Morgunblaðið - 15.10.2004, Side 8

Morgunblaðið - 15.10.2004, Side 8
8 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Það styttist í það að frambjóðendurnir verði bara fjarstýrðir róbótar. Í skýrslu sem unninvar fyrir UNICEF(Barnahjálp Samein- uðu þjóðanna) og fjallar um efnahagslegar fram- farir og fátækt barna inn- an ríkja Austur-Evrópu, fyrrum Sovétlýðveldunum og Eystrasaltsríkjunum, kemur m.a. fram að at- vinnuástand innan þess- ara ríkja hafi ekki breyst þrátt fyrir bætt efnahags- ástand. Mikil fátækt er meðal íbúa þessara ríkja auk þess sem þeir glíma við ýmis félagsleg vanda- mál tengd breytingunni á samfélaginu eftir fall kommúnismans árið 1989. Flæði fíkniefna hefur aukist til muna, mansal hefur aukist vegna minni hafta milli landa en síðast en ekki síst hefur alnæmissmit- uðum fjölgað verulega frá 1989. Börn eru meðal þeirra sem verða hvað verst úti vegna þessara fé- lagslegu vandamála en eitt af markmiðum UNICEF er að skapa öllum börnum öruggt um- hverfi. „Líf barna á þessum svæðum er í dag töluvert ólíkt því sem foreldrar þeirra þekktu. Tækifæri eru fleiri, frelsi hefur aukist og fleiri valmöguleikar eru í boði. Á móti kemur að fátækt er meiri, mismunur hefur aukist og áhætta er mun meiri,“ segir í skýrslunni. Ófyrirséðar afleiðingar Philip O’Brien, Evrópufram- kvæmdastjóri UNICEF, sem staddur er á Íslandi til að kynna sér starfsemina hér, segir að fyrrgreind ríki verði oft út undan þegar kemur að umræðu um þró- unarmál. Enginn hafi getað séð fyrir þær afleiðingar sem komu í kjölfar hruns Sovétríkjanna fyrir 15 árum. Mikið hafi dregið úr mætti þjóðfélagsgeirans ásamt því að atvinnuleysi meðal ungs fólks jókst til muna. Það hafi orð- ið gjá á milli unga fólksins og samfélagsins. Hann segir bæði góðar fréttir og slæmar að finna í ofangreindri skýrslu. Góðu frétt- irnar séu þær að efnahagur þjóð- anna sé á uppleið en þær slæmu tengist ýmsum félagslegum þátt- um, s.s. mikið brottfall barna og unglinga úr skólum, aukinn fjöldi barna sem kunna ekki að lesa og skrifa. Það sé að mörgu leyti ekk- ert skrítið vegna þess að lítið sem ekkert fjármagn sé sett í skólana. Sumir þeirra séu án upphitunar yfir vetrarmánuðina og í sumum tilfellum vanti gler í glugga. Aukin útbreiðsla alnæmis „Það sem við gjarnan gleymum er að ein mesta útbreiðsla al- næmissmitaðra situr við þröskuld Evrópu,“ segir O’Brien og bætir því við að aukningin í Eistlandi einu og sér sé í kringum 300%. Hann segir unglinga byrja að stunda kynlíf yngri, eða í kring- um 14 ára aldur. Stærstur hluti þeirra, eða um 75%, noti svo eng- ar getnaðarvarnir sem segir sig sjálft að sé mjög alvarlegt mál. Nauðsynlegt sé að sporna við þessari þróun með aukinni fræðslu og forvarnarstarfi. O’Brien bendir á að ríki innan OECD veiti litla sem enga þróun- araðstoð til þessara ríkja. Það séu ekki síst Afríka og Asía sem séu í forgangi hvað varði slíka að- stoð. Einnig bendir hann á að fólk líti á ríkin sem hæf til þess að snúa sjálf við dæminu, en flest þessara ríkja eiga sér mikla sögu og arfleið. Hins vegar séu und- irstöðurnar í ríkjunum orðnar það veikburða að það sé orðið þeim ofviða að halda úti einfaldri félags- og heilbrigðisþjónustu. O’Brien telur ríkin eiga hvað mestan möguleika á viðsnúningi, pólitískt og efnahagslega séð, ef þau sameinist Evrópusamband- inu. Fleiri börn alast upp í fátækt Meðal þess sem er að finna í niðurstöðum skýrslunnar er að í níu af þeim ríkjum sem um er rætt búa 14 milljónir barna af 44 milljónum undir fátæktarmörk- um eða rétt tæpur þriðjungur. Óttast er, vegna aukinnar fæð- ingartíðni í fátækustu löndunum og minni fæðingartíðni í þeim efnameiri, að fleiri börn komi til með að alast upp í sárri fátækt. Ef litið er til talna á heimsvísu kemur m.a. í ljós að um 600 millj- ónir barna þróunarlandanna, eða um 30%, lifa á minna en 70 krón- um á dag. Um 11 milljónir þeirra deyja áður en þau ná fimm ára aldri eða um 30 þúsund á hverj- um degi. Efling mannúðar O’Brien segir að UNICEF á Íslandi geti lagt sitt af mörkum til þess að börn um allan heim fái þá umönnun og það örugga um- hverfi sem þeim beri. Það gerist fyrst og fremst með fjáröflun þar sem leitað sé til bæði fyrirtækja og stofnana til þess að styrkja hin margþættu verkefni UNICEF. En um þriðjungur heildartekna samtakanna kemur vegna fjáröfl- unar landsnefndanna og eru þær starfandi um allan heim. Í öðru lagi skiptir miklu að UNICEF á Íslandi sé góð rödd fyrir börn, og þá á hann við ekki bara hér á landi þar sem þau eigi sér öfl- ugan málsvara, en kjörorð sam- takanna eru: „Tryggjum hverju barni heilsuvernd, menntun, jafn- rétti, umhyggju. Eflum mannúð“. Fréttaskýring | Fátæk börn í A-Evrópu Undirstöðurnar veikburða Félagsleg vandamál ungs fólks hafa aukist mjög þrátt fyrir bættan efnahag Stasic er 11 ára og er frá Úkraínu. UNICEF einn stærsti og virtasti sjóður SÞ  UNICEF var stofnað árið 1946 og er einn stærsti og virtasti sjóður innan Sameinuðu þjóð- anna. Í dag starfa um 7 þúsund manns í 158 löndum á vegum UNICEF. Landsnefnd fyrir UNICEF á Íslandi var stofnuð í mars á þessu ári og er sjálfseign- arstofnun. Hún miðar að því að kynna Barnasáttmála Samein- uðu þjóðanna og styrkja hin margþættu verkefni UNICEF með fjáröflun. jonpetur@mbl.is KRAFTUR, stuðningsfélag ungs fólks sem greinst hefur með krabbamein, og aðstandendur fagna fimm ára afmæli um þessar mundir, en félagið var stofnað 1. október 1999. Af því tilefni verður blásið til göngu á morgun undir yfirskriftinni Göngum sólarmegin. „Félagið var á sínum tíma stofnað sem svar við þörfum þeirra ungu einstaklinga sem árlega greinast með krabba- mein,“ segir Daníel Reynisson, for- maður Krafts, en sjálfur greindist hann með eitlakrabbamein fyrir fimm árum og hóf þá að starfa með félaginu. Að sögn Daníels er Kraftur í til- efni afmælisins að kanna mögu- leikann á því að víkka starfssvið fé- lagsins með því að opna upplýsinga- og þjónustumiðstöð fyrir þá sem greinst hafa með krabbamein og er í samvinnu við IMG að vinna að við- skipta- og rekstraráætlun fyrir mið- stöðina. „Hugmyndafræðin er ný á Íslandi, en slíkar miðstöðvar hafa um árabil verið starfandi í ná- grannalöndum okkar. Grunn- hugmyndin er sú að sett verði á fót þjónustu- og upplýsingamiðstöð fyr- ir einstaklinga sem eru með eða hafa greinst með krabbamein. Mið- stöðin er einnig hugsuð fyrir að- standendur krabbameinsgreindra og almennt fyrir alla sem vilja leita svara við spurningum um krabba- mein. Miðstöðin yrði vettvangur fyrir einstaklinga sem vilja hittast og bera saman bækur sínar um reynslu og upplifun, en einnig vett- vangur fyrir fólk til að koma og sinna sjálfboðaliðastarfi til stuðn- ings fyrir aðra í sömu sporum.Við viljum byggja upp andrúmsloft þar sem fólki líður vel með að leita sér aðstoðar og gengur að upplýsingum vísum eða fær aðstoð við að afla þeirra.“ Upplýsingamiðlun mikilvæg Daníel leggur einmitt áherslu á mikilvægi upplýsingamiðlunarinnar, en í nýjasta tölublaði fréttablaðsins Krafts sem félagið gefur út er að finna viðtal við Jakobínu H. Árna- dóttur sem vann mastersritgerð um þarfir ungs fólk sem greinst hefur með krabbamein. Þar kemur fram að flestir vildu að útbúnar yrðu skýrar og handhægar upplýsingar um réttindi og bætur fyrir þá sem hafa greinst með krabbamein. Að sögn Daníels var útgáfa bókarinnar Lífs-Kraftur, sem út kom í fyrra, fyrsta skrefið í þá átt, en bókina má nálgast á útprentanlegu formi í pdf- skjali á vef Krafts auk þess sem henni er dreift ókeypis á hinum ýmsu stofnunum innan heilbrigð- iskerfisins. „En það er hægt sökum þess góða stuðnings sem við höfum fengið frá Símanum og VÍS, sem eru styrktaraðilar okkar, auk stuðn- ings Krabbameinsfélagsins og Styrktarsjóðs Oddfellowstúkunnar.“ Að sögn Daníels má nálgast allar nánari upplýsingar um starfsemi Krafts á vef félagsins á slóðinni: www.kraftur.org. Kraftur fagnar fimm ára afmæli með sólargöngu á morgun Draumurinn að koma á fót þjónustumiðstöð Morgunblaðið/Kristinn „Með blöðrusleppingunni í lok göngunnar viljum við hvetja fólk til að sleppa óttanum,“ segir Daníel Reynisson, formaður Krafts. KRAFTUR stendur fyrir göngu í Reykjavík á morgun undir yfirskriftinni „Göngum sólarmegin“. Lagt verður af stað frá Hallgrímskirkju kl. 14 og gengið niður Skólavörðustíg, Bankastræti, Austurstræti og endað á Ing- ólfstorgi þar sem flutt verður ávarp og 1000 blöðrum sleppt – einni blöðru fyrir hvern þann sem greinist með krabbamein á hverju ári. Að sögn Daníels er hugmyndin að göngunni komin frá Önnu Pálínu Árnadóttur söngkonu, en tilganginn með göngunni segir hann vera að fagna lífinu, gleðjast yfir því að fá að lifa á andartakinu núna eftir að hafa greinst með krabbamein og losa um þann ótta sem orðið krabbamein vek- ur. „En með blöðrusleppingunni viljum við hvetja fólk til að sleppa ótt- anum sem grípur einstaklinga þegar þeir greinast með krabbamein og benda þeim á að það eru til leiðir til að vinna með óttanum og vinna sig út úr óttanum. Einnig er ætlunin að auglýsa hversu margir eru lifandi á Ís- landi eftir að hafa greinst með krabbamein,“ segir Daníel. Að athöfninni lokinni verður boðið til afmælisveislu í Ráðhúsi Reykjavíkur. Ganga til að fagna lífinu

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.