Morgunblaðið - 15.10.2004, Page 27
Morgunblaðið/Ásdís
Í Ullarselinu á Hvanneyri er fjölbreytt úrval af allskyns prjónavörum og öðru handverki. Hefðbundnarlopapeysur og Borgarfjarðarpeysurnar eru áber-
andi, en inn á milli eru peysur þar sem sköpunargleðin
ein hefur ráðið ferðinni við hönnunina.
Oft er það bandið sjálft sem virkjar sköpunarkraft-
inn, en hópur kvenna, sem aðild eiga að Ullarselinu,
spinnur sjálfur band og prjóna úr því. Ullin er spunn-
in óþvegin og því er ullarfitan enn í henni.
Ingibjörg Jónasdóttir prjónakona segir fituna
virka sem besta handáburð. En þegar fitan fær að
vera áfram í ullinni þarf ekki að þvo flíkurnar.
„Bandið er svo lifandi að það hreinsar sig sjálft,
bæði af lykt og óhreinindum,“ segir hún. „Um leið
og búið er að þvo peysuna þarf að gera það aftur og
aftur. Ullarbandið sem er spunnið á rokk en ekki í
vél hefur oft svolítið ójafna litaráferð og þegar búið
er að prjóna úr því eru peysurnar oft yrjóttar. Það á
sérstaklega við um dökku litina. Stundum er notaðir
tveir litir saman, þá oftast grunnlitur með örlitlum
öðrum lit með. “
Þegar bandið er svona lifandi segir Ingibjörg að oft
komi hugmyndir um hvað skuli prjóna úr því um leið og
verið er að spinna. Hún benti á peysu sem hún hannaði
eftir að hafa skoðað tölur úr kindahorni. Út frá þeim var
bæði hönnunin og litirnir í peysuna valdir. Því sé erfitt að
gefa upp sérstakar uppskriftir af þessum peysum. Þarna er
leikið af fingrum fram.
HANDVERK | Borgarfjarðarpeysur
Bandið virkjar
sköpunarkraftinn
Hönnun: Tölurnar á peysunni eru úr kindahorni. Peysan
er hönnuð út frá tölunum og litirnir í peysuna eru valdir
með þær í huga.
asdish@mbl.is
Prjónaskapurinn: Ullin er spunnin
óþvegin og því er ullarfitan enn í henni.
MORGUNBLAÐIÐ FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 27
Evrópska vinnuverndarvikan
18.–22. október 2004
Byggjum á öryggi
Vinnuvernd á byggingarvinnustöðum
Dagskrá:
08:00–08:30
Skráning og morgunverður.
08:30–08:40
Setning Vinnuverndarvikunnar.
Árni Magnússon, félagsmálaráðherra.
08:40–08:55
Evrópska Vinnuverndarvikan, byggingarátak 2003-2004.
Erindi: Vinnueftirlitið.
08:55–09:20
Gæðastarf í byggingariðnaði, öryggis- og
heilbrigðisáætlun.
Erindi: Samtök iðnaðarins.
09:20–09:40
TR-mælir, tilraunaverkefni. Betri líðan – Bættur hagur.
Erindi: Samráðshópur um BB-verkefnið.
09:40–10:00
Afhending viðurkenninga til byggingarvinnustaða.
Fundarslit.
Fundarstjóri: Kristinn Tómasson.
Þátttökugjald kr. 1.500 (morgunverður innifalinn í verði).
Skráning á netfangið vinnueftirlit@ver.is eða í síma 550 4600.
Gefa skal upp nafn þátttakanda, nafn greiðanda,
heimilisfang og kennitölu.
Morgunverðarfundur 18. október 2004
Grand Hótel (Hvammur)
Verkefnishópur um Evrópsku vinnuverndarvikuna
Stundum getur verið erfitt að fábörn til að taka nauðsynleg lyfsem oftar en ekki eru bragð-
vond. Norskir hjúkrunarfræðingar
hafa tekið saman ráð handa for-
eldrum sem nýlega voru birt í blaðinu
VG í Noregi.
Hreinskilni og heiðarleiki foreldra
er mikilvægast í þessu sambandi því
það gefst ekki vel til lengri tíma að
plata börnin til að taka lyfin eða að
neyða þau til þess með því að halda
þeim. Foreldrar eiga að vera
ákveðnir því ábyrgðin liggur hjá
þeim.
Að sögn þeirra Kathleen Halvor-
sen og Heidi Sandersen, sem báðar
eru barnahjúkrunarfræðingar, geta
börn frá eins og hálfs árs aldri skilið
einfalda útskýringu á því að það er
mikilvægt fyrir þau að taka lyfin sín.
Eldri börnin skilja ennfremur vel or-
sakasamhengið.
Hjúkrunarfræðingarnir beina þeim
tilmælum til foreldra að þeir undirbúi
sig vel áður en þeir gefa lyfið: Verið
heiðarleg, reynið aldrei að plata barn-
ið til að taka lyfið, né að blanda því í
mat án þess að barnið viti af því.
Verðlaun og leikur
Segið barninu af hverju lyfið er
nauðsynlegt. Talið skýrt og bendið á
að læknirinn hafi sagt að þau eigi að
taka lyfið. Talið um hvernig á að taka
lyfið og sýnið t.d. með bangsa. Leyfið
barninu að prófa. Veitið barninu ör-
yggistilfinningu með því að það fái að
velja að einhverju leyti, t.d. hvort það
sitji í fanginu á mömmu eða pabba
þegar það fær lyfið.
Ef barnið mótmælir, er ágætt að
segja: „Ég sé að þú vilt þetta ekki, en
þú mátt ekki ákveða þetta. Ég ákveð
að þú eigir að taka lyfið þitt núna.“
Sýnið að þið hafið trú á að barnið geti
þetta. Börn taka eftir ef foreldrarnir
eru í vafa. Veitið verðlaun, eitthvað
sem barnið getur valið sjálft, leik-
fang, upplifun eða sælgæti.
Þegar foreldrarnir gefa lyfið mega
þeir gjarnan nota ímyndunarafl og
leik til að gera lyfjatökuna auðveldari
fyrir barnið. Lyfið getur t.d. verið
bensín á bílinn. Aðeins má halda
barninu ef það reynist nauðsynlegt.
Gefið barninu strax að drekka svo
bragðið hverfi sem fyrst. Ef barnið
spýtir lyfinu út úr sér, má gefa sum-
ar lyfjategundir aftur en aðrar ekki.
Um það verður að hafa samráð við
lækni. Hrósið barninu eftir á og sýn-
ið ánægju með að barnið gat þetta.
Talið um það sem gerðist og látið
barnið leika það með bangsanum.
Talið um næsta skipti og hvernig
hægt er að gera það auðveldara.
UPPELDI | Þegar erfitt er að gefa litlu barni lyf
Morgunblaðið/Ásdís
Aðferð: Reynið ekki að plata barnið til að taka lyfið.
Hreinskilni og heiðarleiki
DAGLEGT LÍF