandið.
Grand Rokk | Stórsveit Nix Noltes og
Bennihemmhemm.
Nasa | Laugardaginn 11. september kl. 21 á
Nasa verður boðið á ókeypis tónleika með
Birni Thoroddsen og Givon-tríóinu, sem
leikur sígaunatónlist. Tónleikarnir eru sam-
starfsverkefni Alliance française, Jazz-
vakningar og franska sendiráðsins.
Myndlist
Gallerí + | Sýning Þorvaldar Þorsteins-
sonar, „Alltaf að mála“, verður opnuð í dag
klukkan 15 og stendur til 26. september.
Sýningin er opin laugardaga og sunnudaga
kl. 14–17 og á öðrum tíma eftir sam-
komulagi. Þar verður til sýnis og sölu mikið
úrval fjölbreyttra og aðgengilegra verka.
Mirale | Kjartan Guðjónsson opnar sýningu
á Veggnum í Mirale á laugardag. Kjartan
stundaði nám við Handíðaskólann 1942–
43, Art Institute of Chicago 1943–45 og
Accademia di Belle Arti í Flórens 1949 og
er einn úr upphaflega Septemberhópnum
svokallaða sem sýndi fyrst saman í Lista-
mannaskálanum.
Safn | Tvær sýningar opnaðar í dag. Ívar
Valgarðsson með ljósmyndir og glerverk
og Hollendingurinn Pieter Holstein með
glerverk.
Sundlaug Grafarvogs | Alda Ármanna
opnar málverkasýningu í anddyri Sund-
laugar Grafarvogs laugardaginn 11. sept-
ember. Sundlaug Grafarvogs býður upp á
morgunkaffi í heitu pottunum og ýmsar
uppákomur verða á íþróttasvæðinu.
Skemmtanir
Breiðin Akranesi | Á móti sól leikur. Þetta
er fyrsta ballið í rúma 3 mánuði á breiðinni,
en þar hafa orðið eigendaskipti og ýmsar
aðrar breytingar.
Búálfurinn | Gulli Reynis og Öddi Hjálmars
um helgina.
Catalína | Hamraborg 11. Hermann Ingi
skemmtir í kvöld.
Celtic Cross | Spilafíklarnir leika á Celtic
Cross á neðri hæðinni – á þeirri efri leikur
trúbadorinn Ómar Hlynsson. Frítt inn.
Classic Rock | Hljómsveitin Dúr-X.
Hressó | Dj Le Chef skemmtir fólki á
Hressó fram eftir morgni.
Nasa | Ný dönsk leikur.
Sjallinn, Akureyri | Vinir vors & blóma
leika í Sjallanum Akureyri.
Félagsstarf
Félag eldri borgara í Hafnarfirði | Pútt á
Ásvöllum kl. 10 til 12.
Hæðargarður 31, félagsmiðstöð | Út í blá-
inn – Fjölskylduganga Háaleitishverfis frá
Hæðargarði kl. 10. Húsið opnað kl. 9.40
Teygjuæfingar og vatn í boði. Starfið er op-
ið öllum. Sími: 568 3132.
Orlofsnefnd | húsmæðra í Kópavogi fer í
dagsferð um Árnessýslu, 18. september. Í
hádeginu verður snætt á Gullfossi og
kvöldverður á Hótel Valhöll, Þingvöllum.
Lagt af stað frá Sparisjóði Kópavogs,
Digranesvegi, kl. 9, mæting kl. 8.50. Uppl.
og skráning hjá Ólöfu, s. 554 0388 og
Birnu s. 554 2199/847 7061.
SONI | Society of New Icelanders invite
you to have fun with all the family at the
AUTUMN FEAST. This saturday 11th sept-
ember 19:30 Pot luck dinner, Top floor Al-
þjóðahús Hverfisgata 18. Don’t miss it !!!
Kl. 19:30–22.
SONI | Félag nýrra Íslendinga býður til fjöl-
skylduskemmtunar á haustfagnaði, laug-
ardaginn 11. september kl. 19.30 á efstu
hæð í Alþjóðahúsi, Hverfisgötu 18. Pott-
lukkukvöldmatur verður í boði gesta.
Kirkjustarf
Dómkirkjan | Barnasamkomur á kirkjuloft-
inu eru hafnar. Þær eru á messutíma kl. 11 á
sunnudögum. Næsta sunnudag eigum við
einnig von á fermingarbörnum og for-
eldrum þeirra til messunnar. Sjá nánar
heimasíðu www.domkirkjan.is.
Grafarvogskirkja | Haustferð eldri borgara
verður farin þriðjudaginn 14. sept. Lagt
verður af stað kl. 9 frá Grafarvogskirkju.
Farið verður að Skógum og minjasafnið
skoðað. Hádegisverður snæddur á safninu.
Komið verður við í Eden á leiðinni heim.
Þátttaka tilkynnt í síma 587 9070.
Laugarneskirkja | Hópur eldri borgara
stefnir í skemmtiferð til Vestmannaeyja á
vegum Laugarneskirkju. Kynningarfundur
verður haldinn í kirkjunni sunnudaginn 26.
september kl. 15.
Ráðstefnur
Heilsustofnun NLFÍ | verður með ráð-
stefnu dagana 16. til 17. september á Hótel
Örk í Hveragerði. Skráning á hnlfi.is/
loft2004. Fimmtudaginn 16. september kl.
22 verður kveikt á kertum vegna þeirra
sem talið er að látist af völdum reykinga á
næsta ári. Öllum velkomið að vera við at-
höfnina.
Íþróttir
Taflfélag Reykjavíkur | Laugardaginn 11.
september, býður öllum börnum og ung-
lingum 15 ára og yngri á ókeypis skákæf-
ingu í húsakynnum sínum að Faxafeni 12.
Boðið verður upp á pítsur og gos. Þessar
æfingar verða vikulega í vetur. Æfingin
hefst kl. 14 og stendur til kl. 17. Allir vel-
komnir.
Staður og stund
http://www.mbl.is/sos
JÓNAS Bragi Jóns-
son myndlistarmaður
opnar í dag kl. 14 sýn-
ingu sína í sal Ís-
lenskra myndlist-
armanna,
Hafnarstræti 16.
Sýninguna nefnir
Jónas Bragi „Iður“
en þar sýnir hann
skúlptúra og mynd-
verk úr kristalgleri og
öðrum glerefnum. Í
verkum sínum fæst
hann við að binda
anda og kraft nátt-
úruaflanna í rúm-
fræðileg form.
Sýningin verður síðan
opin klukkan 10–16
virka daga og 14–18
um helgar, en hún
stendur til 2. október.
Jónas Bragi er fædd-
ur í Hafnarfirði árið
1964 og hóf ungur að
fást við glerlist. Hann
lauk námi í skúlptúr-
deild Myndlista- og
handíðaskóla Íslands
1989 og stundaði
glerlistarnám í West
Surrey College of Art
& Design og í Ed-
inburgh College of
Art, þaðan sem hann lauk meistaranámi í
glerlist með sóma. Var verk hans „Öldur“
valið besta útskriftarlistaverk úr gleri á
Bretlandseyjum á sýningunni „Crystal
‘92“. Jónas Bragi hefur tekið þátt í fjölda
samsýninga víðs vegar um heim, t.d. í
Japan, Hollandi, Englandi, á Norðurlönd-
unum og víðar.
Andar náttúruaflanna bundnir 80 ÁRA afmæli. Ídag, 11. sept-
ember, verður áttræð
Kristrún Guðmunds-
dóttir. Hún tekur á
móti ættingjum og
vinum í dag frá kl. 15–
18 á jarðhæð í Ár-
skógum 8, Reykjavík.
Árnaðheilla
dagbók@mbl.is
Hlutavelta | Þær Eva Björg, Margrét
Björg og Una söfnuðu 7.754 kr. til
styrktar Rauða krossi Íslands.
Staður og stund á mbl.is.
Nánari upplýsingar um viðburði dagsins er að
finna á Stað og stund á forsíðu mbl.is.
Meira á mbl.is
Hlutavelta | Þessar ungu stúlkur
héldu nýlega flóamarkað á Akureyri til
styrktar Rauða krossi Íslands og söfn-
uðust 5.235 krónur. Þær heita Kristín
Rut Gunnarsdóttir, Fjóla Björk Krist-
insdóttir, Eydís Helena Leifsdóttir og
Thelma Rut Rögnvaldsdóttir.
Hlutavelta | Þessir ungu krakkar
héldu nýlega hlutaveltu og söfnuðu auk
þess flöskum til styrktar Rauða krossi
Íslands og söfnuðust 10.109 krónur. Þau
heita Katrín Jónasdóttir, Álfheiður Sig-
marsdóttir, Reimar Ingi Sigurbjörns-
son og Lilja Rós Sigurbjörnsdóttir.