Morgunblaðið - 15.10.2004, Page 18
18 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
ERLENT
bróðir Kristjáns tíunda, síðasta konungs Ís-
lendinga og nefndist upprunalega Karl
prins. Rithöfundurinn, Tor Bomann-Larsen,
fékk aðgang að skjalasafni hirðanna í Nor-
egi, Danmörku og Bretlandi. Upplýsingar
hans koma fram í öðru bindi sögu þeirra
Maud og Hákonar, Folket. Í bókinni er birt
mynd af Guy Francis, syni Laking, sem
fæddist árið 1875 og hann sagður sláandi lík-
ur Ólafi.
Eftir að Maud og Hákon höfðu verið gift í
sex ár var Maud lögð með leynd inn á dýrt
einkasjúkrahús við Welbeck Street í London
árið 1902. Um sama leyti varð hún þunguð
en hjónin höfðu lengi reynt að eignast barn.
Karl prins var um þetta leyti á skipi við
strendur Danmerkur en í Dagbladet kemur
þó fram að þau hafi hist einu sinni réttum
níu mánuðum áður en Ólafur kom í heiminn.
Er því ekki hægt að útiloka að Ólafur hafi
verið rétt feðraður. En fram kemur í skjöl-
um rithöfundarins að breska hirðin hafi
markvisst reynt að leyna öllum upplýsingum
um það hvernig Maud varð þunguð.
Hugsanlegt er að eiginmaðurinn hafi
veikst og orðið ófrjór nokkrum árum fyrr.
Er bent á dularfullan sjúkdóm sem hann
fékk í nokkurra mánaða ferð til Karíbahafs-
ins 1896. Ferðalagi hans þar er lýst svo að
það hafi einkennst af „allmiklu svalli“.
Quisling og faðerni Ólafs
Bomann-Larsen segir að þegar árið 1903
hafi verið orðrómur um það í Danmörku að
Karl prins væri ekki faðir Ólafs. Þá komst
rannsóknarnefnd, sem leppstjórn norska
nasistans Vidkuns Quislings, bandamanns
Hitlers, kom á laggirnar, að þeirri niður-
NORSKUR rithöfundur segist efast um að
Hákon Noregskonungur hafi verið líf-
fræðilegur faðir Ólafs konungs fimmta, að
sögn Dagbladet í gær. Er leitt að því líkur
að beitt hafi verið tæknifrjóvgun í London
árið 1902 og faðirinn hafi í reynd verið sir
Francis Laking, læknir Maud, eiginkonu
Hákonar. Hún varð drottning þegar eig-
inmaðurinn tók við konungdæmi í Noregi
1905. Einnig getur verið að sæðisgjafinn hafi
verið sonur læknisins en ljósmyndir sýna að
Ólafur var mjög líkur syninum.
Rithöfundurinn segir að hjónin hafi lengi
reynt án árangurs að eignast barn og ef til
vill hafi verið notað sæði úr lækninum og
beitt tæknifrjóvgun. Heimildarmenn segja
að slík tækni hafi verið á færi snjallra lækna
um þetta leyti.
Gamall orðrómur
Lengi hefur verið orðrómur á kreiki um
að Hákon konungur hafi ekki verið raun-
verulegur faðir Ólafs. Hákon var danskur
prins áður en hann var kjörinn Noregskon-
ungur í þjóðaratkvæðagreiðslu, hann var
stöðu árið 1943 að Maud hefði ekki alið Ólaf
heldur hefði verið um launbarn systur henn-
ar að ræða. Nú er hins vegar talið ljóst að
niðurstöðurnar hafi verið falsaðar til að
reyna að sverta Hákon og Ólaf sem flýðu til
Bretlands þegar Þjóðverjar lögðu Noreg
undir sig 1940. Bomann-Larsen segir að
skjöl sín sanni að Maud hafi fætt son 1903.
Bomann-Larsen sýndi norsku konungs-
fjölskyldunni í vor þær upplýsingar og gögn
um málið. Ekki er talið að það hafi áhrif á
norska stjórnskipun en hirðin ákvað samt í
ágúst að skýra Kjell Magne Bondevik for-
sætisráðherra frá málinu.
Aftenposten segir að Haraldur Nor-
egskonungur, sonur Ólafs, hafi sent frá sér
yfirlýsingu þar sem tilgátunni er vísað á bug
en sagt að sagnfræðingar eigi rétt á að túlka
söguna með sínum hætti. „Konungurinn hef-
ur ekkert í höndunum sem bendir til þess að
Ólafur konungur hafi ekki verið sonur Há-
konar konungs,“ sagði í yfirlýsingunni.
Ólafur Noregskonungur fæddist árið 1903
og var því tveggja ára gamall þegar Norð-
menn samþykktu í þjóðaratkvæði að taka
föður hans til konungs eftir að slitið var kon-
ungssambandi við Svía.
Karl var sonur Friðriks áttunda Danakon-
ungs. Maud eiginkona hans var prinsessa í
Englandi, dóttir Játvarðar sjöunda og Alex-
öndru drottningar.
Var Ólafur Noregskonungur rangt feðraður?
Gömul skjöl benda til að sæði úr breskum lækni
eða syni hans hafi ef til vill verið notað 1902 til
að móðir Ólafs, Maud, yrði barnshafandi
Ólafur fimmti sem
var konungur Nor-
egs 1957–1991.
Guy Francis Laking,
sonur læknisins sem
annaðist Maud.
SÉRSTAKT krúnuráð Kambódíu
kaus í gær Norodom Sihamoni prins
nýjan konung landsins en Sihamoni
er sonur Norodoms Sihanouks kon-
ungs, sem sagði af sér í síðustu viku.
Sihamoni hlaut einróma kosningu
eins og fyrirfram hafði verið gert ráð
fyrir, en Sihanouk hafði gert lýðum
ljóst að hann vildi að Sihamoni tæki
við af sér.
Konungsembættið í
Kambódíu gengur ekki
í arf og það eina sem
fram kemur í stjórn-
arskrá landsins, sem
sett var 1993, er að
konungur verði að vera
30 ára gamall og til-
heyra einni af hinum
þremur konunglegu
ættum. Að forminu til
komu því margir til
greina í valinu nú.
Sihanouk sagði af
sér í síðustu viku.
Hann hefur verið í
Kína frá því í janúar,
þar sem hann leitar sér
lækninga, en hefur
þegar heitið því að
veita syni sínum, Sih-
amoni, alla þá aðstoð
sem hann kann að
þurfa á að halda.
Hinn nýji konungur,
Sihamoni, er 51 árs
gamall og hefur eytt
meginhluta ævinnar
fjarri heimahögunum.
Hann hefur enga póli-
tíska reynslu og frétta-
skýrendur segja því að
hans kunni að bíða erf-
itt verkefni – jafnvel þó
að embætti konungs sé að mestu
valdalaust. „Ég vona að hann fái sér
góða ráðgjafa,“ segir Julio Jeldres,
sem skrifað hefur ævisögu Sihan-
ouks. Íbúar Kambódíu, sem flestir
harma mjög afsögn Sihanouks, virð-
ast þó reiðubúnir til að gefa hinum
nýja konungi tækifæri og sumir álíta
það jafnvel kost að konungurinn sé
óflekkaður af þeim átökum sem ein-
kennt hafa stjórnmálalíf Kambódíu
undanfarna áratugi.
Sihamoni lærði klassískan dans og
hefur helgað listagyðjunni líf sitt.
Hann fæddist 1953 og er sonur Sih-
anouks og Monineath drottningar.
Sihamoni hóf listferil sinn þegar
hann var aðeins 14 ára gamall en þá
lék hann aðalhlutverkið í Litla prins-
inum, bíómynd sem faðir hans fram-
leiddi. Og hann þótti lærdómsfúst
ungmenni með eindæmum. „Hann
vildi aldrei koma með mér á diskó-
tek eða á bar, hann vildi alltaf mun
frekar vera bara heima hjá sér, að
lesa bækur,“ segir til að mynda
frændi hans, Oum Daravuth.
Sihamoni lauk
menntaskólanámi í
Prag árið 1970 og hóf
árið eftir nám í dansi,
tónlist og leik-
húsfræðum. Hann
flutti seinna til Pyong-
yang í Norður-Kóreu
til að leggja stund á
kvikmyndagerðarnám
en var kallaður heim til
Phnom Penh í apríl
1976. Þá voru Rauðu
Khmerarnir komnir til
valda í Kambódíu og
var Sihamoni í stofu-
fangelsi í rúmt ár,
ásamt öðrum með-
limum konungsfjöl-
skyldunnar.
Þegar víetnamski
herinn var um það bil
að steypa stjórn Pols
Pots, leiðtoga Rauðu
khmeranna, árið 1979
var Sihamoni laumað
til Kína ásamt for-
eldrum sínum. Var
hann sérlegur aðstoð-
armaður Sihanouks
konungs á meðan hann
var í útlegð.
Árið 1981 flutti Sih-
amoni til Parísar og
varð þar prófessor í
klassískum dansi. Hann stofnaði eig-
in dansflokk, Deva-ballettinn, samdi
fyrir hann nokkur verk og fram-
leiddi tvær kvikmyndir. Hann var
síðan skipaður fastafulltrúi Kamb-
ódíu hjá Menningarmálastofnun
Sameinuðu þjóðanna (UNESCO) í
París árið 1993 og gegndi þeirri
stöðu þar til fyrr á þessu ári.
Nýr konungur Kambódíu er ógift-
ur og barnlaus. AFP hefur eftir aðila
sem þekkir til í konungsfjölskyld-
unni að Sihamoni sé nokkuð dynt-
óttur: „Hann getur verið mjög erf-
iður. Einn daginn er hann kannski
vingjarnlegur en þann næsta heilsar
hann þér ekki einu sinni. Hann hefur
skapgerð listamannsins.“
Norodom Sihamoni kjörinn konungur
Kambódíu í stað Norodoms Sihanouks
Stjórnaði áður
dansflokki í París
Norodom Sihamoni
’Hann geturverið mjög erf-
iður. Einn dag-
inn er hann
kannski vin-
gjarnlegur en
þann næsta
heilsar hann þér
ekki einu sinni.‘
Phnom Penh. AFP.
BRESKI ævintýramaðurinn Lloyd
Scott ætlar að hjóla þvert yfir Ástr-
alíu, alls um 4.350 kílómetra, á
þessu reiðhjóli frá árinu 1885.
Markmiðið er að safna sem svarar
190 milljónum króna fyrir börn sem
þjást af hvítblæði.
Scott er klæddur sem Sherlock
Holmes og með gerviyfirvarar-
skegg. Hann hefur áður keppt í
maraþonhlaupi í þungum kaf-
arabúningi og gengið eftir botn-
inum á Loch Ness í Skotlandi.
AP
Hjólað þvert
yfir Ástralíu
SEGJA má að endasprettur barátt-
unnar vegna bandarísku forseta-
kosninganna hafi hafist í gær en
frambjóðendurnir tveir, repúblikan-
inn George W. Bush og demókratinn
John Kerry, mættust í sjónvarps-
kappræðum kvöldið áður í þriðja og
síðasta skipti. Báðir héldu þeir Bush
og Kerry til Las Vegas í Nevada-ríki
eftir kappræðurnar og héldu þar
kosningafundi en á þeim tæpu þrem-
ur vikum, sem eftir lifa af barátt-
unni, má gera ráð fyrir að þeir verði
stöðugt á ferðinni í þeim ríkjum þar
sem mjótt er á mununum.
Sjónvarpskappræðurnar í fyrra-
kvöld fóru fram í Tempe í Arizona og
fylgdust tugmilljónir Bandaríkja-
manna með þeim Bush og Kerry tak-
ast á um innanríkismál; m.a. fóstur-
eyðingar, hjónabönd samkyn-
hneigðra og efnahagsmálin. Þjóðar-
öryggismál voru þó einnig á
dagskrá, rétt eins og í fyrri kapp-
ræðunum tveimur.
Bush sakaði Kerry m.a. um að
vera „lengst á vinstri kantinum“ í
bandarískum stjórnmálum en Kerry
gagnrýndi Bush fyrir að hafa leyft
Osama bin Laden að komast undan í
Afganistan. Þá sagði Kerry að þegar
Bush ræddi um mikilvægi ráðdeildar
í efnahagsmálum þá væri það eins og
að hlusta á Tony Soprano ræða um
lög og reglu. Var Kerry að vísa til
söguhetjunnar, höfuðpaurs í glæpa-
gengi í New Jersey, í sjónvarpsþátt-
unum Soprano-fjölskyldunni.
Kerry talinn hafa haft betur
Skyndikannanir bandarísku sjón-
varpsstöðvanna sem gerðar voru eft-
ir kappræðurnar sýndu að Kerry
þótti hafa staðið sig betur enn á ný,
en honum þykir almennt hafa tekist
betur upp en Bush forseta í kapp-
ræðunum þrennum. 52% sögðu að
Kerry hefði staðið sig betur, skv.
könnun CNN-sjónvarpsstöðvarinn-
ar, en 39% sögðu Bush hafa sigrað.
Endasprettur
kosningabarátt-
unnar hafinn
Las Vegas. AFP.
LÍTIL stúlka horfir í myndavél ljósmyndara Reuters-
fréttastofunnar við upphaf ramadan, föstumánaðar Ísl-
am, í Jakarta í Indónesíu í gær.
Sanntrúaðir múslímar mega á meðan ramadan stend-
ur yfir ekki neyta matar eða drykkjar og ekki heldur
njóta ásta eða reykja frá sólarupprás til sólarlags.
Indónesía er fjölmennasta múslímaríki í heimi, um 80%
238 milljóna manna, sem þar búa, eru Íslamstrúar.
Reuters
Við upphaf ramadan