Morgunblaðið - 15.10.2004, Page 4

Morgunblaðið - 15.10.2004, Page 4
4 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR SEX nemendur Lækjarskóla í Hafnarfirði, þau Kol- beinn, Gunnar, Brynhildur, Katrín, Gylfi og Diljá mótmæltu stöðunni í kjaradeilu grunnskólakennara og sveitarfélaga fyrir utan Alþingishúsið í gær. Þau sögðu við blaðamann Morgunblaðsins að í stað þess að lækka tekjuskatt ætti ríkið að láta sveitarfélögin fá meiri peninga. „Þannig gætu sveitarfélögin greitt kennurum hærri laun,“ útskýrði Kolbeinn. Annar í nemendahópnum sagði að einnig mætti leysa málið með því að lækka laun ríkisstjórnarinnar. Nemend- urnir hófu mótmælastöðuna klukkan tíu í gærmorg- un. Þeim var því orðið nokkuð kalt þegar blaðamað- ur hitti þau um eitt-leytið. Þau sögðu þó að Margrét Frímannsdóttir, þingmaður Samfylkingarinnar, hefði boðið þeim í kjötsúpu í matsal þingsins í há- deginu. Einnig hittu þau og ræddu við Steingrím J. Sigfús- son, formann Vinstri grænna, Hjálmar Árnason, þingflokksformann Framsóknarflokksins og Árna Magnússon félagsmálaráðherra. Morgunblaðið/Sverrir Grunnskólanemendur í Hafnarfirði mótmæltu stöðunni í kennaradeilunni fyrir framan Alþingi í gær. Hér ræða þeir við Árna Magnússon félagsmálaráðherra og sögðust ætla að mæta aftur með spjöldin eftir helgi. Mótmæla stöðunni í kjaradeilu FERÐAMÖNNUM fjölgar hér á landi á sama tíma og þeim fækkar í ýmsum nágrannalöndum. Þá hefur sætaframboð í farþegaflutningum stóraukist og einnig er aukning í gistirými og bílaleigu. Áhyggjur af neikvæðum áhrifum hvalveiða á fjölda ferðamanna hafa reynst ástæðulausar. Þetta var meðal þess sem kom fram í ræðu Einars K. Guð- finnssonar á ferðamálaráðstefnu á Kirkjubæjarklaustri í gær. Einar sagði góðan árangur ferða- þjónustunnar bera því vitni að hún hefði staðið sig vel í harðri alþjóð- legri samkeppni. Hann benti á að 2002 og 2003 hefði ferðamönnum fjölgað um 12% hvort ár um sig. Þró- unin fyrstu níu mánuði þessa árs gæfi ástæðu til að ætla að enn yrði metár í ferðaþjónustu. Meðal skýr- inga á þessum góða árangri taldi Einar vera gott samstarf á milli at- vinnugreinarinnar og hins opinbera. Mikil aukning á sætaframboði Framboð hefur aukist á flestum sviðum ferðaþjónustu, ekki síst í sætaframboði í flugi og ferju. Í fyrra var sætaframboð hjá Icelandair 1,7 milljón sæti en verður 1,85 milljón sæti í ár. Sagði Einar að á næsta ári yrði sætaframboð Icelandair 2.019.000 sæti. Þetta væri ríflega 300 þúsund sæta aukning frá í fyrra. Hjá Iceland Express yrði sætaframboð í ár 370 þúsund sæti móts við 176 þús- und sæti í fyrra, sem er nær tvöföld- un. Sætaframboð með Norrönu hefði aukist úr tæplega 27 þúsund sætum árið 2003 í 62 þúsund sæti árið 2004. Þá hefði gistirými og framboð á bíla- leigubílum einnig aukist. „Þetta er gríðarleg aukning og ánægjulegt er að sjá að hún kallar líka fram aukinn fjölda ferðamanna. Í tilfelli ferða- þjónustunnar hefur það orðið reynsl- an að aukning á framboði skapar for- sendur til aukinnar eftirspurnar, einkanlega þegar slíku er fylgt eftir með öflugri markaðssókn,“ sagði Einar. Áhyggjur vegna hvalveiða Hjólhýsum og tjaldvögnum fjölg- aði hér á landi um 360% frá 1994 þar til í fyrra. Einar sagði að í þessu fæl- ust tækifæri fyrir ferðaþjónustuna. Þá vék Einar að þeim áhyggjum sem ýmsir innan ferðaþjónustunnar hefðu af því að hvalveiðar væru hafn- ar á ný. „Tvö ár hafa nú liðið þar sem saman hafa farið hvalveiðar og hvalaskoðun. Nú höfum við fengið allmikla reynslu og hún er sem fyrr jafnan ólygnust. Því var haldið fram af ýmsum að ekki skipti máli hversu mörg dýr yrðu drepin eða hversu viðurhlutamiklar veiðarnar yrðu. Við það að fyrsti hvalurinn yrði skotinn væri skaðinn skeður. Nú geta menn endalaust deilt um þessi mál en eitt blasir við; á sama tíma og hvalveiðar eru stundaðar hér við land í tak- mörkuðum mæli, undir vísindalegu eftirliti, þá fjölgar ferðamönnum sem aldrei fyrr.“ Ferðamönnum fjölgar þrátt fyrir hvalveiðar                 !"# $   %#& '                  FERÐAÞJÓNUSTA bænda hlaut umhverfisverðlaun Ferðamálaráðs 2004 og voru þau afhent í gærkvöldi á lokahófi árlegrar ferðamálaráð- stefnu á Kirkjubæjarklaustri. Fékk Ferðaþjónustan verðlaunin fyrir að hafa fyrir skömmu uppfyllt viðmið Green Globe 21 um sjálfbæra þróun og hafa þar með náð öðru af þremur þrepum vottunarkerfisins. Verð- launagripurinn er ný hönnun eftir Aðalstein Svan Sigfússon myndlist- armann, unninn úr gabbrói og lerki. Frá árinu 2002 hafa Félag ferða- þjónustubænda og Ferðaþjónusta bænda haft það að markmiði að allir ferðaþjónustubændur taki upp um- hverfisstefnu innan ákveðinna tíma- marka. Stefnan er að því að ferða- þjónustubændur verði leiðandi afl í umhverfismálum á landsbyggðinni. Ferðamálaráð Íslands byggði val sitt á handhafa Umhverfisverð- launanna 2004 fyrst og fremst á markvissri umhverfisstefnu Ferða- þjónustu bænda, svo og góðri eftir- fylgni félagsins, starfsfólki þess og víðtækum áhrifum stefnunnar. Meginþema ráðstefnunnar var efnahagslegt gildi ferðaþjónustu. Fram kom í erindi Ásgeirs Jóns- sonar, hagfræðings KB banka og lektors við Háskóla Íslands, að í ferðaþjónustu, einkum í dreifbýli, lægi stærsti vaxtarbroddur í einni atvinnugrein á Íslandi. Morgunblaðið/Þorkell Ferðaþjónusta bænda hlýtur umhverfisverðlaun HEIMILI og skóli – landssamtök foreldra áforma að hvetja foreldra til að taka sér frí hluta úr degi í næstu viku til að verja tímanum með börn- um sínum og huga að líðan þeirra. Ætla samtökin að mælast til þess að vinnuveitendur gefi starfsfólki frí einn eftirmiðdag í næstu viku vegna þessa og verður dagurinn nánar aug- lýstur síðar. Að sögn Elínar Thorarensen, á skrifstofu Heimilis og skóla, hafa forsvarsmenn fjölmargra fyrirtækja haft á orði við samtökin að þreyta sé víða komin upp á vinnustöðum vegna verkfalls kennara. Ekki vinnufriður sumstaðar fyrir börnum „Fólk sinnir náttúrlega ekki vinnunni sinni af fullum hug hvort sem börnin eru eirðarlaus heima eða af því að það er ekki vinnufriður sumstaðar fyrir börnum. Þannig að þetta snertir bæði foreldra og fyr- irtæki í landinu og ekki síst börnin,“ segir Elín. Að sögn hennar ætla Heimili og skóli að vera sýnilegri í umræðunni á næstunni en fjölmarg- ar fyrirspurnir berast þeim frá for- eldrum sem spyrja m.a. hvað sam- tökin hyggist gera. „Við höfum fengið fyrirspurnir um hvort hægt sé að fara í einhverjar lagalegar að- gerðir, en verkfallsréttur er æðri öll- um öðrum rétti, eins og rétti barna til náms, þannig að hendur okkar eru bundnar að því leyti.“ Samtökin hafa ákveðið að skrifa menntamálaráðherra opið bréf þar sem skorað er á ríkisstjórnina og menntamálaráðherra að beita sér í deilunni, jafnframt því sem samtökin hvetja deilendur til að koma með til- slakanir í samningsgerðina. Bréfið er birt á heimasíðu samtakanna. „Við erum að vonast til að geta virkjað raddir foreldra betur og fá foreldra til að taka þátt í þessum að- gerðum,“ segi Elín og að hvetja þurfi foreldraráð og foreldrafélög til að þrýsta á sveitamenn um lausn. Heimili og skóli ætla að mælast til að foreldrar taki sér frí hluta úr degi Víða þreyta á vinnustöðum Reiðubúnir að veita öllum und- anþágu KENNARAR eru reiðubúnir að veita undanþágu fyrir allar sérdeildir ein- hverfra sé þess óskað – að því gefnu að allir kennarar sem að kennslunni koma verði kallaðir í skólana og settir á launaskrá. Að sögn Eiríks Jónsson- ar, formanns Kennarasambands Ís- lands, er ákvörðunin tekin af fulltrúa kennara í undanþágunefnd og er hún í samræmi við fyrri ákvörðun um að veita sérskólum undanþágu frá verk- falli. Eiríkur segir að eins og staðan sé í dag virðist lítill áhugi hjá sveitar- félögunum að bregðast við þessari ákvörðun. „Þeir vilja útfærslu sem býður upp á hættu á verkfallsbrotum og vilja ekki borga fólki full mánaðar- laun fyrir vinnu nema tryggt sé að það vinni örugglega alla vinnuna.“ Að sögn Eiríks eru sveitarfélögin einungis reiðubúin að greiða fyrir þann tíma sem sérkennarinn sinnir kennslu einhverfra sérstaklega, en sérkennari í almennum skólum kenn- ir að jafnaði einnig í almennri deild. Það vilji kennarar ekki fallast á og séu ekki reiðubúnir að samþykkja að sérkennari kenni börnum á tímum þar sem sérgreinakennari, t.d. í íþróttum eða hannyrðum, ætti að sjá um kennsluna. Kalla verði alla hlut- aðeigandi kennara í skólana sem fyrr segir. „Ég segi bara: ef sveitarfélögin eru ekki tilbúin að taka nokkra kennara inn til þess að kenna einhverfum börnum vegna þess að þau tíma ekki að borga kaup fyrir það þá verða þauað svara fyrir það út í þjóðfélag- ið.“ Um 40 einhverfir nemendur í sérdeildum án kennslu Fimm sérskólar hafa fengið und- anþágu frá verkfalli og ein sérdeild. Sérdeildir sem ekki fengu undan- þágu á fundi undanþágunefndar í fyrradag eru Fellaskóli, Hamraskóli, Digranesskóli og Síðuskóli á Akur- eyri, en um 7–8 nemendur eru í hverri deild. Þar sem sérdeildir eru ekki til staðar er einhverfum nemendum sinnt innan almenna skólans en þau sértilfelli hafa ekki fengið undanþágu. Kennarar á undanþágu haldi full- um mánaðarlaunum FORSVARSMENN kennara funduðu í gær með kennurum á Höfn í verkfallsmiðstöð kennara hjá Stéttarfélaginu Vökli, þar sem gerð var grein fyrir stöðu kjaradeilunnar. Kennarar eru á yfirreið um Austurland og verða fundir með kennurum í dag á Fá- skrúðsfirði, Reyðarfirði og Eg- ilsstöðum. Að sögn Finnboga Sigurðs- sonar, formanns Félags grunn- skólakennara, hafa forystu- menn úr Kennarasambandinu reynt eftir fremsta megni að funda með kennurum á lands- byggðinni frá því verkfall hófst og er röðin komin að Austur- landi. Baklandið jafntraust „Það er greinilegt að bak- landið er ennþá alveg jafn- traust og það var þegar at- kvæðagreiðsla fór fram í vor, menn eru ekkert að slá af, það kom mjög skýrt fram,“ sagði Finnbogi í samtali við Morgun- blaðið eftir fundinn. Hann seg- ir fundarhöld á borð við þessi skila miklu, forystumenn skynji stuðning félagsmanna og kennarar fái fréttir af samningamálunum með per- sónulegum hætti á þessum fundum. Fundir með kennur- um á Aust- urlandi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.