Morgunblaðið - 15.10.2004, Page 28
28 FÖSTUDAGUR 15. OKTÓBER 2004 MORGUNBLAÐIÐ
UMRÆÐAN
Samsung SGH-X450
Expert, Skútuvogi 2, sími 522 9000 • www.expert.is
Opið virka daga frá kl. 11.00 - 18:30
Laugardaga frá kl 10.00 - 18.00
Sunnudaga frá kl. 13.00 - 17.00
Fallegur
3 banda sími
með hágæða skjá.
Allt til músaveiða
og fl ugnaveiða
Rafmagnsfl ugnabanar, límborðar,
fl ugnaljós o.fl .
Verslunin er staðsett á Selfossi
Opið mán.-fi m. 9-13,
föstudaga 9-18 og laugardaga 11-14
Gagnheiði 59 • meindyravarnir@meindyravarnir.is
www.meindyravarnir.is • s: 482 3337 & 893 9121
Fyrirtæki - stofnanir - heimili
!
"#$$
%&'&(&&
)** $
Í YFIRSTANDANDI verkfalli
kennara hefur ýmislegt sem varðar
menntun þeirra verið í umræðu, meðal
annars í dagblöðum.
Flestar þær fullyrð-
ingar sem fram hafa
verið settar eiga sér ef-
laust stoð í ókunnug-
leika þeirra sem um
fjalla, hugsanlega líka
gagnrýnislausu mati
fjölmiðla sem slá þeim
fram. Eftirfarandi upp-
lýsingar ættu að veita
skýringar á ýmsum
þeim atriðum sem
nefnd hafa verið.
Háskólamenntun
frá 1971
Nú er liðið nokkuð á
fjórða áratug frá því að
Kennaraháskóli Íslands
var stofnaður á grunni
hins gamla Kenn-
araskóla Íslands. Kenn-
aranám var þá flutt á
háskólastig og skipulagt
sem háskólanám. Að
sjálfsögðu hefur nám
við skólann breyst og
þróast á þessum áratugum. Nú er nám
almennra grunnskólakennara þriggja
ára háskólanám sem lýkur með B.Ed.-
gráðu. Kennsla fer ýmist fram í formi
fjölmennra fyrirlestra eða í fámennum
hópum þar sem eru á bilinu 12–30
stúdentar. Rannsóknir sýna að slík
kennsla skilar mun betri árangri en
nám sem byggist nær eingöngu á fjöl-
mennum fyrirlestrum.
Mikilvægi samvinnu
Það er rétt sem haldið hefur verið á
lofti að í Kennaraháskóla Íslands er
lögð áhersla á nána samvinnu nem-
enda innbyrðis enda á það við í al-
mennum grunnskólum ekki síður en á
öðrum vinnustöðum að samvinna um
verkefnin sem fyrir liggja er mikilvæg
forsenda þess að vel takist til. Þetta
vita stórfyrirtækin sem senda starfs-
menn sína unnvörpum á námskeið af
ýmsu tagi til að efla samvinnuhæfni
þeirra. Þetta vita þeir líka sem skipu-
leggja kennaramenntunina. Þess
vegna er lögð áhersla á að efla sam-
starfsfærni kennaranema og hæfni
þeirra í að taka tillit til annarra, stjórna
hópstarfi og taka þátt í teymisvinnu.
Mikil aðsókn að kennaranámi
Flogið hefur fyrir að lágt brottfall úr
kennaranámi staðfesti að námið sé
léttvægt og ekki sambærilegt við nám
t.d. í lögfræði þar sem brottfall er
verulegt. Í þessu sambandi er rétt að
ítreka að ekki er um að ræða að stúd-
entar skrái sig í nám við Kennarahá-
skólann eins og gert er í Háskóla Ís-
lands heldur er sótt um nám þar og
valið úr umsóknum.
Þrátt fyrir að skólinn hafi
stækkað mjög á und-
anförnum árum hefur á
sama tíma þurft að hafna
um helmingi umsækj-
enda um grunnskóla-
kennaranám ár hvert.
Nú í haust fengu inn-
göngu 49% þeirra sem
sóttu um nám á grunn-
skólabraut. Allmargir úr
þeim hópi hafa aflað sér
kennslureynslu sem mun
koma þeim til góða í
náminu. Auk þess eru
flestir sem velja að
stunda kennaranám
mjög öruggir um sitt
námsval og leggja
áherslu á að ljúka námi
sínu.
Löng starfsreynsla
og endurmenntun
eldri kennara
Þá hefur verið bent á að
hópur grunnskólakenn-
ara hefur ekki lokið háskólanámi.
Þetta er eðlilegt þegar horft er til þess
að enn eru starfandi kennarar sem
luku námi sínu áður en Kenn-
araháskólinn tók til starfa árið 1971.
Þeir hlutu bestu menntun sem bauðst
á sínum tíma. Þeim fækkar hins vegar
óðum, enda hafa þeir flestir um þessar
mundir nálægt 40 ára starfsreynslu að
baki og eru um það bil að ljúka mik-
ilvægu ævistarfi. Til þessa hefur löng
starfsreynsla, endur- og viðbótar-
menntun þessa fólks einmitt þótt eft-
irsóknarverð og því heldur kaldrana-
legt að væna einmitt þessa kennara
um vankunnáttu í sérgrein sinni.
Að lokum
Einkunnarorð Kennaraháskólans, Al-
úð við fólk og fræði, endurspegla þau
viðhorf sem skólinn hefur að leið-
arljósi. Skólinn er bæði starfsmenn-
taháskóli og rannsóknarháskóli, en
jafnframt háskóli nýsköpunar og
frjórra hugmynda, háskóli sem hefur
markvisst leitast við að þróa starf sitt
og laga það að nýrri tækni og breytt-
um kröfum. Þeir sem halda öðru fram
um starfsemi Kennaraháskóla Íslands
hafa greinilega ekki kynnt sér starf-
semi hans.
Sleggjudómar um
kennaramenntun
Elín Thorarensen fjallar
um kennaramenntun
Elín Thorarensen
’Nú er nám al-mennra grunn-
skólakennara
þriggja ára há-
skólanám sem
lýkur með
B.Ed.-gráðu.‘
Höfundur er kynningarfulltrúi
Kennaraháskóla Íslands.
Í DAG fer fram væg jarðarför á
þér, þar sem þú verður settur inn
mitt á meðal kerfiskalla og -kell-
inga í Hæstarétti. Fram að þessu
hefur þú getað sent skemmtileg
skítskeyti vítt og breitt út um all-
an bæ í jarðarfararammanum hjá
Mogganum.
Nú er þessu lokið og þykir okk-
ur það miður í Húnahópnum í
Vesturbæjarlauginni, þar sem við
þá höfum þau ekki lengur til að
rabba um og ræða.
Eins og þú veizt, þá eru 3 dóms-
stig í landinu. Héraðsdómur,
Hæstiréttur og Æstiréttur. Æsti-
réttur er kallaður til þegar for-
sætisráðherrann verður æstur yf-
ir niðurstöðu Hæstaréttar eins og
t.a.m. í Kvótadómnum og Ör-
yrkjadómnum. Þá hefur þú verið
kallaður til sem Háyfirdómari. Nú
er þessu meira að segja lokið líka.
Það var bara einn, sem vildi þig
á nýja staðinn – hinir 8 vildu ein-
hverja aðra. Vonandi lendir þú
ekki í einelti út af því.
En vertu ævinlega og gersam-
lega velkominn í innlit.
Pétur Þorsteinsson
Hæfilega til ham-
ingju, Háyfirdómari
Höfundur er prestur
Óháða safnaðarins.
Í DAG er 15. október, dagur sem
hefur sérstaka þýðingu í hugum
skotveiðimanna. Þennan dag hófust
rjúpnaveiðar á meðan þær voru
leyfðar. Hundruð veiðimanna fóru
út á landsbyggðina til veiða, áttu
þar ljúfar stundir með góðum fé-
lögum og voru þátttakendur í nátt-
úrunni en ekki áhorf-
endur.
6. október síðast lið-
inn tilkynnti umhverf-
isráðherra að rjúpna-
veiðar hæfust aftur
næsta haust. Af við-
brögðum manna í fjöl-
miðlum var ekki ann-
að að merkja en að
almenn ánægja væri
með þessa ákvörðun
ráðherra. Sem kunn-
ugt er var Skotveiði-
félag Íslands alfarið á
móti rjúpnaveiðibann-
inu, félagið taldi að réttara væri að
hefja strax virka veiðistjórnun á
rjúpu til framtíðar.
Samráð
Umhverfisráðherra, Sigríður Anna
Þórðardóttir, hefur haft náið sam-
starf við okkur og þó svo að við
hefðum kosið að hefja takmarkaðar
veiðar á rjúpu nú í haust föllumst
við á rök ráðherra. Í staðinn fyrir
að hafa takmarkaðar veiðar á rjúpu
nú í haust og næsta haust, og hefja
svo rjúpnaveiðar eftir nýju veiði-
stjórnunarkerfi haustið 2006, kýs
umhverfisráðherra að halda áfram
að friða rjúpuna í ár en hefja veið-
ar aftur haustið 2005, eftir nýju
veiðistjórnunarkerfi. Ekki er annað
hægt en að fallast á þessi rök, þar
sem lítill tími var til stefnu að
skipuleggja takmarkaðar veiðar nú
í haust. Ráðherra hefur beðið svo
kallaða rjúpnanefnd um að flýta
störfum sínum og koma með til-
lögur að veiðistjórnun á rjúpunni
innan tíðar. Eins og málum er nú
háttað fæst ekki annað séð en að
það ætti að vera hægt þar sem góð-
ur starfsandi er innan nefnd-
arinnar.
Sölubann
Þýðingarmikill þáttur í tillögum
nefndarinnar mun væntanlega
verða tillaga um að bannað verði að
selja rjúpur á almennum markaði, í
verslunum og á veitingastaði. Þess
má geta að víðast hvar í Evrópu og
í Bandaríkjunum er villibráð ekki
söluvara. Sú villibráð sem menn sjá
í verslunum og á matseðlum veit-
ingahúsa erlendis er í flestum til-
vikum öðru vísi villibráð en við
þekkjum hér á landi. Hér er um að
ræða dýr sem alin eru upp á
bændabýlum og svo sleppt út eða
látin ganga sjálfala í náttúrunni,
svipað og íslenska sauðféð. Þær
raddir hafa heyrst að sölubann sé
marklaust þar sem það muni kalla
á gengdarlaust svartamark-
aðsbrask. Við þessum rökum er
það að segja að ugglaust mun
verða eitthvað um slík viðskipti, en
reynslan frá t.d. Skot-
landi sýnir okkur að
eftir örfá ár fjara slík
viðskipti hægt út.
Nefna má að villtan
lax má í dag ekki selja
á almennum markaði í
Skotlandi. Sölubann
eru skýr skilaboð til
samfélagsins að
rjúpnaveiðar eiga
veiðimenn að stunda
sér til ánægju en ekki
til fjáröflunar.
Friðun
Síðast liðið ár var mikill vöxtur í ís-
lenska rjúpnastofninum. Skiptar
skoðanir eru um hvort þakka megi
þennan vöxt friðuninni, en stað-
reyndin er sú að því getur enginn
svarað. Til þess að fá rétta mynd af
áhrifum friðunarinnar hefði í raun
þurft að friða stórt svæði og leyfa
veiðar á öðru og bera síðan saman
árangurinn. Vissulega getur Skot-
veiðifélag Íslands ekki fullyrt að
friðunin hafi ekki borið árangur og
eigi einhvern þátt í aukningunni í
stofninum. Við teljum þó að minni
líkur séu á að svo sé, friðun rjúp-
unnar á seinustu öld gefur auk
þess ekki tilefni til þess. Þá sýna
rannsóknir Náttúrufræðistofnunar
að engin teljandi aukning hefur
orðið á þeim svæðum sem friðuð
hafa verið fram til þessa, m.a.s.
hefur orðið fækkun á friðuðum
svæðum en vöxtur á svæðum þar
sem veitt hefur verið. Sú ákvörðun
fyrrverandi umhverfisráðherra að
leggja til að friða rjúpuna í 3 ár
hefur því lítið gert annað en að
tefja um 2 ár að tekin verði í gagn-
ið virk veiðistjórnun á rjúpu til
framtíðar.
Áskorun til veiðimanna
Skotveiðifélag Íslands skorar á ís-
lenska skotveiðimenn að virða
rjúpnaveiðibannið. Þá skorar félag-
ið sömuleiðis á alla veiðimenn að
senda ávallt inn réttar upplýsingar
í veiðikortakerfið. Það er krafa
samfélagsins að veiðar úr villtum
dýrastofnum séu sjálfbærar, og til
að svo megi vera þurfum við að
hafa traustan gagnagrunn um
fjölda veiddra dýra. Þess vegna er
það í okkar þágu að veiðikortakerf-
ið sé ábyggilegt, og því betra kerfi
sem við höfum því meiri möguleika
eigum við á að stunda skotveiðar í
íslenskri náttúru um ókomna tíð.
Sátt um rjúpuna
Sigmar B. Hauksson skrifar
um rjúpnaveiðar ’Skotveiðifélag Íslandsskorar á íslenska skot-
veiðimenn að virða
rjúpnaveiðibannið.‘
Sigmar B. Hauksson
Höfundur er formaður Skotveiði-
félags Íslands.